Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
1
Spumingin
Fylgdist þú með eldhús-
dagsumræðum frá Al-
þingi?
Birgir Hauksson: Nei, enda er ég ekki
vanur því.
Þorbergur Kjartansson: Nei, þaö
gerði ég ekki.
Friða Björk: Nei, ég pæli ekkert í
Alþingi.
Gunnar Ómarsson: Nei, mér finnast
svona umræður leiðinlegar.
Oddsteinn Björnsson: Nei, þær fóru
fram hjá mér enda var ég að vinna.
Konráö Árnason: Nei, mér finnast
þær hrikalega leiöinlegar.
Lesendur
Kartöflumat,
embættismaður
ogekkja
Agnar Guðnason, fyrrverandi yfir-
matsmaður garðávaxta, skrifar:
Einkennileg- frétt birtist í DV
þriðjudaginn 17.4. sl. Ég hefði ekki
vitað um þessi skrif nema vegna þess
að fólk sem við hjón þekkjum ekki
mikið tók upp á því aö hringja heim
í konu mína þennan umrædda dag
og votta henni samúð vegna fráfalls
þess er hér skrifar sem farið hefði
fram hjá þessu elskulega fólki. Það
þótti öllu meiri frétt aö hún hefði átt
tvo menn sem báðir væru horfnir af
þessari jörðu.
Þetta varð til þess að heimilið eign-
aðist DV. Þá mátti sjá að það fór ekki
á milli mála að fréttin um „Mats-
sjóð“ var harla merkileg - en þarfn-
ast leiðréttingar. Fyrstu leiðrétting-
unni er þegar komiö á framfæri -
sem sé að ég er sprelllifandi.
Mat á garðávöxtum
í greininni stendur að „Matssjóð-
ur“ hafi verið stofnaður árið 1987.
Ég kannast bara afis ekki við þennan
sjóð en ég var ásamt fleirum sem
endurskoðuðu reglugerð um mat á
kartöflum árið 1982 og svo með breyt-
ingu á reglugerð nokkru síðar. Mats-
gjöld af kartöflum hafa verið inn-
heimt um langt árabil. - Enda voru
kartöflur metnar.
Reglugerð um mat og flokkun kart-
aflna hefur ekki verið numin úr gildi
en það ætti að gerast sem allra fyrst.
Þar sem kartöfiur eru seldar ómetn-
ar nær auðvitað ekki nokkurri átt
að innheimta matsgjöld - þar er ekki
„Matsgjöld af kartöflum hafa verið innheimt um langt árabil," segir m.a. í
bréflnu.
að sakast viö Framleiðsluráð - fyrr-
verandi matsmenn eða ekkju fyrr-
verandi matsmanns. Þetta er mál
landbúnaðarráðuneytis. Einhvem
tíma í kringum 1960 tók Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins að sér inn-
heimtu matsgjalds af kartöflum fyrir
beiðini þáverandi landbúnaðarráð-
herra. Jafnframt annaðist Fram-
leiðsluráð bókhald og aUar greiðslur
sem tengdust þessu starfi.
Innheimta matsgjalda
Einhver í kerfinu hefur aldeihs
leitt blaðamanninn „kaa“ á vilhgöt-
ur. Hann skrifar að heildarverðmæti
uppskerunnar á s. ári hafi veriö 900
milljónir kr. fyrir mat á kartöflum.
- Hjá Framleiðsluráði fékk ég þær
upplýsingar að samkvæmt sölu-
skýrslum sem bárust Framleiðslu-
ráði á sl. ári hefði átt að innheimta
matsgjöld rétt innan við 2 milljónir
kr. en jafnframt var það upplýst að
sáralítið af matsgjöldum hefði borist
til Framleiðsluráös, ekki nema brot
af þessari upphæð. - Þannig hefur
þetta verð síðan Grænmetisverslun
landbúnaðarins var lögð niður.
Athugasemd blaðamanns
í þeirri frétt sem Agnar vísar til
er hvorki greint frá, né boðað, að
Agnar sé falhnn frá. Til að komast
að þeirri niðurstöðu þarf gott hug-
myndarflug og jafnvel nokkra óra. Á
hinn bóginn þykir undirrituðum
miður að tilskrif um jarðneska tilvist
Agnars skuh hafa valdið tilfinninga-
legu umróti í fjölskyldu hans og jafn-
vel gráglettu á kostnað umræddrar
ekkju.
í fréttinni var greint frá matsgjaldi
sem lagt er á kartöflubændur. Rétt
er hjá Agnari að gjöldin fara ekki inn
á sérstakan sjóð heldur reikning.
Sem yfirmatsmaður jók Agnar hins
vegar umsvifin við kartöflumatið
verulega. Innborganir dugðu ekki
fyrir gjöldum og að auki urðu tíl líf-
eyrisskuldbindingar. Hvort um sé að
ræða sjóð eða ekki kemur væntan-
lega í hlut Ríkisendurskoðunar að
skilgreina.
Varðandi upphæðir ætti Agnari aö
vera Ijóst að ekki er alfarið að treysta
á söluskýrslur. Gjaldið er áætlað á
fiölda bænda og er þá miðað við upp-
skerumagn og mjög hátt söluverð.
Framleiðsluráð krefur því bændur
um mun hærri upphæð en sölu-
skýrslur gefa tílefni th. Um það ætti
Agnari að vera kunnugt.
-kaa
Árás á íþróttaf ólk í heiminum
Uros Yanovic skrifar:
Nýleg árás í Hamborg í Þýskalandi
á íþróttastjömuna Monicu Seles og
eina bestu tenniskonu heims er að
mínu mati táknrænn atburður og
með honum sýna mörg vestræn ríki
sitt rétta andht á hinu póhtíska sviði.
Ég þekki sögu Monicu Seles aht frá
því að hún var fjögurra ára gömul i
Novisad, heimabæ hennar, og ég veit
að fjölskylda hennar var mjög fátæk
í þann tíð og fólkið í bænum aðstoð-
aði fiölskyldu hennar dygghega. En
fjölskyldan, sem býr nú í Bandaríkj-
unum, reynir nú eftir mætti aö
hjálpa því fólki sem nú er innhokaö
í þessum bæ og annars staðar í Serb-
íu.
Mín skoðun er sem sé sú að hin
vestrænu ríki vhji engan veginn
Hringíðísíma
milli kl. 14ogI6-eðaskrifið
Nath og símaiu. veröur að íylgÞ bréfum
Bréfritari telur árásina á Monicu
Seles vera táknræna fyrir pólitíska
afstöðu gegn Serbum.
halda Monicu í sviðsljósinu jafn
þekkt og fræg og hún þó er, vegna
þess ástands sem nú ríkir í Serbíu
og raunar um aha fyrrverandi Júgó-
slavíu. Af þeim yfirlýsingum sem
þýsk yfirvöld hafa gefið vegna þessa
hörmulega atburðar má glöggt sjá
að annað en meðaumkun hggur að
baki. Það sem að baki hggur er andúð
á íþróttafólki yfirleitt sem kemur frá
fyrrverandi Júgóslavíu.
Sýndarmennsku í yfirlýsingum um
að thræðismaðurinn gegn Monicu
Seles hafi ekki beinlínis ætlað að
gera hana óvíga, heldur hafi dálæti
hans á frammistöðu þýsku tennis-
konunnar borið hann ofurhði, tel ég
óhæfa með öhu og raunar óveijandi
að bera hana á borð fyrir hinn frjálsa
heim. Vonandi veröur þessi atburður
þó th þess í framtíöinni að vestrænar
þjóðir hti á júgóslavenskt íþróttafólk
sem jafningja og þess verða að efja
kappi viö. Júgóslavneskt íþróttafólk
hefur raunar verið í fremstu röð á
mörgum sviðum. Saklaus íþrótta-
æska á ekki að þurfa að gjalda fyrir
þaö sem gerðist endur fyrir löngu í
hinni gömlu Júgóslavíu.
DV
Spilað með
áhorfendur
Haraldur Haraldsson hringdi:
Hve lengi ætlar almenningur
aö láta blekkjast fil að hlusta og
horfa á árlega sfjómmálaum-
ræðu frá Alþingi? Raunar er ekk-
ert annað að segja um þessar
umræður en að þær eru hrein
spilamennska með áhorfendur og
áheyrendur. - Af og til er auga
myndavélarinnar beint um sal-
ínn þar sem þingmenn stjómar
og stjórnarandstööu stinga sam-
an nefjum 1 mesta bróöerni og
gera að gamni sínu á meðan
ræðumaður þrumar í pontu,
þungbrýnn og ögrandi, um fá-
dæma glópsku andstæöinganna
og aht að því landráð.
Lárus skrifar:
Fáir skiha hvemig ráöamenn
komast upp með að gera ekki
nokkum skapaöan hlut í þá átt
að rétta af haliann í ríkisbú-
skapnum annað en að þrengja aö
hinum almenna launþega sem
vinnur fyrir meðahaunum og
þaöan af lægri. Bæöi stjórnvöld
og stjómarandstaða hafa ýjað að
því aö tímabært sé að leggja sér-
stakan skatt á tekjur er flokkast
undir hátekjur. - Þetta hefur ekki
enn verið framkvæmt en fuh
ástæða er th. Hvers vegna bíða
ráðamenn? Er það vegna um-
hyggju fyrir sínum eigin hags-
munum? Krafan um skatt á há-
teKjur verður sífeht háværari í
þjóðfélaginu. Þá fyrst má tala um
að breiðu bökin axli einhveijar
byröar. Eins og er sleppa hátekju-
menn algjörlega.
Engar 11-fréttir í
Sjónvarpi!
Kristánn Einarsson hringdi:
Það var ekki einasta að Ríkisút-
varpið fehdi algjörlega niöur dag-
skrár sína bæði í hþóðvarpi og
sjónvarpi sl. mánudagskvöld
vegna umræðna á Alþingi, heldur
leyfði Sjónvarpið sér líka að feha
niður 11-fréttir um kvöldiö að
umræðunum loknum. Þetta er
hámark ósvífhi gagnvart greið-
endum afnotagjaldsins og ekki
sæmandi ríkisflölmiðli. Þeir sem
vanir em að horfa á 11-fréttir i
Sjónvarpinu urðu annaðhvort al-
gjörlega af fréttum eða urðu að
bíða útvarpsfrétta kl. 24.
Takiðáóréttlætinti
Pétur Sigurjónsson hringdi:
Fólk les daglega fréttir af því
hvemig opinberir starfsmenn í
stjómunarstööum hljóta tvöfald-
ar launagreiðslur í því tilfehi aö
þeir færast til í stöðum. Síðasta
dæmið er um nýjan rekstrar-
stjóra Landakots sem er á bið-
launum úr síðasta starfi en fær
jafnframt fuh laun í því nýja. -
Og svo eru það hlunnindi alþing-
ismanna, bankastjóra, forseta og
skattstjóra sem hafa ýmist skatt-
friðindi eða launaigildi í ýmsu
formi. Ráðamenn; takið á þessu
máh áður en þaö verður ykkur
öhum að falli.
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson
skrifar:
Ég er viss uro að margur Elvis
Presley aðdáandinn hefur setið
stjarfur fyrir framan skjáinn þeg-
ar myndin Blue Hawaii var sýnd
nhðvikudagskvöldið 30. apríl sl. -
Myndin Blue Hawaii var 8. mynd
Elvis, en fyrsta myndin meö hon-
um, „Love me tender“, kom út i
ágúst 1956. Þá var Elvis aðeins
21 árs gamall Hann lék I samtals
31 mynd, Síðasta myndin með
honum hét „Change of Habit" og
var gerð í nóvember 1969. - AUs
mun Sjónvarpið sýna 7 myndir
með konungi rokksins, Elvis Aar-
on Presley. Ég vh þakka RÚV
fyrir frábært framtak.