Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Qupperneq 4
20 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 Sýningar Gallerí 11 Skólavörðustig 4a, sími 11138 Margrét Sveinsdóttir opnar oliumál- verkasýningu á morgun, laugardag, kl. 16-18. Sýningin stendur til 25. april og er opin aðra daga kl. 14-18. Gallerí Sólon islandus Bankastræti 7 Guðrún Kristjánsdóttir sýnir lágmyndir úr tré og málverk. Viðfangsefni verk- anna er íslenskur sjóndeildarhringur. Sýningin stendur til 12. april og er opin alla daga kl. 11-18. Gerðuberg Þar stendur yfir myndlistarsýning Öskar Vilhjálmsdóttur. Á sýningunni eru Ijós- myndaverk og einnig innísetning með þremur sjónvarpsskjám, hljóðverki og myndbandi. Sýningin stendir til 24. april og er opin mánudaga til fimmtu- daga kl. 10-22 og föstudaga til sunnu- daga kl. 13-16. Götugrillið Borgarkringlunni Fimmtudaginn 18. mars opnaði Sigurð- ur Vilhjálmsson sýningu sem stendur til 20. april. Hafnarborg Strandgötu 34 Þar stendur yfir yfirlitssýning Henriks Vagns Jensen. Á sýningunni eru hand- unnin grafikverk, landslagsmyndir og portrett. Sýningin er opin daglega kl. 12-18 nema þriðjudaga. I Sverrissal stendur yfir sýning Ásdísar Sigurþórs- dóttur á málverkum unnum með akrýl á pappír, tré og striga. Myndefnið eru krossar og er yfirskrift sýningarinnar „Hugleiðing á föstu". Sýningin stendur til 11. apríl og er opin kl. 12-18. Lokað þriðjudaga. "Hjá þeim" Skólavörðustig 6b I dag opnar Soffía Sæmundsdóttirsýn- ingu á verkum sínum. Þar sýnir hún þrykk, unnin á vordögum 1993. Sýn- ingin stendur til 28. apríl og er opin mánudaga til föstudaga kl. 9-18 og laugardaga kl. 10-14. Þetta er önnur einkasýning Soffíu en hún útskrifaðist frá grafíkdeild MHÍ 1991. Café Mílanó Faxafeni 11 Guðrún H. Jónsdóttir (Gígja) sýnir málverk. Sýningin er opin kl. 9-19 mánudaga, 9-23.30 þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga, kl. 9-1 föstu- daga og laugardaga og 9-23.30 sunnudaga. Kjarvalsstaðir Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Jóhannes Svein Kjarval. Á morgun, laugardag, verða svo opnaðar sýningar á verkum Huldu Hákon i vestursal og Ölafs Gíslasonar í miðsal. Hulda sýnir myndir af eldi og blómum bæði í þrívídd og í málverki. Sýning Ólafs ber heitið „Vernissage" eða á nútímamáli „sýningaropnun". Allar sýningarnar standa til 8. maí og eru opnar daglega frá kl. 10-18. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu, simi 13797 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. Inngangur frá Freyju- götu. -v. Listasafn íslands Þar stendur yfir sýning á túskteikning- um í eigu safnsins eftir Barböru Árna- son við Passíusálma Hallgríms Péturs- sonar. Sýningin stendurtil 8. maí. Lista- safnið er opið alla daga nema mánu- daga kl. 12-18. Kaffistofa safnsins opin á sama tima. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 Þar stendur yfir sýning sem ber heitið Hugmynd - höggmynd úr vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar. Úrval verka frá ólikum tímabilum í list Sigurjóns hefur verið sett upp. Sérstök leiðsögn um safnið er á sunnudögum kl. 15 fyrir börn og foreldra. Sýningin mun standa fram á vor og er sérstaklega hönnuð með skólafólk í huga. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17 og kaffistofan llka. Verkefni um friö og umhverfisvemd Núna standa yfir sýningar í Hafn- arborg. í aðalsal sýnir Henrik Vagn Jensen, í Sverrissal sýnir Ásdís Sig- urþórsdóttir og í kafíistofu stendur yfir sýningin Verum vinir. Það er verkefni um frið og umhverfisvemd sem unnin eru af nemendum í Grunnskólum Hafnarfjarðar við texta eftir Ólaf B. Ólafsson í tifefni af 50 ára afmæli íslenska lýöveldis- ins. Tvær sýningar að Kjarvalsstöðum Skúlptúrar og lágmyndir Tvær sýningar verða opnaðar að Kjarvalsstöðum á laugardag. Lista- mennirnir eru Hulda Hákon, sem sýnir í vestursal, og Ólafur Gíslason sem sýnir í miðsal. „Sýningin ber heitið „Vernissage" sem er dregið af frönsku sögninni að lakka. í nútímamáli þýðir þetta sýn- ingaropnun. í Frakklandi var vinum og kunningjum boðið að skoða verk- in áður en þeim var lokað. Það þýðir að lakkhúöin var ekki sett yfir fyrr en vinir og kunningjar höfðu sagt sitt álit á verkinu. Það er því ennþá hægt að breyta verkinu," segir Ólaf- ur Gíslason sem sýnir skúlptúra í miðsal. Hulda Hákon hélt sína fyrstu 'einkasýningu í Hafnarfiröi 1984 og hefur undanfarin 10 ár tekið virkan þátt í íslensku listalífi, haldið fjöl- margar einkasýningar á íslandi, Norðurlöndunum og í Þýskalandi og tekið þátt í samsýningum víða. Hulda hefur undanfarin ár mest unnið við gerð lágmynda þar sem hún vinnur saman mynd og texta. í lágmyndum sínum hefur hún sett manneskjuna í öndvegi og gert ýmsa þætti mannlegrar tilveru að við- fangsefni sínu. Á einkasýningu Huldu að Kjarvalsstöðum sýnir hún myndir af eldi og blómum, bæði í þrívídd og í málverki. -em Nýlistasafnið: Veggspjöld GueriIIa Girls Guerilla Girls gefa sig út fyrir aö vera samviska myndlistarheimsins. Olíumálverk í Gallerí 11 Á laugardag verður opnuð sýning á verkum Margrétar Sveinsdóttur í Gallerí 1 1 að Skólavörðustíg 4. Margrét sýnir olíumálverk og er þetta fyrsta einkasýning hennar í Reykjavík. Áður hefur hún haldið einkasýningar í Gautaborg og Stokk- hólmi og tekiö þátt í samsýningum á ísaflrði, í Gautaborg og Stokkhólmi. Vopnafjörður: Olíumálverk Edda María Guðbjörnsdóttir opnar sýningu á rúmlega 30 olíumálverk- um að Hótel Tanga á Vopnafirði í dag kl. 18. Sýningin verður opin á laugar- dag og sunnudag frá kl. 14-22. Edda hefur meðal annars sýnt í Hafnar- borg. Hún nam verslunarfræði í Lúbeck í Þýskalandi og sótti jafn- framt námskeið í myndlist á þeim árum. Guerilla Girls er hópur myndlistar- kvenna í New York. Á laugardag verður opnuð sýning á veggspjöldum þeirra í Nýlistasafninu. Konurnar vinna undir nafnleynd og koma ætíð fram með grímu fyrir andlitinu. Vinnufót þeirra eru stuttir þröngir kjólar, háhælaðir skór og górillu- grímur. Inntak verka þeirra er gagnrýni á ráðandi gildismat innan myndlistar- kerfisins. Mörg veggspjöld þeirra eru með tölfræðilegum samanburði á stöðu karla, kvenna og litaðra í myndlistarheimi New York-borgar sem er ein aðalmiðja myndlistar í heiminum. Veggspjöldin eru undir- rituð; „Guerilla Girls, samviska myndhstarheimsins.“ Ólafur Gíslason og Hulda Hákon sýna að Kjarvalsstöðum. DV-mynd ÞÖK , Jsland við alda- hvörf' á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Ljósmyndasýningin „ísland við aldahvörf ‘ verður opnuð í húsnæði gömlu Heklu á Akureyri á morgun kl. 14 og mun verða opin næstu vik- urnar. Þessi glæsilega sýning var opnuð formlega í Reykjavik í febrúar sl. vegna 90 ára afmælis heimastjórnar á íslandi. Sýningin er lánuð til Akur- eyrar að beiðni Lýðveldishátíðar- nefndar Akureyrar. Sýningin verður orðin virka daga kl. 10-18 og um helg- ar kl. 14-18. Sýningar Listasafn Háskóla Íslands í Odda, sími 26806 Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum I eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Listhúsið Laugardal Sjofn Har sýnir olíumálverk og tússlita- myndir í sýningarsal sínum. Verkin eru flest frá árinu 1993. Sýningin er opin á verslunartíma Listhússins. Ljósmyndasýning Blaðamannafélags Islands og Blaðaljósmyndarafélags Is- lands, Blaðaljósmyndir 1993, er í List- húsinu til 13. apríl. Mokka kaffi Skólavörðustíg Þar stendur yfir sýning á verkum Stein- grims Eyfjörð Kristmundssonar. Sýn- ingin ber yfirskriftina „Pílagrímsferð Stefaníu Georgsdóttur i gegnum bibl- íuna". Sýningin er sölusýning og renn- ur allur ágóði til ABC-hjálparstarfs. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið opið samkvæmt samkomulagi. Uppl. i síma 611016. Norræna húsið Þar standa yfir tvær sýningar. Annars vegar er sýning á teikningum eftir lista- manninn Olav Christopher Jensen og er þetta farandsýning sem kemur hing- að til lands í samvinnu við Norrænu listamiðstöðina á Sveaborg við Hels- ingfors. I anddyri stendur yfir sýning á myndum sem danska listakonan Bodil Kaalund gerði við biblíuna sem kom út i nýrri þýðingu á vegum Hins danska biblíufélags 1992. Portið Strandgötu 50, Hafnarf. Á morgun, laugardag, verður opnuð samsýning fimm kvenna frá Gallerí Kletti og stendur hún til 24. april. Sýn- ingin verður opin alla daga frá kl. 14-18 nema á þriðjudögum. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11, Hafnarf., sími 54321. Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Safn Ásgríms Jónssonar Bergstaðastræti 74, sími 13644 Sýning á vatnslitamyndum Ásgríms Jónssonar. I vetur verður safnið opið á laugardögum og sunnudögum kl. 13.30-16. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242 Sjóminjasafnið er opið alla daga kl. 13-17. SPRON Álfabakka 14 Listaverk eftir Þórdísi Árnadótturtil sýn- is í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis við Álfabakka. Sýningin stendur til 22. apríl og er opin virka daga kl. 9-16. Stöðlakot Bókhlöðustig 6 Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Ingu Sólveigar. Verkin á sýningin, sem ber titilinn „In memoriam", eru öll unnin á síðasta ári. Sýningin, sem stendur til 17. apríl, verður opin daglega kl. 14-18. Þjóðminjasafn íslands Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 12-17. Slunkaríki ísafirði Þar stendur yfir einkasýning Ölafs Más Guðmundssonar og stendur hún til 17. apríl. Ólafur sýnir þar myndverk, unnin með akrýllitum á striga og pappir. Listasaf nið á Akureyri Þar standa yfir tvær sýningar. I miðsal verða sýndar vatnslita- og oliumyndir Guðmundar frá Miðdal. I austursal verða sýndar Ijósmyndir Vigfúsar Sigur- geirssonar sem hann hefur tekið á Norðurlandi við ýmis tækifæri. Minjasafnið á Akureyri Aöalstræti 58, simi 24162 Hniö HAnlpna kl 11-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.