Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 32
ÖRYGGI - KAGMKNNSKA 1.ANDSSAMBAND ÍSI- RAPVKRKTAKA Veðrið á morgun: veður Á morgun verður austan- og suðaustlæg átt á landinu, súld og síðan rigning við suður- og aust- urströndina en þurrt og víða bjart veður norðan- og norðvest- anlands. Hiti 2-8 stig og hægt hlýnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 28 Björgunarafrek: Hrópaðiog drómigað pottinum „Magdalena datt í vatnið og fór í sjúkrabílinn. Ég hjálpaði henni,“ segir Sævar Baldur Lúðvíksson, tveggja og hálfs árs, sem bjargaði frænku sinni, Magdalenu Björk, eins og hálfs árs, frá drukknun í gærdag. Sævar og Magdalena voru við leik á leikvelli fyrir utan hús ömmu og afa stúlkunnar í Mosfellsbæ. Þau fóru af leikvelhnum og inn í nálægan garð, töluvert frá, þar sem þau hafa aldrei leikið sér áður. Þar stóð heita- vatnspottur, hálffullur af köldu rign- ingarvatni, og Magdalena féll ofan í hann. „Ég var inni í húsi þegar Sævar kom til mín og sagði að Magdalena væri í „vissinu", sem er vatn. Ég skildi ekki hvað hann átti við en hann leiddi mig áfram og fór með mig út og í átt að garðinum. Mér fannst þetta vera mjög langt og trúði ekki að hún hefði farið svona langt og ætlaði að hætta við. Hann tosaði þá og reif í mig og hrópaði ákveðið: „Komdu, komdu“, og leiddi mig áfram að pottinum," segir Bjamey Lúðvíksdóttir, móðir Magdalenu og systir Sævars. Hún segir að Sævar hafi greinilega reynt að grípa í Magdalenu áður en hann kom og náði í hjálp því hann var blautur á handleggnum. „Ég greip hana upp og reyndi að gera það sem ég hélt að væri rétt. Hún opnaði augun og það kom aðsog en hún andaði ekki. Þá hrópaði ég á hjálp og nágrannarnir komu og einn þeirra blés í hana lífi,“ segir Bjamey sem segir að lögregla segi að því miður sé mjög algengt að fólk byrgi ekki pottana sína. Magdalena var flutt á Landspítal- ann þar sem hún var í nótt. Hún hefur nú náð sér að fullu og fær að faraheimídag. -ból Bruggarar teknir: Stálu tækjunum frá lögreglunni Hald var lagt á bmggtæki og um 400 htra af gambra í miðbæ Reykja- víkur síðdegis í gær. Mikið var einn- ig tekið af efnum og tækjum til bmggsins. Við leit í íbúðinni fundust einnig ýmsir munir svo sem stöðu- mælir, umferðarmerki og fleira. Bruggaramir vom tveir og höfðu þeir stolið bmggtækjum úr geymslu lögreglunnar á Akranesi í fyrra. Mennimir, sem em Akumesingar, vom báðir handteknir í gær. Bragg- tæki lögreglunnar á Akranesi fund- ust við leitina. Málið er talið upplýst. -Ari LOKI Er ekki tímabært að sjálf- stæðismenn skipti um fugl ífánanumsínum? louneytm Kaua á 5, „Við verðum að ganga ut frá sömu forsendum í ríkisijármálum og atvínnumálum og era í dag. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á það hver þróunin verður. Hvað gert verður í fiskveiðunum skiptir höfuðmáli í þessu sambandi. í gild- andi fjárlögum er innbyggöur ut- þensluvandi og þaö er ljóst að okk- ar bíður mikill vandi við gerö ijár- laganna," segir Priðrik Sophusson fjármálaráðherra. Friðrik kynnti ríkisstjórninni í morgun fyrstu drög að flárlaga- frumvarpi fyrir næsta ár. í kjölfar- ið er að vænta ákvörðunar um meginstefnuna varðandi tekjur og gjöld ríkissjóðs næsta árs. Miðað við fyrirliggjandi útreikninga fag- ráðuneytanna myndu útgjöld ríkis- sjóðs hækka um 5,9 mxHjarða á næsta áiá. í drögunum er gert ráð fyrir 5 prósent ari'innuleysi á næsta árL Samkvæmt heimildum DV kaila gildandi lög og reglur á 4,4 millj- arða í aukin útgjöld á næsta árL Til aö mæta auknu atvinnuleysi skortir 1,9 miiljarða. Ymsar ákvarðanir í fiárlögum þessa árs, sem koraa eiga til framkvæmda á næsta ári, kafia á minnst 160 millj- ónir í aukin útgjöld, einkum í heU- I drögum fiármálaráðherra er gert ráö fyrir að íækka ýmás tíma- bundin útgjöld um 850 miUjónir. Mest munar um 650 milljón króna skerðingu framlaga til sérstaks átaks í vegaframkvæmdum. Þá er lagt til að hætt verði við að setja 300 milljónir af sölutekjum ríkis- eigna í rannsóknir. Samtals gera drögin ráð fyrir að tæplega 1,5 milljarðar fari í ný áform. í stofnframkvæmdir eru settar 800 miiljónir, Framlag til Þjóðarbókhiöðu hækkai’ um 250 milfiónir og í húsaleigubætur eru settar 300 miiljónir. Framlög til Feröamálaráðs eru skert um 133 milfiónir en á hinn bóginn era sett- ar 155 miUjónir aukalega í land- græðslu og 100 mUljónir í sjúkra- flutninga f Reykjavík. -kaa ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 1993. Lítill drengur kannar innihald tunnu sem lögreglan lagði hald á í gær og fannst lyktin ekki góð. Bruggtæki, sem stolið var frá lögreglunni á Akranesi í fyrra, fundust ásamt öðrum tækjum, efnum og 400 lítrum af bruggi í ibúð i miðbæ Reykjavikur í gær. DV-mynd Sveinn Sveinn Einarsson: Kaupin á mynd Hrafns komu mér gjörsamlega á óvart Sveinn Einarsson, fyrrverandi deUdarstjóri innlendrar dagskrár Sjónvarpsins, sagði við DV í morgun að sér hefði komið það gjörsamlega á óvart í gær að stofnunin hefði keypt mynd Hrafns Gunniaugssonar, Hin helgu vé, í september síðasthðnum, á sama tíma og hann gegndi enn framangreindri stöðu. Sveinn segist hafa hafnað mynd Hrafns á sínum tíma vegna grundvaUarforsendna - þeirra sömu og framkvæmdastjórn Sjónvarpsins studdist við þegar mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar var hafnað. „Friðrik Þór Friðriksson kom að máh við mig og spurði mig hvort sjónvarpið vUdi gera eins í sambandi við mynd hans, Börn náttúrannar, og gert hafði verið við Lárus Ými Óskarssonar með Ryð. Þama var um stefnubreytingu að ræða og því grundvaharmál. Ég tók það strax upp við Pétur Guðfinnsson og framkvæmdastjóm og fékk þau svör að ekki væri ástæða tU að breyta þessari grundvaUarafstöðu. Þegar Hrafn Gunnlaugsson færði sams konar í tal við mig síðar varð- andi sína mynd vísaði ég tU þessarar grandvaUarafstöðu Péturs Guð- finnssonar. Þar sem mynd Friðriks hefði verið hafnað gæti ég ekki annað séð en að það sama gUti fyrir þá báða. Síðan kemur það mér gjörsamlega á óvart í gærmorgun í útvarpi að gerð- ur hefði verið samningur um þessa mynd. Það hafði ég aldrei gert. Ef það hefur verið gert í september þá er það í minni dagskrárstjóratíð því þar er ég formlega fram tU 1. mars.“ - Taldir þú eðhlegt á sínum tíma að framkvæmdastjóri afgreiddi mál Hrafns. Vísaðir þú því til Péturs? „Nei, það er ekki rétt. Ég vísaði til þess að Pétur hefði tekið af skarið varðandi mynd Friðriks Þórs. Það er því ekki rétt að ég hefði taUð eðh- legt að framkvæmdastjóri fiaUaði um máhð á þeim forsendum." -ÓTT i i i i i i i i i i i i i i i i é Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur. Bitstjórn - Ayglýsífigar - Askrift - Dreifing: Sími (fö27W

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.