Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
tPÚJBOÐ
F.h.Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
„Reykjaæð I, endurnýjun 1994“.
Verkið felst í að leggja hluta af aðveituæð fyrir hita-
veitu á um 250 m löngum kafla í Dælustöðvarvegi
og gegnum Reykjaveg í Mosfellsbæ. Aðveituæðin
er DN 700 mm stálpípa í DN 900 mm plastkápu.
Verkinu skal lokið að fullu 10. júlí 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 15.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26.
apríl 1994, kl. 15.00. hvr46/4
F.h. gatnamáiastjórans í Reykjavík er óskað eftir til-
boðum í eftirfarandi verk:
Austurborg: Gatnagerð og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt
Fylling
Púkk
Holræsalagnir
Fréttir
8.000 m3
6.400 m3
3.200 m2
350 Im
Verkinu skal lokið fyrir 15. september 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 12.
apríl 1994, gegn 15.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
27. apríl 1994, kl. 15.00. gat 47/4
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í lóðaframkvæmdir við Fossvogsskóla.
Helstu magntölur:
Malbikun 1.640m2
Hellulögn 970 m2
Lagnir 440 Im
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 28.
apríl 1994, kl. 11.00. bgd 48/4
F.h. gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir til-
boðum í eftirfarandi verk:
Hverfismiðstöð í Grafarvogi.
Lóðarfrágangur - áfangi 2
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 2.500 m3
Fylling 1.700 m3
Regnvatnslagnir 270 m
Steypumót 520 m2
Snjóbræðslulagnir 2.000 m
Jöfnun undir malbik 3.200 m2
Hellulagnir 1.000 m2
Verkinu skal lokið fyrir 1. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 12.
apríl 1994 gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
20. apríl 1994, kl. 11.00. gat 49/4
F.h.Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
lagningu aðalæðar VR 2, 7. áfanga, Smálönd-Laxa-
lón.
Helstu magntölur eru:
Þvermál pípna: 0 800 mm og 0 250 mm
Lengd: u.þ.b. 750 m
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
27. apríl 1994, kl. 14.00. wrso/4
Innkaupastofnun
reykjavIkurborgar
Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00
I
«
Serbar hættu skothríð á Gorazde eftir loftárás NATO.
Símamynd Reuter
I
Loftárásin á Serba:
Jeltsín kvartar
við Clinton
i
i
i
I
I
I
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
kvartaði yfir því í morgun að Banda-
ríkin heíðu ekki ráðfært sig viö yfir-
völd í Moskvu áður en Atlantshafs-
bandalagið, NATO, gerði loftárás í
gær á liðssveitir Serba sem ráðist
höfðu inn í Gorazde, verndarsvæði
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu. Jelts-
ín, sem er á leið til Spánar, greindi
fréttamönnum frá því á flugvelhnum
í Moskvu í morgun að hann hefði
lagt áherslu á þetta í símtali við Bill
Clinton Bandaríkjaforseta í morgun.
Hann sagði einnig að rússnesk yfir-
völd vildu umræður í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna um loftárásina.
Chnton Bandaríkjaforseti sagði
Bandaríkjamenn tilbúna til annarr-
ar loftárásar ef Sameinuðu þjóðirnar
færu fram á það. Clinton lagði á það
áherslu að fremsta markmiðið með
árásum bandarísku flugvélanna
tveggja á stórskotaliðssveitir Serba
hefði verið að hvetja til samninga.
Yfirmaður hers Sameinuðu þjóð-
anna í Bosníu, Michael Rose, átti
ekki annars úrkosti en að biðja um
loftárás þegar Serbar virtu að vettugi
allar viðvaranir og réðust á eftirlits-
menn Sameinuðu þjóðanna í
Óeirðalögregla
handtekur munka
Gorazde. Fréttaskýrendur segja að
það hefði ekki litið vel út ef 65 þús-
und íbúar borgarinnar, sem er yfir-
lý§t verndarsvæði Sameinuðu þjóð-
anna, heföu þurft að leggja á flótta
undan Serbum.
Árásin í gær varaði í 25 mínútur
og var henni beint gegn skriðdrekum
Serba og stjórnstöð. Starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna í Gorazde til-
kynntu stuttu eftir árásina að skot-
hríð Serba á borgina væri svo til
hætt.
Reuter
Stuttarfréttir
Óeirðalögregla réðst á helsta
klaustur stærstu reglu búddamunka
í Suður-Kóreu í morgun. Handtók
lögreglan 134 munka sem viðriðnir
hafa verið deilur um nýjan leiðtoga.
Endurbótasinnar meðal munk-
anna vilja afsögn leiðtogans Suh
Eui-hyon sem þeir segja viðriðinn
fjármálahneyksli. Hertóku munk-
arnir hluta fimm hæða byggingar í
gær til að reyna að þvinga Suh til
afsagnar.
Lögreglan er sögð hafa gripið inn
í þegar munkamir ætluðu að hrekja
Suh og fylgismann hans úr bygging-
unni þó ekki væri ljóst hvort hann
væri á skrifstofu sinni.
Reuter
Húðkrabbamein:
Nýtt bóluef ni talið
gefa 70% árangur
I
Læknar gera sér miklar vonir um
nýtt bóluefni sem hefur verið þróað
gegn húðkrabba á háu stigi en bólu-
efnið sýndi 70% árangur í þau þijú
ár sem rannsókn stóð yfir.
„Þetta er mikil framfór miðað við
20% árangur hjá sjúklingum sem
gangast undir skurðaðgerð," sagði
David Berd, einn rannsóknarmann-
anna, en rannsóknin fór fram við
Thomas Jefferson háskólann í Fíla-
delpíu í Bandaríkjunum.
Bóluefnið er eitt af fáum efnum
sem komið hafa fram á undanfórnum
árum sem hafa lofað árangri við
meðferð sortuæxla en það er húð-
krabbi sem er oftast lífshættulegur
þegar fram í sækir. Töfalt fleiri húð-
krabbatiifefli hafa komið upp sl. ára-
tug og því er fundur þessa nýja bólu-
efnis mjög mikilvægur fyrir barátt-
una gegn þessum sjúkdómi.
Alls tóku 47 sjúklingar með húð-
krabba á þriðja stigi þátt í rannsókn-
inni. Þeim var gefið bóluefni sem
myndað hafði verið úr þeirra eigin
æxlisfrumum ásamt öðrum efnum.
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að 60%
sjúklinganna voru laus við krabbann
eftir meðferð en 10% fengu sjúkdóm-
inn á ný.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða kynntar á fundi amerísku
krabbameinsrannsóknasamtakanna
sem fram fer í dag.
Reuter
Neison Mandela
Mandela sakar F.W. de Klerk
um að eiga aðild að óeirðum í
heimalöndum svartra.
Úkraína
Fyrstu niðurstööur kosninga í
Úkrainu sýna sigur kommúnista
og þjóðernissinna.
í Frakklandi
Zhírinovski
notaðið tæki-
færið til að gefa
út neikvæða yf-
irlýsingu um
Frakkiand og
Vestur-Evróþu
viö komuna til
a lí- Irl
Hann sagði að öllu væri lokiö fyr-
ir þjóöir sem væru Ameríku- og
gyðingasinnaðar.
N*Kórea
Viðræður við N-Kóreu varð-
andi eftirlit kjarnavopna eru
taldar taka næstu 6 mánuði.
Menesáfram
Argentínumenn vilja að Carlos
Menes, forseti Argentínu, bjóði
sig aftur fram.
Óeirðir í Kabúl
Tveir létust og 20 særðust i
óeirðum sem brutust út í Kabúl.
RíkiSatan
Háttsettur maður í íran segir
Bandaríkin enn vera ríki Satans.
Reuter