Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 6. MAl 1993 Hvernig eru bréf sem stíluð eru á ráðherra meðhöndluð í ráðuneytinum? Könnun DV leiðir í Ijós að vinnubrögð hinna ýmsu ráðuneyta eru mjög mismunandi og engar samræmdar reglur í gildi. DV-mynd BG Verulegt ósamræmi í afgreiðslu bréfa stílaðra á ráðherrana: Dæmieruumað ritarar úthluti ráðherrabréfum - línur eiga að vera skýrar, segir ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu Fréttir Verulegtmis- ræmi hjá ráðuneytunum Öll ráöuneytin hafa svarað eft- irfarandi spumingu sem DV hef- ur lagt fVrir á síöustu dögum: „Meö hvaða hætti eru bréf stíl- uö á ráöherra sjáiían afgreidd í ráöuneytinu? Dómsmálaráðuneytið: Ritariúthlutar verkefnum Bréf stíluð beint á dómsmála- ráðherra opnar ritari hans. Þar sera aðalaðsetur ráðherra er í sjávarútvegsráðuneytinu sendir ritarinn yfirleitt afrit af bréfun- um til hans þangað. Ritarinn heldur frumritunum og úthlutar viökomandi starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins bréfun- um -tíl afgreiösiu. Jóhannafærsín bréfóopnuð ÖU bréf, þar sem annaðhvort er áritað „ráöherra“ eða „Jó- hanna 5igurðardóttir“, fara beint tíl hennar - óopnuð. Ráðherra opnar þau og lætur þau ýmist ganga beint í skjalasafn, þar sem sKjalavörður í samráði við yfir- menn ákveður hver fær bréfið, eða að ráðherra kallar starfs- mann íyrir sig og felur honum afgreiðslu erindisins. Ejármálaráðuneytið: Vafamál borin undirráðherra Þau bréf sem stíluð eru á fjár- málaráðherra sjálfan fara beint til hans. Þaðan fara þau með fyr- irmælum um hvaða skriístofú- stjóri skuli annast. afgreiöslu þeirra eða jafhvel með hvaða hætti þau skuli afgreidd. Lang- flest bréfin fara um borð ráöu- neytisstjóra. Óski ráðherra eftir tillögum um mál fara þau aftur til hans. I öllum „veigamiklum málum“ passar ráðuneytisstjóri upp á að bréf gangi tU baka tíl ráöherrans tU uppáskriftar eða að hann hafi yfirfarið þau og sé þá fullkunnugt um innihald bréfanna. „Við af- greiðum ekki mál sem viö teljum vafesamt að ráðherrann styöji án þess að ræða við hann,“ segir ráðuneytissljórinn. Heilbrigðisráðuneytið: Ritari opnar bréfSighvats Ritari opnar öU bréf sem stUuð eru beint dl heUbrigöisráðherra að undanskUdum bréfum merkt- um trúnaðar- eða einkamál. Ef ráðherra er fjarverandi og ritari telur að þurfi að taka bréf tU af- greiöslu eru þau afgreidd í sam- ráöi við þann ráðherra sem gegn- ir stððu heUbrigöisráðherra þá stundina. Utanríkisráðimeytið: JónBaldvinsér ekkiöllsínbréf Það fer eftir efni þeirra bréfa sem stUuð eru beint á utanríkis- ráöherra sjálfen hvort þau eru iögö fyrir hann á frumstigi eða ekki. Bréf eru yfirferin af ráöu- neytisstjóra, ritara ráðherra eða aðstoðarmanni ráðherra ef ekki er um beina embættisfærslu að ráða. Ráðherra fær þvf ekki öU bréf sem á hann eru stíiuð. Vinnubrögð hinna ýmsu ráöu- neyta eru mjög mismunandi og þar gætir verulegs ósamræmis ef á heUd- ina er litið að því er varðar afgreiösl- ur erinda og bréfa sem berast tU ráð- herranna. Engin skýr lög kveða á um með hvaöa hætti bréf skuU afgreidd. Venjan og vaninn er oft látinn ráða. Þetta kemur fram í svörum við spumingu sem DV hefur lagt fyrir öU ráðuneytin undanfama daga. Spumingin var eftirfarandi: „Meö hvaða hætti em bréf sem stU- uð em á ráðherra sjálfan afgreidd í ráðuneytinu? Svör einstakra ráðu- neyta eru birt hér á síöunni. Eftirfarandi dæmi eru um það ós- amræmi sem gætir hjá ráðuneytun- um í þessum efnum: Ritari dómsmálaráðherra opnar öU bréf, sem stíluð em á hann, og send- ir honum yfirleitt afrit í annað ráðu- neyti - sjávarútvegsráðunejytið. Síð- an er algengt að ritarinn úthluti sjálf- ur verkefnum, samkvæmt svari ráðuneytisins. I félagsmálaráðuneytinu er ekki Á sunnudaginn heldur um 15 manna hópur tæknimanna, hljóð- færaleikara og baksviðssöngvara að ógleymdum aöalsöngkonu og hljóm- sveitarsljóra tU Evrópusöngva- keppninnar á írlandi sem haldin verður 15. maí. „Viö tökum stefnuna á 1. sætiö. Ef óalgengt að skjalavörður, í samráði viö yfirmenn, úthluti verkefnum eft- ir að ráðherra sjálfur hefur opnað bréfin sem stUuð vom beint á hann. Bréf stíluð á menntamálaráðherra sjálfan „fara aUa jafna“ tU hans sjálfs, að sögn ráöuneytisstjórams. Eins og fram hefur komið aö undan- fömu afgreiddi fyrrverandi ráðu- neytisstjóri erindi Hrafns Gunn- laugssonar sjálfur vegna umsóknar til Norræna kvikmyndasjóðsins. I viðskiptaráðuneytinu fengust þær upplýsingar aö „skjalavörður beiti sinni skynsemi" við úthlutun mála til starfsmanna - það „fer eftir eðli málsins". Á ekki að vera geðþóttaákvörðun Guðríður Siguröardóttir, ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðuneyt- ins, segir að sér komi á óvart að sömu vinnubrögð skuU ekki vera viðhöfö í öUum ráðuneytunum varðandi meðhöndlun og afgreiðslu erinda tU ráðherra: maður hugsar aldrei um að sigra þá sigrar maöur heldur aldrei. Svo verð- ur maður bara að taka faUi hvort sem það er hátt eða lágt,“ segir Jon KjeU Seljeseth, höfúndur íslenska lagsins „Þá veistu svarið". Jon, sem jafn- framt verður hljómsveitarstjóri á ír- landi, kveöst hafa hlustað á öU „Þetta þjóðfélag hefur tekið mikl- um breytingum. Áður lá alveg fyrir hvemig mál skyldu afgreidd en þeg- ar erindin fara að verða flóknari og margbrotnari þarf uppskriftir af því hvemig eigi að vinna. Mér finnst að það eigi engan veginn að vera geð- þóttaákvörðun hverju sinni á því hvemig afgreiða á mál. Það eiga að liggja fyrir skýrar línur. Ég er ein- dregið á því. Ég tel að starfsfólk, embættismenn, ráðherrar og al- menningur eigi aö geta verið viss um aö það sé unnið faglega í ráðuneytun- um og maður sé sínu embætti trúr,“ sagði Guðríður. „Línur þurfa að vera alveg skýrar. Ég tel reyndar að þær séu skýrar en legg áherslu á að þeim sé fylgt. Ef það er ekki samræmi í þessu tel ég að það þurfi að koma því á,“ sagði Guðríður. „Þegar ég tala við kollega mína svara þeir ósköp líkt og ég hef verið að svara núna. En það er svolít- ið misjafnt." -ÓTT keppnislögin. „Þetta er ósköp svipað og verið hefur. Helmingur laganna er róleg lög sem ekki skera sig úr. Eitt og eitt lag er nútímalegra." Jon segir keppnina leggjast vel í sig. „ Annars heföi ég ekkert að gera þama úti,“ bætir hann við. -IBS Menntamálaráðuneytið: Ráðherrahlýtur aðgetatareyst símimembætt- ismönnum Bréf stiluð á menntamálaráð- herra sjálfan fara alla jafna til hans, að sögn Guðríðar Sigurðar- dóttur ráðuneytisstjóra. Ráð- herra sendir þau síðan til fag- deilda til umsagnar um af- greiðslu. Öll bréf sem fara frá ráðuneytinu era á ábyrgð ráð- herra, að sögn Guðríðar. Ef um flókin afgreiöslumál er að ræöa er sú regla viöhöfð að ráðherra sé kunnugt um afdrif þeirra og ákveði afgreiðslu þeirra. „Þá hlýtur ráðherra að þurfa að geta treyst þeim embættismönnum sem era það háttsettir að þeir geti skrifaö undir bréf,“ segir ráðuneytisstjórinn. Varöandi það tilvik þegar Knút- ur Hallsson afgreiddi sjálfur bréf Hraíhs Gunnlaugssonar, sem stflað var á ráðherra, segir ráðu- neytisstjórinn aö Knútur heföi afgreitt það án vitundar ráðherra - ekki samkvæmt því ferli sem tíökist í ráðuneytinu í þessu sam- bandi. Guðríður vildi taka fram að menntamálaráðuneytinu ber- ist óendanlegur fjöldi erinda enda heyri mjög margir málaflokkar og stofnanir undir ráðuneytið. Samgönguráðimeytiö: Halldórfærafrít afsínum bréfum fráritaranum Bréf stfluð á samgönguráð- herra opnar ritari hans. Hún merkir þau meö upphafsstðfum ráðherra, tekur ljósrit af bréfinu og leggur inn á borð til hans en leggur frumritið af bréfinu í bók- unarkerfi. I framhaldinu fara öll bréf til ráðuneytisstjóra sem út- deilir erindum í vinnslu. Sjávarútvegsráðuneytið: Þorsteinn les svörembættis- mannasinna Bréf stíluð á sjávarútvegsráð- herra sjálfen fara til ritara hans og síðan til ráöherra. Hann ákvarðar hvort hann s varar þeim sjálfúr eða sendir í afgreiðslu til embættismanna sinna. Svör viö bréfum sem stfluð eru á ráðherr- ann eru ekki send úr ráðuneytinu án þess að hann lesi þau sjálfur yfir, samkvæmt upplýsingum ráðuneytísins. Viðskiptaráðuneytið: Skjalavörður „beitirsinni skynsemi“ Hvernig bréf stíluð beint á ráð- herra eru afgreidd „fer eftir eðli málsins“, aö sögn talsmanns við- skiptaráðuneytisins. Skjalavörð- ur „beitir sinni skynsemi" og dreifir inn á borö til viðkomandi aðila. Upp á síðkastið hefúr í ein- hverjum mæli tíökast aö láta ljós- rit af bréfum inn til ráðherra til upplýsingar, að sögn talsmanns- ins. Önnurráðuneyti: Þeirfá bréfinsín Bréf stíluö á forsætisráðherra sjálfön fera beint til ráðherrans, að sögn ráðuneytissljórans. Sama gildir um bréf ætluð iðnaðarráð- herra sjálfum, landbúnaðarráð- herra og umhverfisráöherra, samkvæmt upplýsingum þessara ráðuneyta. -ÓTT Evrópusöngvakeppnin: Stef nan tekin á fyrsta sætið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.