Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1993, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1993
Fréttir
Sigurður á Guðlaugsstöðum fangar fleiri lausa graðhesta:
Rekur merfolald til
hesta Páls Péturssonar
- fékk tyrfið svar frá umboðsmanni Alþingis vegna kæru
„Eg hef sterkan grun om aö merfol-
ald, sem fæddist síðastliðið haust, sé
undari einum graðhesta Páls sem
hefur hugsanlega gert hér óskunda.
Það voru nefnilega fleiri en þessi
þrevetra graðhestur sem hafa verið
aö fara inn fyrir girðingu hjá mér,
þetta er þriggja ára vandamál. Það
er ekki Páh eða neinum á Höllustöö-
um að þakka að þetta varð ekki að
stórskandal heldur árvekni minni.
Það er ekkert annað en skemmdar-
verk á bústofni manna þegar lausa-
gönguhestar eru að fylja á hvaða
tíma sem er,“ sagði Sigurður Ingvi
Bjömsson í samtali við DV.
Sigurður tók graðhest Páls Péturs-
sonar, alþingismanns á Höllustöð-
um, á landareign sinni 9. febrúar og
færði til hreppstjóra. Sigurður lagði
fram um 14 þúsund króna reikning
vegna kostnaðar við töku hestsins
og ætlaðist til að Páll greiddi hrepp-
stjóra þá upphæð. Hins vegar sakaði
Páll Sigurð um að hafa ekki haft rétt
til að taka hestinn og neitaði að
greiða reikninginn. Sýslufulltrúi tók
ákvörðun um að afhenda Páli hest-
inn án þess að greiðsla hefði borist.
Þá ákvörðun kærði Sigurður til um-
boðsmanns Alþingis og hefur nú
fengið svar.
„Það er svo loðiö bréfið frá um-
boðsmanni að ég skil það eiginlega
ekki. Hann bendir mér á að ef ég
æth að halda máhnu áfram verði ég
að leita til dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins. Annars er mitt mat að
Páll sé búinn að taka út sína refs-
ingu. En ég vona engu að síður að
hesthússjóðurinn dafni. Annars er
gott ef bændur og hestamenn eru
einhverju nær um stöðu sína í svona
málum. Það er hrikalegt þegar mað-
ur er með ungviði inni í húsum en
þorir varla að sleppa því út undir
vegg hjá sér.“
Þórarinn V. Þórarinsson:
Gengisfelling
„Auðvitað hlýtur gengisfelhng
að koma sterklega til greina þeg-
ar þetta tekjufall verður í útflutn-
ingsgreinunum, það væri barna-
skapur að neita því. Einhvern
veginn verður að mæta þessu.
Einhvem veginn kemur kjara-
skerðing tíl með að ganga fram.
Gengisfall er hins vegar hæpin
hjálp fyrir ahstóran hluía af fyr-
irtækjunum vegna skuldsetning-
ar sjávarútvegsins. Menn standa
ansi ráðþrota frammi fyrir vand-
anum, það er eins gott að viöur-
kenna það bara,“ segir Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ.
„Við emm ekki að draga okkur
út úr íillögunum til ríkisstjómar-
innar. Við höfum sett fram okkar
tillögur með ASÍ þar sem okkar
áherslur koma fram, Við erum
ekki að hlaupa frá þeim. Við er-
um hins vegar að kaha effcir þvi
aö fram fari gagnger umræða um
horfumar í okkar efriahagslífi
framundan og hvemig við eigi aö
bregðast. TQ dæmis því aö 10%
veröfall verði í sjávarútveginura.
Það auövitað breytir öllum for-
sendum og menn verða að meta
það," segir Þórarinn.
-Ari
Annargraður
Stuttu eftir að Sigurður hafði hand-
samaö graöhest Páls gómaði hann
annan graðhest við húsin hjá sér, um
13 vetra hest frá Eiðsstöðum.
„Þessi graðhestur var hafður í hólfi
eins og hestur Páls en hefur hins
vegar ekkert verið að angra mig í
vetur. Ég fór með þennan til hrepp-
stjórans eins og hest Páls. Þeir Eiðs-
staðamenn em hins vegar ekki eins
skapi farnir og Páll og gerðu reikn-
ingana strax upp við hreppstjórann."
15 þúsund króna greiðsla til Sig-
urðar frá Páli á Höllustöðum, fyrir
„greiðvikni, mannslund og dreng-
skap“, rann beint í sjóð sem Sigurður
stofnaði til byggingar graðhestahúss
handa Páli og auglýsti rækilega.
„Við skoðum innstæðuna fyrir
næstu kosningar. Páll fær aurinn
þegar sjóðurinn er kominn í 80 pró-
sent af hesthúsverði."
Þó Sigurður sé Björnsson er hann
ekki skyldur Birni á Löngumýri.
Hann er ættaður úr Miðfirði. Kona
Sigurðar og Páll á Höllustöðum eru
hins vegar systkinabörn.
-hlh
Ríkissaksóknari ákærir fyrir flárdrátt og umboðssvik:
Lögmaður ákærð-
ur fyrir að draga
sér slysabætur
- fékk greitt hjá Sjóvá-Almennum án þess að láta skjólstæðing vita í tæp 2 ár
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæm á hendur 32 ára héraðsdóms-
lögmanni í Reykjavík fyrir að hafa
dregið sér og notað til eigin þarfa
Slysabætur skjólstæðings síns upp á
rúma eina milljón króna. Með þessu
er ákært fyrir fjárdrátt, umboðssvik
og brot í opinbem starfi. Máhð er
komið til meðferðar hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Sjómaöur af millilandaskipi hjá
Nesskipum lenti í slysi í vélarrúmi
þegar skipiö var statt á milli Banda-
ríkjanna og Noregs árið 1988. Hann
beið varanlega örorku af slysinu. Var
hún metin 100 prósent fyrstu 12 mán-
uðina eftír slysið en minni síðar.
Umræddur lögfræðingur vann þá á
lögfræðiskrifstofu sem sjómaðurinn
leitaði til. Lögfræðingurinn tók síðan
m.a. að sér að innheimta svokallaða
skyldutryggingu fyrir sjómanninn
hjá Sjóvá-Almennum. Hann tók síð-
an við fjórum greiðslum hjá trygg-
ingafélaginu á tímabilinu frá febrúar
1989 þar til 11. september 1990. Sjó-
maðurinn sagði lögmanninn ávallt
hafa tjáð sér á þessu tæplega tveggja
ára tímabili að hann væri með málið
í góðum farvegi - en hann hefði hins
vegar ekki séð þær bætur sem hon-
um bar.
Þegar sjómaðurinn fór að kanna
máhð nánar hjá Sjóvá-Almennum
haustið 1991 kom í ljós að lögfræðing-
ur hans haföi móttekiö fyrir hans
hönd samtals um 1,3 milljónir króna
vegna skyldutryggingar - án þess að
hann hefði séð þá peninga sjálfur.
Um þetta leyti réð sjómaðurinn sér
annan lögmann til þess að reka mál
sitt. Eftir það fór fram „nettóupp-
gjör“ auk þess sem máhð var kært
tílRLR.
Samkvæmt upplýsingum DV frá
málsaðilum hefur endanlegt sam-
komulag nú tekist um greiðslur af
hálfu lögmannsins til sjómannsins
fyrrverandi. Lögmaðurinn hefur
greitt þær upphæðir sem hann tók
við hjá tryggingafélaginu auk drátt-
arvaxta.
Með ákærunni krefst ríkissak-
sóknari þess aö héraðsdómslögmað-
urinn veröi sviptur leyfi til málfiutn-
ings auk refsingar. Maðurinn starfar
ekki við lögmannsstörf í dag. Fyrrum
skjólstæðingur hans, sem er roskinn
maður og hefur lent í miklum van-
skhum, sem hann rekur til mála-
reksturs síns, hefur ekki farið á sjó
á ný vegna örorku sinnar.
-ÓTT
Vestmannaeyjar:
Bam kveikir í
Eldur kom upp í gömlu húsi í
Vestmannae>jum í gærdag. Bam
var að fikta með eld og hafði
kveikt í dóti sem geymt var í
brunni við húsiö.
Slíkir brunnar eru \úö mörg
gömul hús í Eyjum en áður var
mikill vatnsskortur. Margir hafa
gert innangengt úr brunnunum í
kjallara húsa sinna og nota
brunnana nú sem geymslur.
Vegfarendur sáu reyk leggja úr
kjallara hússins og gerðu viðvart.
Lítið tjón varð af völdum brunans
enreyklagðiumahthúsið. -ból
Stuttar fréttir
Siguröur Ingvi Björnsson, bóndi á Guðlaugsstöðum í Svinavatnshreppi í Húnavatnssýslu, á Sóta sínum. Sigurður
hafði ekki fyrr handsamað lausan graðhest frá Páli á Höllustöðum en annar graður var kominn að húsunum hjá
honum, 13 vetra hesturfrá Eiðsstöðum. DV-mynd Magnús Ólafsson
Arekstrarí
Ágreiningur er kominn upp
meðal innflytjenda bifreiða og
hafa tvö umboð þegar sagt sig úr
Bílgreinasambandinu, Brimborg
og Bílaumboðið.
Lengri biðtimi
;: Biðtími atvinnulausra eftir við-:
tali við félagsráðgjafa hjá Félags-
málastofnun Reykjavíkur hefur
lengst úr viku í rúman mánuð.
Nýr vettvangur hefur lagt til í
borgarstjóm aö gerðar verði þær
breytingar sem nauðsynlegar eru
til aö auka þjónustuna.
Aht að 700 bændur munu
hverfa eignalitlir frá búskap á
næstu árum. Alþýðublaðið hefur
eftír aðstoðarmanni landbúnað-
arráðherra að ástæðan sé meðal
annars sú aö of £áir bændur hafi
viljað selja framleiðslukvóta
sinn.
Gjaldtaka af oblátum
InnflutningsgjÖld voru lögö á
ýmis aðfóng til kirkna og kristi-
legs starfs skömmu fyrir síðustu
jól. Meðal annars voru kerti tí-
unduð og gjald var lagt á oblátur.
Stjórnvöld í Júgóslavíu-Serbíu
og Svartfjallalands kreQast vega-
bréfsáritunar af þeim Islending-
um sem vhja heimsækja landið.
íslendingar shtu einlriiða sam-
komulag þessa efriis í maí.
ÚAgrædir
Utgerðarfélag Akureyrar hagn-
aðist um 10 mhljónir á rekstrin-
um í fyrra. Hehdareignir um ára-
mótin voru bókfærðar á 3,5 mihj-
arða en eigið fé ÚA er um 1,6
mihjaröar. ÚA gerir út 7 togara,
þar af 2 frystitogara.
Pólltískur Verdandi
Ungt Alþýðubandalagsfólk
stofnaði um helgina með sér ný
samtök, Verðandi. Markmið fé-
lagsins er að veröa vettvangur th
að byggja upp framtiðina og
koma með nýjar lausnir. For-
maður var kjörinn Trygg\d Þór-
hallsson.
Borgin kýs
Borgarstjórn Reykjavíkur kaus
í gær sina fulltrúa í stjórnir
tveggja sparisjóöa. Siguijón Pét-
ursson og Hhdur Pedersen voru
kosin í stjóm SPRON en Guö-
mundur Háhvarðsson í stjóm
Sparisjóðs vélstjóra.
ðpnirnefndarfundir
Salome Þorkelsdóttur, forseta
Alþingis, finnst koma th greina
að nefndir þingsins starfi að hluta
th fyrir opnum tjöldum. RÚV
haíði þetta eftír henni. -kaa