Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 51
LAUGARÐAGUR :2. OKTÓBER 1993 59 Afmæli Birgir Ágústsson Birgir Ágústsson húsgagnameistari, Baröavogi 19, Reykjavík, er sextug- urídag. Starfsferill Birgir fæddist á Fáskrúðsfirði og ólst þar upp. Hann lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði, öðlaðist meistara- réttindi í þeirri iðngrein og starf- rækti síðan BÁ-húsgögn í Reykjavík um þijátíu ára skeið en það var um árabil annað stærsta húsgagnaverk- stæði landsins. Þá stundaði Birgir innflutning. Hann reisti húsið að Skeifunni 8 undir verkstæðið en eft- ir að hann hætti rekstri hefur hann leigt út húsnæðið í Skeifimni fyrir verslanir og önnur fyrirtæki. Fjölskylda Birgir á sex böm. Þau eru Steinunn BjörkBirgisdóttir, f. 10.7.1954, þjóð- félagsfræðingur í Reykjavík, á einn son; Ágúst Birgisson, f. 16.5.1957, tæknifræðingur í Reykjavík, kvænt- ur Jóhönnu Hermansen skrifstofu- manni og eiga þau þrjú böm; Kristín Birgisdóttir, f. 1.4.1960, garðyrkju- fræðingur í Reykjavík, gift Heiöari J úlí ussyni feldskera og eiga þau tvö böm; Sigurbjö'm Birgisson, f. 8.2. 1962, læknir í Bandaríkjunum, kvæntur Helgu Sigurðardóttur og eiga þau tvö böm; Helgi Birgir Birg- isson, f. 24.8.1967, læknanemi; Bar- bara L. Birgisdóttir, f. 29.6.1971. Alsystkini Birgis: Selma, húsmóðir í Reykjavík; Halla, starfsmaður við Rafmagnsveitu Reykjavikur; Har- aldur, lést 1972; Unnar, sjómaður og síðar stöðumælavörður í Reykjavík. Hálfsystkini Birgis: Ágúst Sig- urðsson, starfsmaður hjá Hampiðj- unni, og Sigríður Emilsdóttir skrif- stofumaður. Foreldrar Birgis: Ágúst Lúðviks- sou, sjómaður á Fáskrúðsfirði, og Birgir Agústsson. Marta Sveinbjamardóttir húsmóð- ír. Ólöf F. Kristjánsdóttir Ólöf Friðgerður Kristjánsdóttir, húsmóðir og skattendurskoðandi, Miðtúni 47, Isafirði, er fimmtug í dag. Fjölskylda Ólöf er fædd á ísafirði og ólst þar upp. Hún starfar sem skattendur- skoðandi í virðisaukadeild hjáemb- ætti skattstjóra Vestfjaröa en Ólöf vann áður ýmis verslunarstöf. Hún á sæti í sóknamefnd ísafjarðar- prestakalls. Ólöf giftist 25.12.1962 Kristjáni Friðrik Björnssyni, f. 29.5.1934, sjó- manni. Foreldrar hans: Bjöm Jó- hannsson matsveinn og Guðbjörg Sigurðardóttir. Þau bjuggu á ísafirði. Dætur Ólafar og Kristjáns: Selma, f. 25.7.1962, húsmóðir á Árskógs- strönd, gift Sævari Gunnlaugssyni vélstjóra.þau eiga tvo syni, Óskar Pétur og Ásgeir Hólm, Selma átti son fyrir, Friðrik Ómarsson; Dag- björt Lína, f. 10.7.1964, húsmóðir í Reykjavík, gift Halldóri Kr. Hall- dórssyni rafeindavirkja, þau eiga tvær dætur, Ólöfu Rut og Herdísi. Systkini Ólafar: Theódóra, hús- móðir í Hnífsdal, maki Bjöm Elías Ingimarsson skipstjóri, þau eiga Qögur börn; Guðmundur Páll, húsa- smiður á ísafirði, maki Sigríður Sveinsdóttir, þau eiga fjögur böm; Guðmundur Þór, vélfræðingur í Hnífsdal, maki Elenborg Helgadótt- ir, þau eiga fimm böm; Osk Sigur- borg, búsett á ísafirði; Kristján E., bifreiðastjóri í Kópavogi. Foreldrar Ólafar: Kristján Páls- son, f. 24.9.1916, sjómaður og verka- maður á ísafirði, og Guðmunda Sig- ríður Jóhannsdóttir, f. 20.3.1922, Ólöf Friðgerður Kristjánsdóttir. húsmóðir. Foreldrar Kristjáns: Guðmundur Páll Kristjánsson og Guðmundína Þórðardóttir. Foreldrar Guömundu: Jóhann Sigurðsson og Lína Dalrós Gísladóttir. Magnús Jörundsson Magnús Jörundsson, fyrrv. vélstjóri og starfsmaður hjá Rafmagnsveitu ríkisins, til heimilis að Efstasundi 4, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára ídag. Starfsferill Magnús fæddist að Hafnarhólmi í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu og ólst upp aö Hellu í Steingríms- firði. Hann byrjaði ungur til sjós, tók vélstjórapróf í Reykjavík 1936 og var síðan vélstjóri frá átján ára aldri. Hann var fyrst á sjö tonna bát frá Eyjum í Bjamarfirði í tvö ár, stundaöi síðan róðra frá Drangsnesi í fjögur ár og gerði síöan út eigin bátfráHólmavík. Magnús flutti til Reykjavíkur 1958. Hann var þar vélstjóri á síldarbátum til 1967 en fór þá að starfa hjá Raf- magnsveitu ríkisins þar sem hann var í sautján ár. Magnús hóf svo störf hjá BÚR á Bráðræðisholtinu þar sem hann var í þijú ár en lét síðan af störfum 1984 eftir rúmlega tveggja ára starf hjá Fiskkaupum hf. Fjölskylda Kona Magnúsar er Árný Rós- mundsdóttir, f. 20.5.1916, dóttir Rós- mundar Pálssonar, sjómanns í Bol- ungarvík, og Guðrúnar Ámadóttur. Börn Magnúsar og Árnýjar eru Kristján, sendibílstjóri í Reykjavík; Anna Guðlaug, húsmóðir og for- stöðukona kaffistofunnar í Perlunni í Reykjavík; Aðalheiður Kristín, húsmóðir og hárgreiðslumeistari; Ingimundur, húsasmíöameistari í Reykjavík; Gunnar Þór, sjómaður í Reykjavík. Sonur Ámýjar fyrir hjónaband var Hörður Snævar Sæmundsson, hárskeri í Njarðvíkum, en hann er látinn fyrir allmörgum árum. Foreldrar Magnúsar voru Jörund- ur Gestsson, f. 1900, fyrrv. hrepp- stjóri á Hellu á Selsströnd, og Anna Magnúsdóttir, f. 1891, d. 1992, síðast búsettáSjálandi. Ætt Foreldrar Jörundar voru Gestur Kristjánsson, b. á Hafnarhólmi í Magnús Jörundsson. Kaldrananeshreppi, og kona hans, Guðrún Ámadóttir. Systir Önnu er Lára, móðir Ragn- ars Bjarnasonar söngvara. Foreldr- ar Önnu voru Magnús Kristjánsson, b. að Hafnarhólmi, og Guðrún Mika- elsdóttir. Magnús verður ekki heima á af- mælisdaginn. Til hamingju með afmaelið 3. október Murgrét S. Eyjólfsdóttlr, Skólavöllum 16, Selfossi. 80 ára Sveinfríður Hannibalsdóttir, FeUsenda, Suöurdalahreppi. 75 ára Kögnvaldur Steinsson, Hrauni, SkefUsstaðahreppi. Stefán Ouðmundsson, Skála, Seltjamarnesi. ara HelgO Vigfúsdóttir, Maríubakka 2, Reykjavík. Eighánaöur hennar er Ólaftir ;:i' Kr. Þóröarson kennari sem varö 75 ára 21. ágúst sl. Þau taka sameig* inlega á móti gestum í Sóknar- salnum að Skipholti 50a i Reykjavík kl. 16-18 á afmælisdagmn. Ivar Magnússon, Lyngbraut 9, Garöi. Korl Jónsson útibússtjóri, Vesturhúsum 7, Reykjavík. Hann éraðheim- an. Ingibjörg Hargarve, EgUsgötu 17, Borgarnesi. Maður hennar er Guöjón Amason. Þau taka á móti gestum á afmæl- isdaginn í sam- komuhusinu í Borgarnesi frá kl. 16-19. Björn Theódórsson, Jöklafold 6, Reykjavik. 40 ára 60 ára Sigurveig Björnsdóttir, Hrísaiundi lOf, Akureyri. - Sigriður Andrésdóttir, Efstahjalla 5, Kópavogi. Helga Guðmundsdóttir, Heimahaga 12, Selfossi. Anna Stefanía Sigfúsdóttir, ÁlfhóU 7, Húsavík. Hjalti Skagfjörð Jósefsson, Stifluseh 11, Reykjavík. Guðmunda Nielsen, Keldulandi 7, Reykjavík. Sonja Jóhanna Andrésdóttir, Búðavegi 46, Fóskrúösflrði. Skúli Þór Kjartansson, Víðimel 62, Reykjavík. Vilhjáimur Sigurðsson, Fiskakvísl 26, Reykjavfk, Þorlákur H. Kristinsson myndlistarmaö- ur (ToUi), Álafossvegi 23, Mosfellsbæ. Hann er staddur í Danmörku, Erla Jóliánnsdóttir, Sunnuvegi 10, Þórshöfh. Jón Levi HUmarsson, Hrísateigi 4, Reykjavík. 50 ára Kristin Erlend.sdúttir, Hringbraut 113, Reykjavlk. Auður Sigurbjömsdóttir, Sævangi 39, Hafnarfirði. Hrafnhiidur Sigurbjörnsdóttir, Noröurvangi 28, Hafnarfirði. Sigurður Guðjónsson, Lundi 3, Nýbýlavegi, Kópavogi, Gréta Boða, Kárkollu- og förðunar- meistarí, Löngufit 26, Garðabæ, Hún tekur á móti gestura laugardaginn 2. október í FélagsheimiU Andvara á KjóavöUum eftir kl. 20. Bjöm Magnús Björgvinsson Björn Magnús Björgvinsson, að- stoðarskólastjóri við Laugalækjar- skóla, Otrateigi 54, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Bjöm fæddist í Reykjavik og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1974, íþróttakennaraprófi frá íþróttakennaraskólanum á Laugar- vatni 1976 og hefur stundað nám fyrir skólastjómendur við KHI frá 1992. Bjöm var kennari við Gagnfræða- skóla Sauðárkróks 1976-78, kennari viö Breiðholtsskóla 1978-80, kennari við Fiölbrautaskóla Sauðárkróks 1980-84, fulltrúi hjá Umferðarráði 1985, kennari við Laugalækjarskóla frá 1986 og aðstoðarskólastjóri þar frá 1987, þar af skólastjóri 1988-89. Á sumrin hefur Bjöm stundað bygg- ingarvinnu, brúarvinnu og lög- gæslustörf. Bjöm sat í bæjarstjórn Sauöár- króks 1982-84 og í ýmsum nefndum á vegum bæjarins 1982-84, sat í stjórn Ungmennafélagsins Tinda- stóls 1981-83, lék körfuknattleik með KR og Tindastóli, þjálfaði hjá KR og Tindastóli, var formaður Körfuknattleikssambands íslands 1985-87, er formaður unglinga- nefndar KKI frá 1991, sat í stjórn Skólastjóra- og yfirkennarafélags Reykjavíkur 1988-89 og var fram- kvæmdastjóri Ungmennasambands Skagafjarðar 1981-82. Björn var sæmdur gullmerki Körfuknattleikssambands íslands 1991. Fjölskylda Bjöm kvæntist 2.9.1978 Sigfnði Fan- neyju Úlfljótsdóttur, f. 5.9.1955, fjár- málastjóra hjá ísafoldarprentsmiðju hf. Hún er dóttir Úlfljóts G. Jónsson- ar, f. 1930, d. 1992, starfsmanns Raf- magnsveitu Reykjavíkur, og Bryn- hildar Jónsdóttur, f. 1930, deildar- stjóra í utanríkisráöuneytinu. Börn Bjöms og Sigfríðar Fanneyj- ar em Brynhildur Lilja Björnsdótt- ir, f. 22.12.1977, verslunarskóla- nemi; Björgvin Halldór Bjömsson, f. 16.8.1982, nemi; Brynjar Þór Björnsson,f. 11.7.1988. Systur Bjöms em Lára Björgvins- dóttir, f. 19.5.1960, bankastarfsmað- ur í Reykjavík; Áslaug Björgvins- dóttir, f. 21.12.1964, sjúkraliði í ReyKjavík; Hafdís Björgvinsdóttir, f. 3.12.1967, húsmóðir í Reykjavík. Hálfbróöir Bjöms, samfeðra, er Sigmar Ægir Björgvinsson, f. 14.6. 1948, vélstjóri í Reykjavík. Foreldrar Björns em Björgvin Magnússon, f. 5.9.1925, vélstjóri í Björn Magnús Björgvinsson. Reykjavík, og Áslaug Bima Einars- dóttir, f. 29.8.1930, húsmóðir. Bjöm tekur á móti ættingjum og vinum í félagsheimili KR við Frosta- skjól á afmælisdaginn milli kl 20.00 Og 24.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.