Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
í 17
Fréttir
Olga meðal verkafólks á Höfn í Homafirði:
Utlendingar ráðnir en
íslendingum sagt upp
Júlía Jrasland, DV, Höfh;
„Það er gífurleg reiði hjá fólki. Flest
það fólk sem sagt var upp hjá Borgey
býr hér á staðnum og sumt búið að
vinna árum og áratugum saman í
fiskvinnslunni," sagði Hjördís Sigur-
þórsdóttir, nýkjörin formaður
Verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfh,
eftir aðalfund félagsins sem haldinn
var sunnudaginn 2. maí. Auk aðal-
fundarstarfa var aðalmál fundarins
uppsögn 22 manna hjá Borgey hf. í
síðustu viku.
Á fundi með stjómarmönnum í
Borgey kom fram að ekki yrði boðið
upp á endurráðningu þessa fólks.
- En hver er ástæðan fyrir þessum
uppsögnum?
„Þeir segja hana vera þá að hætt
sé að vinna saltfisk og vinnu sé að
ljúka í síldinni. En það segir ekki
aila söguna. Þetta fólk er úr öllum
deildum fyrirtækisins. Borgey aug-
lýsti eftir fólki alveg fram að þeim
tíma sem uppsagnirnar áttu sér stað.
Vildi aðeins ráða kvenfólk en er það
ekki brot á jafnréttislögum ef karl-
mönnum, sem sækja um vinnu, er
neitað á þeim forsendum að aðeins
sé ráðið kvenfólk? Lögum sam-
kvæmt er það og ég tel að þeim sé
ekki stætt á að mismuna kynjum við
ráðningu. Þeir réðu 4 færeyskar
stúikur sem byrjuðu að vinna í vik-
unni sem uppsagnimar áttu sér stað.
Borgey sendi inn beiðni fyrir ráðn-
ingu 5 Pólveija skömmu efiir páska
en því var hafnað. Við þurfum að
skrifa upp á leyfi fyrir ráðningu út-
lendinga annarra en Norður-
landabúa. Við vorum þá með 6
manns á atvinnuleysisskrá en fyrir-
tækið var ekki tilbúið til að ráða þá
þrátt fyrir yfirlýsingar. Ástæðan var
að þetta voru að mestu karlmenn,"
sagði Hjördís.
- Hvað ætlar verkalýðsfélagið að
gera í framhaldi af þessu?
„Við munum ræða við þá um hvort
ekki sé einhver möguleiki á að upp-
sagnimar verði teknar til baka og
við munum leita allra leiða til leysa
málið. Þá hefur bæjarfélagið á Höfn
beðið um skýringu á uppsögnunum.
Samkvæmt kjarasamningi Jökuls
eiga félagsmenn forgangsrétt til
vinnu á atvinnusvæðinu, það er í
A-Skaftafellssýslu.“
Á fundinum var samþykkt heimild
til stjómar og trúnaðarráðs um verk-
fallsboðun. Bjöm Grétar Sveinsson
hættir nú störfum hjá Jökli eftir 8
ára farsælt formannsstarf og vom
honum færðar þakkir. Hjördís Sigur-
þórsdóttir, sem unnið hefur með
Bimi Grétari í stjóm í 3 ár, var boð-
in velkomin til starfa sem formaður.
Firmakeppni Smára 1 Ámessýslu:
Gunnar á Frasa sigraði
Uppboð á lausafé
Eftir kröfu Magnúsar M. Norðdahl hdl. vegna Lífeyrissjóðs Iðju, fer fram
uppboð á 2 reykofnum, tegund Sotra, föstudaginn 14. maí nk. kl. 10.30
þar sem ofnarnir eru staðsettir að Fiskislóð 88 taldir eign Síldarrétta hf.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN i REYKJAVÍK
Uppboð á lausafé
Eftir kröfu Lögheimtunnar vegna Sjóvár-Almennra hf. og Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf., Lögmanna Hamraborg v/O. Johnson og Kaaber hf. og Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík, fer fram uppboð á lausafé Blikksmiðjunnar Benna hf„
sem staðsett er að Skúlagötu 34, föstudaginn 14. maí nk. kl. 11.00. Plötu-
vals, teg. Festa, 1,25 m að lengd, Lockformer lásavél, Sax-Edwards Lok
femnerlásavél, vals suðuvél, 2 laesingavélar fyrir þak og ýmsar blikksmíðavél-
ar.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN I REYKJAVÍK
Súðavík
Nýr umboðsmaður
frá 1. maí 1993
Kristján Jónatanson, Nesvegi 3, sími 94-4952
Er landgrunnið blómagarður?
Eru krókar vistvæn veiðarfæri?
Á að banna troll og dragnót?
Fiskifélag íslands auglýsir fund um umhverfisáhrif
veiðarfæra. Fundurinn verður haldinn laugardaginn
8. maí 1993 kl. 14.00 í húsi Fiskifélagsins, Höfn v/lng-
ólfsstræti. Einar Hreinsson sjávarútvegsfræðingur og
Sveinbjörn Jónsson sjómaður verða frummælendur.
Allir áhugamenn um sjávarútvegsmál eru hvattir til
að mæta.
Sigurvegarinn Gunnar Egilsson á
Frasa.
DV-mynd Sigmundur
Sigmundur Sigurgeiisscai, DV, Húðum;
Félagar í Hestamannafélaginu
Smára í Ámessýslu héldu sína ár-
legu firmakeppni 1. maí í Árnesi.
Margir keppendur mættu til leiks
þrátt fyrir slæmt veðurútlit. Það varð
þó ekki raunin og skein sól á knap-
ana, að minnsta kosti öðru hverju.
Úrslit urði þessi:
Unglingaflokkur:
1. Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir á Nakka,
8 vetra. Hún keppti fyrir Brunavam-
ir Hrunamanna og Gnúpveija.
2. Áslaug Harðardóttir á Rán, 10
vetra. Keppti fyrir Félagsbúið Miö-
felli.
3. Anna Björk Hjaltadóttir á Krapa,
8 vetra. Keppti fyrir Garðyrkjustöð-
ina Laxárhlíð.
Flokkur fullorðinna:
1. Gunnar Egilsson á Frasa, 10 vetra.
Keppti fyrir Reykhöliina Eystra-
Geldingaholti.
2. Ástrún Davíðsdóttir á Þrasa, 8
vetra. Keppti fyrir Búnaðarfélag
| Skeiðamanna.
Hólmavík:
Sjósókn erf ið vegna ógæfta
Guðfinnur Finiibogasan, DV, Hólmavík:
Veiðum á innfjarðarækju lauk hjá
Hólmavíkur- og Drangsnesbátum
laust fyrir síðustu mánaðamót. Þrátt
fyrir að magnminnkun yrði um 250
tonn frá fyrri árum, eða 750 tonn á
móti 1000 tonnum, tók það mun
lengri tíma nú að ná þessum afla.
Bæði var að veður var afar erfitt
til sjósóknar allan tímann og minna
um rækju á hefðbundinni veiðislóð.
Þurfti því lengra að fara en fyrr.
Stærri bátar hafa verið tilbúnir til
veiða á úthafsrækju um nokkum
tima en stöðugar ógæftir hafa gert
mörgum sjómanninum erfitt fyrir og
hafa þeir ekki enn komist út.
Frímerkjasafnarar:
Sjóðþurrðin kærð til RLR
Fjárdráttur sá sem átti sér stað
hjá félögum frímerkjasafnara og
greint var frá í DV fyrir skömmu
hefur verið kærður tíl Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
Gjaldkera Félags íslenskra frí-
merkjasafnara og Landssambands
frímerkjasafnara, sem dró sér sam-
tals 5 milljónir úr sjóðum félag-
anna, var gefinn frestur til 28. sein-
asta mánaðar til að greiða pening-
ana til baka en nýtti sér ekki þann
möguleika. Máliö var sent RLR fyr-
ir skömmu og er nú til rannsóknar
þar.
-pp
3. Rósmarie Þorleifsdóttir á Glöggi 9
vetra. Keppti fyrir Félagsbúið Efri-
Brúnavöllum.
Fiskifélag íslands
Bette Midler leikur Dixie
sem
ferðast á milli á
vígstöðvunum og
skemmtir dátunum með
oggríni. Með henni
er Eddie Sparks (James
aðstoðar í gegnum
Við fylgjumst með þeim
af
og gleði.
-fyrirþig!