Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 Fréttir Sex arkitektastofum boðiö að taka þátt 1 að teikna framhaldsskóla í Grafarvogi: Lokuð samkeppni um hönnun skóla upp á einn milljarð opin samkeppni tímafrekari og krefst meiri yfirlegu, segir formaður bygginganefhdar Óánægja er á meðal íjölmargra arkitekta í kjölfar þess að ákveðið hefur verið aö „lokuð samkeppni" verði um hönnun framhaldsskóla Borgarholts í Grafarvogi. Sex arki- tektastofum hefur verið boðin þátt- taka en 42 aðilar sýndu því áhuga að taka þátt í samkeppninni. Það hefur ekki verið birt formlega ennþá hverjir þeir sex eru sem var boðin þátttaka þó að fréttir um það hafi spurst út á meðal manna. Þeir sem DV hefur rætt við telja aö um greinileg hagsmunatengsl sé að ræða í þessum efnum en hafa ákveðið að halda að sér höndum þar til nöfnin verða birt. Örlygur Geirsson hjá menntamála- ráðuneytinu er formaður bygginga- nefndar. Hann sagöi í samtali við DV í gær að margar leiðir hefðu komið til greina um val á hönnuðum. Að- spurður hvort ekki hefði veriö við hæfi að hafa samkeppnina opna í ljósi þess að hér er um mjög stórt verkefni að ræða sagði hann: „Við töldum að það væri mun tíma- frekara og það krefðist mun meiri vinnu og yfirlegu. Þess vegna var ákvörðun tekin um að binda þetta við fáa,“ sagði Örlygur. Stefnt er að því að teikningar fari aö berast í vor. Aðspurður hvort allir sex aðilamir í boðkeppninni fái greitt fyrir sinn hlut sagði Örlygur að svo yrði enda hefði boðkeppnin verið ákveðin í samvinnu við Arkitektafélag íslands. Borgarholtsskóli verður verkefni um byggingu á um tíu þúsund fer- metra skólahúsnæði upp á um eða yfir einn milljarð króna. Gera má ráð fyrir að hönnunarkostnaðurinn veröi á bilinu frá 60-100 milljónir króna. -Ótt Báður Grímsson, starfsmaður Mjölvinnslunnar i Hnífsdal, við verksmiðjuhurðina sem brotsjórinn skall á. DV-símamynd Sigurjóri Brotsjór inn á gólf Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísaiirði: Síðdegis í gær fór stormurinn, sem geisað hefur á Vestfjörðum, að ganga niður en mjög hvasst var um tíma. Vindurinn náði allt að 14 vindstigum í Æðey í ísafjarðardjúpi. Það er mesti vindur sem mælst hefur þar í langan tíma þó ekki sé um met að ræða. Samkvæmt upplýsingum DV var lítið um tjón í óveðrinu á norðan- veröum Vestfjörðum ef frá er talin eyðileggingin af völdum snjóflóðs á Fremstuhúsum í Dýrafirði. í gær- morgun losnuðu vinnupallar af ný- byggingu ísafjaröarkirkju og nokkur hætta var af spýtnabraki um tíma. Brotsjór gekk yfir 4 metra háan steinvegg við Hnífsdalsbryggju og skall á stórri verksmiðjuhurö hjá Mjölvinnslunni. Hún skemmdist nokkuð. Ölduhæðin var allt að 10 metrar þama og líktu menn veður- ofsanum við það sem var í Halaveör- inu fræga. Rafmagn var skammtað á ísafiröi í gærkvöldi og fjölmargir bæir í ísa- fjarðardjúpi hafa verið rafmagns- lausir í tvo sólarhringa. Jón Magnússon lögmaður: Áenga samleið með þessu samkrulli ' Jón Magnússon lögmaður hafnar því algjörlega að hann verði fulltrúi Alþýðuflokksins á sameiginlegum lista minnihlutaflokkanna í borgar- stjómarkosningunum í vor. Jón seg- ir aö hann hafi ekkert verið inni í myndinni eftir að Alþýðuflokkurinn hóf þátttöku í viðræðunum og komi aldrei til með að verða. Hann segist ekki eiga neina samleið með bræð- ingi minnihlutaflokkanna en hafnar því ekki að hann taki hugsanlega sæti á öðrum framboðslista. „Mitt nafn bar á góma á einhveiju stigi en það var ekki af mínum hvöt- um og ég hef ekkert með það að gera. Það er gjörsamlega út úr kortinu að ég eigi nokkra póhtíska samleið með þessum bræðingi," segir hann. - Ert þú í einhveijum framboðshug- leiðingum? „Það kemur bara í ljós en ekki í svona hræðslubandalagi." - Kemur til greina að þú farir í fram- boð með Albert? „Það er ekki tímabært að ræða það. Ég er ekki vinstri maður og ég tel það ekki vera hugtak sem setji einhverjar pólitískar markalínur lengur. Þetta samknúl er fyrst og fremst tilkomiö vegna þess að ein- hverjar skoðanakannanir hafa sýnt fram á það að með þessu ætti að vera möguleiki að ná fylgi. Ég get ekki séð að pólitískur grundvöllur sé á bak við þetta framboð," segir Jón Magn-. ússon. -GHS Töluvert af sorpi fauk úr uróunarstöö Sorpu í Álfsnesi i rokinu í gær og i fyrradag og festist á girðingum. Hjá Sorpu fengust þær upplýsingar að fok sem þetta væri einsdæmi. Þar heföu menn iært af reynslunni að ekki þýddi að urða sorp eftir aö vindstyrkur væri kominn I 22 metra á sekúndu. Vind- inn hefði lægt i fyrradag og menn þvi hafiö urðun. Hins vegar hefði vindur- inn skyndilega rokið upp aftur með fyrrgreindum afleiöingum. Engar kvart- anir bárust vegna foks úr urðunarstöðinni. DV-mynd GVA Framfærsluvísitalan 1 byrjun mánaðarins: Bifreiðagjöld hækkuðu en matvörur lækkuðu - verðhjöðnun síðustu þrjá mánuðina Framfærsluvísitalan fyrir janúar- mánuð hækkaði um 0,35 prósent frá desember 1993 og reyndist vera 169,3 stig. Vísitala vöru og þjónustu hækk- aði um sama hlutfall og reyndist vera 173,5 stig. Síðastliðna 12 mánuði hef- ur framfærsluvísitalan hækkað um 3,2 prósent og vísitala vöru og þjón- ustu um 3,8 prósent. Verð á mat- og drykkjarvörum lækkaði aö meðaltali um 2,7 prósent í byijun mánaðarins. Það olli 0,49 prósenta lækkun framfærsluvísi- tölunnar. Bifreiðagjöld hækkuðu hins vegar um 30 prósent en það svarar til 0,11 prósenta hækkunar vísitölunnar. Hækkun annarra rekstrarliða bOs olli 0,03 prósenta hækkun. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands hefur vísitala fram- færslukostnaðar lækkað um 0,9 pró- sent undanfama þijá mánuöi sem svarar til 3,5 prósenta verðhjöðnun- ar á ári. Sambærileg þriggja mánaða breyting vísitölu vöru og þjónustu svarar til 2,7 prósenta verðhjöðnun- ar. -kaa Stuttar fréttir íloðfluvíðræðum Viðræðum íslendinga, Norð- manna og Grænlendinga um skiptingu loðnukvótans lauk í Reykjavík í gærkvöld. Engin nið- urstaða fékkst í viöræöunum. Næsti fundur verður í febrúar. Óánægjameð 12,5%launalækkun Verið er að safna undirskriftum starfsmanna í Stálsmiðjunni í Reykjavík þar sem tilkynningu frá forstjóra fyrirtækisins um 12,5 prósenta launalækkun um næstu mánaðamót er hafnað. Þetta kom fram í útvarpsfréttum í gærkvöld. DæmtiSVR-málinu álaugardag Líklegt er að Félagsdómur taki fyrir mál Vinnuveitendasam- bandsins gegn Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar vegna verk- fallsins sem boöað hefur verið síðdegis á laugardag. Starfs- mannafélagiö og VSÍ fá frest til fóstudags til að skila inn greinar- gerðum. NæturaksturSVR Stjórnamefnd um almennings- samgöngur ætlar aö hefja tilraun með næturakstur strætisvagna um helgar í samvinnu við SVR hf. Þá verður stefnt að því að fjölga ferðum vagnanna á raorgn- ana. Viðræðurmilli lánardrottna Viðræður em hafnar milli stærstu lánardrottna Slippstöðv- arinnar Odda lif. á Akureyri til að forða fyrirtækinu frá gjald- þroti. Greiöslustöðvun fyrirtæk- isins rennur út í lok febrúar. Kristján efstur á lista Aiþýðubandalags Alþýðubandalagið í Kópavogi vill að Kristján Guðmundsson, fyrrverandi bæjarstjóri, verði efsti maður á lista flokksins í bæjarstjómarkosningunum í vor. Þetta kom fram f útvarps- fréttum. Áttahundruð skattakærur 800 kæmr era nú til meöferðar hjá yfirskattanefnd og em 300 mál komin fram yfir lögbundinn frest. Þetta kom fram í Morgun- blaöinu í morgun. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.