Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Page 32
44
Hákon Gunnarsson, (ram-
kvæmdastjóri HM.
Enginn
fslendingur
á úrslita-
leikinn
„Miöaö viö eftirspurn eftir aö-
göngumiðum aö keppninni má
ljóst vera að enginn miöi verður
til sölu hér á landi á úrslitaleik-
inn. Fólki bregður eflaust í brún
en fólk erlendis gengur út frá því
aö eiga klárt sæti á úrslitaleik-
inn,“ segir Hákon Gunnarsson,
framkvæmdastjóri HM ’95, í við-
. tali viö DV.
Fölsk sjálfsímynd
„Þaö er dapurlegt til þess aö
vita aö forystumenn rannsóknar-
nefndar, sem eiga að gæta örygg-
Ummæli dagsins
^ ishagsmuna, skuli hafa metið það
' mikilvægara að halda dauðahaldi
í falska sjálfsímynd um eigin
óskeikulleika í staö þess aö vara
viö ónothæfum losunarbúnaöi
björgunarbáts," sagöi Daníel Sig-
urösson, skipbrotsmaöur af Haf-
mey, í DV um vinnubrögð Rann-
sóknarnefndar sjóslysa.
Til viðtals
„Ég er til viðtals við alla Reyk-
víkinga um málefni lögreglunn-
ar. Biö ég borgarbúa að hafa beint
samband viö mig telji þeir sig í
vafa um eðli, tilgang eöa vinnu-
brögö lögreglunnar...,“ segir
Böövar Bragason í Morgunblað-
inu í grein sem hann nefnir
Framkvæmd löggæslu.
Drukknir í þjóðarsálum
Verkafólkið er orðið hornrekur
í þjóðfélaginu og þorir varla að
tjá sig nema þá drukkið í þjóðar-
sálum útvarpsins," segir Jón frá
Pálmholti í kjallaragrein í DV.
Kúbufréttir á
vináttufundi
Aðalfundur Vináttufélags ís-
lands og Kúbu verður haldinn í
kvöld, mánudaginn 11. april, kl.
20, á efri hæð veitingahússins
Lækjarbrekku. Sagðar verða
fréttir frá Kúbu og veittar upplýs-
ingar um vinnuferðir þangað á
árinu, auk venjulegra aðalfund-
arstarfa. Fundurinn er öllum op-
inn.
Fundir
ITC-deildin Eík
ITC-deildin Eik heldur fund í
kvöld, mánudaginn ll. apríl, kl.
• 20.30, á lofti Fógetans, Aðalstræti
10, Reykjavík. Allir eru velkomn-
ir.
Afmælisfundur
Kvenfélag Laugamessóknar
heldur afmælisfund í safnaöar-
heimilinu í kvöld kl. 20. Kvenfé-
Iagið Fjallkonumar kemur í
--- heimsókn.
Skúrir eða slydduél
í dag verður suðlæg átt, víðast gola
eða kaldi í fyrstu en stinningskaldi
Veðrið í dag
suðaustanlands þegar kemur fram á
daginn. Skúrir eða slydduél verða
sunnanlands og vestan en léttir til á
Norður- og Austurlandi. Snýst í
norðvestankalda með éljum norð-
vestanlands síðdegis og í kvöld og
nótt verður norðvestanstinnings-
kaldi vestanlands en vestanstinning-
skaldi austanlands. É1 verða þá með
norður- og vesturströndinni en léttir
til suðaustanlands. Hiti 1 til 4 stig í
dag en um frostmark í nótt.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri hálfskýjað 1
Egilsstaöir hálfskýjað 3
Galtarviti úrkoma í grennd 1
Kefla víkurflugvöUur úrkoma í grennd 0
Kirkjubæjarklaustur úrkomaí grennd 1
Raufarhöfn alskýjað 3
Reykjavík skýjað 1
Vestmarmaeyjar slydduél 2
Bergen skýjað 3
Helsinki hálfskýjað 1
Ósló léttskýjaö -1
Stokkhólmur léttskýjað 1
Þórshöfn rigning 7
Amsterdam þokumóða 6
Berlín þokumóða 3
Chicago skýjað 7
Feneyjar rigning 4
Frankfurt skýjaö 4
Glasgow þokumóða 1
Hamborg léttskýjað 6
London skýjað 4
LosAngeles heiöskirt 16
Lúxemborg rigning 4
Malaga léttskýjað 14
Mallorca leiftur 10
Montreal skúrásíð. klst. 4
New York heiðskirt 10
Nuuk alskýjað -5
Oriando þokumóða 19
París skýjað 5
Vín rigning 5
Winnipeg heiðskírt 4
Magnús Már Magnússon snjóflóðafræðingur:
stað en á snióflóðasvæðinu
„Starf mitt á Veðurstofu íslands
er fólgið í að fylgja eftir lögum sem
fjalla um snjóílóð og snjóflóðavarn-
ir og samkvæmt lögunum má segja
aö starfið á veðurstofunni skiptist
í þrennt, það er eftirlit með snjóa-
lögum og að gefa út viövaranir um
hugsanlega snjóflóðahættu, safna
gögnum um fallin snjóflóð og
starfslýsingar og umsjón með starfi
snjóeftirlitsmanna sem vinna á
Maðux dagsins
þessum stöðum," segir Magnús
Már Magnússon, snjóflóðafræðing-
ur á Veðurstofu íslands, en hann
hefur verið mikið í fréttum út af
snjóflóðinu á ísafiröi.
Magnús Már er lærður jökla-
fræðingur sem hefur snjóflóð sem
sérsvið: „Það má segja að áhuginn
á starfinu hafi komiö strax í
göngutúrum með foreldrum mín-
Magnús Már Magnússon snjó-
flóðafræöingur.
DV-mynd S
um og svo leiddi eitt af öðru. 1971,
þegar ég var 16 ára, gekk égí Flug-
björgunarsveitina og hef verið í
henni síðan. Snemma fór ég í jökla-
ferðir og hálendisferðir og í fram-
haldi má segja að námið hafi komið
af sjálfu sér.“
Aðspurður um hvers vegna snjó-
flóðafræðingurinn færi ekki strax
á staðinn þar sem snjóflóö hefur
orðið segir Magnús: „í fyrsta lagi
eru það mjög hæfir menn semfjalla
um þetta á staðnum og gera athug-
anir, menn sem hafa í flestum til-
fellum mun meiri staðbundna
rey nslu en ég hef, og svo er það lika
aö ég geri miklu meira gagn og
nýtist betur á Veðurstofunni þar
sem ég hef aðgang að gervitungla-
myndum, nýjustu tölvuspám og
veðurfræðingum. Og þá má ekki
gleymast að þótt ísafjörður hafi
veriö mest í fréttum þá þurfti á
sama tíma að fylgjast með öðrum
stöðum þar sem hætta gat oröið á
snjóflóði."
-HK
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
Þriðji leikur-
inn í körfunni
I kvöld fara fram tveir þýðing-
armiklir leikir í úrslitakeppni um
íslandsmeistaratitil. í Grindavík
er þriðji leikur heimamanna og
nágrannanna úr Njarðvík í
keppni þeirra um Islandsmeist-
aratitilinn í körfubolta. Hvort lið-
Iþróttiríkvöld
ið um sig hefur unnið einn leik
en þrjá sigra þarf til að titlinum
sé náð og eru margir á því að
fimm leiki þurfi tO aö fá úrslitin.
Leikurinn hefst kl. 20.00.
Úrslitakeppnin í handbolta
kvenna er einnig að ná hámarki.
Þrír leikir eru búnir og er Víking-
ur búinn að sigra tvisvar en
Stjarnan einu sinni. Víkingur,
sem leikur á heimavelli í Víkinni
í kvöld, getur tryggt sér íslands-
meistaratitilinn með sigri. Hefst
leikurinn kl. 20.00.
Skák
Ungverski stórmeistarinn Zoltan Alm-
asi er stigahæstur keppenda á alþjóðlega
skákmótinu sem nú stendur yflr í Digra-
nesskóla í Kópavogi. Almasi, sem er að-
eins 18 ára gamall, hefur 2610 Elo-stig,
hefur hækkaö mn 365 stig á sl. fjórum
árum.
Hér er staða úr skák Almasi, sem hefur
hvítt og á leik, og Kovacevic i Evrópu-
keppni taflfélaga í Ungverjalandi i fyrra:
15. Rh7! Kxh7 16. hxg6+ Kg8 17. Hxh6
Kg7 18. Hh7+ Kg8 19. g7! Hfe8 20. Hdhl
Rf8 21. gx£8 = D+ Kxf8 22. Hlh6 Dxd4 23.
Dg5 og svartur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Þegar trompsamningur er spilaður er
þægindi að því að hafa minnst 8 spila
samlegu í litnum. í sumum tilfellum er
þó hægt að spila vitrænan trompsamning
á 4-3 samlegu, sérstaklega þegar grand-
samningur er útilokaður þar sem stöðv-
ara vantar algerlega í einn ht. í örfáum
tilfellum er 3-3 samlega spilanleg en það
gerist mjög sjaldan. Hitt upplifa fáir við
borðið að spila redoblaðan trompsamn-
ing á ööru sagnstigi og vinna hann, eig-
andi minnihlutann af punktunum. Það A
gerðist þó eitt sinn í tvímenningskeppni
í Danmörku í þessu spili. Sagnir gengu
þannig, austim gjafari og enginn á hættu:
♦ 864 ®
V K976432
+ 962 £
* K92
V 108
♦ KD7
+ ÁKDGIO
♦ ÁDGIO
V ÁD
♦ G1098643
+ --
Austur Suöur Vestur Norður
1+ 2+ Dobl Pass
Pass Redobl Pass Pass!?
Pass
Norður og suður höfðu aldrei spiiað sam-
an áður og það útskýrir misskilninginn.
Tveggja laufa sögn suðurs átti að tákna
stutt lauf og suður taldi að með því að
redobla ætti norður ekki aö fara í grafgöt-
ur með að hann ætti ekki lauf. Norður
var hins vegar grunlaus og því urðu 2
lauf redobluð lokasamningurinn. Vana-
lega í stöðum sem þessum er best fyrir
vömina að spila út trompi en af einhverj- é||
um sökum ákvað vestur að spila fyrst
út tígulásninn (svona til þess að líta á
stööuna). Meira þurfti suður ekki.
Trompað í blindum, spaða svínað, tígull
trompaður, spaða svínað, þriðji tígullinn ^
trompaður og síðan tveir slagir á hjarta
og spaðaás. Atta slagir og 760 í dálkinn
sem er að sjálfsögðu betra skor en fékkst _
fyrir 4 hjörtu staðin með þremur yfirslög-
um.
ísak Örn Sigurðsson
W VOö
V G5
♦ Á52
oncAO
t