Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Síða 5
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993
5
Fréttir
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ:
Mótmælum heilsukortunum
segir skerðingu á lífeyrisuppbót brot á kjarasamningi
„Viö mótmælum þessum svoköll-
uðu heilsukortum harðlega. Það er
óásættanlegt með öllu að selja með
þessum hætti aðgang að heilbrigðis-
kerfmu. Meginlínan til þessa hefur
verið að fjármagna heilbrigðiskerfið
með almennri skattlagningu en ekki
nefskatti á þá sem njóta þjónustunn-
ar,“ segir Benedikt Davíðsson, forseti
Alþýðusambands Islands.
Eins og greint hefur verið frá fyrir-
hugar heilbrigðisráðherra að taka
upp heilsukort og einskorða niður-
greidda heilbrigðisþjónustu við þá
sem greiða 2 þúsund krónur fyrir
kortið. Þá íhugar ráðherrann að
skerða uppbætur á lífeyri um allt að
200 milljónir á næsta ári, en uppbæt-
urnar eru sambærilegar þeim sem
launþegar sömdu um í vor, þ.e.a.s.
láglaunabætur, sumaruppbót og des-
emberuppbót.
Að sögn Benedikts lítur ASÍ á upp-
bætur til ellilífeyrisþega og öryrkja
sem hluta af hinum almenna kjara-
samningi. Verði bæturnar skertar
muni ASÍ bregðast við því á sama
hátt og gagnvart öðrum brotum á
kjarasamningi. Benedikt bendir á að
10. nóvember næstkomandi komi
kjaranefnd saman til að ræða hvort
ástæða sé til að segja upp gildandi
kjarasamningi.
„í kjarasamningunum gáfum við
ríkisstjórninni ákveðið svigrúm til
að mæta tekjutapi vegna lækkunar á
virðisaukaskatti á matvælum. Við
skilyrtum það hins vegar á þann veg
að lækkunin yrði ekki fjármögnuö
með því að flytja fjármuni úr einum
vasanum í annan hjá sama hópnum.“
-kaa
Samvinnuferöir:
Munódýrarivið-
skiptaferðir
„Að okkar mati er þetta tímamóta-
samningur sem Samvinnuferðir-
Landsýn gerðu við írska ríkisflugfé-
lagið Air Lingus um viðskiptaferðir.
Það hefur verið vandamál, bæði hér
og erlendis, að það hefur verið miklu
dýrara aö ferðast í miðri viku en um
helgar. Okkur hefur tekist að ná
samningum um viðskiptaferðir til 27
staða á verði sem er einstakt í Evr-
ópu. Flogið er með Atlantavélum til
Dublin og áfram með tengiflugi til
áætlunarstaða Air Lingus," sagði
Helgi Jóhannsson.
Sem dæmi um breytt verð má
nefna að fargjald til London, venju-
legt verð, er 87.240 kr. og verð með 4
daga fyrirvara 69.810 kr. en Sam-
vinnuferðir-Landsýn bjóða þessa
ferð nú á 29.905. Apex-fargjald á þess-
ari leið er tæpar 46.000 og pex-far-
gjald 41.000.
„í flestum tilfellum er verðið sem
við bjóðum lægra en apex-fargjald.
Þarna er verið að brjóta upp hefð-
bundin fargjöld á þessum leiðum og
ég geri ráð fyrir að Flugleiðir fagni
þessum nýju samningum. Þeir eru
að heyra fyrst um þá nú,“ sagði
Helgi. -ÍS
Egilsstaðir:
Hlutafélag um
handverkshús
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
í lok ágúst Stofnfundur hlutafé-
lagsins Randalín handverkshús var
haldinn á Egilsstöðum nýlega. Á
stefnuskrá þess er rekstur sauma-
smiðju með 4-6 starfsmönnum. Fyr-
irtækið mun leggja áherslu á að
framleiða vandaða og sérstæða vöru
í samstarfi við handverksfólk í fjórð-
ungnum.
Annar meginþáttur í starfseminni
verður námskeiðahald í ýmiss konar
handverki og listgreinum. Egils-
staðabær styrkir Randalín með því
að leggja til húsnæði í tvö ár endur-
gjaldlaust. Stofnhlutafé verður 1,5
millj. kr. Nafniö Randalín er komið
frá Randahn Fihpusdóttur sem flutti
austur í Valþjófsstað um miðja 13.
öld. Ýmsir eru með tilgátur um að
hún hafi skorið út hina frægu Val-
þjófsstaðahurð sem nú er varðveitt í
Þjóðminjasafninu.
í stjóm félagsins eru Anna Ingólfs-
dóttir, Lára Vilbergsdóttir, Guðrún
Tryggvadóttir, Ólöf M. Guðmunds-
dóttir og Karólína Ingvarsdóttir.
Slátrun hafin
áSelfossi
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Slátrun hófst hjá sláturhúsi versl-
unarinnar Hafnar hér á Selfossi
fimmtudaginn 16. september. Að
sögn Haralds Gestssonar sláturhús-
stjóra verður 14.500 fjár slátrað í
haust og er það svipað og var í fyrra.
Verð á slátri nú er 555 krónur.
í sláturhúsinu vinna 42 - alltaf
sama góða fólkið. Kjötmatsmaður í
ár verður Bryndís Magnúsdóttir.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
N-Á-MAN
í NÁMUNIMI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands,
bíður þín m.a. eftirfarandi:
* Einkareikningur, tékkareikningur með dagvöxtum.
* Hagkvæmar sparnaðarleiðir með Reglubundnum
sparnaði.
* Námureikningslán á hagstæðum kjörum.
* Spariveltulán.
* Sveigjanlegar afborganir lána.
* 7 námsstyrkir árlega.
* Námslokalán.
* Ráðgjöf og upplýsingaþjónusta.
* Þjónustufulltrúi sem aðstoðar við gerð fjárhagsáætlana.
* Greiðslukort, Euro eða VISA.
* Minnisbók, án endurgjalds, við upphaf viðskipta.
* Hressilegar tómstundir.
* Ýmis fyrirgreiðsla við námsmenn erlendis.
Námsmenn sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og
um leið eitthvað skynsamlegt, fara í NÁMUNA.
Hún er sniðin að þörfum skólafólks.
Þú finnur yfir 60 "NÁMUOP"1 Landsbanka íslands
á 43 stöðum hringinn í kringu/n landið.