Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Side 29
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
41
Merming
í réttarsalnum. Tom Hanks og Denzel Washington í hlutverkum sínum.
Stjömubíó - Fíladelfía: ★ ★ ★
Réttlætinu
fullnægt
Andrew Beckett (Tom Hanks) liflr fyrir atvinnu sína
en hann er lögfræðingur. „Það sem ég elska mest í
sambandi við lögfræðina er að stundum er maður hluti
af því þegar réttlætinu er fullnægt...“ Þetta segir
hann við vitnaleiðslu yflr honum þegar hann hefur
farið i mál við fyrrum atvinnuveitendur sína sem hann
segir hafa rekið sig fyrir að vera eyðnisjúkhng þótt
brottreksturinn hafi heitað vanræksla í starfi.
Sagan í Fíladelfíu er um lögfræðing sem leitar réttar
síns sem er ekki svo óalgengt þema. Það sem gerir
myndina aftur á móti fyrst og fremst áhugaverða er
sú hreinskhnislega umfjöllun sem einn hættulegasti
sjúkdómur sem herjar á mannkynið í nútímanum,
eyðni, fær í kvikmyndinni. Eins og aUir vita hefur
feimni og hræðsla einkennt umræðuna um þennan
alvarlega sjúkdóm allt of lengi. Þessi staðreynd kemur
berlega í ljós hjá mörgum persónum í myndinni, sér-
staklega fyrrum yfirmönnum lögfræðingsins. Þeim
finnst það vera niðurlægjandi fyrir fyrirtækið að hafa
haft lögfræðing með eyðni í sinni þjónustu þótt hann
væri framúrskarandi lögfræðingur.
Þessi hræðsla kemur einnig fram þegar Beckett leit-
ar til lögfræðingsins Joe Miller (Denzel Washington)
og biður hann að vera lögfræðing sinn í málsókn hans
gegn fyrrum atvinnuveitendum. Miller, sem hefísar
honum inrnlega sem félaga og verðugum andstæðingi,
fer ósjálfrátt í baklás þegar hann heyrir að Beckett
er með eyðni og segist ekkert geta gert fyrir hann.
Hann sér þó að sér um síðir og tekur að sér málið.
Fíladelfía er mjög áhrifamikil kvikmynd og þaö er
sannarlega þakkarvert og vel unnið starf sem leikstjór-
inn Jonathan Demme (The SUence of the Lambs) hef-
ur leyst af hendi með því að taka af skarið í þessum
efnum en einmitt í höfuðvígi kvikmyndanna, HoUy-
wood, hefur mannfall orðið mjög mikið af völdum sjúk-
dómsins. Og það jákvæða yfírbragð sem einkennir
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
FUadelfíu á örugglega eftir að skila sér í almennum
skUningi á þessum hættulega sjúkdómi.
Þau sterku áhrif sem FUadelfía hefur á áhorfandann
stafa ekki síst af snUldarleik Tom Hanks sem fangar
hug manns alveg frá byijun. Leikur hans er mjög eðli-
legur þótt hlutverkið bjóði sannarlega upp á ofleik.
Aðeins í einu atriði, þegar hann hlustar á Mariu Call-
as syngja aríuna La Mamma Morta, nær örvæntingin
yfirtökunum og er ég ekki viss um að myndin hefði
þolað fleiri slík atriði. Að ööru leyti tekur Beckett ör-
lögum sínum af stakri ró þess manns sem veit að hann
er að gera rétt.
Fíladelfía.
Leikstjóri: Jonathan Demme.
Handrit: Ron Nyswaner.
Kvikmyndataka: Tak Fujimoto.
Tónlist: Howard Shore.
Aóalhlutverk: Tom Hanks, Denzel Washington, Jason Ro-
bards, Mary Steenburgen og Antonio Banderas.
tfill.ij
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 11200
Stóra sviðið ki. 20.00
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Frumsýning tid. 14/4,2. sýn. Id. 16/4,3.
sýn. föd. 22/4,4. sýn. Id. 23/4,5. sýn. föd.
29/4.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Sud. 17/4, uppselt, mvd. 20/4, uppselt, fid.
21/4, uppselt, sud. 24/4, uppselt, mvd.
27/4, uppselt, fid. 28/4, uppselt, laud. 30/4,
uppselt.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir Arthur Miller
Föd. 15/4, síðasta sýning.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Sud. 17/4 kl. 14.00, nokkur sæti laus, fid.
21/4 (sumard. fyrsti) kl. 14.00, nokkur
sæti laus, sud. 24/4 kl. 14.00, örfá sæti
laus, Id. 30/4 kl. 14.00, örfá sæti laus.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
effir Federico Garcia Lorca
Föd. 15/4, nokkursæti laus, næstsíðasta
sýning, þri. 19/4, siðasta sýning.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
eftir að sýning er hafin.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti simppöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 99 61 60.
leikLi'starskóu ÍSLANDS
Nemenda
leikhúsið
SUMARGESTIR
eftir Maxim Gorki
í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
9. sýn. þri. 12. apríl, uppselt.
10. sýn. fim. 14. april, uppselt.
11. sýn. mánud. 18. april kl. 20.
Miðapantanir í sima 21971.
AWWWWWWV
SMAAUGLYSINGADEILD
OPIÐ:
Virka daga
laugardaga
sunnudaga
frákl. 9-22,
frákl. 9-16,
frá kl. 18-22.
ATH.! Smáauglýsing
í helgarblað DV verður
að berast okkur fyrir
- kl. 17 á föstudag.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftir Neil Simon
með Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
Þýðing og staðfærsla Gisli Rúnar
Jónsson.
Fim. 14. apríl, fáein sæti laus, sun. 17.
april uppselt, miðd. 20. april, fáeln sæti
laus, fös. 22. apríl, örfá sæti laus, sun. 24.
april, fim. 28. april, Id. 30. april, uppselt,
flm.5. mai.
Stóra sviðið kl. 20.
EVA LUNA
. Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og
Oskar Jónasson. Unniö upp úr bók Isa-
bel Allende. Lög og textar eftir Egil
Ólafsson.
Miðd. 13 april, 40. sýn., fösd., 15 april, fá-
ein sæti laus, lau. 16. april, uppselt, fimmd.,
21. april, lau. 23. apríl, fös. 29. april.
ATH. Aðeins 5 sýningarvikur eftir.
Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til
sölu í miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla-
diskur aðeins kr. 5.000.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum i síma 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasimi 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
ÓPERIJ
DRAUGURINN
(»
eftir Ken Hill
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Föstudag 15. april, laugardag 16. april.
BarPar
eftir Jim Cartwright
SÝNT Í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
Sýningar hef jast kl. 20.30.
Fimmtud. 14. april, sunnud. 17. apríl.
Ath.: Ekki er unnt að hleypa gestum í
salinn eftir aó sýning er hafin.
Aðalmiðasalan í Samkomuhusinu er
opin alla virka daga nema mánudaga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að
sýningu. Sími 24073.
Símsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutima.
Ósóttar pantanir að BarPari seldar í
miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn-
ingardaga. Sími 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
Tilkyniiingar
Félagsvist A.B.K.
Spiluö verður þriggja kvölda keppni.
Byrjað verður i kvöld kl. 20.30 i Þing-
hóli, Hamraborg 11. Allir velkomnir.
Reikningur og reikningsnám
fyrr og nú
nefnist fyrirlestur sem Anna Kristjáns-
dóttir prófessor mun flytja á vegum
Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla
Islands á morgun, þriðjudag, kl. 16.15.
Aima mun fjalla um þróun reiknings-
náms í almenningsfræöslu og veröa
nefnd dæmi úr rannsóknum Önnu hér á
landi síðustu 15 ár og þess freistaö að
setja þær í samhengi við þróim erlendis.
Fyrirlesturinn verður í stofu M-301 í
Kennaraháskóla íslands og er öllum op-
inn.
Sönghópurinn Sólarmegin
frá Akranesi heldur tónleika í Safnaðar-
heimili Selfosskirkju þriöjudagskvöldiö
12. apríl kl. 20.30. Sönghópurinn var
stofnaður í byrjun árs 1990. Félagar eru
9 og er allur söngur fluttur án undirleiks
á hljóöfæri. Efnisskrá tónleikanna er
mjög fjölbreytt og spannar yfir u.þ.b. íjög-
ur hundruð ára tímabil.
Upplýsinga- og menningar-
miðstöð nýbúa
Aiiir velkomnir á uppskriftakvöld í upp-
lýsinga- og mermingarmiðstöð nýbúa,
Faxafeni 12, í kvöld kl. 20-22. Húsið opið
kl. 17-22.
6 daga rýmingarsala
30% afsláttur af öllum vörum
Fatnaður við allra hæfi - við höfum yfirstærðirnar
Kynnið ykkur okkar hagstæða verð
Félag eldri borgara i Rvík og
nágrenni
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Söngv-
aka kl. 20.30. Kynning á verkum Einars
Benediktssonar skálds, seinni hluti kl.
14 á morgun, þriðjudag.
Búðin, Bíldshöfða 18
Sími 91-879010
Fax 91-879110
Opið: mán.-föst. 9-18
laugard. 10-16