Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 5 Fréttir Fé verður rekið á afréttar- lönd Mývetninga í áf öngum Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri; Samkomulag hefur oröið milli gróöurverndamefndar S-Þingeyjar- sýslu og Skútustaöahrepps um aö fresta upprekstri sauöfjár á afréttar- Íönd Mývetninga miðað viö það sem Akranes: Fyrirtæki lána til gatnagerðar Bæjarstjórn Akraness samþykkti síðastliðinn miðvikudag að taka til- boði frá þremur fyrirtækjum um lán til þriggja ára sem felst í gatnafram- kvæmdum við Garðagrund sem er 950 metra löng gata. Að sögn bæjar- ritara Akraness, Jóns Pálma Páls- sonar, kom í ljós í vor að gatan er verr farin en menn héldu. Upphaf- lega var gert ráð fyrir mun minni framkvæmdum við götuna í ár. Fyrirtækin þijú, sem lána bænum rúmlega 27 milljónir, eru Sements- verksmiðja ríkisins,' Þorgeir og Helgi og Skóflan. „Fyrirtækin þrjú taka að sér að klára verkið í sumar og greiðslur verða inntar af hendi á þremur árum á föstu verðlagi," sagði Jón Pálmi. Aðspurður sagði hann að þessi leið væri ekki farin vegna slæms fjárhags bæjarfélagsins en taldi að óvíst væri hvort farið hefði verið út í þessar framkvæmdir á þessu ári ef þetta lán hefði ekki kom- ið til. Guðmundur Guðjónsson, einn eig- enda Skóflunnar, sagði að ástæðan fyrir þessum samningi væri einföld, atvinnuástand væri þannig í dag að htið væri um verkefni og heppilegt væri fyrir fyrirtækin að takast á við verkiðáþennanhátt. -HK Lést við Pat- reksfjörð Maðurinn, sem lést á sundi við Patreksfjörð aðfaranótt hvítasunnu- dags, hét Þórir Þorsteinsson. Þórir var fæddur 1945 og var frá Patreks- firði. Hann var fráskihnn og lætur eftir sig 5 böm. -PP verið hefur undanfarin ár og fuhtrúi Landgræðslunnar hefur ekki gert athugasemd við það samkomulag sem náðst hefur. Fuhtrúar allra hagsmunaaðila fóru á afréttinn nú í byrjun vikunnar og skoðuðu beitarlönd. Að sfípn Sipurð- ar Rúnars Ragnarssonar, sveitar- stjóra Skútustaðahrepps, er gróður seinna á ferðinni en undanfarin ár og stafar það fyrst og fremst af köldu vori. Samkomulagið, sem náðst hefur, eerir ráð fvrir að 15% þess fjár sem reka á upp fari þangað 7.-12. júní. Dagana 13.-18. júní megi fara með 25% fjárins og 19.-24. júní með önnur 25%. Eftir þaö verði heimilt að fara með það sem eftir er af fé th upp- rekstrar. í samkomulaginu er reyndar ákvæði um endurskoðun sem kemur til ef veðurfar verður mjög óhagstætt áfram. Chevrolet Corsica Luxury 93' Á kr. 1.869.000.- 6 götuna með ryðvörn og skráningu. Aukalega í Luxury: • Álfelgur. • Vindskeið. • Mótaðar aurhlífar. • Breiö dekk með hvítum stöfum. Luxury tilboðið stendur til 30. júní Staðalbúnaður í Corsica er hreint ótrúlegur: ABS bremsur, sjálfskipting, útvarp/segulband, öryggisloftpúði í stýri, samlæstar hurðir, rafdrifnar rúSur og m.fl. Alger nýjung í lánamálum á íslandi. ViS lánum 3/4 af andvirSi bílsins í 36 mánuSi. Standi illa á hjá þér á tímabilinu er hægt aS hliSra greiSslum allt aS sex sinnum og færa þær aftast. Þú greiSir þá bara vexti. Þannig getur lániS orSiS til 40 mánaSa. Til aS auSvelda þér bílakaupin enn frekar, tökum viS vel meS .farna notaSa bíla uppí. Bílheimar hf. HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 63 4000/634050 Kjörvari og Þekjukjörvari - kjörin viðarvöm utanhúss Þurfir þú að mála við utanhúss, hvort sem um er að ræða sumarhús, glugga eða grindverk, þarftu fyrst að ákveða hvers konar áfcrð þú óskar eftir. Sé ætlunin' að halda viðaráferðinni skalt þú nota Kjörvara sem er gegnsæ viðarvörn og til í mismunandi litum. Ein til þrjár umferðir nægja, allt eftir ástandi viðar. Kjósir þú aftur á móti hálfhyljandi áferð, sem gefur viðnum lit án þess að viðarmynstrið glatist, mælum við með Þekjukjör- vara sem einnig fæst í mörgum litum. _5 Tvær umferðir eru í flestum tilvikum '\J nóg. Sé viðurinn mjög gljúpur skal grunna hann fyrst með þynntum glær- um Kjörvara og mála síðan yfir með Þekjukjörvara. Næst þegar þú sérd fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er imálninghlf -það segir sig sjálfi -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.