Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 Fréttir Það vakti töluverða athygli þegar DV birti frétt um að Einar Kárason rithöfundur hefði kært Guðjón Þórðarson, þjálfara knattspyrnuliðs Skagamanna, fyrir að hafa slegið sig og bitið í loka- hófi knattspyrnumanna um síðustu helgi. Einar hefur litið viljað ræða málið en Guðjón sagði eitthvað hafa átt sér stað sem hann gerði sér ekki almennilega grein fyrir. Þeir sem eru fróðir um hunda segja að mannabit sé mun válegra en bit hunda en hvort meint bit þjálfarans á eftir að hafa viðlika áhrif og sjást hér að ofan skal ósagt látið. -hlh Stuttar fréttir Framlög tíl land vemdar Landvernd vill að stjórnvöld nýti fraralög úr Atvinnuieysis- tryggingasjóöi í þágu land- og umhverfisvemdar. Þetta var samþykkt á aöalfundi féiagsins um síðustu helgi. Auður Sveins- dóttir var endurkjörin formaður á fundinum. Ráðhenra skapar óvissu Starfsmenn Landspítalans í Kópavogi segja heilbrigðisráö- herra skapa óvissuástand í rekstri spítalanna með breyting- um á rekstri bamaheimila Rik- isspítalanna. í bréfi til ráðherr- ans benda þeir á 90% af börnum leikskólanna fengju ekki inni á leikskólum sveitarféiaganna. Vonbrigðiogundrun Starfsmannaráð Ríkisspítal- anna ganrýnir lokun leiksóla spítalanna og segir heilbrigðis- ráðherra hafa lítilsvirt starfsfólk- ið, bömin og þá sem vinna á leik- skólunum. Ráðiö lýsir yfir undr- un og vonbrigðum með vinnu- brögð ráðherrans í málinu. Ráðhenrann gagnrýndur Stjóm Sóknar átelur heilbrigð- isráðherra vegna skyndiákvörð- unar um lokun leikskóla. i bréfi til ráðherrans er það sagt óþol- andi aö starfsfólk leikskóla sjúkrahúsanna heyri það fyrst í fréttum fjölmiöla að til standi að segja því upp. Þá mótmæhr stjómin harðlega sjúklingaskatti í formi sjúkrakorta. Kvennalistinnámóti Þingflokkur Kvennalistans hef- ur tekiö afstöðu gegn fyrirhug- aöri lokun á davistarheimilum sjukrahúsanna. Skora þærá heíl- brigðisráöherra að „anda rólega" og „horfa á málið meö sanngirni og skynsemi í huga“ Átta f orstjóraumsóknir Átta umsækjendur em um stöðu forstjóra Náttúrufræði- stofnunar Islands. Meðal um- sækjenda em Amór Þórir Sigfús- son, Einar Valur Ingimundarson, GlslL Jón Kristjánsson, Jón Gunnar Ottósson og Krístinn J. Albertsson. Þrír umsækjenda óskuðu nafnleyndar. ísiendingar hjá SÞ Tveir íslendingar vom’ nýlega ráönir til fnðargæslustarfa á veg- um Sameinuðu þjóðanna í fyrr- um Júgóslavíu og Sómalíu. Starfsraennimir heita Magnús Bjarnason og Björn Jónsson. Þá mun Ólafur Þ. Haröarson fylgjast með fyrstu fijálsu kosningunum í Afríkuríkinu Erítreu. Hljómsveit þroskaheftra Landssamtökin Þroskahjálp hafa boðið danskri hljómsveit, Strámændene, til landsins en hún er eingöngu skipuð þroskaheft- um iistamönnum. Hljómsveitin heldur tónleika á morgun klukk- an 15 í Félagsheimili Seltjarnar- ness. -kaa Bandarískur unglingur lífshættulega slasaður: Féll tíu metra og lenti í grýttri urð við Vogastapa á Vatnsleysuströnd Bandarískur piltur Uggur lífs- hættulega slasaður á gjörgæsludeUd Borgarspítala eftir að hafa falhð fyrir björg um 10 metra niður í grýtta urð við Vogastapa á Vatnsleysuströnd laust fyrir klukkan 14.00 í gær. Pilturinn, sem er 14 ára, var ásamt þremur bandarískum jafnöldmm á göngu við bjargið þegar hann féll niður. Félagar hans köhuðu eftir hjálp og náðu sambandi við íslensk- an pilt sem var í nágrenninu. Var lögregla komin á staðinn stuttu seinna. Erfitt var að komast á slysstað landleiðina og ómögulegt að koma drengnum upp eins slasaður og hann var. Því var kallað á aðstoð Hjálpar- sveitar skáta í Vogum. Hún sendi gúmbát á vettvang og einnig kom gúmbátur á staðinn frá varðskipi sem var nærstatt. Þegar ljóst var hversu alvarlega slasaður phturinn Var ákváöu lög- reglu- og björgunarmenn að óska eft- ir aðstoð þyrlu til að ná piltinum upp til að flytja hann í sjúkrahús. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn laust fyrir klukkan þijú en hún var þá nýkomin úr eftirlitsflugi og þurfti einungis að kalla til lækni og dæla eldsneyti á þyrluna. Með gúmbát Gæslunnar kom stýrimaður sem er vanur að vinna með þyrlunni. Vegna Björgunara úr lofti, á láði 0o (4) ' B yavík 1, Tilkyrfning um slysiö berst lögreglunni í Keflavik kl. 14.02 og sendir tiún mannskap á slysstaö. 2, óskaö er aöstoðar Hjálparsveitar skáta í Njarövík og sendir hún gúmbat á vettvang. 3, Varöskip er statt skammt undan landi og þar.uro borö er sérþjélfaöur roafoij- tik«6-vkina að bjprgunarstörfum,með þyrlup 4aóskaðVér aöstoöar þyriu Landhelgisgæslunnar kl. 14.30 og er hún farin í loftlð 15 mln. seinna. 5. Þyrlan kemur á slysstað rétt fyrír kl. 15 en 35 mín. tekur aö búa uro hinn siasaöa vegna þess hversu alvarlega hann er siasaöur, 6. Þyrlan flýgur aftur til ReykjaVíkur og lendir viö Borgarspítala kl. 15.42. m þess hve alvarlega slasaöur pilturinn var tók um 35 mínútur að búa hann undir að vera hífður um borð. Síðan var flogið með hann til Reykjavíkur og lenti þyrlan við Borgarspítalann kiukkan 15.45 -pp Bjartsýnisverðlaun Brestes afhent í Kaupmannahöfn: Enginn er meiri bjart- sýnismaður en Kristján Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn: „Fáir eöa engir eru jafnverðugir að taka við tithnum bjartsýnismaður og Kristján," sagði Paul Jörgensen frá Konunglegu dönsku óperunni þegar hann afhenti Kristjáni Jó- hannssyni óperusöngvara bjartsýn- isverðlaun Brestes í Kaupmanna- höfn í gær. Það er danska fyrirtækið Breste sem stendur fyrir verðlaun- unum. Kristján kom til Kaupmannahafn- ar í tilefni dagsins ásamt Siguijónu Sverrisdóttur, konu sinni. Eftir helgi fer hann til Chigaco til að syngja aðalhlutverkið í nýrri uppfærslu á Tosku. Bjartsýnisverðlaunin eru ár hvert veitt íslendingi sem þykir hafa skar- að fram úr fyrir sakir bjartsýni og atorku. Kristján þykir falla vel í þann hóp. Hann var vélsmiður á Akureyri en seldi eigur sínar, fór í söngnám til Ítalíu og er nú kominn í röð fremstu óþerusöngvara. Kristján Jóhannsson óperusöngvari tók við bjartsýnisverðlaunum Brostes I Kaupmannahöfn i gær. Með honum á myndinni er eiginkona hans, Sigur- jóna Sverrisdóttir. DV-símamynd Gizur íþróttir ____________ Bjarnivarð íníundasæti Bjarni Friöriksson júdómaður varð í 9. sæti í -95 kg þyngdar- flokki á heimsmeistaramótinu í Hamilton í Kanada í fyn-inótt. í nótt sem leið átti Hahdór Haf- steinsson að keppa í -86 kg flokki. Bjami keppir í opnum flokki á morgun og er þaö síðasta keppni hans. -BL Marthakeppir íhálfmaraþoni áHMíBrussel Martha Emstdóttir, ÍR, verður meðal keppenda á heimsmeist- aramótinu í - hálfmaraþoni í Brussel í Belgiu á morgun. Hún varð í 23. sæti á síðasta heims- meistaramóti. -BL Ágóóaleikurí Kópavogi Knattspymudeild Breiðabliks og erlendu leikmennirnir í ís- lensku knattspymunni ætla að taka saman höndum og ieika ágóðaleik fyrir hjálparstarf Rauða kross íslands í fyrrverandi Júgóslavíu. Leikurinn fer fram á sandgrasvelhnum í Kópavogi á sunnudaginn og hefst klukkan 14. Meðal þeirra erlendu leikmanna sem ætla að spila em Lúkas Kostic frá ÍA, Sahh Heimir Porca, Fylki, og Izudin Daði Dervic úr KR. Þama eru Serbar og múshm- ar að leika saman í liöi til að sýna samstöðu og um leið að mótmæla þeirri vargöld sem ríkir í fyrmm heimalandi þeirra. Ekki verður innheimtur aðgangseyrir en fólki verður boöið að styrkja hjálpar- starfið með fijálsum framlögum ámeðanleikástendur. -GH Unitedtil Tyrklands Dregið var í 2. umferö á Evr- ópumótunum í knattspymu i gær. í keppni meistaraliöa dróst Feynenoord á móti portúgölsku meisturunum Porto, Manchester United dróst gegn Galatasaray frá Tyrklandi, AC Miian leikur gegn FC Kaupmannahöfn og Barcelona gegn Austria frá Vín. í keppni bikarhafa leikur Arsenal gegn Standard Liege, Aberdeen mætir ítalska stórhöinu Torino og Evrópumeistarar Parma frá Ítalíu mæta Maccabi Haifa frá ísrael. Helstu leikir í UEFA- keppninni verða viðureign Aston Vilia gegn Depotivo La Comna frá Spáni. Juventus, sem sigraöi í keppninni í fyrra, mæta Kong- svinger frá Noregi, MTK Búda- pest mætir Mecheien frá Belgíu, Bayern Múnchen mætir Norwich og Inter Milano leikur gegn.Ap- pohon Limassoi frá Kýpur. Leik- imir eiga að fara fram 19.-20. októberog2.-3.nóvember. -BL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.