Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Síða 9
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993 9 Utlönd kartöflur Góða veðrið í Danmörku síð- ustu vikur hefur verið mjög hag- stætt kartöflubændum þar í landi og nú er fyrsta uppskera sumars- ins konún á markaðinn. Er það óvenjusnemmt því venjuiega koma nýjar danskar kartöflur ekki á markað fyrr en lengra er Iiðiö á maí. Var söluverð þessara kartaílna í hærra lagí eða 10.000 krónur íslenskar á kílóið og veit- ingahús eitt keypti kartöflurnar á 800 krónur stykkíð. Réttarhöldum Miulokið Réttarhöldum í máli Woody Allen og Miu Farrow er nú lokið, alla vega í bili. Ein 30 vitni hafa veriö leidd í vitnastúkuna og skjölin eru upp á samtals 3.500 slður. Lögfræðingar Miu halda því enn fram að Wootly misnoti börn kynferðislega en lögfræðingar Woody segja að Mia sé kolvitlaus. Barnalækn- irinn John Le- venthal gagn- rýndibæði Wo- ody og Miu harðlega við réttarhöldin. Sagði hann að Woody væri stifur, sjálfselskur, kaldur og stundum mikill harðstjóri en að Mia skildi ekki tilfinningalegar þarfir bama sinna og að samband hennar viö sjö ára fósturdóttur sína, Ðyian, væri of náið og hreinlega kæfandi. Reyndiað smygla heróíni til Noregs Júgóslavi, búsettur í Dan- mörku, var handtekinn fyrir stuttu í Moss í Noregi fyrir að vera með 660 grömm af heróíni á sér. Júgóslavinn var að koma með lest frá Kaupmannahöfn er toll- verðir fundu efnin. Höföu þeim borist upplýsingar utan að frá um aö maðurinn væri meö eitthvaö óhreint í pokahorninu. Maðurinn er nú í íjögurra vikna gæsluvarðhaldi og má hvorki fá gesti né póst. JimmyCarterí Paraguay Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna, mun fara fyrir sendinefnd í Paraguay sem á aö hafa eförlit með flöiflokkakosn- ingum þar í landi sem verða á sunnudaginn. Þaö voru þrír forsetafram- bjóðendur í kosningunum sem fóru þessa á leit við Cart- :| er. Hann hefur áðurfylgstmeð kosningum í Panama, Nicaragua, Haiti, Guy- ana, Zamblu og Dómíniska lýö- veldinu og ákvað að verða við bón Paraguaymanna þó að svo stutt- ur tími væri til stefnu. Eftir að Carter tapaöi í viður- eigninni viö Ronald Reagan um forsetasætið 1980 stofnaöi hann Carter Center í Atlanta í Georgiu- fylki. Verður hann nú í forsvari fyrir 25 manna hóp sem ásamt hópi frá National Democratic Institute for International Affairs mun fylgjast með kosningunum en auk þess verða fulltrúar frá 12 öðrum löndum. ■ Reuter Friðartillögur Sameinuðu þjóðanna: Bosníu-Serbar segja blátt nei Þing Bosníu-Serba hafnaði í nótt friö- artillögum Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir aö leiðtogar þess væru þegar búnir að samþykkja þær og að Bandaríkin hefðu hótað loftárásum. Með miklum meirihluta atkvæða ákvað þingið með harðlínumenn í broddi fylkingar að bera tillögumar undir þjóðaratkvæðagreiöslu þann 15. og 16. maí nk. Júgóslavneskir, serbneskir og grískir leiðtogar hvítnuðu í framan þegar niðurstaða þingsins var gerð heyrum kunn og Ijóst var að óskir þeirra höfðu verið virtar að vettugi. Haft var eftir Radovan Karadzic að ef þingið hafnaði tillögunum myndi slíkt hafa hörmulegar afleiðingar. „Þing Bosniu-Serba hefur tekið þá verstu ákvörðun sem eitt þing getur tekið,“ sagði Dobrica Cosic, forseti Júgóslaviu, eftir 17 tíma fund þings- ins. Atkvæði fóru þannig að 51 þing- maður hafnaði tillögunum, 12 greiddu ekki atkvæði og aðeins tveir voru þeim fylgjandi. Niðurstaöan þykir gífurlegt áfall fyrir Karadzic, leiðtoga Bosniu-Serba, sem haíði undirritað friðartiUögumar í Aþenu á sunnudaginn, og fyrir forseta Serb- íu, Slobodan Milosevic, en viðskipta- þvinganimar era famar að hafa mik- il áhrif þar í landi. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Warren Christopher, sem nú er staddur í Brussel, haíði þegar sam- band við Hvíta húsið en undanfama daga hefur hann reynt að fá aðildar- þjóðir NATO til að herða aögerðimar gegn Serbiun. Keuter klippiimóður sína Eins og allir vita fékk mynd harðjaxlsins Clints Eastwood, Unforgiven, óskarsverðlaun sem besta mynd ársins 1992. Þaö scm færri vita er að móðir hans, RuthWo-» r od, lék i mynd- inni en var klippt í burtu. „Ég endaöi á gólfmu," sagöi mammagamla, sem er áníræðis- aldri, er hún tók á móti viður- kenningu íyrir störf sonar síns í Carmel í Kaliforníu þar sem þau búabæði. Wood sagði að hún hefðí eytt einum degi á tökustað myndar- innar klædd í fyrirferðarmikinn og ailtof þykkan kjól með bióma- hatt á höföinu. Tók hún þátt í atriði þar sem fólk sést fara um borð í lest. Atriðiö var tekið upp átta sinn- um. Reuter yvxxxxxvvvvxvvvvvwvvwwvxvvv^ Slasaður borgari Sarajevo höktir á hækjum á brúnni yfir Miljacka-ána. Þing Bosniu-Serba hafnaði friðartillögum SÞ þannig að ekki er útlit fyrir að bar- dagarnir taki enda á næstunni. Sfmamynd Reuter \ s s V s s Aukin þjónusta! Ný fatadeild Lengdur opnunartími í sumar: Föstudaga kl. 9-19• Laugardaga k! 9 -16 og sunnudaga kl. 10 -16 HAFNARSTRÆTI 5 ' REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800 Rússarborga skipaviðgerðir meðfiski Færeyska skipasmiðastöðin og rússneski fiskiskipaflotinn hafa gert með sér samning sem þýðir aukna atvinnu í Færeyjum. Samningurinn felur í sér að Rússar borgi með fiski fyrir viðgerðir og klössun á fiskiskip- um sínum hjá færeysku skipasmíða- stöðinni sem er í bænum Skála á Austurey. Nýi samningurinn er viðbót við fyrri samvinnu þessara aðila og hef- ur þýtt aö næg atvinna hefur verið í skipasmíðastöðinni þrátt fyrir efna- hagskreppuna í Færeyjum. Nýrutanríkisráð- herraífinnsku ríkissfjórnina Nýr utanríkisráðherra Finnlands, Heikki Haavisto, sagði í gær að ekki yrði auðvelt að fá Evrópubandalagið til að fallast á skilyrði Finna þegar viðræður um inngöngu Finnlands í EB hæfust. Haavisto gegndi formennsku í sam- tökum landbúnaðarframleiðenda og skóglendiseigenda og er þekktur fyr- ir gagnrýni sína á aðild að EB. Skipan Haavistos í ráðherraemb- ættið hefur verið umdeild, einkum vegna afstöðu hans til EB og reynslu- leysis hans í utanríkismálum. Ritzau og Reuter Kynnir nýja kynslóð Laser prentara Kynningar Verð frá 79.900.- kr. gildir út maímánuö •Afkastameiri: 9-16 síður á mín. •Risc örgjafi: grafísk vinnsla hraövirkari •Hermir: HP LacerJet III, Epson FX-80 IBM Graphic printer & Proprinter Möguleikar: •Minnisstækkun allt aö 9 MB •PostScript •Apple Talk •og margt fleira Hverfisgata 103-101 Reykjavík Sími 627250 Fax 627252

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.