Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
13
DV
DV ber saman verð á tíu líkamsræktarstöðvum:
Munar 1.100 krón-
um á mánaðarkorti
Að sögn starfsfólks líkamsræktar-
stöðvanna er þetta sá árstíminn sem
fólk flykkist inn á líkamsræktar-
stöðvarnar til að ná af sér aukakíló-
um og koma sér aftur í form eftir
allt átið um jólin. Ótal tegundir af
leikfimitímum og lokuðum nám- \
skeiðum eru í boði og ættu því allir
að finna eitthvað við sitt hæfi ef eftir
því er leitað.
DV kannaði verð á mánaðarkorti
hjá tiu líkamsræktarstöðvum á land-
inu og athugaði í leiðinni hvað 10
tíma ljósakort kostaði fyrir korthafa.
Taka ber fram að stöðvamar eru
mjög misvel búnar og veita misgóða
þjónustu hvað varðar hvenær opið
er, aðstöðu og fjölbreytni og einnig
er lengd ljósatímanna er mismun-
andi.
Kannað var verð hjá Stúdíói Á-
gústu og Hrafns, Líkamsrækt Call-
íar, Gym 80, Hress, Mætti, World
Class, Líkamsræktinni á Akranesi,
Líkamsrækt Önnu Leu og Bóa í
Keflavík, Líkamsræktinni Bjargi á
Akureyri og Studio Dan á ísafirði.
22% verðmunur
á mánaðarkorti
Dýrast reyndist mánaðarkortið í
Mætti, 4.900 kr., en ódýrast hjá Lík-
amsræktinni á Akranesi, á 3.800, þar
sem einungis var selt 6 vikna kort á
5.700 krónur. Þarna er 22% munur
ef miðað er við einn mánuð.
Verðmunur á mánaðarkorti reynd-
ist 14% ef eingöngu er tekið mið af
Reykjavík þar sem ódýrasta kortið
var hjá Callí á 4.200 og næstódýrast
- á dýrasta og ódýrasta staðnum
hjá Hress á 4.290 kr. í kjölfarið fylgdu
Ágústa og Hrafn með kortið á 4.650
kr., Gym 80 á 4.800 kr., World Class
á 4.890 kr. og Máttur á 4.900 kr.
Á landsbyggðinni var Bjarg meö
næstódýrasta kortið á 4.200 kr., svo
kom Studio Dan á 4.380 kr. og Lík-
amsræktin í Keflavík á 4.500 kr. All-
flestar stöðvarnar bjóða upp á af-
slátt, ýmist staðgreiðsluafslátt, af-
slátt fyrir skólafólk eða stéttarfélög
á bilinu 3-20%.
Fitubrennslunámskeið
Þrjár stöðvanna bjóða upp á lokuð
námskeið sem sérstaklega eru ætluð
þeim sem vilja losa sig við fitu. Stúdíó
Ágústu og Hrafns býður upp á 8
vikna fitubrennslunámskeið á 10.500
kr., Gym 80 býður upp á 6 vikna
námskeið á 6.500 kr. og Hress er með
Átak í fitubrennslu í 8 vikur fyrir
8.900 kr. Alls staðar er fólk fitumælt
og vigtað og því veitt fræðsla hvað
snertir mataræði o.fl.
Ljósakortin
Tíu tíma ljósakort var ódýrast á 2.333
hjá Ágústu og Hrafni en þar eru
reyndar aðeins seld 12 tíma kort á
2.800 krónur. Næstódýrasta mánað-
arkortið var hjá Önnu Leu og Bóa í
Keflavík á 2.500 kr„ þá hjá World
Class á 2.790 kr„ Gym 80 á 3.000 kr„
Hress á 3.200 kr„ Mætti 3.500 kr„
Bjargi á 3.600 kr. og Studio Dan á
3.820 kr. Engin ljós voru hjá Callí eða
á Líkamsræktarstöðinni á Akranesi.
-ingo
Vinningshafi í áskriftargetraun DV:
Hlaut myndbands-
tæki í verðlaun
„Veiih! Þetta voru gleðilegar fréttir
að vakna við,“ sagði Jóhanna Hólm-
steinsdóttir, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík, þegar DV tilkynnti henni
aö hún hefði verið dregin út í áskrift-
argetraun blaðsins en hún var þá
nýkomin af næturvakt.
Jóhanna fékk vandaö Panasonic
Nicam myndbandstæki frá Japis að
verðmæti 95.900 krónur út úr búð.
Tækið er víðóma með 4 myndhausa
og hefur möguleika á allt að 8
klukkustunda samfelldri upptöku.
„Ég er með myndbandstæki í láni
svo nú get ég skilað því. Ég hef notað
það talsvert svo þetta kemur sér vel.
Þetta var æðislegt," sagði Jóhanna.
Sex vinningshafar voru dregnir út í
áskriftargetrauninni í desemberlok
og verða nöfn hinna heppnu birt hér
á síðunni næstu daga.
-ingo
Jóhanna tekur hér við myndbandstækinu úr hendi Hallgríms Halldórsson-
ar, verslunarstjóra hjá Japis. DV-mynd ÞÖK
Neytendur
Standist
arnar
; Þessa skemmtilegu vísu feng-
um við senda frá Benedikt
Björnssyni sem tillögu að sparn-
aði:
Nýtni gefur gull í mund
gjálífsdyrum áttu að loka.
Haltu fast um fengið pund
flórinn skalt, af natni moka.
Notið sím-
ann
Agnar Agnarsson lagði til að
fólk notaði símann meira áður en
farið væri í innkaup og útrétting-
ar. Þannig sparar maður sér bæði
sporin og eyöir ekki tíma og bens-
íni í að leita hlutina uppi.
Ofstórir
skammtar
Gunnar Kr. Sigurjónsson vildi
koma á framfæri tillögu að spam-
aöi fyrir rikið og skattborgarana.
Hann sagði konuna sína hafa
fengiö lyfseðil upp á lyf sem hún
átti aö taka eina töfiu af þrisvar
á dag í þrjá daga, eða níu töflur
alls, en aðeins var hægt að fá
pakkningu með 30 töflum í. Þeim
var ráðlagt að henda afganginum.
Sjúkrasamlagið greiddi helming-
inn en þau restina og fannst hon-
um þar fara peningar í súginn.
sokkabux-
urnar
Með sparnaðarkveðju sendi
Helga Jónsdóttir okkur eftirfar-
andi spamaðartillögu: „Gott er
að kaupa alltaf sömu sort og liti
af sokkabuxum því ef gat kemur
á annan sokkinn er hægt að
klippa hann frá við læri og nota
annan á móti. Fara siðan i báðar
buxurnar svo úr verði heilar (gott
í íslenskum vetrarkulda).
Leikflmifötin
Gott er aö nota gamla leikfimi-
bolinn undir nútíma leikfimifót-
in, þ.e. bolinn og tilheyrandi.
Fljótlegt er að þvo þann gamla
og þurrka og óþarfi að þvo allan
gallann ef stunduö er leikfimi
daglega, það slítur honum fyrr.
Fyrir utan hvaö þaö er gott að
gera æfmgar í gamla bolnum sem
er svo góöur og eftirgefanlegur.
-ingo
kaupauki
sparaðu með
kjaraseðlum
Kjaraseðillinn gildir
sem 8000 kr.
afsláttur við kaup á
einhverju af þessum
borðum.
Þessi seðill gildirtil:
1. febrúar 1994
eða á meðan birgðir endast
Sófaborð 255 / XL-R
stærð 120x65
svart/svart
Verð kr. 16.900,-
fkjaraseðill 8.000,-
8.900,-
Innskotsborð
254/Tris
stærð 61 x"'
svart/svart
Verð kr. 22.800,-
-fkjaraseðill 8.000,- |
14.800,- .
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - *rrt«l 68-68-22 j
Opið mánudaga - föstudaga kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 14-17. I
Kjaraseðillinn gildir í
versluninni hér til
hliðar.
Þessi seðill gildir til:
eða meðan birgðir endast
Kaffikanna 8990
Lítil og handhœg
Sú allra ódýrasta
Verb án kjaraseblls
kr. 2190,-
Vetb meb kjarasebll
kr. 1680,-
B R Æ Ð U R N I R
ORMSSONHF
Lágmúla 8-9. Sími 91-38820, Fax 91-680018