Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993 íþróttir unglinga Handbolti: Frábær þátttaka ílcelaml-Cup FH-ingar halda alþjóðlegt hand- boltamót fyrir yngri flokka, Ice- land-Cup, nú um páskana. í sam- tali við DV sagði Geir Hallsteins- son, iramkvæmdastjóri mótsins, að þátttökulið væru 84, þar af 6 lið frá Svíþjóð og Þýskaiandi sem væri langt umlram það sem hann hefði gert ráö fyrir. Áætlaö er aö um 1200 krakkar taki þátt í mót- inu. Keppnin byijar á skírdag og lýkur á páskadag og hefst alla dagana kl. 8.00 á morgnana og stendur til kL 23.00 á kvöldin. Leikið er í 5., 4„ 3., og 2. flokki karla og kvenna og fara leikimir fram í Kaplakrika og í íþróttahús- inu við Strandgötu. Fólk er eíndregið hvatt til að koma og fylgjast með skemmti- legum leikjum unglinganna yfir páskana. Stefnuleysi HSÍ Geir Hallsteinsson, fram- kvasmdastjóri Iceland-Cup hand- boltamóts FH, sagðist í samtali við DV hafa miklar áhyggjur af slælegri frammistööu stjórnar- manna HSÍ gagnvart yngri landsliðunum: „Ég undrast mjög stefnuleysi stjómarmanna HSÍ. Það er ekk- ert unghngalandslið í gangi um þessar mundir og allir mæna til ársins 1995. Það er engu líkara en þessir menn haldi að þá ljúki allri handboltaiökim á íslandi. Öllum ætti að vera ljóst að það má aldrei slaka á i uppbyggingar- starfinu; þar ræðst framtíöin og því er mikilvægt að það starf tak- ist sem allra best,“ sagöi Geir. -Hson Knattspyma: Þrjústórmótuppi áSkagaísumar Eins og undanfarin sumur mun Knattspymufélag ÍA standa fyrir mótum í 5„ 6. og 7. flokki drengja. Þessi mót eru: Landsbankamót 5. flokks og fer það fram 18.-20. júní. Lottó-Skagamótið í 7. flokki sem haldiö verður 16.-18. júlí. Fantamótið í 6. flokki sem fer fram 13.-15. ágúst. Skráning í þessi mót er þegar hafln og gefúr Hafsteinn Gunnars- son nánari upplýsingar og sér um skráningu í vs: 93-13311/13393, kl. 14.00-16.00 og hs: 93-12605, eða faxi: 93-13012. Skráningarfrestur renn- ur út 7. maí. -Hson Knattspyma: Drengjalandsliðið tilSkotlands Drengjalandsliðið (U-16) heldur til Skotlands í dag og munu strák- amir leika tvo æfingaleiki gegn skoska drengjalandsliðinu. Björgvin Magnússon, Werder Bremen, fer ekki með liðinu, því að hann fær sig ekki lausan hjá þýska félaginu. Ferðin er liður í undirbúningi fyrir úrslitakeppn- ina í Evrópukeppni landsllða sera fer fram 26. apríl i Tyrklandi. ís- land vann sér þátttökurétt á síð- astliönu sumri. -Hson Körfumeistarar fslandsmótinu i körfubolta er lokið og hafa eftirtalin lið sigrað: Karlaflokkar Unglingafl.: KR. Drengjafl.: ÍBK. 10. fl.: Tindastóll. 9. fl.: Haukar. 8. fl.: KR. 7. fl.: KR. Minnibolti: IBK. Kvennaflokkar: Minnibolti: UMFG. 8. flokkun KR. Stúlkna- flokkun ÍBK. UnglíngafL: Tmda- stóll. Bikarmeistarar: 9. fl. karla: Valur.. 10. fl. karia: ÍBK. Drengja- fl.: IBK. Unglingafl. kvenna: TindastóU. Ungl.fl. karia: KR. Stúlknafl.: UMFN. -Hson DV Reykjavíkurmótið í alpagreinum í Armannsskála: Heimamenn í sólskinsskapi - og sópuðu til sín um helmingi verðlauna Fyrir skömmu fór fram Reykja- víkurmótiö í alpagreinum, yngri aldurshópa, og var keppt í Sól- skinsbrekku við Ármannsskála. 3Keppt var í aldursflokkunum 9-12 ára, 11-12 ára stelpna og stráka og 15-16 ára flokki pilta og stúlkna. Umsjón: Halldór Halldórsson Ármannskrakkarnir voru í mikl- um ham og unnu 14 verðlaunapen- inga af 32, sem verður að teljast frábær árangur. - Úrsht uröu sem hér segir. Svig 15-16 ára pilta: Hjörtur Waltersson, Árm....1:43,49 Gauti Sigurpálsson, ÍR.....1:45,05 Árni Geir Ómarsson, Árm.....1:48,11 Svig stúlkna, 15—16 ára: Ama Þ. Káradóttir, Árm.....2:02,36 LindaThorlacius, Vík........2:02,95 Magnea Hafsteinsdóttir, ÍR.2:05,63 Stórsvig pilta, 9-12 ára: Ólafur Öm Axelsson, ’82, Vík..l:09,ll Birgir H. Hafstein, ’82, KR.1:10,61 Steinn Sigurðsson, ’82, KR..1:12,27 Stórsvig stúlkna, MO ára: Sæunn Birgisdóttir, ’82, Árm. .1:08,39 Dagmar Siguijónsd., ’82, Vík...1:09,74 Erika S. Pétursd., ’82, Árm..1:12,93 Sólrún Flókadóttir, ’83, Fram..l:14,74 Bima Haraldsdóttir, 8Þ3, Árm. .1:17,13 Stórsvig pilta, 11-12 ára: Brynjar Bragason, '80, Fram...l:05,49 Friðþjófur Stefánss., ’80, Árm. 1:06,55 Þorgeir H. Ólafsson, ’80, KR ....1:07,79 AmarG. Reynisson, '81, ÍR....1:07,85 Halldór H. Jónsson, ’81, Árm...l:12,75 Stórsvig stúlkna, 11-12 ára: Helga Halldórsd., ’80, Árm...1:05,32 Bryndís Haraldsd., ’80, Árm. ...1:06,16 ÁgústaB. Svavarsd., ’80, KR ...1:11,13 LiljaKristjánsdóttir, ’81,KR ...1:06,16 Inga Sveinbjömsd., ’81, Árm. ..1:13,79 Mikill áhugi Haraldur Haraldsson, formaður skíðadeildar Ármanns, sagði í sam- tali við DV að skíðaáhuginn væri mjög mikill og um 150 krakkar stunduðu skíðaæfmgar að stað- aldri hjá félaginu. Foreldramir eru einnig mjög virkir og vinna mjög gott starf og þá sérstaklega þegar mót eru í gangi. -Hson Þrír bestu í stórsvigi pilta 11 ára. Frá vinstri: Halldór H. Jónsson, Ár- manni, sem varð i 2. sæti, Arnar Gauti Reynisson, ÍR, sem sigraði og Karl Maack, ’83, KR ...........1:16,27 Örn Ingólfsson, ’83, Árm.......1:18,79 Magnús Blöndal, Víkingi, sem varð í 3. sæti. Haraldur Haraldsson, for- maður skíðadeildar Ármanns, afhenti verðlaunin. Bikarkeppni Körfuknattleikssambands íslands: Njarðvíkurstúlkumar bestar - og unnu Grindavík 1 úrslitaleik, 43-26. - Auður með 18 stig Stúlknaflokkur Njarðvíkur mætti Grindavík í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ og fór leikurinn fram í Austur- bergi síðastliðinn laugardag. Loka- tölur leiksins urðu þær að Njarðvík skoraði 43 stig gegn 26 stigum Grindavíkur. Njarðvíkurliðið var betra allan tímann en Grindavíkur- stúlkurnar áttu sinn besta kafla í fyrri hluta síðari hálfleiks og söxuðu þá mjög á forskotið. En Njarðvíkur- stúlkumar léku eins og meistarcir á lokamínútunum og unnu sannfær- andi. Stigahæst hjá Njarðvík varð Auður Jónsdóttir með 18 stig, Hólmfríður Karlsdóttir 13, Pálína Gunnarsdóttir 6, Hulda Einarsdóttir 2, Sigríður Ingadóttir 2 og Sólveig Karlsdóttir 2 stig. Fyrirliðinn, Hulda Einarsdóttir, hirti alls 12 fráköst, Pálína og Hólm- fríður 5, Auður, Sigríður og Sólveig 3. - Njarðvík lék án Jónu Karenar Valsþórsdóttur sem var meidd. -Hson Hulda Einarsdóttir, fyrirliði stúlknaflokks Njarðvíkur, fær góða meðferð, enda varð lið hennar bikarmeistari 1993 í körfubolta. Hér fagna stúlkurnar eftir sigurinn gegn Grindavík. - Eftirtaldir leikmenn skipa liðið: Magdafena Smáradóttir (4), Ingibjörg Þórðardóttir (5), Sólveig Karlsdóttir (6), Sigriður Ingadóttir (7), Auður Jónsdóttir (8), Hulda Elnarsdóttir, fyrlrllði (9), Pálfna Gunnarsdóttir (10), Hólmfríður Karlsdóttir (11), Sonja Jónsdóttlr (12), Lóa Hilmarsdóttir (13), Berglind Leifsdóttir (14) og Elin Óladóttir (15). Lengst til hægri er Jóna Karen Valþórsdóttir sem var meidd. Þjálfari liðsins er Jóhannes A. Kristbjörnsson. DV-mynd Hson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.