Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 Undanúrslit bikarkeppni í bridge Leikjumfjórðu uœferðar bikar- keppni BSÍ lauk laugardaginn 25. september. Tveír leikir voru spil- aðir þann dag; sveit H.P. Köku- gerðar frá Selfossi vann nauman sigur, 101-98, gegn sveit Antons Haraldssonar frá Akureyri. Sveit VÍB og TVB16, báðar frá Reykja- vík, áttust við í Sigtúni 9 og TVB kom á óvart meö þvi að ná að leggja VÍB í þeim leik, lokatölur 100-75. Sveit Metró, Reykjavík, spilaði við sveit Samvinnuferöa- Landsýnar fimmtudagskvöldiö 23. september. Sveit Samvinnu- ferða vann þann leik með 96-63. Dregið var í undanúrslitin mánudaginn 27. september en undanúrslitin og úrslitin verða spiluö í Sigtúni 9, helgina 2.-3. október. Sveit Bjöms Theódórs- sonar spOar gegn sveit H.P. Kökugerðar i öðrum leiknum, en í hinum eigast viö sveitir Sam- vinnuferða-Landsýnar og TVB16. Undanúrslitaleikurinn hefst klukkan 11 laugardaginn 2. okt. en úrslitaleikurinn kl. 10 sunnu- daginn 3. okt Öllum er velkomið að koma og fylgjast með. f slandsmót í einmenningi , Skráning í íslandsmótið í ein- menningi er nú komin vel af stað og síöasti skráningardagur er mánudaginn 4. október. Skrán- ingu þarf að fylgja þátttökugjald sem er 2.500 krónur á mann en einnig er hægt að láta skrá sig á skrifstofu BSÍ í síma 91-619360 og greiða þátttökugjaldið í næsta banka. Spilað verður sama kerfi og síðasta ár og veröur þátttak- endum sent kerfið heim. Keppn- isstjóri verður Kristján Hauks- son, spilað verður í Sigtúni 9 og keppnin byrjar klukkan 11, laug- ardaginn 9. október. Bridgefélag Hafnarfjarðar Síðasta mánudag hófst þriggja kvölda Mitchell-tvímenningur sem er minningarmót um fyrrum félaga, þá Þórarin Andrewsson og Kristmund Þorsteinsson. Alls taka þátt 22 pör í mótinu og úr- slit fyrsta kvöldsins urðu eftirfar- andi í NS: 1. Kristófer Magnússon- Guðbranduf Sigurbergsson 350 2. Erla Sigurjónsdóttir- Hulda Hjálmarsdóttir 303 3. Sigurjón Harðarson- Haukur Ámason 286 - hæsta skori í AV náðu: 1. Ársæll Vignisson- Trausti Haröarson 318 2. Trausti Finnbogason-, Haraldur Ámason 302 3. Gunnlaug Einarsdóttir- Hrólfur Hjaltason 299 Meðalskor var 270 stig. Spilað er í iþróttahúsinu við Strandgötu. J öklamotið 1993 Bræðurnir Pálmi og Guttormur Kristmannssynir frá Egilsstöð- um sigruðu með yfirburðum í þriðja jöklamóti Bridgefélags Hornafjarðar. Þeir tóku snemma góða forystu og héldu henni tii loka. Mikil barátta var um annaö sætið sem réöst ekki fyrr en í síð- ustu umferðum. Veitt voru vegleg peningaverðlaun fyrír efstu sæt- in, jöklaferð fyrir fjóra með Jöklaferöum hf„ auk humarverð- launa. Keppninni var stjómað af röggsemi af Sveini R. Eiríkssyni. Lokastaöan á mótinu varð þann- ig: 1. Pálmi Kristmannsson- . Guttormur Kristmannsson 269 2. Agúst Sígurösson- Ólafur Magnússon 183 3. Björn Theódórsson- Sverrir Ármannsson 150 -ÍS Kristján Hauksson tæknifræðingur hefur í mörg ár unnið að gerð forrits til sýningar á bridge. Fullkomið bridgeforrittil sýningar í keppni: íslensk tækni í fararbroddi - segir Kristján Hauksson, gjaldkeri Bridgesambands íslands „Það er alrangt hjá höfundi grein- arinnar í Economist að ekki sé hægt að gera bridgeíþróttina áhugaverða fyrir áhorfendur. Það er hins vegar rétt hjá honum að grafísk uppsetning er mun ílóknari á bridge en skák. En það er vandamál sem hægt er að yfirstíga og er reyndar búið að yfir- stíga að mestu leyti. Það er miklu skemmtilegra að horfa á bridge held- ur en skák að mínu viti, vegna þess að það er mun meira að gerast," sagði Kristján Hauksson, tæknifræðingur og gjaldkeri Bridgesambands ís- lands, í samtali við DV. Kristján ólst upp á miklu bridge- heimili og var farinn að spila 17 ára gamall. Hann fór út í mótaundirbún- ing og skipulag fyrir hálfgerða tiivilj- un þegar keppnisstjóra vantaði hjá Bridgefélagi Hafnaríjarðar. Áhugi á skipu- lagningu „Hjá BH fékk ég áhuga á að kynna mér skipulagningu bridgemóta enda er ekki sama hvernig þau eru haldin. Síðan hefur þetta smám saman hlað- ið utan á sig, ég fór að vinna fyrir Bridgesambandið og hef mikið unniö í tæknimálum fyrir það. Ég hef sótt námskeið erlendis og í vor var ég tekinn í hóp alþjóðlegra keppnis- stjóra og vann reyndar sem slíkur á síðasta Evrópumóti í sumar. Við erum komnir meö svo fullkom- ið forrit til að sýna bridge að það er enginn vafi að áhorfendafjöldi á eftir að aukast umfram það sem nú er. Tæknin er orðin þannig að hægt er að gera hvað sem er, sýna gang spils- ins, sagnir, úrspil, stöðu í öllum leikj- um sem eru í gangi og ýmislegt fleira. Hrifust af íslensku tækninni „Ég var beðinn um að koma með íslenska forritið til notkunar á HM yngri spilara sem fram fór í Árhus í Danmörku í sumar. Framkvæmda- stjóri Danska bridgesambandsins, Ib Lundby, sem komið hefur á bridge- hátíðir hingað til lands, hreifst mjög af tæknimálum okkar íslendinga og fór þess á leit við Bridgesamband íslands að fá afnot af mér og forritinu á HM yngri spilara. Allir stjórnar- menn Aiþjóðabridgesambandasins (IBPA) með tölu, sem mættu á þetta mót, voru á einu máli um það að for- rit okkar væri það besta sem nokk- urn tímann hefði sést. Áhorfendur voru svo hrifnir að þegar úrslitin voru spiluð, tróðust 5-600 manns inn í sýningarsal sem ætlaður var fyrir 300 manns. Áhorf- endur vildu miklu fremur fylgjast með á sýningartöflunni en að vera áhorfendur við sjálf spilaborðin. Það er því ekki hægt að segja að ekki sé hægt að setja bridgespil og keppni upp á skemmtilegan máta fyrir áhorfendur. Danir keyptu þetta forrit, Norð- menn hyggjast kaupa það einnig og fleiri þjóðir hafa áhuga. Ég bind tölu- verðar vonir um að að forritið verði notað á næsta Evrópumóti í bridge sem fram fer í Portúgal eftir tvö ár.“ Afrakstur mikillarvinnu „Þetta forrit er afrakstur vinnu minnar fyrir hönd Bridgesambands- ins, Valgarðs Guðjónssonar og Þor- steins Sverrissonar hjá Verk- og kerf- isfræðistofunni. Við höfum, frá árinu 1988, unnið við þetta forrit, breytt því og betrumbætt með þeim árangri að engin þjóð státar af neinu betra í dag. Það hefur þann kost að einnig er hægt að nýta það sem kennslu- tæki í bridge. Fyrsta grafíska forritið var reynt á bridgehátíð 1989 og það hafði ýmsa galla. Fram að því hafði spilum og gangi mála verið lýst með hjálp myndvarpa og glærur notaðar til að lýsa gangi spilsins. Það var óhemju- vinna en með tækninni í dag getur einn maður stjórnað allri framsetn- ingu.“ HM á íslandi? „Við bindum miklar vonir við að fá að halda HM árið 1997 í bridge. Andstaða er samt töluverð meðal nokkurra þjóða á grundvelli þess að stefna IBPA er að halda mótið utan Evrópu eða Ameríku. Við tilheyrum Evrópu og því ætt- um við ekki að koma til greina en góð rök eru þó okkur í hag. Við erum mitt á milli heimsálfanna tveggja, hér verða önnur stórmót vart haldin og tæknimálin eru okkur í hag. Ég hef orðið var við það að margir ráða- menn innan IBPA eru okkur mjög hliðhollir. Viö njótum álits sem sér- staklega góðir skipuleggjendur móta og getum haldið HM með miklum glæsibrag. -ÍS Grein í The Economist: íslend- ingar eru brjálaðir í bridge Nýverið hirtist grein í vikublað- inu Economist um bridgeíþrótt- ina. Höfundur veltir fyrir sér iþróttimú, ber hana saman við skákíþróttina og kveður upp úr um það að skákíþróttin sé mun vinsælli meðal áhorfenda, aðal- lega af tveimur orsökum. Þaö sé staðreynd þrátt fyrir það að talið sé að iðkendur bridge séu á milli 75 og 100 milljónir og fari stöðugf ijölgandi. Enda reyni íþróttin mjög á greind og hæfni manna til mikillar einbeitingar. Jafnframt er íslands að nokkru getið i grein- inni enda voru íslendingar hand- hafar Bermúdaskálarinnar í bridge þegar greinin var skrifuð. Vafasöm rök- semdafærsla Greinarhöfundur segir að skák- íþróttin njóti mun meiri athygli heldur en bridgeíþróttin. Fyrir því séutvær meginástæður. Önn- ur er sú aö verðlaun eru mun hærri til sigurvegara í mótum fyrir þá bestu í greininni enda skipta þau milljónum í stærstu mótum. Hin ástæðan er sú aö enginn hafi fundið leið til þess að gera bridge áhugavert í sjónvarpi, öfugt viö skákíþróttina. Það er rétt ályktað hjá greinarhöfundí að mun auðveldara sé að sýna skák heldur en brídge í sjónvarpí eða á sjónvarpsskermi. Fyrir hverja skák sem tefld er þarf að- eins eina stöðumynd og grafísk uppsetning er tiltölulega einföld. Hins vegar er mun flóknara að sýna gang bridgespils á grafiskan hátt og kemur þar margt til. Spil skiptist í saguir og úrspil og sýna þarf hvoru tveggja. Hvert spil tekur 5-15 mínútur í úr- vinnslu og síðan tekur nýtt við og svo koll af kolli. Af því leiðir að mun flóknara er að sýna þetta ferli á grafískan máta. Að því leytinu hefur liöfundur rétt fyrir sér en á hinn bóginn er ekkert sem segir að það sé ekki hægt að leysa þessi tæknilegu vandamál. Þróun grafískrar framsetning- ar á bridgespilum hefur orðið geysimikil á síðustu árum og það sem færri vita er að ísland er þar í fararbroddi. Hér hefur verið unnið mikið í þeim málum enda hafa íslendingar sótt um að fá að halda heimsmeistarakeppnina um Bermúdaskálina á árinu 1997. Þvi er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Fjölbreyti- leikinnfælirfrá Höfúndur leiðir einnig getum að því að framþróun spiisins sé svo mikil að hún sé farin að fæla tómstundaspilarann frá. Sagn- kerfi séu orðin svo fullkomin, meö ýmiss konar gervisögnum, að menn leggi þaö hreinlega ekki á sig að læra spilið, heldur gefist frekar upp. Auk þess virki ráð- stafanir i stærri mótum, tfi þess að koma í veg fyrir svindl, mjög fráhrindandi fyrir þá sem áhuga hafa á íþróttinni. Staðreyndin er sú að svindl í bridge er afar sjald- gæft og það heyrir nánast til und- antekninga að svindlákærur séu lagðar fram í mótum. I lok greinarinnar spáir höf- undur í það hvaða þjóðir séu lík- legar til að vinna Bermúdaskál- ina á HM í Chile (sem lauk nú í þessum mánuði). Þar er talaö um að núverandi titilhafar séu ís- lendingar, smáþjóð sera sé brjál- uð í bridge (bridge-mad country), Hvergi í heiminum eru jafn margir skráðir keppnisspilarar sé miðað við liöföatölu. -ÍS Fjölmargir áhorfendur fylgdust með því í beinni útsendingu frá Yokohama í Japan þegar íslendingar urðu heimsmeistarar í bridge DV-myndir Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.