Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 23' Einstæður árangur bandaríska lýtalæknisins Ians Jackson: Breytti syninum í mann Nú vikunra lauk bandaríski lýta- læknirinn Ian Jackson við verkefni síðustu 16 ára. Hann hóf áriö 1977 að breyta afskræmdum syni sínum, David, í mann og hefur nú náð þeim árangri að ekki verður bætt mikið úr héðan af. David fæddist árið 1974 og var óvenjumikö vanskapaður. Hann þjá- ist af svokölluðum helfer-sjúkdómi. Andlitið var allt afmyndað, önnur höndin fost við ennið og hakan við bringuna. Venjulega lifa svo van- sköpuð börn ekki lengi en Ian hóf þegar undirbúnig við að bjarga lífi sonarins. Fyrsta aðgerðin var þó ekki gerð fyrr en David var þriggja ára. Faðir- inn vann verkiö í áfongum. Losaði fyrst höndina og hökuna og tók svo til við að laga andlitið. Eftir sex ár ogfjölda skurðaðgerða var Davið far- inn að taka á sig mennskt sköpulag. Hann leit þó út eins og illa farinn boxari en gat orðið lifað eðlilegu lífi. Ian, faðir hans, er sérfræðingur í aðgerðum vegna fæðingargalla. Hann hefur ótal sinnum lagað skarð í vör og holan góm. Hann sagði nú í vikunni við þýska vikuritið Der Spi- egel að ekkert verkefni hefði reynt ámóta á hann og að bjarga syni sín- um frá ævilögnum þjáningum. Yfir- leitt væru fæðingargallar mun ein- faldari viðfangs. Ian sagðist einnig hafa átt í erfiðri glímu við eigin hug. „Það liggur fyrir okkur öllum að deyja. Því er spurn- ing hvort það er réttlætanlegt að leggja miklar þjáningar á einn mann áður en dauðastundin rennur óhjá- kvæmilega upp, sérstaklega ef óvist er með árangurinn," sagði Ian. Erflðasti vandinn var að finna deyfilyf sem hefði enn áhrif eftir sí- endurteknar aðgerðir. Það fann Ian loks í Perú. Indíánar þar þekktu sterkasta deyfilyfið og það notaði Ian við þær seinustu af 80 skurðaðgerð- um. -GK Drengurinn fæddist illa vanskapaður vegna helfer-sjúkdómsins. Fyrst var hægri höndin losuð frá enninu. Margar aðgerðir þurfti til að laga andlitið. lan og David Jackson eftir síðustu aðgerðina nú i vikunni. Nefið var mjög erfitt viðfangs en þó Eftir sex ár var komin mannsmynd tókst að laga það lika. á David en þó margar aðgerðir eftir. TÆKNI fÆÆSÆÆÆÆÆÆfÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆSÆÆÆSÆ* AUKABLAÐ UM TÖLVUR Miðvikudaginn 13. október mun aukablað um tölvur fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verður fjallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvunotkun. í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vélbúnað, þróun og markaðsmál. Má hér nefna greinar um viðskipta- hugbúnað, þróun hugbúnaðar í sjávarútvegi ásamt smáfréttunum vinsælu. Kynnt verður „PH0T0 SHOP" myndasamkeppni. Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í blaðið er bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar DV, Björns J. Björnssonar, fyrir 5. október. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka- blaði, vinsamlega hafi samband við Svanhvíti Valgeirsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta I síma 63 27 23. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 7. október. Þverholti 11 -105 Reykjavík - Sími 91 -632700 - Símbréf 91 -632727 Áttatíu aðgerðirá sextánárum David Jackson þurfti að ganga í gegnum áttatíu skurðaðgerðir á sext- án árum. Ian, faðir hans, telur að ekki þurfi fleiri aðgerðir úr þessu. David er nú orðinn 18 ára gamall, fæddur 26. desember árið 1974. Hann er við góða heilsu þrátt fyrir erfitt líf fram til þessa. Fjölskylda Davids stóð öll saman um að gera lífið bærilegt og hefur að vonum fylgst náið með framvindu mála þau sextán ár sem hann hefur verið á og við skurðarborðið. Fjölskyldan hefur oft orðið fyrir aðkasti vegna útlits sonarins. Hún hefur komið inn á veitingastaði og heyrt fólk við næstu borð pískra sín á núlli um „skrímslið" eða „son Frankensteins". Þá hafa jafnaldrar Davids ekki allir sýnt honum miskunn. Þegar hann sýnir sig úti á götu er hrópað á eftir honum og hann kallaður ýmsum ónefnum. David hefur því tahð það á sig leggjandi að fara ítrekað í að- gerðir til að öðlast sama útlit og aðr- ir. Nú sér fyrir endann á þessari þrautagöngu. RALLY sunnudaqinn 3. okt. Keppni hefst kl. 14 á brautinni viö Krýsuvíkurveg. Keppt verður í rallíkrossi - bílkrossi. Á meðal keppenda í rallíkrossi verða Birgir Vagnsson á Nissan 240RS og Guðbergur á Porsche-inum. Frítt fyrir 12 ára og yngri. m yJKLJUBÍ 'RALLY Ickoss KLUBBURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.