Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1993, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1993
13
Neytendur
Verðkönnun Neytendasamtakanna á kransakökum:
Verðsamanburð -
ur borgar sig
- mesti verðmunur er 83%
Könnun Neytendasamtakanna á
verði kransakaka í 25 bakaríum á
höfuðborgarsvæðinu leiðir í ljós að
verðmunur er umtalsverður. Mesti
verðmunur er 83% og minnsti verð-
munur 14%.
Einnig var kannað verð á hráefni
í kransakökur með styttu og konf-
ekti. Með því að baka kökuna sjálfir
geta neytendur sparað sér miklar
fjárhæðir. Hráefni í 16 hringja köku
kostar um það bil 2.200 krónur en
tilbúin kaka af sömu stærð kostar
5.120-7.975 krónur í bakaríum. Hrá-
efni í 20 hringja köku kostar um það
bil 3.350 krónur en kaka af þeirri
stærð kostar 7.760-13.015 eftir bakar-
íum. Ef bökuð er 24 hringja kaka
heima kostar hún um 4.300 krónur
en myndi kosta 9.838-15.815 krónur
í bakaríum. í þessum útreikningum
er gert ráð fyrir rafmagnskostnaði.
Jafnframt kom í ljós að erfitt getur
reynst að bera saman verð miðað við
stærð. Fæst bakaríanna gátu til-
greint þyngd kakanna en miða þær
við fjölda gesta. Kökur sem gefnar
eru upp fyrir tiltekinn fjölda geta þó
verið mismunandi að stærð. I könn-
un Neytendasamtakanna er miðað
við fjölda hringja. Þess má geta að
20 hringja kaka reyndist gefin upp
sem 30-55 manna kaka, mismunandi
eftir bakaríum.
Þótt könnunin sé aðeins gerö í bak-
aríum á höfuðborgarsvæðinu eru
neytendur utan þess hvattir til að
nýta sér niðurstöðurnar til að bera
saman verö í bakaríum í sinni
heimabyggð. Á það er lögð áhersla
að hér er um beinan verðsamanburð
að ræða en ekki er lagt mat á gæði.
Athugasemdir og skýringar
í sumum tilvikum er akstur með
kökuna að heimili kaupanda innifal-
inn í verði og einnig eru kransaköku-
bitar innifaldir í verðinu í nokkrum
tilvikum. Neytendur eru hvattir til
að spyrja eftir þessu.
í sumum tilvikum er það verð sem
bakaríin gefa upp á kransakökum
án styttu sem skreytir kökuna. í
Verðmunur á kransakökum úr bakaríum er allt að 83% samkvæmt könnun
Neytendasamatakanna. Það borgar sig að baka kökuna heima en þessi
er einmitt heimabökuð.
þeim tilvikum hefur verði styttunnar
verið bætt við verðið eins og það er
birt hér.
Neytendum er bent á að hafa í huga
þegar kransakaka er pönturð að
spyrja eftir útfærslu á skreytingu
sem getur verið mjög mismunandi
eftir bakaríum. Þar má nefna
kransakökusnerkla (eyru), súkku-
laðisnerkla, knöll, sérlagaðar sykur-
skreytingar og blóm í ýmsum út-
færslum. í sumum tilvikum fylgir
aðeins með það konfekt sem notað
er til skreytingar á kökunni sjálfri
en í öðrum tilvikum fylgir einnig
konfekt með á bakkanum.
Þrjú bakarí framleiða stærri
kransakökur en fram kemur í töfl-
unni. Sveinsbakarí selur 26 hringja
köku á 11.370 krónur og Miðbæjar-
bakarí selur sömu stærð á 14.275
krónur, Sveinn bakari selur 27
hringja köku á 13.150 krónur.
Til að auðvelda neytendum saman-
burð á verði þurfa bakarí aö koma
sér saman um staðlaða viðmiðun um
stærð á þessum kökum.
Fjögur bakarí neituðu að veita
Neytendasamtökunum umbeðnar
verðupplýsingar. Þau eru Árbæjar-
bakarí, Borgarbakarí, Kökubankinn
og Myllan.
Fjöldi hringja 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24
AB bakaríið Ðalbraut 1 6.200 7.300 8.000
Bakaram. Stigahl. 45-47 9.270 11.100
Bakariið Austurveri 7.400 10.215 13.015 15.815
Bæjarb. Bæjarhrauni 2 6.100 8.500 9.700
Bemhöftsb. Bergststr. 13 7.300 8.300
Björnsb. Austurstr. 14 7.600 9.900 11.900
Björnsb.Grímsbæ 6.970 7.750 9.300 ÍtJWO
Björnsb. Klapparst. 3 6170 8.070 9.870
Brauðberg Hrauntergi 4 5.250 7.750 9.750 11,750
Breiðholtsb. Völvuf. 13 3.934 5.889 7.760 9.838
G. Ölafsson og Sandholt 8.561 10.820 12.600
Grensásb. Garðabæ 6200 7.500 9.200
Gullkomið Iðnbuð 2 6.026 7.970 10.022
Þórsb. Borgarholtsbr. 19 5.400 8.100
Þrir fáfkar Smiðjuv. 4e 5.060 7.645 9.845 12.650
Kornið Hjallabr. 2 7.055 9.105
KrásHólmasefi2 6.989 9.196 11.071
Miðbb. Háalbr. 58-60 6575 7.975 9.775 12.275
Möndlumassi Kleifars. 18 6.900 9.200 11.500
Mosfellsb. Urðarbr. 2 5.120 7.131 8.800 11.000
Nýja kökuh. Auðbrekku 2 7.116 9.379 10.416 12.729 15264
Smárab. Kleppsv. 152 9.074 10.225
Svansb. Dalshrauni 13 7.650 10.080
Sveinn bakari Álfab. 2 5.950 9.200 10.920
Sveinsb.Amarbakka4-6 6.900 9200 11.000
Lægstaverð 3.934 5.060 5.120 5.889 6.170 9.105 7.760 8.070 8.000 '9.870 9.838
Haestaverð 7.116 9.270 7.975 9.379 11.100 10.416 13.015 12.729 11.071 15264 15,815
Mismunuriprósentum 81% 83% 56% 59% 80% 14% 68% 58% 38% 55% 61%
Volvo F610 - árgerð 1985
Bíll ítoppstandi-Góð dekk-Ekinn 190.000.
Kassi og lyfta nýyfirfarið. Verð kr. 1.600.000,-
Nánari upplýsingar gefur
Heiðar Sveinsson i sima 686633
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík, cími 686633
Matur og kökur
fyrir páskana
Miðvikudaginn 31. mars mun aukablað um
matartilbúning fyrir páskana fylgja DV.
Meðal efnis:
Matargerð hjá lærðum og leikum.
Forréttir, aðalréttir, tertur o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi
samband við Sonju Magnúsdóttur, auglýs-
ingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 25. mars.
Ath.! Bréfasími okkar er 63 27 27.
^gllí 1
Trygging hf.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar
sem hafa skemmst í umferðaróhöppum:
Toyota Corolla 1993
Hyundai Pony 1992
MMC Pajero 1991
Saab 9000 1990
MMCColt 1989
Nissan Micra 1988
Subaru coupé turbo 4x4 1800 1988
Subaru station 1800 4x4 1987
Lada Sport 1987
Lada 1500 1986
Fiat127 1984
Toyota Corolla 1982
Mazda 626 1982
Saab 99 1982
M. Benz250 1979
Saab 900 1986
Fiat Uno 1987
Nissan Sunny Van 1990
Lada 1200 1986
Lada 1200 1988
Bifreiðamar verða til sýnis miðvikudaginn 24. mars
1993 í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum
óskast skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar
hf., Laugavegi 178, 105 Reykjavík, sími 621110.