Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Side 27
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
39
Meiming
Laugarásbíó - Flissi læknir:
Hláturinn
lengir lífið
Þótt Dr. Giggles sé hvorki frum-
leg né spennandi þá er hún með
skárri hryUingsmyndum sem hafa
komið í bíó undanfarna mánuði
sem segir kannski meira um það
hvers lags myndir hafa verið að
berast hingað.
Dr. Giggles er enn einn brjálæð-
ingurinn sem eltist við ungt fólk,
drepur það á eins frumlegan hátt
og mögulegt er og segir nokkrar
vel valdar setningar á meðan. Dr.
Giggles byrjar myndina á því að
flýja frá geðveikrahælinu sem
hann er eflaust búinn að vera á
meirihlutann af ævinni. Hann á
harma að hefna í smábæ einum þar
sem pabbi hans var læknir. Þar
ræðst hann að dæmigerðum hópi
táninga sem fá nokkur dæmigerð
táningaatriði áður en þeir fara að
týna tölunni. Dr. Giggles er með
fuUa tösku af skemmtUegum morð-
tólum og hefur undirbúiö alveg
sérstakan dauðdaga fyrir hvem og
einn.
Myndin er dáUtið óhugguleg því
læknirinn er hinn versti fantur og
myndin dregur ekkert undan
læknisfræðUegum tilraunum hans
á hinum lifandi. Húmorinn verður því grátt gaman eins og það á að vera.
í hryllingsatriðunum er yflrleitt meira gefið í skyn en beinlínis sýnt en
þó eru einstaka atriði sem ganga eins langt og hægt er (breUumar eru
mjög góðar). Larry Drake (Benny í L.A. Law) gerir lækninn nógu sannfær-
andi klikkaðan en fómarlömbin em afskaplega venjuleg, það venjuleg
að maður á í fyrstu ekki von á aö þeirra bíði eins hrottalegur dauðdagi
og raun verður á.
Dr. Giggles (Band. 1992). 95 min. Handrit: Manny Coto, Graem Whiffler. Leikstjórn:
Coto. Leikarar: Larry Drake, Holly Marie Combs, Cliff DeYoung, Glenn Qulnn, Ki-
eth Diamond.
Larry Drake leikur Flissa lækni.
Hann er hér á myndinni ásamt
einu fórnarlambi sínu.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Hnyttni um lífið
ogtilveruna
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur gefið út fimm smábækur með skemmti-
legum ummælum úr ýmsum áttum um lífið og tilveruna. Era þær greini-
lega ætlaðar til gjafa. Ein er um hjónabandið, önnur um foreldra og börn,
hin þriðja um hstina að lifa, hin fjórða um konur og kærleika og hin
fimmta um kossa, ást og afbrýði. Bækurnar era allar prentaðar og bundn-
ar í Singapore en Torfi Jónsson sá um útgáfu fjögurra þeirra (umsjónar-
manns er ekki getið í einni).
Bókmenntir
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Brosa má að mörgum athuga-
semdum í þessum bókum. „Þegar
konur kyssast, minnir það mig allt-
af á hnefaleikara, sem takast í
hendur, áður en bardaginn hefst,“
sagði bandaríski orðsnillingurinn
H.L. Mencken í bókinni um kossa,
ást og afbrýði. „Að reyna að útskýra vald ástarinnar er likast því að bera
ljós út í skólskin," sagði Robert Burton. „Nokkrar stórfenglegustu ástar-
sögur, sem ég hefi kynnst, hafa aðeins haft einn þátttakanda," segir hnytt-
inn maður, óþekktur.
Listin að hfa er vandlærð, eins og fram kemur í verkinu, sem henni
er helgað. „í þessum heimi okkar verður maðurinn annaðhvort hamar
eða steðji,“ sagði Longfellow. „Lífið er gáta, - lausnin er á bakhhð þess,“
sagði sænski kýmnisagnahöfundurinn Storm-Petersen og minnir sú lífs-
speki óneitanlega á kveðskap Steins Steinarrs. „Lífskúnstnerar lifa ekki
lengur en aðrir - en betur," segir á einum stað, og dettur okkur þá strax
í hug hin fræga vísa Jónasar um langlifi og skammlífi. „Sé manni ekki
ljóst, í hvaða höfn skuh halda, er enginn vindur sá rétti,“ sagði róm-
verski spekingurinn Seneca. „Við eigum ekki að biðja um léttari byröar,
heldur sterkari bök,“ sagði Theodore Roosevelt.
Skemmtilegastar þóttu mér bækumar um hjónabandið og börn og for-
eldra. „Sérhver maöur hefur rétt til að velja sér sína eigin stjórn, dökk-
hærða, ljóshærða eða rauðhærða," sagöi ónefndur höfundur. „Þegar ég
gifti mig í síðasta sinn, var ég orðinn það fuhorðinn, að gestimir köstuöu
hormónapihum á eftir mér í stað hrísgrjóna," sagði gárunginn Groucho
Marx. „Ungbarn í húsinu er ágætt dæmi um minnihlutastjóm," sagði
ókunnur höfundur. „Maður trúir því aðeins á erfðir, að maður eignist
greind böm,“ sagði James Mason.
Freistandi er að halda thvitnunum áfram, en hér verður að láta staðar
numið. Þessar fimm smábækur Skjaldborgar hafa auðvitað sínar tak-
markanir. Þýðingarnar era ekki ahtaf næghega liprar og gaman hefði
vissulega verið að drýgja þær með thvitnunum í íslendinga sem sagt
hafa margt spaklegt og skemmthegt um lífið. Sums staðar getur líka að
Uta almælt tíðindi. Þetta era þó frambærhegar gjafabækur, hæfhega Utl-
ar og ódýrar.
Nokkur orð um konur og kærleika,
Nokkur orö um kossa, ást og afbrýði,
Nokkur orö um listina aö lita,
Nokkur orð um foreldra og börn,
Nokkur orö um hjónabandið. Skjaldborg, án ártala.
________________Afmæli
Einar Jónsson
Einar Jónsson skipaeftirUtsmaður,
Háaleitisbraut 55, Reykjavík, er sex-
tugurídag.
Starfsferill
Einar fæddist í Bolungarvík og
ólst þar upp tíl átján ára aldurs en
fluttist þá tíl Reykjavíkur ásamt for-
eldramsínum.
Einar stundaði sjó á bátum og tog-
urum, fyrst frá Bolungarvík og síð-
an frá Reykjavík. Hann lauk prófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1957.
Ári síðar réð hann sig 2. stýri-
mann á togarann Karlsefni, varð 1.
stýrimaður þar 1961 og skipstjóri
1963.
Árið 1965 tók Einar sér hlé frá sjó-
mennsku einn vetur en fór svo aftur
th sjós og var á hinum ýmsu bátum
th ársins 1972. Þá réð hann sig 1.
stýrimann á skuttogarann Ögra frá
Reykjavík og leysti af sem skipstjóri
thársins 1985.
Frá árinu 1985 hefur Einar starfað
í landi og gegnt stöðu skipaeftirhts-
manns hjá SigUngamálastofnun rík-
isins.
Fjölskylda
Einar kvæntist 10.10.1956 Vera
Einarsdóttur, f. 21.4.1938 á ísafirði,
verslunarmanni. Hún er dóttir Ein-
ars M. Kristjánssonar vélstjóra og
Aðalbjargar Bjamadóttur húsmóð-
ur. Þau eru bæði látin.
Böm Einars og Veru eru: Þorgerð-
ur Jóhanna, f. 24.1.1957, húsmóðir,
gift Snorra Harðarsyni sjómanni,
búsett í Bolungarvík og eiga þau
þrjú böm; Ólafur, f. 6.6.1960, stýri-
maður, kvæntur Sólveigu Bjöms-
dóttur, búsett í Reykjavík og eiga
þau tvö böm; Hrönn, f. 11.4.1962,
húsmóðir, gift Óskari Bjartmarz sjó-
manni, búsett á Selfossi og eiga tvö
böm; og Jón, f. 2.12.1967, starfsm.
hjá Flugleiðum, kvæntur Bára Agn-
esi Kethsdóttur hjúkranamema,
búsett í Reykjavík og eiga þau einn
son.
Faöir Einars var Jón Guðfinns-
son, f. 11.9.1911 d. 15.12.1979, skip-
stjóri. Móðir Einars er Þorgerður
Einarsdóttir, f. 21.4.1913, húsmóðir.
Ætt
Jón var sonur Guðfinns, formanns
og b., Einarssonar, að Litlabæ í
Skötufirði, Hálfdánssonar, prófasts
á Eyri í Skutulsfirði. Móðir Jóns var
Hahdóra, dóttir Jóhanns, b. á Rein
í Skagafiröi, Þorvaldssonar og k.h.
Einar Jónsson.
Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Þorgerður er dóttir Einars, for-
manns í Bolungarvík, Hálfdánsson-
ar, b. á Hesti, Einarssonar, b. og
hreppstjóra á Hvítanesi, Hálfdáns-
sonar, prests og síðar prófasts á
Eyri í Skutulsfirði. Móðir Þorgerðar
var Jóhanna, dóttir Einars frá Kleif-
um, Jónssonar, á Folafæti og síðar
á Kleifum, Jóhannessonar og k.h.
JóníuJónsdóttur.
Einar verður aö heiman á afmæl-
isdaginn.
Sviðsljós
Gestakokkar á
Munað arhóli
Eigendur Munaðarhóls, Inga Sigríður þjónn og Hjörtur Frímannsson mat-
reiðslumaður, ásamt Oddnýju Freyju, starfsmanni Munaðarhóls, og gesta-
kokkunum. DV-myndir Sigrún Björgvinsdóttir
Sigrún Bjögvmsdóttir, DV, Egilsstöðum:
í Fellabæ á vesturbakka Lagar-
fljóts er líthl og vinalegur matsölu-
staður með glæsilegu útsýni yfir Lag-
arfljót og Eghsstaðabæ. Staðurinn
heitir MunaðarhóU en hét áður Sam-
kvæmispáfinn. Þeir era framlegir í
nafngiftum eystra. En hvað um það.
Á Munaðarhóli er hægt að fá gott í
svanginn og í vetur hafa þrisvar
komið gestakokkar með framandi
rétti frá fiarlægum löndum. Eina
helgi í apríl komu tveir eldfiöragir
ítalskir meistarar og buðu að sjálf-
sögðu upp á ítalskan veislumat. Og
meira en það. Þeir skemmtu gestum
með ljúfum lögum auk þess sem Árni
Isleifs, sá þekkti djassgeggjari, lék
dinnermúsik.
AUt stuðlaði þetta að því að gestir
Árni ísleifs lék fyrir gesti.
áttu sannarlega notalega stund á
meðan húmið féU á grágrænt fljótið.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRflÐfl A
VALDA ÞÉR SKflÐfl!
Toyota Corolla Touring GLI, árg. 1991,
vinrauöur, meö öllu. Verö kr.
1.290.000 stgr.
MMC Pajero, bensin, árg. 1987, hvit-
ur. Verð kr. 950.000 stgr.
MMC Lancer GLX hlaðbakur, árg.
1990, blár, 5 gíra o.fl. Verö kr. 840.000
stgr.
MMC Lancer station 4WD, árg. 1987,
hvitur. Verö kr. 620.000 stgr.
BIIASAIA
^^HEyKJAVÍKUR
Bílasala Reykjavíkur,
Skeifunni 11, s. 67 88 88