Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
Meiming
Mörg verk eftir marga listamenn
prýða sal íslenska hussins.
Stóra málverkið fyrlr mlðri mynd
ereftirTolla. DV-myndBG
Islenskahúsið:
Áhersla lögð á
verk yngri
myndlistar-
manna
„Viö munum leggja áherslu á
verk eftir yngri kynslóð mynd-
listarmanna og stíla eingöngu inn
á íslensk verk, eins og nafnið gef-
ur til kynna,“ sagði Óskar Jóns-
son sem nýlega opnað nýtt lista-
gallerí, íslenska húsið, að Fáka-
feni 9. Það er rekið með verslun-
arsniöi. Flestar listgreinar eiga
fulltrúa i íslenska húsinu og má
þar nefna leirlist, glerlist og
myndlist.
I Islenska húsinu eru nú list-
munir eftir starfandi listamenn.
Meðal þeirra eru Þóra Sigurþórs-
dóttir, Inga Elín, Magnús Kjart-
ansson, Tolli, Óli Már, Kolbrún
Kjarval, Ragna Ingimundardótt-
ir, Steinunn Marteinsdóttir, Ey-
dís Lúövíksdóttir, Margo Renner
og Iljördís Frímann. -HK
Reykjavíkurdögum í Bonn lokið:
Erum ákaf lega ánægð
með aðsókn og umfjöllun
- segir Hjálmar W. Hannesson sendiherra
„Við erum afskaplega ánægð með
hvemig til tókst,“ sagði Hjálmar W.
Hannesson, sendiherra íslands í
Bonn, en hann vann að undirbúningi
á Reykjavíkurdögum í Bonn og hefur
fylgst vel með góðu gengi íslenskra
listamanna sem komu í stómm hóp-
um til Bonn. „Hér var boðið upp á
fjölbreytta íslenska list og sýndu
fjölmiðlar þessu framtaki mikinn
áhuga. Við hér í Þýskalandi erum
öllu vanir þegar ísland ber á góma.
Þjóðverjar hafa ávallt sýnt íslandi,
íslendingum, íslenskum málefnum
og listum óvanalega mikinn áhugá,
en þrátt fyrir það vomm við hissa.
Við gerðum okkur ekki vonir um að
nær alltaf yrði húsfyllir á listvið-
burðina, en sú var raunin. Má geta
þess að á lokatónleikunum á sunnu-
daginn í Munster dómkirkjunni í
Bonn lék Hörður Áskelsson orgel-
leikari fyrir fullu húsi þrátt fyrir að
úti væri glampandi sól og rétt hjá
væri stór útimarkaður. Þetta þótti
mörgum undur og stórmerki. Nú em
í gangi tvær myndlistarsýningar og
hefur veriö jöfn og góð aðsókn á sýn-
ingarnar sem eru á verkum Kjarvals
og verkum eftir sex íslenskar mynd-
listarkonur."
Þýsk dagblöð hafa mikið íjallað um
þá íslensku menningu sem í boði var
á Reykjavíkurdögum og hafa verið
f I stellte *'ch «1** ^
Ulett unter der ,
íledóttir mit dret V
- itvor zwemig
Isl&nderin- j.
Kulturaus giLnSu" a\Hmh"
Ord(*n I ^
G\TVW GSCl Reyl<lavlk Bla<aro,jlntatt
Ein Volkaus»w*
^ ' und Tadel
undB-
owserquintnk-- ---- v-
**
- „SCVÓ' wi-itaahafter~Hannesson iwwchte der Mus{j^fe^RÍrtag^^|~
J • Islándische Top-Jazzerim .
“■agaafcsss ---
*-t^t„r dsro .ReyhjsvU1 rlte dern »c>dechlen Wetter troCi ^n. <t>nd, rssch ver«»
Hér má sjá nokkrar fyrirsagnir úr þýskum dagblöðum en gagnrýni og
umfjöllun um listviðburði á Reykjavikurdögum t Bonn var á áberandi stöð-
um I blöðunum.
sérlega jákvæð og hefur plássið ekki
verið sparað. Hafa sést fyrirsagnir
eins og „Fersk og fagmannleg sýning
íslenska dansflokksins", „Innihalds-
rík og kröftug sýning listakvennanna
sex“, „Heiðríkja og hreint loft ein-
kenna höfuðborg íslands“, „Ljóð frá
landi þar sem íshjartað slær“, og
„Topp-djassleikarar frá íslandi"
í greinum sem fylgdu þessum fyrir-
sögnum er farið hástemmdum orð-
um um frammistöðu íslensku lista-
mannanna. Til að mynda segir í grein
í Gereral Anzeiger um Sigurð Braga-
son barítonsöngvara undir fyrir-
sögninni Heimskautamyrkur og
Miðjarðarhafsbirta meðal annars að
Sigurður hafi túlkað eiginleika
myrkrar tónlistar Jóns Leifs með
alit að því ógnvænlegum áhrifum.
Síðan segir: „Með hreinum og tak-
markalaust heillandi raddstyrk, sem
hann dró öðru hvoru til baka og
færði þannig hið myrka yfir í hið
óhugnanlega, flutti hann einnig
Söngva og dansa dauðans eftir Mus-
sorgsky..."
Að sögn Hjálmars W. Hannessonar
sendiherra lá að baki tveggja ára
vinna í að koma þessum Reykjavík-
urdögum á, en sú vinna hefði svo
sannarlega skilað sér. Allt hefði tek-
ist eins og best yrði á kosið.
-HK
DEVLIN leikinn af BRIAN BROWN er
lögreglumaður sem lætur illaað stjórn
Saklaus er hann sakaður um murð á
spilltum stjórnmáiamanni. Hann getur
engum treyst svo hann verður að hafa
upp á morðingjanum sjálfur áður en allt
er um seinan
DEVLIN ER FYRSTA FLOKKS SPENNUMYND
kjfíUU
Listasafn Gerðar Helgadóttur 1 Kópavogi:
Mikil lyftistöng
fyrir menningar-
og listalíf
Stutt er síðan verkpallar voru
teknir af nýreistu Listasafni Kópa-
vogs og blasir nú við glæsileg bygg-
ing sem heitir eftir myndlistarkon-
unni Gerði Helgadóttur.
Það var 1980 sem haflnn var undir-
búningur að hönnun á Listasafni
Gerðar Helgadóttur en samkvæmt
gjafabréfi erfingja Gerðar frá 1977
var eitt skilyrði að byggt yrði yflr
listaverk hennar sem gefin voru
Kópavogsbæ með umræddu gjafa-
bréfi.
Hafist var handa um hönnun húss-
ins og Benjamín Magnússon arkitekt
ráðinn til verksins. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin 21. nóvember 1986
og gerði það bróðir Gerðar, Snorri
Helgason.
Listasafn Gerðar Helgadóttur er á
tveimur hæðum og eru sýningarsalir
á efri hæð ásamt móttöku, fatahengi
og hreinlætisaðstöðu. Á neöri hæð-
inni er kaffitería, fjölnotasalur, lista-
verkageymslur og aðstaða fyrir
starfsfólk. Við vesturhlið safnsins er
svæöi sem mundi nýtast fyrir högg-
myndir og aðrar sýningar utanhúss.
Þótt safnið sé að mestu leyti tilbúið
að utan er allt eftir að gera innan-
húss en áætlað er aö taka það í notk-
un 11. apríl á næsta ári, en sá dagur
var afmælisdagur Gerðar Helgadótt-
ur.
-HK
Listasafn Gerðar Helgadóttur er glæsileg bygging. Aætlað er að taka hana
I notkun í apríl á næsta ári. DV-mynd GVA
Kjarvalsstaðir:
Fjórða tónskáldið kynnt
Frá því í nóvember á síðasta ári
hefur staðið yfir nútímatónskálda-
kynning á Kjarvalsstöðum og hafa
þegar verið kynnt verk eftir Kjartan
Ólafsson, Hilmar Þórðarson og Rík-
harð H. Friðriksson. Fjórða tón-
skáldið bætist við á sunnudaginn en
þá verða kynnt verk eftir Hauk Tóm-
asson. Verða flutt þrjú verk og er
eitt þeirra sérstaklega samið fyrir
þessa tónleika. Síðasta tónskálda-
kynningin að sinni verður síðan 11.
júlí kl. 20.30 en þá verða kynnt verk
eftir Atla Ingólfsson.