Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993
Afmæli
Víglundur Þorsteinsson
Víglundur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri, Lindarflöt 39,
Garðabæ, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Víglundur er fæddur í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla íslands 1964 og lögfræði-
prófi frá Háskóla íslands 1970.
Víglundur var fulltrúi hjá ríkis-
saksóknara sumarið 1970, fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1970-71
og hefur verið framkvæmdastjóri
BM Vallár hf. frá 1971. Hann var
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á
Seltjamamesi 1974-78, í sfjórn Fé-
lags ísl. iðnrekenda 1978-82, formað-
ur þess 1982-91, formaöur stjórnar
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins
1979-1982 og í stjórn Lífeyrissjóðs
verslunarmanna frá 1986.
Fjölskylda
Kona Víglundar er Kristín M.
Thorarensen, f. 22.10.1949, skrif-
stofumaður. Foreldrar hennar: Axel
Thorarensen, f. 12.2.1921, siglinga-
fræðingur, og Jóhanna Thorarens-
en, f. 30.9.1924, húsmóðir. Fyrri
kona Víglundar: Sigurveig Jóns-
dóttir, f. 9.9.1943, fréttamaður.
Synir Víglundar og Sigurveigar:
Jón Þór, f. 4.7.1964, kvikmynda-
tökumaður; Þorsteinn, f. 22.111969,
háskólanemi; Bjöm, f. 24.6.1971,
nemi. Stjúpböm Víglundar: Axel
Öm Ársælsson, f. 28.7.1972, nemi;
Ásdís María Ársælsdóttir, f. 24.10.
1973, nemi.
Systur Víglundar: Ásta Bryndís,
f. 1.12.1945, hjúkrunarforstjóri; Haf-
dís Björg, f. 25.4.1955, sálfræðingur.
Foreldrar Víglundar: Þorsteinn
Þorsteinsson, f. 8.7.1918, fisksali í
Reykjavík, og kona hans, Ásdís
Eyjóífsdóttir, f. Ásdís Eyjólfsdóttir,
f. 14.12.1921, fyrrverandi skattafull-
trúi.
Ætt
Faðir Þorsteins var Þorsteinn, sjó-
maöur í Reykjavík, bróöir Guðríðar,
móður Andrésar Gestssonar sjúkra-
nuddara. Þorsteinn var sonur Guð-
laugs, verkamanns í Reykjavík,
bróður Markúsar, afa Harðar Ág-
ústssonar listmálara og langafa
Markúsar Amar Antonssonar borg-
arstjóra. Guðlaugur var sonur Þor-
steins, b. í Gröf í Hrunamanna-
hreppi, Jónssonar, bróður Jóns,
langafa Þorsteins Einarssonar
íþróttafulltrúa. Móöir Þorsteins var
Guðrún Jónsdóttir, b. í Galtafelli,
Björnssonar, b. í Galtafelli, Bjöms-
sonar, b. í Vorsabæ, Högnasonar,
lögréttumanns á Laugarvatni,
Björnssonar, bróður Sigríðar, móð-
ur Finns Jónssonar biskups.
Móðir Þorsteins Þorsteinssonar
var Ástríður, systir Sigríðar, ömmu
Péturs Guðmundssonar, flugyaliar-
stjóra á Keflavíkurflugvelli. Ástríð-
ur var dóttir Odds, formanns í
Brautarholti í Reykjavík, Eyjólfs-
sonar og konu hans, Guðrúnar,
systur Þorkels, lang-afa Páls Jens-
sonar prófessors. Guðrún var dóttir
Áma, b. í Guðnabæ í Selvogi,
Guðnasonar og konu hans, Stein-
unnar Þorkelsdóttur, b. í Krýsuvík,
Valdasonar.
Ásdís er dóttir Eyjólfs, verka-
manns í Reykjavík, Brynjólfssonar,
b. í Miðhúsum í Biskupstungum,
Eyjólfssonar, hálfbróður Ingunnar,
konu Böðvars Magnússonar á Laug-
arvatni. Móðir Ásdísar var Kristín,
systir Finnboga, foöur Kristins,
framkvæmdastjóra Tímans. Kristín
var dóttir Árna, b. 1 Miðdalskoti í
Laugardal, Guðbrandssonar, b. 1
Miðdal, bróður Áma, langafa Júl-
íusar Sólness og Hrafns Pálssonar,
deildarstjóra í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Annar bróðir Guðbrands var
Jón, afi Margrétar Guðnadóttur
prófessors og Guðnýjar, móður
Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag-
fræðings. Guðbrandurvar sonur
Áma, b. á Galtarlæk, Finnbogason-
ar, bróður Jóns, afa Guðrúnar,
ömmu Þórs Jakobssonar veður-
Viglundur Þorsteinsson.
fræðings og Boga Ágústssonar
fréttastjóra. Jón var einnig faðir
Jóhanns, langafa Ingólfs Margeirs-
sonar rithöfundar. Móðir Guð-
brands var Margrét Jónsdóttir, b. á
Ægissíðu, Jónssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Brandsdóttir, b. á Felli
í Mýrdal, Bjamasonar, b. á Víkings-
læk, Halldórssonar, ættföður Vík-
ingslækjarættarinnar. Móöir Árna
var Sigríður, systir Ófeigs, afa
Tryggva Ófeigssonar útgerðar-
manns. Annar bróöir Sigríðar var
Vigfús, afi Grétars Fells rithöfund-
ar.
Til hamingju með afmælið 20. september
75 ára
Guðmundur Jónsson,
Mávahlíð 7, Reylyavík.
Þorvaldur Sæniundsson,
Skipholti47, Reykjavík.
Jón Vilhjélmsson,
Hlíðarhvammi 7, Kópavogi.
Bára Þorbjörg Jónsdóttir,
Ægisgötu 11, Stykkishólmi.
Haldið veröur upp á afmæiið í Safn-
aðarheimíli Kópavogs nk. laugar-
dag, 25. september kl. 17.
Sigþór Erlendsson,
Engjavegi 65, Selfossí.
40 ára
Hulda Pétursdóttir,
Freyjugötu 32, Sauðárkróki.
70ára
Ingibjörg Hj artardóttir,
Bugðutanga24, Mosfellsbæ.
Guðrún Jónsdóttir,
Vesturgötu 105, Akranesi.
Ragnheiður Bj arnadóttir,
Reynimel 43, Reykjavlk.
50 ára
Kristín Bjamadóttir,
Smáraflöt 30, Garðabæ.
Kristin Jenny Tveiten,
AðalbrautO, Árskógshreppi.
Eysteinn Bj arnason,
Eskiholti 2, Borgarhreppi.
Hanneraðheiman.
Guðni Jónsson,
Kringlunni67, Reykjavík.
Frimann Kristjánsson,
Túngötulla, Grenivík.
Sólrún Ragnarsdóttir,
Vesturbraut 18, Hafnarfirði.
Steindór Sigfússon,
Engihjalla 11, Kópavogi.
Kristján E. Björnsson,
Engjaseli 54, Reykjavík.
Guðleif E. Steingrímsdóttir,
Hásteinsvegi 36, Stokkseyri.
Sigurður Sigurðsson,
Steingerði 7, Reykjavík.
Margrét Rósa Jónsdóttir,
Stóradal, Svínavatnshreppi.
Margrét Thorarensen,
Goðatúni6,Flateyri.
Finnbogi Rútur Hálfdánarson,
Brattholtil5, Mosfellsbæ.
Klæmint Svenning
Antoniussen
Klæmint Svenning Antoniussen,
tannlæknir, Vallarflöt2, Stykkis-
hólmi, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Klæmint lauk gagnfræðaprófi frá
framhaldsskólanum í Vestmanna í
Færeyjum 1960, stúdentsprófi frá
Sorö Ákademis Skole á Sjálandi í
Danmörku, 1963, tannlæknaprófi
frá Kohenhavns Tandlægehöjskole
1969, Jus Practicandi í ágúst 1970.
Hann starfaði sem skólatannlæknir
í Þórshöfn í Færeyjum frá júní 1969
til júní 1970 og sem skólatannlæknir
í Skopun í Færeyjum í júlí 1970.
Klæmint hefur starfað sem tann-
læknir í Stykkishólmi síðan í ágúst
1970.
Fjölskylda
Klæmint kvæntist Ólöfu Ólafs-
dóttur, f. 30.12.1946, aðstoðarmanni
tannlæknis, foreldrar hennar: Ólaf-
ur Jónatansson og Guðríður Guð-
mundsdóttir.
Börn þeirra Klæmints og Ólafar:
Ragnar Kl. Antoniussen, f. 30.9.1967,
nemi við Tölvuháskóla Verslunar-
skóla íslands; Bernharð Kl. Anto-
niussen, f. 27.4.1972, stúdent frá M.L.
1992; Guðrún Kl. Antoniussen, f.
5.7.1973, stúdent frá M.L. 1993.
Systkini Klæmints: Antines Anto-
niussen, f. 26.3.1942, trésmíðameist-
ari í Þórshöfn í Færeyjum; Hildi-
bjartur Mamo Antoniussen, f.
13.10.1945, múrarameistari í Þórs-
höfn í Færeyjum; Frank Antoniuss-
en, f. 23.5.1947, bæjartæknifræðing-
ur í vági í Færeyjum; Kaj Sonni
Antoniussen, f. 8.6.1948, tannlæknir
í Þórshöfn í Færeyjum; Sunneva
Bremer, fædd Antoniussen, f.
9.7.1949, hjúkrunarfræðingur í Hill-
erödíDanmörku.
Foreldrar Klæmints: Esbem Oláv-
us Frits Antoniussen, f. 4.8.1901, d.
Klæmint Svenning Antoniussen.
5.7.1973, sjómaður og húsasmíða-
meistari í Oyndarfirði í Færeyjum,
og Ragnhild Frederikke Antoniuss-
en, fædd Clementsen, f. 24.5.1912,
d.18.9.1968, húsmóðir, þau bjuggu í
Oyndarfirði í Færeyjum.
ÚTHLUTUN ÚR
KVIKMYNDASJÓÐI ÍSLANDS 1994
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum
um framlög til kvikmyndagerðar.
Umsóknir skulu sendar Kvikmyndasjóði fyrir 16.
nóvember 1993, á umsóknareyðublöðum sjóðsins,
ásamt handriti, kostnaðaráætlun, fjármögnunaráætl-
un og greiðsluáætlun.
Ef sótt er um framleiðslustyrk skal fullunnið handrit
fylgja umsókn ásamt kostnaðaráætlun, fjármögnun-
aráætlun og greiðsluáætlun.
Ekki er tekið við umsóknum sem afhentar eða póst-
lagðar eru eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Öll umsóknargögn skulu berast í fjórum eintökum.
Sjóðurinn heldur eftir einu eintaki af umsóknargögn-
um. Umsækjendur eru beðnir að sækja aukaeintök
á skrifstofu sjóðsins frá 15. janúar til 15. febrúar
1994.
Hafi umsækjandi áður fengið úthlutað úr sjóðnum
eða fyrirtæki, sem hann hefur átt aðild að, og verki
ekki lokið, skal fullnægjandi greinargerð að mati út-
hlutunarnefndar um það verk fylgja og uppgjör áritað
af löggiltum endurskoðanda. Othlutunarnefnd áskil-
ur sér rétt til að óska eftir endurskoðuðum ársreikn-
ingi vegna viðkomandi verks ef þörf þykir.
Umsóknareyðuþlöð verða afgreidd á skrifstofu Kvik-
myndasjóðs, Laugavegi 24, 101 Reykjavík, frá og
með 21. septemþer.
Athygli umsækjenda er vakin á því að ný umsóknar-
eyðuþlöð hafa verið tekin í notkun. Allar nánari upp-
lýsingar eru veittar á sama stað.
Anna María Haraldsdóttir
Anna María Haraldsdóttir hús-
móðir, Miðtúni 9, Seyðisfirði, varð
sextug á laugardaginn.
Starfsferill
Anna María lauk gagnfræðapófi
frá Seyðisíjarðarskóla og síðar námi
frá Húsmæðraskólanum að Varma-
landi 1954-55. Anna María hefur
unnið við verslunarstörf, auk hús-
móðurstarfa, síðastliðin 15 ár hjá
KHB en hefur auk þess sem verið
formaður slysavamadeildarinar
Ránar á Seyðisfirði í 12 ár.
Fjölskylda
Anna María giftist 19.10.1957 Sig-
urði Stefáni Friðrikssyni sjómanni.
Foreldrar hans vom Friðrik Björg-
vin Jónsson, sem er látinn, og Unn-
ur Jónsdóttir, búsett á Seyðisfirði.
Böm Önnu Maríu og Sigurðar:
María, f. 5.8.1958, maki hennar Þrá-
inn Gíslason, f. 11.9.1956, trésmiður,
þau em búsett á Akranesi og eiga
fjögur börn; Haraldur, f. 14.7.1959.
starfsmaður Álversins í Straums-
vík, kona hans er Aldrianne Roman
húsmóðir, þau era búsett í Reykja-
vík og eiga einn son; Unnar Friðrik,
f. 13.7.1960, vélvirki, búsettur á
Seyðisfirði; Ingibjörg, f. 18.8.1962,
húsmóðir, maður hennar Trausti
Marteinsson sjómaður, búsett á
Seyðisfirði og eiga þijú börn; Björg,
f. 5.2.1965, verkakona, búsett á Seyð-
isfirði, á tvær dætur.
Systkini Önnu Maríu: Brynhildur
Haraldsdóttir, látin, var gift Emil
Jónassyni, sem er látinn, þau áttu
eitt bam; Sigríður, látin, hún var
gift Stefáni Ámasyni, sem er látinn,
þau áttu sjö böm; Guðmundur, lát-
inn.
Anna María Haraldsdóttir.
Foreldrar Önnu: Haraldur Guð-
mundsson, f. 4.2.1876, verkamaður,
d. 1958, og María Þórardóttir, f. 19.9.
1891, d. 1975.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
DV
GRyENI __
SÍMINN E3
-talandi dæmi um þjónustu!