Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1993 15 Svavar, sósíalismi ogsamkeppni Nýsamþykkt samkeppnislög verða vafalaust talin meðal merkustu laga 116. löggjafarþingsins sem nú situr. Þegar litið verður á sögu lagasetningarinnar á eftir að vekja athygli að þingmenn stjórnmála- flokka, sem áður töldu samkeppni af hinu illa, studdu frumvarpið. Eftir hrun Sovétríkjanna og hins miðstýrða stjómkerfis kommún- ismans blasir við öllum, jafnvel Svavari Gestssyni og Steingrími J. Sigfússyni, þingmönnum Alþýðu- bandalagsins, að miðstýring og verðlagshöft skila ekki árangri. Athafnamenn eins og Pálmi Jóns- son, stofnandi Hagkaups, hafa bætt kjör íslendinga en ekki talsmenn verðlagseftirlits og ríkisreksturs. Tvískinnungur Þvert á grundvallarskoðun AI- þýöubandalagsins og gamla lífs- skoðun forystumanna þess eru heilbrigð samkeppni og vel rekin einkafyrirtæki, stór og smá, best til þess fallin að lækka vöruverð og baeta þjónustu. í grein hér í blaðinu hinn 10. mars setti Svavar Gestsson sig í þær stellingar að lesendur hefðu mátt ætla hann og Steingrím J. Sigfússon sérstaka talsmenn fijálsrar samkeppni. Grein Svavars staðfesti hins vegar aðeins tvískinnunginn í málilutningi sós- íalista á flótta undan eigin skoðun- um. Fráleitt er til dæmis að gera það að árásarefni á Sjálfstæðis- flokkinn að sósíalistar hættu aö gefa úr Þjóðviljann. Svavar Gestsson er fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins. Núverandi formaður flokksins, Ól- afur Ragnar Grímsson, hefur lýst Svavari sem sérstökum fulltrúa hinna gömlu kommúnísku afla í flokknum. Hortittur í samkeppnislögum eru settar al- mennar leikreglur og komið á fót stofnunum til að gæta þeirra. Á síðasta stigi málsins á Alþingi var bætt við frumvarpið bráðabirgðaá- kvæði um tímabundna rannsókn Kjallarinn Björn Bjarnason alþingismaður samkeppnisráðs á afmörkuðu sviði. Eg tel ákvæðið brjóta í bága við hina almennu meginstefnu lag- anna - það er hortittur. Sýnir best hve fráleitt þetta ákvæði er ef andstaða mín við það er talinn stuðningur við einstök fyrirtæki í landinu eins og Svavar Gestsson segir í grein sinni. Það er í andstöðu við jafnræðisreglu ís- lenskrar stjórnskipunar að lögfesta íþyngjandi ákvæði um sum fyrir- tæki en ekki önnur. Þótt allir þing- menn nema einn samþykki lög af þessu tagi geta dómstólar hnekkt þeim. Björn Bjarnason Grein Svavars staðfesti hins vegar tví- skinnunginn í málflutningi sósíalista á flótta undan eigin skoðunum. Fráleitt er til dæmis að gera það að árásarefni á Sjálfstæðisflokkinn að sósíalistar hættu að gefa út Þjóðviljann.“ „Athafnamenn eins og Pálmi Jónsson, stofnandi Hagkaups, hafa bætt kjör íslendinga en ekki talsmenn verð- lagseftirlits og ríkisreksturs," segir höfundur i grein sinni. í fyrra hófst merkileg umræða um lög sem vemda skyldu einstaklinga fyrir áreiti aimarra. Það er einkum Kvennaathvarfið sem sýnt hefur þessum lögum áhuga, en einnig tóku laganemar þau til umræðu á málþingi um síðustu mánaðamót. Núverandi hegningarlög gera að vísu ráð fyrir að lögregla og dóms- vald geti gripið inn í mál af þessu tagi. Fyrsta stigið er svokölluð lög- regluáminning, en við ítrekuð brot má flytja málið fyrir dómi. Sé ákærði fundinn sekur liggur við sekt eða varðhald. Nýmælið í hugmyndum þeim sem kynntar voru fyrir tæpu ári felst einfaldlega í því að hægt verði að skikka þann sem vandræðunum veldur til að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá þeim sem hann áreitir. Hann má hvorki koma nálægt heimili viðkomandi né vinnustað né heldur vera á neinum öðrum stað sem viðkomandi kemur á. Tekið á vandanum Þetta kann að virðast smávægileg umbót í augum einhverra, en hún KjaUarinn Ágúst Guðmundsson leikstjóri er í raun afar mikilvæg. Það er ein- mitt tekið á vandanum sjálfum og reynt að finna á honum einfalda lausn. í mörgum tilvikum hefur sá sem fyrir áreitinu verður það eitt á móti vandræðagemlingnum að hann sé ævinlega að blanda sér inn í líf þess áreitta. Að setja hann í fangelsi er ekki endilega lausn á þeim vanda, nema rétt um stundar- sakir. Að sekta hann gleður ein- ungis þann sem um kassann held- ur. Hvort tveggja leiðir stundum til þess eins að reita ólátabelginn til reiði og brýna hann til hefnda. Öðrum kann að virðast þetta óeðlileg frelsissvipting. En viljum við að fólk hafi ótakmarkað frelsi til að ónáða aðra eða leggja þá í einelti? Hvað um þann sem síend- urtekið verður fyrir slíku áreiti? í „A ekki að veita hverjum einstaklingi rétt til að hafna samneyti við þá sem ekki geta séð hann eða hana í friði?“ hveiju felast mannréttindi hans? Á ekki að veita hverjum einstaklingi rétt til að hafna samneyti við þá sem ekki geta séð hann eða hana í friði? Sjálfsögð réttarbót Þetta snertir vitaskuld fyrst og fremst þær konur sem ekki fá frið fyrir ofstopafullum karlmönnum. Það snertir líka marga aðra, jafiit karla sem konur. Og eftir sem áður verður dómstólum landsins vita- skuld treyst til að úrskurða um svona mál að vandlega yfirveguðu ráði eftir efnum og ástæðum og leggja ekki hömlur á ferðafrelsi fólks að tilefnislausu. Hér er á ferð einfóld en sjálfsögð réttarbót sem reynst hefur vel í Bandaríkjunum. Norðurlandabúar eru á leiðinni að taka hana upp, en íslendingar gætu haft forystu í þessu sem svo mörgu öðru. Það eitt er eftir að skoða máliö niður í kjölinn, semja endan- legt lagafrumvarp og leggja fyrir Alþingi. Ágúst Guðmundsson Hvalveiðar ekki beðið „Þaðerver- ið aö tala um að útflutning- urminnkium fimm raillj- arða. Þetta segir okkur um ekki beðið meðhvalveið- ar. Minnk- andi sjávar- hrefnuveiðimanna. afii almennt segir okkur einnig að við verðum að hefja þessar veiðar. Við lifum á því að afla úr sjónum í kringura landið. Það líðst engri fiskimannaþjóð að nýta ekkí í réttu samhengi allt sem er í kring vegna þess að þetta lifir hvað á Öðru. Við verðum að taka á þessu fyrr eða seinna. Þeir sem hafa verið á móti hvalveiðum ættu að snúa við blaðinu og fara að hugsa í takt við tímann. Norðmenn hafa kallað heim átta sendiherra til aö láta þá fara á námskeið svo-þeir geti barist fyrir þessum málum og skýrt fyr- ir fólki hvað er að gerast. Noregs- konungur hefur lýst yfir stuðn- ingi við hvalveiðar. Hann segir áð hega eigi hvalveiðar strax því viö verðum að skilja lífiö. Norð- menn veita núna miklu fé í her- ferð sína. Japanir sömuleiðis. ís- lendingar eru loksins farnir að byrja á réttum grundvelli með kynningu og útskýringum. Þetta hefst ekki öðruvísi. Ég skora á forsetann okkar að gera það sama og Noregskonung- ur. Ég skora einnig á forsætisráð- herrann okkar að standa við það sem hann sagði að engin útgerð i landinu skyldí skerðast um meir en 5 prósent Hann verður krafinn um þetta. Hann kemst ekki undan þvíri Vonlaus stefna „Hvalveiðar eru hluti af fortíð mann- kynsms og þessu tímabili er lokið í sög- unni að mínu matiogerþaö vel. Mann- kynið ætti að Magnús Skarphéö- hugleiða að insson hvalavinur. draga úr hemaði sínum á lífið og þyrma þessum risum hafsins. Eg minni áþaöað enginnmaðurmyndi líða það að dýri væri slátrað á jafn sársaukafullan hátt oghvalir eru drepnir. Samkvæmt gögnum vís- indanefndar Aiþjóöahvalveiði- ráðsins er hver hvaiur að meðal- tali á fimmtu mínútu að drepast eftir að hann hefúr fengiö sprengiskutulinn í sig. Það eru mörg önnur rök sem mæla gegn því að drepa hvali. Það er búið að útrýma þremur hvalastofhum nú þegar við ísland og flestir stofnar, sem eftir era, eru meira og minna útrýmdir fyr- r utan einn stofn sem er hrefnan. íin hliðin á málinu er pólítíska íliðin. Það er alveg vonlaust fyrir Islendinga að taka upp hvalveiðar aftur ef þeir ætla að hafa sam- skipti við aðrar þjóðir. Við getura hald og rejmt að sanntæra aðrar jjóöir um nauösyn þess af eftia- " agslegum ástæðum eða öðrum. Eg blæs á rök um nauðsyn á jafnvægi í náttúranni. Það er að- eins eitt jaöivægi í náttúrunni og >að er að náttúran fái sjálf að sjú umþað, -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.