Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrír hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur. _____________________________________________________
Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Símí 632700
Frjálst,6háð dagblað
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994.
Harður árekstur:
Tvennt á
slysadeild
Tveir bílar skullu saman í Skip-
holti á sjöunda tímanum í gærkvöldi
með þeim afleiðingum að flytja þurfti
ökumenn beggja bílanna, konu og
karl, á slysadeild. Báðir bílarnir voru
fluttir af vettvangi með dráttarbíl.
Óhappið varð þannig að annar bíl-
anna ók út af bílaplani í veg fyrir
hinn með fyrrgreindum afleiðingum.
Samkvæmt upplýsingum á slysa-
deild fékk annar ökumannanna að
fara heim að skoðun lokinni en hinn
var lagður inn yfir nótt til eftirlits
vegnahöfuðhöggs. -pp
Staðnir
aðverki
Næturvöröur hjá ullarvörufyrir-
tækinu ístex handsamaði innbrots-
þjóf hjá fyrirtækinu í nótt. Þjófamir
voru tveir á ferð, annar 27 ára og
hinn 21 árs, og komst annar þeirra
undan á hlaupum. Hann var hand-
tekinn stuttu seinna þegar lögregla
kom á vettvang.
Báðir gista þeir nú fangageymslur.
Annar þeirra hefur margoft komið
viðsögulögreglu. -pp
Sjómaður
fyrirborð
Sjómann á sjötugsaldri, Kristin
Finnsson, tók út af smábát þegar
hann var við veiðar um 12 mílur út
af Akranesi á þriðjudag.
Kristinn flæktist í netatrossu og
var það félagi hans, Símon Símonar-
son, sem bjargaði honum um borð
en Kristni gekk erflðlega að komast
úr sjónum. Þeir félagar sigldu til
lands þar sem Kristinn gekkst undir
læknisskoöun og fékk hann aö fara
heimaðhennilokinni. -pp
Steingrímur Njálsson:
Fundinn
Lögreglan í Reykjavík fann í gær-
kvöldi Steingrím Njálsson. Leit hófst
að Steingrími í kjölfar þess að hann
mætti ekki í réttarhald vegna ákæru
í þjófnaðar- og ölvunarakstursmáli
sem Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur til meðferðar gegn honum.
Steingrímur fannst í húsi við Suð-
urlandsveg, austan Eliiðavatns.
Höföu lögreglu borist vísbendingar
um að þar væri hann að finna. Hann
gisti fangageymslu í morgun. _pp
TogararaUið haL&iað:
Kemur a ovart
hvemikiðeraf
tveggja ára þorski
Togararall Hafrannsóknastofn-
unar er nú hálfhað. Það hófst á
fimmtudag í síðustu viku ogstend-
ur í um það bil tvær vikur, að sögn
Jakobs Jakobssonar, forstjóra Haf-
rannsóknastofnunar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
DV fékk frá þremur af þossum
fimm togurum í rallinu, kemur þaö
mest á óvart hve mikið hefur orðið
vart við tveggja ára þorsk út af
Norðurlandi, Eins og flestir muna
var talið aö nýliðun ársins 1992
heíði verið mjög léleg. Þetta gæti
bent til annars. Einnig verður mik-
ið vart við eins árs þorsk á svæð-
inu. Það kemur ekki á óvart þar
sem nýliðunin í fyrra var sögð betri
en í meðallagi.
Sjómenn, sem hafa verið á mið-
um út af Norðurlandi og DV ræddi
við í gær, segja að ástand sjávar sé
mjög gott á þessum uppeldisstöðv-
um þorksins. Sjórinn hefur verið
um fjögurra gráða heitur að undan-
fömu og mikið æti í honum.
Útkoman það sem af er á Aust-
fjarðamiðum er sögð góð, betri en
menn áttu von á. Aftur á móti hef-
ur útkoman á Breiðafirði verið lak-
ari en búist var við. Menn áttu von
á góðri útkomu þar vegna þess hve
afli vertíðarbáta á svæðinu hefur
verið og er enn góður. Það hefur
stundum verið gagnrýnt, varðandi
togararallið, að fara með botntroll
í Breiöaflörðinri í mars. Þá sé fisk-
urinn uppi en liggi ekki við botn
auk þess sem bátaflotinn leggi net
sín á bestu slóðina.
Við fengum ekki upplýsingar um
gang mála á norðaustursvæðinu
né út af Suðurlandi. Það ber einnig
að taka með í reikninginn að tog-
ararallið er bara hálfnað og engar
niðurstöður liggja því fyrir.
Bráðabirgðaniðurstaðan úr tog-
ararallinu mun liggja fyrir tveimur
til þremur vikum eftir að því lýk-
ur, að sögn Jakobs Jakobssonar,
Það er ekki nema hluti þeirra upp-
lýsinga sem stuðst er við þegar ráð-
gjöf um veiðar næsta kvótaárs
verður lögð fram. -S.dór
Sögur eru þegar farnar að berast i smásagnasamkeppnina um íslandsævintýri Tígra sem Krakkaklúbbur DV stend-
ur fyrir. Þátttakendur eiga að semja sögur um ferðalag Tígra, lukkudýrs Krakkaklúbbsins, um einhvern stað á
íslandi og þau ævintýri sem hann lendir í, hámark þrjár blaðsíður. Allir sem verða með fá verðlaun, Tígrablýant
og leikjabók krakkaklúbbsins. 50 sögur verða síðan valdar í sérstaka bók en dregiö verður meðal höfunda þeirra
um vegleg verðlaun. Á myndinni eru tvær stúlkur að skrá sig í keppnina í Tígrahorninu i Kringlunni sem opið
verður fram á laugardag. Skilafrestur í keppninni er til 23. apríl. DV-mynd Brynjar Gauti
Frakkland:
Opnað fyrir
ferskfisk
„Ég var að fá formlegt skeyti í
hendur frá frönskum heilbrigðisyfir-
völdum um að innflutningur á fersk-
um fiski frá íslandi væri heimiiað-
ur,“ sagði Elísabet Óskarsdóttir hjá
Unipesche í Bolougne í Frakklandi í
samtali við DV í morgun.
Frá því á mánudag hefur óformlegt
leyfi gilt fyrir innflutningi á ferskum
fiski eða eins og Elísabet orðaði það:
„Starfsmenn tofla- og heilbrigðiseft-
irlits hafa bara lokað augunum þegar
þeir hafa séð ferskan fisk.“
Innflutningur á frystum fiski er
enn undir ströngu eftirhti Frakka,
að sögn Níelsar Guðmundssonar hjá
Icelandic Seafood í Bolougne. Níels
sagði að þó kæmu hindranir misjafn-
leganiðuráfyrirtækjum. -bjb
Bræla hamlar
loðnuveiðum
„Það er bræla á miðunum og ekki
útiit fyrir veður í dag til veiða. Flest
skipin stefna nú á Faxaflóann og
mörg eru á leiöinni þangað að aust-
an. Torfan út af Suðurlandi er búin
eða of dreifð og út af Vestfjörðum
gefur svo sjaldan veður. ÆtU menn
þjarki ekki í þessu fram að pásk-
um,“ segir Viðar Karlsson, skipstjóri
á Víkingi AK, sem í morgun var á
leið í Faxaflóann eftir löndun á Seyð-
isfirði.
Um 100 þúsund tonn eru eftir af
loðnukvóta íslendinga og önnur 100
þúsund tonn af kvóta Grænlendinga.
Ekki er talið líklegt að það náist að
veiða upp í grænlenska kvótann fyr-
irvertíðarlok. -kaa
Kópavogur:
Bygging við
Engihjalla
endurskoðuð
Bæjarstjórn Kópavogs hefur sam-
þykkt aðalskipulag bæjarins 1992-
2012 þó að tillögu um byggingu versl-
unarmiðstöðvar og íbúða fyrir aldr-
aða á byggingarreit númer sex við
Engihjalla hafi verið frestað.
Tillagan verður endurskoðuð hjá
bæjarskipulagi Kópavogs þar sem
tæplega 700 af um 1200 íbúum höfðu
skilað inn mótmælum áður en frest-
ur rann út nýlega.
Amór L. Pálsson bæjarfulltrúi og
Sigurður Geirdal bæjarstjóri hafa
lýst þvi yfir að endurskoðun tillög-
unnar jafngildi því að ekki verði
byggt á svæðinu. -GHS
LOKI
Má ekki láta þá prjóna
í tugthúsinu?
Veðriðámorgun:
Víða skaf-
renningur
Á morgun gengur í nokkuð
hvassa norðaustanátt. Snjókoma
framan af degi á Suðaustur- og
Austurlandi og einnig norðan-
lands þegar líður á daginn. É1 á
Vestfjörðum en suðvestan til
verður þurrt. Skafrenningur víða
um landið. Sums staðar frostlaust
á suðausturhominu en annars
1-3 stiga frost.
Veðrið í dag er á bls. 44
ÞREFALDUR1. vinningur
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Poiifeeti
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.