Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1994, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1994
Fréttir
DV
Matthías Bjamason, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis:
Eru sjómenn ekki neyddir
til að henda þorski?
- það er bannað að henda fiski, segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsraðherra
„Eru sjómenn ekki neyddir til aö
henda þorski sem veiðist með öðrum
fiski ef enginn er þorskkvótinn? Er
þeim það ekki uppálagt? Auðvitað er
þetta eins óskynsamlegt og nokkur
hlutur getur verið. Það er verið að
koma á kvótakerfl til að friða fiski-
stofna en það vita það bæði guð og
menn að þegar kemur dauður fiskur
úr netum þá er honum hent aftur í
sjóinn. Hvernig eiga menn að forðast
það að þorskur slæðist með þegar
þeir eru að veiða aðrar fisktegundir?
Svo maður tali nú ekki um þegar svo
mikið er af honum eins og nú er.
Þetta er því allt eintómt rugl," sagði
Matthías Bjarnason, formaður sjáv-
arútvegsnefndar Alþingis, þegar
hann var spurður hvað skipstjórar á
sérveiðum, svo sem steinbíts-, kola-,
ufsa- eða ýsuveiðum, eigi að gera ef
þorskur slæðist með en þeir eigi eng-
an þorskkvóta.
„Samkvæmt lögum er bannað að
fleygja veiddum fiski aftur í sjóinn.
Ætli menn að gera það verður farið
með slík mál að lögum,“ sagði Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra, spurður um það sama og Matt-
hías. DV hefur raunar heimildir fyrir
því að nú þegar sé allmikið um að
þorski sé hent. Þorskkvótalausir
skipstjórar segjast ekki eiga önnur
ráð en að henda þeim þorski sem
slæðist með á sérveiðunum. Komi
þeir að landi með þorsk sé þeim refs-
að og þeir sektaðir. Hjá því verður
aldrei komist aö allmikið veiðist af
þorski hjá bátum sem eru á þessum
sérveiðum.
Undanfarin ár hafa útgerðarmenn
báta, sem voru búnir með þorsk-
kvóta sinn og fóru á sérveiðar, alltaf
getað keypt þorskkvóta á skaplegu
verði til að bjarga sér. Nú fæst enginn
kvóti. Sé einhver svo heppinn að geta
fengið eitthvað lítilræði af þorsk-
kvóta þá er verðið komið upp í 65
krónur. Til þess að standa á sléttu
eftir slík viðskipti þarf að selja þorsk-
kílóið á um 160 krónur í landi og það
segja sjómenn að sé ekki hægt.
-S.dór
Stuttar fréttir
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir mála-
myndaumsókn í ESB ekki koma
til greina. Að sögn Alþýðublaðs-
ins telur ráðherrann óhyggilegt
aö afsala íslensku þjóðinni þegn-
rétti í samfélagi Evrópuþjóða.
Hreyfing á fasteignum
Fasteignamarkaðurinn hefur
tekið mikinn kipp i kjölfar vaxta-
lækkana að undanfomu. Sam-
kvæmt Mbl. jukust viðskipti með
skuldabréf um 30% í febrúar mið-
að við sama tíma í fyrra.
Sendiráðsprestur ráðinn
Séra Jóni Dalbú Hróbjaitssyni,
sóknarpresti í Laugarneskirkju,
hefur verið veitt staða sendiráðs-
prests í Gautaborg. Átta umsækj-
endur voru um stöðuna.
Davíðmeðiandsiiðinu
Davið Oddsson forsætisráð-
herra fer til Japans i dag í boöi
íslensk-japanska félagsins. Með í
fór er landsliðið i fótbolta.
Svínakjöt hækkar
Bændur hækka verð á svína-
kjöti á næstu dögum. Morgun-
blaðiö skýrði frá þessu.
Opinnfóstruskóli
Fósturskóli íslands opnar húsa-
kynni sin fyrir börnum á öllum
aldri siðdegis á morgun. Gestum
verður boðið upp á sögustund,
leikræna tjáningu, brúðuleikhús,
tónlist og margt fleira,
Frakkar aflétta hömkim
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna flutti óhindrað 4 gáma af
fiski til Frakklands I gær. Sam-
kvæmt RÚV hafa Frakkar ákveð-
ið að aflétta hömlum á innflutn-
ingi íslensks fisks.
Nýttpipuorgel
Nýtt pípuorgel er komið í Víöi-
dalstungukirkju. Orgelið er 6
radda, smíðað af Katli Sigurjóns-
syni. Aö sögn Mbl. veröur orgelið
vígt á sunnudaginn.
Orkustofnunskiptupp
Á boðuðum ársfundi Orku-
stofnunar verður rætt um að
skipta stofnunínni í tvennt. Ann-
ars vegar starfx hún sem stjóm-
sýslustofnun og hins vegar sem
sjálfstætt hlutafélag um orku-
rannsóknir. Mbl. greindi frá
þessu. -kaa
Stúdentaráð Háskóla íslands kaus sér nýjan formann i vikunni. Á myndinni má sjá Dag B. Eggertsson, nýkjörinn
formann, taka við lyklum aö skrifstofu ráðsins af fráfarandi formanni, Páli Magnússyni. Félagshyggjufólk í Röskvu
vann nýverið kosningar til ráðsins og er með meirihluta í ráðinu. Dagur stundar nám í læknisfræði en verður
væntanlega að fresta náminu um ár vegna þessa nýja trúnaðarstarfs í þágu stúdenta. DV-mynd BG
Síbrotamaður:
Dæmdurí15
mánaðafangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt sí-
brotamann í 15 mánaöa fangelsi
og til að endurgreiða 172 þúsund
krónur auk vaxta og greiða allan
málskostnað fyrir aö hafa ásamt
öðrum brotist inn í söluturn við
Óðinstorg í janúar í fyrra og stol-
ið þaðan sígarettum, vindlum og
peningum. Einnig fyrir að hafa
svikið ríflega 172 þúsund krónur
út úr sautján fyrirtækjum, bönk-
um og einstaklingum á tímabil-
inu frá desember 1992 fram í aprfl
1993.
Síbrotamaðurinn hefur meðal
annars verið dæmdur í sex ára
fangelsi fyrir tilraun tfl mann-
dráps. -GHS
Krefstenn að
dómararvíki
Hæstiréttur hefur svarað kröfu
Tómasar Gunnarssonar lög-
manns um að allir dómarar við
Hæstarétt víki í málum sem hann
flytur eða mun flytja við réttinn.
Segir í bréfi réttarins að hann
geti ekki tekið fyrir kröfu Tómas-
ar þar sem lögum samkvæmt
þurfi slík krafa að koma fram í
hveiju einstöku máli.
Samkvæmt áreiðaniegum
heimildum DV hefur Tómas þeg-
ar lagt fram sömu kröfu í kæru-
máli sem bíður úrlausnar réttar-
ins. -pP
Hugsanlegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu:
Jón Baldvin segir nýjar
forsendur haf a skapast
- kratar hafa einangrast á Alþingi í þessu máli
Eftir að hafa rætt um samninga
fjögurra EFTA-ríkja um aðild að
Evrópusambandinu og alveg sér-
staklega samninga Norðmanna þar
um sagði Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráöherra á Aiþingi í gær,
þegar hann flutti skýrslu sína um
utanríkismál:
„Niðurstöður þessarar lotu aðild-
arviðræðna gefa nýjar forsendur til
þess að meta kosti og galla aðfldar.
Ríkisstjórnin hefur því ákveðiö að
fela óháðum aöila, Háskóla íslands,
að leggja hlutlægt mat á kosti og galla
aðfldar íslands aö Evrópusamband-
inu og bera saman stöðu íslands sem
samningsaðfla að EES við Evrópu-
sambandsaöild."
Umræöur um skýrslu utanríkis-
ráðherra stóðu fram á kvöld. Þar
kom fram að Jón Baldvin Hannibals-
son og Alþýðuflokkurinn eru ein-
angraðir í þessu máli á Alþingi.
Steingrímur Hermannsspn, Ólafur
Ragnar Grímsson, Anna Ólafsdóttir
Bjömsson og Björn Bjamason, for-
maður utanríkismálanefndar, lýstu
því öfl yfir að umsókn um aðild kæmi
ekki til greina. Þau bentu öll á nauð-
syn þess að hefja þegar í stað viðræð-
ur við ESB um tvíhliða samning þar
sem ljóst væri að ísland er að verða
eitt eftir með EES-samninginn. Þess-
ari sömu skoðun hefur Davíð Odds-
son forsætisráðherra einnig lýst yfir.
Jón Baldvin tók fram í sjálfum
umræðunum að eins og stæði væri
umsókn um aðild að ESB ekki á dag-
skrá. Hins vegar væri ljóst að það
bæri að skoða það mál vel, kosti þess
og galla fyrir okkur íslendinga að
sækja um aðild.
Enginn ræöumanna nema Rann-
veig Guðmundsdóttir, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, tók
undir þetta. Jón Baldvin hlaut mjög
harkalega gagnrýni fyrir sjónarmið
sín í málinu.
Páll Pétursson og fleiri fógnuðu
yfirlýsingu forsætisráðherra um að
hann skyldi ætla til Brussel til viö-
ræðna við ráðamenn þar um tvíhliða
samning. Páll var reiður við Jón
Baldvin og sagðist fagna því að for-
sætisráðherra ætlaði ekld að hafa
hann með sér til viöræðnanna. Ann-
ars var umræðan öll óvenju málefna-
leg og án gífuryrða.
-S.dór