Alþýðublaðið - 18.03.1967, Page 6
Aðalfundur
Félags fram-
reiðslumanna
AÐALFUNDUR Félags fram-
reiðslumanna var haldinn 20. feb.
sl. Á fundinum var kjörinn for-
maður til eins árs og tv'eir nýir
stjórnarmeðlimir til tveggja ára
og er stjórnin þannig skipuð: Jón
Maríasson formaður, Garðar Sig-
urðsson varaformaður, Leifur
Jónsson ritari, Valur Jónsson
gjaldkeri, Viðar Ottesen aðstoðar-
gjaldkeri. Til vara: Janus Hall-
dórsson, Wilheim Wessmann, Guð
mundur H. Jónsson.
Form. félagsins flutti skýrslu
um störf félagsins á liðnu ári.
Starfsemi félagsins var mjög
iþróttmikil og til marks um það
má geta þess, að haldnir voru 32
bókaðir stjórnarfundir og 9 félags
fundir á árinu.
Finnska stúikan Satu Östring, sem er fegurðardrottning Norðurlanda, sýnir hér búninginn, sem stúlkurnar í sýningarskála Norður-
landa á beimssýningunni í Montreal munu bera. Hann er blár á lit, teiknaður af Pi Sarpaneva, Undir eru tvær blússur, önnur í
fánalit vi komandi lands, og einnig fylgir skyrtukjóll í sama lit fyrir sumarið. Fjórar íslenzkar stúlkur munu starfa í ísl. deild-
inni og k æðast þessum búningi.
ÞAÐ teljast víst varla fréttir
lengur, þegar nýtt fiskiskip bæt-
ist í flotann. Nýr, stór bátur,
Helga II. bættist í flota Reyk-
víkinga í vikunni. En frétt hlýt-
ur það þó að vera að hann er að
búa sig út á netaveiðar, því aðr-
ir líta varla við öðru en nóta-
veiðum. Eigandi skipsins er
binn kunni afiamaður sem lengst
af hefur gen'gið undir nafninu
„Ármann á Helgunni".
Aflinn er misjafn hjá bátun-
um, en mest ber þó á góðum túr-
um sem Ásgeir gerir. Eins og nú
horfir má búast við að hann
verði Þorvaldi á Ásþór erfiður.
Skipstjóri á Ásgeiri er Garðar
Magnússon.
Geta má 'þess að þegar þetta
er skrifað (hádegi á fimmtudag)
er Ásgeir að landa um 50 tonn-
um.
Loðnubátarnir landa hér allt-
af við og við en heldur hefur
tregazt hjá þeim og í dag,
fimmtudag, eru þeir allir á inn-
leið með slatta. Hæstur loðnu-
bátanna er Öm RE með úm
5100 tonn, sem er að aflaverð-
mæti rúmlega 2 milljónir. Þessir
bátar lönduðu loðnu í Reykjavík
í vikunnh Vigri 366' tonnum,
Börkur 5S4 tonnum, Arnar 398
tonnum, Ögri 403 tönnum, Grótta
177 tonnum, Þórður Jónasson
614 tonnum, Barði 58 tonnum,
Örfirisey 411 tonnum, Þorsteinn
204 tonnum, Gísli Árni 366 tonn
um en auk þess landaði hann 14
tonnum af þorski, Bára 100 tonn
um, Árni Magnússon 253 tonn-
um, Brettingur 103 tonnum. Alls
,er þetta um 4250 tonn og er þá
Klettur búinn að taka við alls
um 20.250 tonnum af loðnu. Nú
er bræla á miðunum, en þróar-
rými hjá Kletti er fyrir um 500
tonn.
Togararnir
Togararnir selja hver öðrum
betur um þessar mundir. í vik-
unni seldi Surprize í Bremer-
haven 196 tonn fyrir 151.500
mörk og Ingólfur Amarson í
Cuxhaven 228 tonn fyrir 171.700
mörk. Maí selur á föstudag (þ.
e. í gær) og síðast er ég frétti
var búizt við svipaðri sölu og síð
ast og vil ég þá meina að þetta
fari nú að hætta að vera „norm-
alt“ með það skip. Fiskkaupend-
ur í Þýzkalandi voru búnir að
kaupa 150 tonn áður en skipið
kom til hafnar, sem þýðir að
verðið er mun hagstæðara en
venjulega á markaðnum. Alls
var Maí með um 300 tonn. Heyrt
hef ég að Halldór sé all býræf-
inn í ísnum við Grænland og hafi
ekki átt auðvelt með að komast
út úr 'honum núna síðast. Alla-
vega, eitthvað hlýtur hann að
hafa sem aðra vantar. í næstu
viku eru síðustu sölur fyrir páska
ag má úr því fara að búast við að
togararnir fari að landa meira
heima. í Þýzkalandi eiga Karls-
efni, sem er með um 160 til 170
tonn (60 tonn ýsa) og Þormóður
Goði að selja í Bremerhaven.
Þormóður er með ca. 260 tonn,
aðallega karfa. Ekki er hægt að
kalla það frekju að ætlast til að
þeir selji vel, t.d. mun vera mjög
hátt verð á ýsu þar núna. Einn-
ig á Úranus að selja í Þýzkalandi
í næstu viku en ekki er mér kunn
ugt um afia hans. Einn togari
landaði í Reykjavík í sl. viku,
Neptúnus 14. 3. 78,5 tonn. Á
mánudag landar Jón Þorláksson
hér heima um 130 tonnum. Ekki
er vitað um neinn togara við A-
Grænland eins og er, en sjálf-
sagt fara þeir þangað ef sunnan-
áttin vill vera svo væn að halda
sér þar um slóðir, því þá flýr is-
inn undan henni. En það verður
kannski bið eftir henni þangað
til Maí fer þangað næst.
Sem kunngt er gekk á ýmsu í
samningaumleitunum FF við SVG
sl. sumar. Kom til verkfalls fram-
reiðslumanna hinn 8. júlí, en það
var bannað með bráðabirgðalög-
um 79/1966 hinn 15. júlí.
í janúar sl. var svo aftur sezt
að samningaborðum með veitinga
mönnum og fór nú allt friðsam-
lega fram, ekki kom til verkfalls
og voru samningar undirritaðir
31. janúar. Merkasti áfanginn, sem
náðist í samningum þessum var
stofnun Lífeyrissjóðs Félags fram
reiðslumanna, einnig liækkaði or-
lof nokkuð.
Sl. haust gekkst Félag fram-
reiðslumanna fyrir námskeiði fyr-
ir aðstoðarstúlkur framreiðslu-
manna, var það vel sótt og þótti
takast hið bezta í alla staði.
Fjárhagur félagsins er með á-
igætum og innan félagsins er starf
andi öflugur sjúkrasjóður. Ár-
gjald félagsmanna er kr. 300,00
óbreytt frá síðasta ári. Félags-
menn eru nú um 90.
Aðalfundur
Múrarafélags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Múrarafélags
Reykjavíkur var haldinn að Freyju
götu 27, þriðjudaginn 28. febrúar.
Formaður félagsins, Hilmar
Guðlaugsson flutti skýrslu stjórn-
ar og skýrði frá starfsemi félags-
ins á liðnu ári. í upphafi minnt-
ist formaður fjögurra félaga er
létust á liðnu starfsári og vottuðu
fundarmenn hinum látnu virðingu
með því að rísa úr sætum.
Gjaldkerar gerðu igrein fyrir
reikningum félagsins og voru
nettóeigmr-hinna ýmsu sjóða um
síðustu áramót kr. 3.309.347,36.
Eignaaukning á síðasta ári varð
■kr. 633.934,45. Úr sjúkra- og elli-
styrktarsjóði félagsins voru veitt-
ir stýrkir að upphæð kr. 267.140,00
■ Veruleg breyting var gerð á
reglugerð sjúkra- ag eliistyrktar-
sjóðsins, styrkir voru hækkaðir
Framhald á 14. síðu.
Pétur Axel Jónsson.
Bátar alls 9/3 fÓ/3 11/3 12/3 13/3 14/3 15/3 alls
iBlakkur 106.640 2.770 6.170 9.760 5.970 1.820 14.660 147.790
Kári Sölm 43.920 7.290 • 8.130 59.340
Fróði 45.880 2.000 4.060 6.760 8.220 67.000
ísl. II 30.100 25.170 3.180 7.440 6.170 0.920 3.560 76.540
Valur 30.640 7.140 7.920 3.340 9.290 58.330
Geir 30.480 3.180 6.350 40.010
Sædís 43.870 7.780 11.370 63.020
Andvari 4.880 4.880
Víkingur 69.400 - - ' ' - 4.270 73.670
Kristbj. 3.320 3.320
Þór Ól. 11.240 7.250 18.490
Smári 2.640 2.970 2.870 7.800 16.280
Ásgeir 149.850 40.060 53.330 243.240
Ásbjörn 112.850 22.720 .21.080 16.650 173.300
Ásþór 219.530 25.060 31.490 18.900 294.980
Hafþór 71.310 10.280 8.350 99.830
Helga 113.850 16.050 22.170 20.670 172.740
Húni II 59.250 10.620 17.440 87,310 -
JÖjóIx 18.776 4.990 10.880 11.520 46.160
Hrönn II 6.156, 4.930 4.570 15.650
Aðalbjörg .... 6.550; 4.690 5.050 8,740 0.830 25.860 •'•■•
Ásbjörg ...... 9.420 4.260 4.860 3.700 6.280 28.520
$ 18. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ