Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
íslenskur skiptinemi:
Sjónvarps-
- stjarna í
Suður-Kóreu
„Þetta voru hálfgeröir landkynn-
ingarþættir þar sem dóttir mín lék
túrista sem fer aö skoöa merkustu
staðina í Suöur-Kóreu. Hún lét vel
af því aö leika í þessum þáttum sem
voru sýndir á besta tíma í kóreska
ríkissjónvarpinu. Þaö er helst að hún
kvarti yfir því að geta varla látið sjá
sig úti á götu í Seoul. Fólk er alltaf
aö glápa á hana og stoppa til að
spjalla,“ sagöi Alfreð Þorsteinsson í
samtali við DV.
Dóttir Alfreðs, Lilja Dögg, er skipti-
^iemi í Suður-Kóreu og stundar nám
í háskólanum í Seoul. Þegar gera átti
kynningarþætti um landið vantaði
útlending til að leika í þeim og varð
LiljaDöggþáfyrirvalinu. -hlh
ísafjörður:
Hættuástandi
aflétt í morgun
Almannavarnanefnd ísafjarðar
ákvað á fundi sínum í morgun aö
aflétta hættuástandi á ísafirði og í
Hnífsdal.
„Sú veðurspá sem við unnum eftir
í gær gekk sem betur fer ekki eftir.
Við hjá Almannavarnanefnd viljum
koma því á framfæri að við metum
það við fólk að hafa farið að tilmæl-
um okkar,“ sagði Ólafur Helgi Krist-
insson, sýslumaður og formaður al-
mannavarnanefndar á ísafirði í
morgun.
Kirkjubólshlíð var rudd í morgun
og einnig var unnið að viðgerð á
skemmdum sem urðu á rafmangs-
línu út á flugvöll þegar flóðið féll síð-
degis í gær. Ekki var enn ljóst hvort
spennistöð, sem fór á kaf í flóðinu,
-íiefði skemmst.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
málastjórnar á ísafirði í morgun var
enn rafmangslaust á ísafiröi á
níunda tímanum í morgun og ekki
búist við að rafmagn kæmist á fyrr
en síðdegis. Hins vegar voru tvær
vélar frá Flugleiðum lagðar af stað
til ísafjarðar á níunda tímanum. -pp
Meinatæknar:
Ekkert þokast
Ekkert þokaðist í samningaviöræð-
um meinatækna og ríkisins á laugar-
dag og hefur nýr fundur verið boðað-
ur hjá ríkissáttasemjara eftir hádegi
í dag. Edda Sóley Óskarsdóttir, for-
maður Meinatæknafélagsins, segir
að ekki sé búist viö miklum árangri
afþeimfundi. -GHS
LOKI
Það hlýtur að vera gaman að
benzastumlandið!
Rögnvaldi Olafssyni (til hægri) tókst að bakka lögreglujeppanum upp i snjóflóðið þannig að billinn sneri ekki hliðinni
í flóðið á veginum þegar það hreif bílinn með sér. Birgir Hilmarsson, t.v., segir að þegar hann sá flóðið koma
niður hlíðina hafi það ekki verið þægilegasta tilfinning sem hann hafi upplifað. DV-mynd Halldór Sveinbjörnsson
Forsetinn fær Benz:
Kostartæpar
sex milljónir
„Gamli bílhnn var orðinn mjög dýr
í rekstri þannig að það var ekki
umflúið að kaupa nýjan. Vonandi
fáum við nýja bílinn fyrir miðjan
júní því þeim gamla er ekki lengur
treystandi,“ segir Sveinn Björnsson
forsetaritari.
Ríkiskaup hefur fest kaup á nýjum
Mercedes Benz fyrir forsetaembætt-
ið. Kaupverðið var 5.865.000 krónur.
Nýi bíllinn leysir af hólmi 13 ára
gamlan Cadillac. Auk nýja bílsins á
embættið Cadhlac af árgerð 1990,
gamlan jeppa og lítinn franskan
fólksbíl.
„Okkur barst fjöldi tilboða og það
var erfitt að velja á milh tegunda.
Það komu tilboð um bæði dýrari og
ódýrari bíla. Við létum hins vegar
skynsemisrök ráða því kaupverðið
sem slíkt segir ekki allt. Það þarf líka
að huga að viðhaldskostnaði næstu
15 árin og endursöluverðinu."
Sveinn segir að á endanum hafi
valið staðið milli Cadillac og Merce-
des Benz. Af framangreindum ástæð-
um hafi þýski bíUinn orðiö fyrir val-
inu þrátt fyrir að hann sé um 400
þúsund krónum dýrari en sá amer-
íski. -kaa
Mikil læti er snj
f lóðið lyfti bílnum
segir Birgir - flóðið kom aftan á bílirm og ýtti honum út í flöru
„Þegar búið var að ryðja fyrra
flóðið af veginum vorum við þar
að ræða við Odd Pétursson snjó-
fióðaeftirlitsmann. Við vorum
staddir um það bU á móts við miðj-
una á fyrra flóðinu. Þá kaUar Odd-
ur skyndUega aö það sé aö koma
annað flóð. Hjartað fór á fuUt. Ég
sá flóöiö uppi i hlíöinni. Þetta var
ekki sú þægilegasta tilfinning sem
ég hef upplifað," sagði Birgir HUm-
arsson, 27 ára lögreglumaður á
ísafirði, í samtaU við DV.
Birgir og félagi hans, Rögnvaldur
Ólafsson, 22 ára, komust Ufs af síð-
degis í gær þegar talsvert breitt
snjóflóð féU á veginn skammt frá
Kirkjubæ innarlega í Skutulsfirði.
Lögreglumennimir voru á Nissan
Patrol bifreið aö kanna verksum-
merki eftir flóð sem féll skömmu
áður.
Birgir sagði að þeir félagar heföu
verið heppnir en hjartað hefði tekið
aðsláhratt.
„Þegar flóðið vár að koma keyrði
Oddur af staö í átt inn að bænum
en við snerum hins vegar út að
flugveUi með okkar bU. Oddur
slapp síðan með sinn bíl undan
flóðmu en viö lentum í því miðju.
Það var miklu breiðara en fyrra
flóðið. Þetta geröist svo snöggt. Við
leituðum bara að undankomuleið
en fundum enga.
Rögnvaldur náöi að snúa aftur-
endanum á bílnum upp í flóðið. Það
lamdist á bílnum og hann affelgað-
ist á tveimur hjólum. Þetta voru
heUmikil læti. Við vorum hrædd-
astir um að rúðurnar myndu gefa
sig en það gerðist sem betur fer
ekki. BílUnn náði einhvern veginn
að klóra sig upp þannig að hann
var á yfirborðmu i flóðinu. Snjór-
inn náði aldrei yfir bíhnn. En við
lyftumst upp og þetta voru heljar-
mikil læti.
Ég héit mér en náði að kaUa í
talstöðina til að tflkynna aö við
hefðum lent í snjóflóði. Við vorum
í beltum og bUUnn stöðvaðist réttur
þannig að við horfðum niður í
fjöru. Við stigum siðan út úr bíln-
um min megin því það var ekki
hægt að opna hurðina bflstjóra-
megin. Þá var eins og þetta væri
ekkert mál. Ég tilkynnti síðan að
aUt væri í lagi hjá okkur," sagði
Birgir.
Birgir telur aö bíUinn hafi farið
um 15 metra með snjóflóðinu. Hann
sagði að ef Rögnvaldur hefði ekki
náð að snúa afturenda bftsins upp
í flóðið væru miklar líkur á að bUn-
um hefði hvolft og endalokin orðið
öðruvisl en raun bar vitni.
-ÓTT
Veöriðámorgun:
Léttskýj-
að syðra
Á morgun verður norðvestan
kaldi og él um norðanvert landið
en þurrt og víða léttskýjað syðra.
Hiti -2 til 4 stig.
Veðrið 1 dag er á bls. 44
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Tökum á móti
brotajárni