Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1993, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1993
9
Utlönd
Beinagrind þessi er af ungri
konu sem var með lömunarveiki
<yrir400Qárum. Simamynd Reuler
4000áragömul
beinagrind með
lömunarveiki
Ástralskir fornleifafi-æðingar
iiafa fundið flögur þúsund ára
gamla fjöldagröf í Miöaustur-
löndum með líkamsleifum 140
marrna, þar á meðal beinagrind
18 ára gamallar konu sem hefur
þjáðst af lömunarveiki.
Ástralimir fundu gröfma í Tell
Abraq í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum á síðasta ári.
Frá þessu var skýrt í háskólanum
í Sydney í gær.
Dan Potts prófessor sagði að
bein kommnar hefðu verið svo
afmynduð að konan hefði líklega
aldrei getað gengið. Hann sagði
að án umönnunar hefði hún lík-
lega dáið sem ungbam. Potts
sagði að £etta sýndi að fornar
þjóðir á Omanskaga hefðu veitt
fótluðum langtímaurnönnun.
Forseti El
Salvadorhlustar
ekkiákröfurSÞ
Alfredo Cristiani, forseti E1
Salvador, neitaðí í gær að verða
við kröfum Sameinuðu þjóðanna
um að skipt verði um menn i
mjög svo umdeildum hæstarétti
landsiiis. Forsetinn sagði að slíkt
væri brot á stjórnarskránni.
í skýrslu SÞ um verstu mann-
réttindabrotin í tólf ára borgara-
styrjöld E1 Salvador sagði að
dómskerfi landsins væri mein-
gallað og þar var hvatt til að skipt
yrði um hæstaréttardómara,
einkum þó forseta réttarins.
Reuter
Drottning ákveður meðlag tll hertogaynjunnar af Jórvík:
Sara Ferguson
fær 48 milljónir
dætumar tvær fá 130 rmlljónir í sérstakan menntunarsjóð
Elísabet Bretadrottning hefur
ákveðið að Sara Ferguson, hertoga-
ynja af Jórvík, fái aðeins 48 mfiljónir
króna í meðlag eftir skilnaðinn við
Andrés prins og hertoga.
Þetta er ekki nema lítill hluti af því
sem Fergie vildi fá. Hún hafði beðið
um allt að 180 milijónir króna en
drottning tók því fjarri. Fergie á fárra
kosta völ í stöðunni því harla ólíklegt
er að hún geti haft meira af kommgs-
fjölskyldunni með málarekstri.
Prinsessumar tvær, þær Beatrice
og Euginie, hlutu á hinn bóginn náð
fyrir augum ömmu sinnar. Elísabet
ætlar aö leggja 1,4 milljónir punda í
sjóð sem greiða á úr þeim til mennt-
unar. Þetta eru um 130 milljónir ís-
lenskra króna.
Sjóðurinn lýtur sérstakri stjóm og
fær Fergie ekki að skipta sér af hon-
um og aö öllum líkindum Andrés
prins, faðir prinsessnanna, ekki
heldur. Greinilegt er af öllu að
drottning hefur undirtökin í deilum
Fergie við tengdafólk sitt.
Skilnaður hennar og Andrésar
stendur fyrir dyrum en ekki er búið
að ákveða daginn. Þau hafa ekki
búið saman frá því á síðasta ári þeg-
ar hjónabandið sprakk með miklum
látum í kjölfar þess að Fergie hélt
framlyá manni sínum með auökýf-
ingi frá Texas. Af því varö eitt umtal-
aöasta hneyksli í sögu bresku kon-
ungsfjölskyldunnar.
Börn f undu 15 þúsund ára egg
Þrjú börn, sem voru að leika sér í sandinum á einni af baðströndum Vestur-Ástralíu, grófu upp 15 þúsund ára
gamalt steingert risaeðluegg. Sérfræðingar segja að eggið hafi að öllum iíkindum borist með hafstraumum frá
Madagaskar. Þeim þykir þessi fundur afar merkilegur. Ummál eggsins er um 80 sentímetrar og það er heiit og
óskaddað. Óvíst er að bömin fái að halda egginu. Símamynd Reuter
Sagt er að tvennt verði ekki
umfiúið í þessum heiml; dauöinn
og skattarnir. Þetta á bæði við
um menn og ástralska orma.
Dómstóll þar í landi hefur úr-
skurðað að bændum beri að
greiða skatta af ormum sem þeir
selja veiðimönnum.
Ekki er þó sama hvemig orm
arnir alast upp. Með ræktuðum
ormum fæst afsláttur af sköttum
en greiða verður fullan skatt af
þeim sem tíndir eru í náttúruleg-
um heimkynnum sínum.
Gorbatsjovtil-
Mikhaíl
Gorbatsjov,
fyrrutn Sovét-
leiötogi, scgist
vera tObúinn
að þjóna þjóð
sinni, Rússum,
verðihannbeð- j
inn um það.
Gorbatsjov sagði í viðtali við it-
alska útvarpsstöö að hann væri
reiðubúinn hvenær sem kallið
kæmi.
Hann sagðist hafa oröið var við
aðlandarhans vilduekki að hann
sneri við þeim baki. Hann gagn-
rýndi um leið Boris Jeltsín og
sagði að honum hefði ekki tekist
aö ráða fram úr vanda Rússa.
Kaffihjálpar
fólkiaðhugsa
Kafii skerpir hugsunina, bætir
minnið og gerir menn rökfastari,
segir í niðurstööum breskra vis-
indamanna eftir víðtæka rann-
sókn á þessum annars umdeilda
drykk.
Rannsóknin náði til sjö þúsund
manna á Bretlandseyjum. Þeir
voru beðnir að gera grein fyrir
kaffidrj'kkju sinni og síðan settir
i gáfnapróf. Niðurstaðan var að
þeir sem drukku kaffi stóðu sig
betur en hinir.
Löglegtað
Breskur dómstóli hefur komist
að þeirri niðurstöðu að foreldrar
hafi fulian rétt til að hýða óþæg
böm sín.
Mál reis vegna þess að öryggis-
yörður flengdi tvo syni sína með
ól. Hann var kærður fyrir tiltæk-
iðensýknaðurafdómara. Beuter
MA BJOÐA ÞER AÐ PROFA
þennan ódýra, góða og heimilislega m.di?
Lifur er ódýrt hráefni sem fæst allt árið um kring. Það er tilvalið að lækka matarreikninginn með því að hafa rétti úr lifur á borðum minnst einu
sinni í viku. Hér eru tvær góðar og einfaldar uppskriftir að ljúffengum og fljótlegum réttum úr lifur. Gerið svo vel og verði ykkur að góðu.
R B U
1 lifur, urn 450 g
2 msk hveiti eða heilhveiti
salt ogpipar
1- 11/2 dl mjólk
2 laukar, í sneiðum
smjörlíki eða olía
Hreinsið lifrina og hakkið.
Blandið saman við hana
hveiti, kryddi og mjólk.
Athugið að deigið er mjög
þunnt. I það er líka ágætt
að bæta 1/2-1 dl af
haframjöli.
Brúnið laukinn létt í
smjörlíki eða olíu og
geymið hann. Bætið við
feiti og setjið lifrardeigið á
pönnuna með skeið. Steikið
buffín fallega brún í 2-3
mín. hvorum megin.
Leggið laukinn ofan á
buffin og berið þau fram
heit með kartöflum og
soðnu grænmetí, og ef til
vill með bræddu smjöri.
Lifrarbuff er þægilegt að
eiga í frysti og fljótlegt að
hita það upp á pönnu eða í
ofni.
U R
M E Ð
1 lambalifur, um 450 g
2 tsk hveiti
2 tsk sítrónusafi
2 msk sojasósa
1 eggjahvíta
1- 2 laukar, í sneiðum
2- 3 msk olía
salt ogpipar
2 dl kjötsoð (af teningi)
3 hvítlauksrif sóxuð smátt
fínt maísmjöl (maisena)
Blandið saman í skál hveiti,
sítrónusafa, sojasósu og
eggjahvítu. Hreinsið lifrina
og skerið hana í þunnar
sneiðar. Veltið þeim upp úr
blöndunni og látíð þær
liggja í henni í 20 mínútur.
Brúnið laukinn og hvít-
laukinn létt á pönnu og
geymið síðan.
Steikið lifrina í 2-3 mín.
hvorum megin, kryddið
hana með salti og pipar og
takið hana af pönnunni.
Hellið soðinu á pönnuna,
H V
bætið lauknum við og
sjóðið í 3 mín. Þykkið soðið
hæfilega með fínu
maísmjöli hrærðu saman
við kalt vatn og látíð sjóða í
1-2 mín. Setjið lifrina út í
sósuna og látið hana sjóða
með, en alls ekki lengur en
nauðsynlegt er því að lifrin
á að vera mjúk og safarík.
Berið réttínn fram með
hrísgrjónum og grænu
salati.
SAMSTARFSHOPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS