Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1993, Page 8
8
ÞRIÐ JUDAGUR 23. MARS1993
Utlönd
fasiirábakvið
Suktar dyr
Norskt par, sem gisti í nýjasta
hótelinu í danska bænum Ribe
um helgina, komst heldur betur
að þvi að erfitt er að komast það-
an út, Enda var fangeisi bæjarins
til húsa þar áður fyrr.
Þegar hjúin vildu fara út aö
boröa voru dymar læstar. Og
þótt þau hoföu lykil. andstætt
fyrri „gestum", reyndist útilokaö
aö opna dymar innanfrá.
Eftir þriggja stundarfjórðunga
tilraunir hringdi parið á lögregl-
una sem bjargaði því með því að
opna utan frá.
kollurnar sinar
Breskir dómarar viija halda í
hrosshárskollumar sínar inni í
réttarsalnum þótt þeir hafi mátt
þola stríðni þeirra vegna og litiö
væri á þær sem tímaskekkju, auk
þess sem kollurnar haia veriö
taldar óheilnæmar.
Tveir æðstu dómarar Bretlands
könnuðu hug dómara landsins og
komust að því að mikiil meiri-
hluö þeirra viU áfram vera með
þetta 18. aldar höfuðfat, að því er
dagblaöið Times skýrðifrá í gær.
Könmmin var gerð með það í
huga hvort dómskerfið yrði „vin
samlegra" i augum þeírra sem til
þess leita ef hárkoilumar væru
gerðar brottrækar.
Búist er viö aö í næsta mánuði
verði gefin út ölkynning um aö
hárkollurnar, skikkjurnar og
söfu flibbarnir verði áfram viö
iýði.
Fastheldni í hef'öir var ekki eina
ástæðan fyrir afstöðu dómaranna
því þeir telja að hárkoilumar og
skikkjumar geri menn jafnari
frammi fyrir kviðdómi.
Dönskskáld
EBvið Rushdie
Danmerkurdeíld alþjóðlegu rit-
höiUndasamtakanna PEN hefur
farið fram á það við Niels Helveg
Petersen utanrikísráðherra aö
Evrópubandalagið geri írönsk
stjómvöld ábyrg fyrir alþjóöa-
rétö ef eitthvað kemur fyrir
breska rithöfundinn Salman Rus-
hdie.
Rithöfundarnir viþa aöþaðger-
ist á meðan Danir eru í for-
mennsku innan BB.
Klerkaveldið í íran ítrekaði fyr-
ir stuttu dauðadóra sinn yfir Rus-
hdie vegna bókarinnar Söngva
satans sem íslamstrúarmenn
segja að innihaldi guðlast.
Kokkurvillí
heimsmetabék
Tommy Miah, eigandi veiönga-
húss eins í Edinborg á Skotlandi,
er að gera sér vonir um að kora-
ast í heimsmetabók Guinness fyr-
ir heimsins stærsta karrírétt.
Tommy Miah aflar fjár fyrir
óðgerðastofnanir á hveiju ári
með keppni mifii indverskra
kokka ög i þetta sinn ætlar áð
hann að elda eitt tonn af réttí sem
heitír kjúklingakorma. Elda-
mennskan fer fram á heimilis-
sýningu í London næstkomandi
augardag.
Rétturinn á að duga fyrir ailt
5 tíu þúsund mannsogþaðmun
taka sex klukkustundir að útbúa
hann. Geatir sýningariimar geta
desh og fyrir breska góðgerða-
stofnun.
kitzau ag Ruuter
Stjómlagadómstóll Rússlands úrskurðaði í morgun í máli Jeltsíns:
Jeltsín fær enn frest
í forsetaembættinu
- aðgerðir hans ólöglegar en dómurinn hikar við að dæma hann frá embætti
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
vann enn áfangasigur í baráöunni
um völdin í morgun þegar stjóm-
lagadómstóli landsins tók ekki af-
stöðu tíl hvort víkja ættí honum úr
embætti.
í niðurstöðu dómsins var hins veg-
ar ályktað að aðgerðir Jeltsíns um
helgin, þegar hann ákvað að stjóma
með tilskipunum í einn mánuð, væm
ólöglegar. Þetta þýðir að Jeltsín hef-
ur enn unnið sér tíma til að undirbúa
þjóðaratkvæði um stjórnskipan
landsins. Kjósa á þann 25. apríl.
Varerij Zorkin, forseti stjórnlaga-
dóms Rússlands. Simamynd Reuter
Niðurstöðu dómsins var beðið með
mikilli eftirvæntingu því afdráttar-
laus afstaða hans gegn Jeltsín hefði
að öllum likindum kostað hann for-
setaembættið. Dómarar sátu að
störfum í alla nótt. Þeir klofnuðu í
afstöðu sinni til málsins en meiri-
hiutinn vildi þessa niðurstöðu.
Enn getur þó orðið breyting hér á
því dómurinn frestaði að taka af-
stöðu til þess hvort víkja ætti Jeltsín
úr embætti. Talsmaður forsetans
sagði í morgun að ekki væri hægt
að reka forseta samkvæmt núgild-
andi stjómarskrá. Jeltsín ætlaði sér
því ekki að víkja, hver sem niður-
staða dómsins yrði.
Jeltsín hefur beðið leiðtoga sjö
helstu iðnríkja heims að lána Rúss-
um 20 milljarða Bandaríkjadala til
að treysta efnahagsumbætur í land-
inu. Þessu fé vill hann veija tii að
styrkja rúbluna og að hraða iðnaðar-
uppbyggingu.
Leiðtogamir em að undibúa fund
sinn og þar verður tekin afstaða tii
bónarinnar.
Reuter
Tók nektarmyndir
Leikstjórinn Woody Allen vlðurkenndi fyrir rétti í New York í gær að hann
hefði tekið nektarmyndir af Soon-Yi, fósturdóttur Míu Farrow. Hann sagöi
þó að þetta væru ekki klámmyndir. Hér fylgja öryggisverðir Allen úr réttar-
salnum. Sfmamynd Reuter
Væntanlegur forsætisráöherra Frakklands:
Batinn verður erf iður
Frönsku íhaldsflokkamir tveir,
sem unnu stórsigur í þingkosningun-
um á sunnudag, ætla að reyna í dag
að jafna ágreininginn, sem kominn
er upp í bandalagi þeirra, m.a. um'
frambjóðendur fyrir síðari umferð
kosninganna næstkomandi sunnu-
dag.
Gaullistinn Edouard Balladur er
talinn líklegastur til að gegna emb-
ætti forsætisráðherra í nýrri ríkis-
stjórn. Hann var varfærinn í sjón-
varpsviðtali í gær um hraða breyt-
inganna og sagði ólíklegt að atvinnu-
leysið minnkaði á næstu mánuðum.
„Það verður mjög erfitt að ná fram
efnahagsbata," sagði hann í viðtal-
inu. „Eina leiðin til að yfirstíga vand-
ann er að vera eins opinn og umburð-
arlyndur gagnvart hinum og hægt
er.“
Reuter
Bankastjóri Fischers og Spasskíjs:
Viðskiptavinir öreigar
„Ég er orðinn öreigi. Eina von mín
var að lifa af vöxtunum."
Þetta segir Milan Yugovic, 71 árs
gamall efdrlaunaþegi í Belgrad, sem
lagði allan spamaðinn sinn, nm það
bil 150 þúsund krónur, inn í bankann
Jugoskandic um miðjan febrúar.
Banki þessi var í eigu Jezdimirs
Vasiljevics, sama mannsins og skipu-
lagði skákeinvígi þeirra Borís
Spasskíjs og Bobby Fischers í Júgó-
slaviu í fyrra.
VasOjevic flúði hins vegar land
þann 7. mars síðastliðinn, banka
hans var samstundis lokað og rúm-
lega 100 þúsund viðskiptavinir stóðu
uppi slyppir og snauðir.
Vasiljevic bauð almenningi svim-
andi háa vexti eða 15 prósent á mán-
uði fyrir innlán í dollurum eða þýsk-
um mörkum. Þeir sem lögðu inn
þúsund dollara fengu í vexti sem
svarar um fimmfoldum meðal mán-
aðarlaunum. Það dugði til framfæris
Teflt í rústum Júgóslavíu.
þegar dolluranum var skipt á svört-
um markaði.
Þjónusta Vasiljevics styrkti í raun
stöðu Milosevics Serbíuforseta þar
sem með þessu var hægt að lina þján-
ingar fólks vegna refsiaðgerða Sam-
einuöu þjóðanna sem settar voru
vegna árásarstefnu Serbíu í Bosníu.
Byggt á IHT
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Hæsta tilbodið reyndist vera gabb
Garríj Kasparov, heimsmeistari I
skák. Simamynd Reuter
Garríj Kasparov, heimsmeistari í
skák, og áskorandinn, Nigel Short,
opnuðu í gær tilboð í heimsmeistara-
einvígið sín í miiii og tilkynntu sigri
hrósandi að fimm aðilar hefðu sýnt
áhuga á að skipuleggja það. Það
skyggði þó á sigurgleðina að hæsta
tilboðið reyndist vera gabb.
Aðeins nokkram klukkustundum
eftir að tilboðin vora opnuð sögðu
lögfræðingar Kasparovs að hæsta
boðið, sem hljóðaði upp á tæpar 400
miHjónir króna og kom frá óþekktum
manni í Norður-Englandi, væri plat.
Maöurinn sagðist hafa gert það að
gamni sínu.
Hæsta boðið, sem þá stóð eftir, kom
frá hópi sem kallar sig London-
skákhópinn og hljóðaði þaö upp á
tæpar 200 milljónir króna.
Kasparov og Short komu skák-
heiminum á óvart í fyrra mánuði
þegar þeir tilkynntu að þeir ætluðu
ekki að heyja einvígið undir merkj-
um alþjóöa skáksambandsins FIDE,
heldur undir merkjum eigin samtaka
atvinnuskákmanna, PCA. FIDE
áformaði að halda einvígið í Manc-
hester og átti verðlaunaféð að nema
rúmum 100 miUjónum króna.
„Viö þóttumst vita að við gætum
gert miklu betur sjálfir," sagði Short
á blaðamannafundi sem hann og
Kasparov héldu í London í gær.
Ýmsir hafa hent gaman að bralli
félaganna og gabbið varð að vopni í
höndum þeirra sem líta á þetta sem
Skrípaleik. Reuter
Nigel Short áskorandi.
Simamynd Reuter