Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUK16. MARS1993 17 íþróttir Geir Sveinsson skorar eitt þriggja marka sinna af línunni i gær, Volker Zerbe horfir á eftir honum. Símamyndir Jan Collsiöö/Pressens Bild Sagt eftir skellinn í Stokkhólmi í gærkvöldi: Eiginlega búið eftir tíu mínútur Guðmundur Hilmaxsson, DV, Stokkhólmi: „Við byijuðum eins og brjálaðir menn. Við vissum nákvæmlega hvað þeir voru að leika og gera og við undirbjuggum okkur alveg eins og fyrir aðra leiki. Við komum hins veg- ar tii leiks skrefinu á eftir í öllum okkar aðgerðum. Þess vegna náum við aldrei að komast inn í leikinn og leikurinn var eiginlega búinn eftir tíu mínútur," sagði Þorbergur Aðal- steinsson landsliðsþjálari eftir leik- inn. „Það fór öll orka í að reyna vinna þennan mun upp og strákamir léku hreinlega lélega. Það gæti hafa veriö vanmat hjá mönnum og ef við spilum ekki á fullu eigum við ekki séns gegn svona liðum. Við verðum bara aö bíta á jaxlinn eftir þessi ósköp,“ sagði Þorbergur. Ákveðið vanmat í byrjun leiks „Ég tel að þetta hafi verið ákveðið vanmat í byrjun leiks og eitthvað einbeitingarleysi. Fyrsta korterið spilum við langt undir getu og við töpum leiknum á þessum leikkafla," sagði Þorgils Óttar Mathiesen, farar- sijóri íslesnka landsliðsins og fyrrum fyrirliði þess, við DV eför leikinn. „Þjóðverjamir spiluðu þennan leik mjög vel og héldu út allan tímann. Mér fannst við lokast of mikiö í spil- inu og sóknarleikurinn því einhæfur og vandræðalegur," sagði Þorgils. Mjög ánægður með mína menn „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með leik minna manna. Við náðum upp sterkri vöm og ég held að hún hafi gert gæfumuninn að við unnum leikinn," sagði Armin Imrich, þjálf- ari þýska landsliðsins, efdr leikinn. „Strákamir náðu upp mjög góðri stemningu fyrir þennan leik og vom tilbúnir til að selja sig dýrt. Það var liðsheildin sem skóp þennan sigur hjá okkur en ég átti von á íslenska liðinu mun grimmara hér í kvöld,“ sagði Imrich. Alla grimmd vantaði hjá íslenska liðinu „Mér fannst vanta alla grimmd í ís- lenska liðið. Ég veit ekki hvort eitt- hvert vanmat hafi verið í gangi hjá strákunum en það virtist svo. Þjóö- verjamir voru grimmari og ákveðn- ari í öllum sínum aðgerðum," sagði Kristján Arason, FH-ingur og fyrrum landsliðsmaður, við DV eftir leikinn. „Ég var mjög hrifinn af þýska lið- inu. Það er engin stjama í þvi og hver að vinna fyrir annan. Við vor- um óþolinmóöir í byijun og í fyrri hálfleik kláruðum við sóknir okkar alltof snemma á 10-11 metrum sem Thiel átti ekki í vandræöum með að veija. Ég tel að strákamir hefðu mátt leysa meira upp í sókninni og lengja þær. Það var mjög erfitt mór- alskt að fá svona stöðu í upphafi og allt púst fór í að vinna sig upp. Mér fannst Júlíus góður í fyrri hálfleik en spuming hvort Héðinn hefði ekki átt að fá að spreyta sig meira. Ég hefði líka viljað sjá Sigga Bjama meira inn á en að mínu mati var Geir skásti maður liðsins og Berg- sveinn gerði oft góða hluti í mark- inu,“ sagði Kristján. Ekki hægt að vinna leik með svona marga feila „Þegar menn byija leik svona og lenda undir, 0-6, fer rosalega mikil orka að reyna að ná þessu upp og þeir eru allan leikinn að reyna aö koma sér í stemningu til að fá eðlileg- an leik,“ sagði Gunnar Einarsson, þjálfari Stjömunnar, við DV eftir leikinn í Globen í gærkvöldi. „Það var eitthvert „rythmaleysi" í liðinu og strákamir voru að gera níu tæknifeila í fyrri hálfleik og þaö er ekki hægt að vinna leik með svo mikið af feilum. Við vorum á öðm róli og kannski vora strákamir yfir- spenntir. Leikgleðin var hjá Þjóð- verjunum og vöm þeirra mjög sterk. Ég held að við hefðum mátt reyna að leysa fyrr upp í 5:1 vöm,“ sagði Gunnar. Auðvelt hjá Rússunum jlaunasæti á HM úr sögrnmi: íðverjum og stórt tap, 16-23 plan og leikmenn gáfust hreinlega upp og þegar upp var staðið var munurinn orðinn 7 mörk. Spurning um vanmat hjá strákunum Það er ekki gott að segja en það virkaði á mann eins og íslensku leikmennirnir kæmu fullsigurvissir til leiks. Kraftur- inn og stemningin, sem var svo áber- andi í leiknum gegn Ungveijum, var ekki til staðar og leikmenn liðsins gerðu sig seka um mörg ljót mistök. Að fá svo slæma stöðu í upphafi leiks kom eins og köld vatnsgusa framan í strákana og öll orka leikmannanna fór í að vinna þennan mun upp. Sóknarleikurinn var lengst af í molum en vömin var í lagi. Islenska liðið mjög brothætt Það er erfitt að tala um bestu menn í íslenska liðinu en Geir Sveinsson stóð sig einna best. Júlíus var ágætur í fyrri hálfleik og Bergsveinn varði ágætlega á kafla undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi þess síðari. Aðrir leikmenn léku undir getu og enn er hægra homið nær óvirkt. Það er ljóst að ísland leikur ekki um verðlaunasæti á þessu móti en enn er möguleiki á að verða á meðal sex efstu en mikið þarf leikur liðsins að batna ef það á að takast. í þessum leik kom berlega í ljós hve brothætt lið- iS í raun er þegar á móti blæs. Guðmundur Hilmarsson, DV, Stokkhólmi: Rússar unnu auðveldan sigur á Ungverjum í fyrsta leik þjóðanna í milliriöli í Globen höllinni í Stokk- hólmi í gær. Lokatölur urðu, 29-22, eftir að stað- an í hálfleik hafði verið, 15-10, Rúss- um í vil. ' Valeri Gopin skoraði 8/5, Igor Vas- iliev 5, Vasili Kudinov 4, Oleg Kiselev 4. Andrei Lavrov varði 15 skot í marki Rússa. Jozef Eles og Istvan Pastor skoraðu 5 mörk hvor fyrir Ungveija. Svíar með fullt hús Svíar era með fullt hús í keppninni eftir sigur á Dönum, 23-20. Svíar höfðu yfirhöndina í leikhléi, 13-9, og höfðu frumkvæðiö allan leikinn. Mestur var munurinn 9 mörk, 20-11, en undir lokin söxuðu Danir á. Andersson skoraði 7/5 og Carlén 5 en hjá Dönunum var Nikolaj Jacob- sen með 7 mörk. öruggt hjá Frökkum í hinum riölinum unnu Frakkar ör- uggan sigur á Tékkum, 26-18, 'eftir 13-7 í hálfleik. Volle skoraði 6 fyrir Frakka og Richardson 5 en Sovadina og Prokop 5 hvor fyrir Tékka. Sviss vann Egypta, 26-23, en staðan í hálfleik var 12-9. Eggenberger geröi 8 fyrir Sviss og Rubin 5 en E1 Kasaby 6 fyrri Egypta. Loks unnu Spánveijar lið Rúmena, 20-16, eftir 11-7 í hálfleik. O’Callag- ham gerði 7 mörk fyrir Spán og Garr- alda 5 en Dedu 4 fyrri Rúmena. í leikjunum um 13.-16. sæti sigraðu Norðmenn lið S-Kóreu, 30-28, (11-13) og Austurríki lagði Bandaríkjamenn 31-19 (14-12). Leikimir áHMídag íslendingar mæta Rússum á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í kvöld og hefst leikur liðanna klukkan 19. Á undan leika Danir og Ungverjar en leik Svía og Þjóð- verja hefur verið frestað til morg- uns. í hinum milliriðlinum mætast í dag Rúmenar og Egyptar, Sviss- lendingar og Tékkar/Slóvakar og loks mætast Frakkar og Spán- veijar. Síðasta umferð milliriðlanna verður síðan leikin á fimmtudag og þá mætast íslendingar og Dan- ir klukkan 17. Staðan í milliriðlum s R í Þ U D Svíþjóð 18/3 21-16 17/3 20-19 23-20 Rússland 18/3 16/3 19-19 29-22 26-18 ísland 16-21 16/3 ;jp 16-23 25-21 18/3 Þýskaland 17/3 19-19 23-16 18/3 20-20 Ungverjal. 19-20 22-29 21-25 18/3 4F 16/3 Danmörk 20-23 18-26 18/3 20-20 16/3 Spánn L 3 M ö r k 5 6-49 S 5 ■ Svípjóð L 3 Mörk 64-55 6 Frakkland 3 7 3-66 4 Rússland 3 74-59 5 Sviss 3 70-66 4 Þýskaland 3 6 2-55 4 Rúmenía 3 57-61 2 tr ísland 3 57-65 2 Egyptal. 3 58-63 2 Danmörk 3 58-69 1 Tékkland 3 5 7-66 1 Ungverjal. 3 62-74 0 STi Lakers sigraði Spurs í nótt Jrslit í NBA-defldinni í körfuknattleik ótt: ishington - Cleveland.......105-101 . Spurs - LA Lakers...........87-92 icago-LAClippers............101- 94 llas-UtahJazz................96-109 nver-Miami............100-103(frl.) rtland - NJ Nets............110- 94 m Gugliotta skoraði 23 stig og tók 10 iköst fyrir Washington Bullets og rvey Grant var með 21. Brad Daug- herty skoraði 22 stig fyrir Cleveland. James Worthy skoraði 24 stig fyrir Lakers gegn SA Spurs og Vlade Divac var með 17 stig. Byron Scott skoraði 17 stig og náði því í leiknum að skora sitt 12 þúsundasta stig í NBA-deildinni. David Robinson skoraði 26 stig fyrir Spurs og tók 13 fráköst. B.J. Armstrong skoraði 28 stig fyrir Chicago gegn Clip- pers, nýtt met hjá honum í deildinni og Jordan var með 23 stig. Danny Manning var með 23 stig fyrir Clippers og Ron Harper 21. Nýliðinn Bryant Stith skoraði 21 stig gegn Miami, persónulegt met hjá honum, og Dikembe Mutombo tók 23 fráköst, einnig met hjá honum. Cliff Robinson skoraði 25 stig fyrir Portland gegn New Jersey og Terry Porter 22. Karl Malone skoraði 36 stig fyrir Utah gegn Dallas og Doug Smith var með 22 stig fyrir Dallas. -SK HIN ÁRLEGA FIRMAKEPPNI KNATTSPYRNUFÉLAGSINS ÆGIS fer fram sunnudaginn 28. mars í íþróttamið- stöð Þorlákshafnar. ■» Nánari uppl. í síma 98-31385

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.