Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1994, Side 26
42
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
Fólk í fréttum
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
handknattleikslandsliðsins, varð
Evrópumeistari um síðustu helgi
þegar félag hans, Alzira frá Spáni,
sigraði í EHF-keppninni en með lið-
inu leikur einnig annar íslenskur
landsliðsmaður, Júlíus Jónasson.
Starfsferill
Geir er fæddur 27.1.1964 í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MH og hefur lokið eins
árs námi í sagnfræði við HÍ.
Geir var sölumaður við heild-
verslunina Ó.H. Jónsson í Reykja-
vík 1985-86 og hefur starfaði við
verslun föður síns, Skósöluna,
Laugavegi 1, með hléum.
Geir hóf ungur að æfa knatt-
spymu og handknattleik hjá Val og
keppti 1 öllum aldursflokkum í þess-
um greinum. Hann spilaði fyrst með
meistaraílpkki Vals í handknattleik
1980, varð íslandsmeistari með Val
1988 og 89 og bikarmeistari 1988. Þá
lék hann með spænsku liðunum
Granollers og Avidesa 1989-92 og
varð spænskur bikarmeistari 1992.
Geir lék aftur með Val veturinn
1992-93 og varð íslands-, bikar- og
deildarmeistari.
Geir hefur leikið 262 landsleiki og
skorað 345 mörk. Hann hefur leikið
með bæði Evrópu- og heimsliði.
Fjölskylda
Geir kvæntist 5.6.1993 Guðrúnu
Helgu Amarsdóttur, f. 15.7.1964,
flugfreyju. Foreldrar hennar: Arnar
Jónsson leikari og Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri.
Sonur Geirs og Guðrúnar Helgu:
Amar Sveinn Geirsson, f. 30.8.1991.
Bróðir Geirs: Sveinn Sveinsson, f.
16.3.1968, húsamálari og nemi í
sjúkraþjálfun, kvæntur Ingigerði
Guðmundsdóttur, starfsmanni við
Lánastofnun sparisjóðanna, þau
eiga einn son. Hálfsystkini Geirs,
samfeðra: Björn Ingi, f. 26.11.1951,
jarðskjálftaverkfræðingur, kvænt-
ur Katrínu Gísladóttur. Þau eiga
fimm böm og Bjöm á son frá fyrra
hjónabandi; Margrét Jóna, f. 12.10.
1953, húsmóðir í Kaliforníu, gift Jóni
Þór Sveinbjömssyni útvarpsvirkja,
þau eiga einn son, Margrét Jóna á
eina dóttur frá fyrri sambúð.
Foreldrar Geirs: Sveinn Bjöms-
son, f. 10.10.1928, d. 16.9.1991, for-
seti ÍSÍ og kaupmaður í Reykjavík,
og seinni kona hans, Ragnheiður
Guðrún Thorsteinsson, f. 24.1.1932,
verslunarmaður.
Ætt
Sveinn var bróðir Guðmundar
Inga, aðstoðarpóst- og símamála-
stjóra. Sveinn var sonur Björns
kaupmanns Jónssonar, skipasmiðs
í Réykjavík, Bjömssonar, b. á Yxna-
læk, bróður Valgerðar, ömmu Garð-
ars Gíslasonar, kaupmanns í Hafn-
arfirði, föður Guðmundar, fyrrv.
alþingismanns, en bróðir Garðars
var Valur leikari, faðir Vals banka-
stjóra. Björn var sonur Þorbjöms,
b. á Yxnalæk, Jónssonar, silfur-
smiðs á Bíldsfelli, Sigurðssonar.
Móðir Björns var Katrín, systir
Odds, langafa Steindórs bílakóngs,
afa Geirs Haarde þingflokksfor-
manns.
Móðir Sveins var Ingibjörg, systir
Jóns, afa Sigríðar Dúnu Krist-
mundsdóttur mannfræðings. Bróðir
Ingibjargar var Hallgrímur, faðir
Sveins, skólastjóra Bændaskólans á
Hvanneyri. Ingibjörg var dóttir
Sveins, kennara í Klungurbrekku
og á Hálsi í Grundarfirði, Sveins-
sonar og Guðnýjar, systur Kristj-
áns, föður Eggerts stórkaupmanns.
Ragnheiður Guðrún er dóttir
Geirs Thorsteinsson, útgerðar-
manns í Reykjavík, sonar Th. Thor-
steinsson, kaupmanns í Reykjavík,
bróður Davíðs Sch. Th., afa Davíðs
Sch. Th. forstjóra. Hálfbróðir Th.
Thorsteinsson var Pétur J. Thor-
steinsson á BOdudal, faðir Muggs
og afi Péturs Thorsteinsson sendi-
herra. Móöir Geirs var Kristjana
Geirsdóttir „gamla“ Zoéga, útgerð-
Geir Sveinsson.
armanns í Reykjavík, bróður Tóm-
asar, langafa Geirs Hallgrímssonar
forsætisráðherra.
Móðir Ragnheiðar var Sigríður
Hafstein, systir Ástríöar, ömmu
Önnu K. Jónsdóttur borgarfulltrúa
og Jóns Gunnars Hannessonar
læknis. Bróðir Sigríðar er Sigurður
Hafstein, faðir Hannesar Hafstein
sendiherra. Sigriður er dóttir Hann-
esar Hafstein, skálds og ráðherra,
sonar Péturs Havstein amtmanns
og Kristjönu Gunnarsdóttur, systur
Tryggva bankastjóra. Móðir Krist-
jönu var Jóhanna Briem, systir Eg-
gerts Briem sýslumanns, langafa
Gunnars Thoroddsen forsætisráð-
herra.
Afmæli
Skúlína Friðbjömsdóttir
Skúlína Friðbjömsdóttir þúsmóðir,
Ásvallagötu 21, Reykjavik, er áttræð
ídag.
Starfsferill
Skúlína fæddist að Bakkabæ í
Innri-Akraneshreppi og ólst þar upp
í foreldrahúsum til sextán ára ald-
urs. Þá flutti hún til Reykjavíkur
þar sem hún var í vist hjá Þórarni
Guðmundssyni konsertmeistara
jafnframt því sem hún starfaði á
saumastofu Guðsteins við Lauga-
veginn.
Skúlína kynntist eiginmanni sín-
um 1934 en þau bjuggu fyrst á Rán-
argötunni í Reykjavík til 1939 er þau
fluttu til Akraness þar sem maður
hennar stundaði sjómennsku. Þau
keyptu síðan jörðina Hömluholt í
Eyjahreppi í Hnappadalssýslu og
byggðu þar upp meðalstórt bú jafn-
framt því sem maður hennar stund-
aði sjómennsku á togurum frá
Reykjavík á vetrum á meðan Skúl-
ína sá um búreksturinn. Þau bmgðu
síðan búi 1958 og fluttu til Akraness
þar sem maður hennar stundaði sjó-
mennsku en hún vann í fiskvinnslu
hjá H.B. og Co ásamt heimilisstörf-
unum.
Skúlína missti mann sinn 1966 en
ári síðar flutti hún á Ásvallagötuna
í Reykjavík þar sem hún býr enn.
Skúlína missti heilsu 1992 og dvelur
nú á öldrunardeild Landakotsspít-
ala.
Fjölskylda
Skúlína giftist 7.6.1939 Bjarna Ein-
arssyni, f. 1.11.1913, d. 1966, sjó-
manni. Hann var sonur Einars
Bjarnasonar, útvegsb. á Skjaldvar-
arfossi á Barðaströnd, og Sigríðar
Gestsdóttur húsfreyju.
Börn Skúlínu og Bjarna em
Hrefna Bjamadóttir, f. 13.9.1936,
verkakona í Reykjavík; Einar
Bjarnason, f. 16.7.1938, vélstjóri í
Stykkishólmi, kvæntur Báru Jóns-
dóttur og eiga þau fimm böm; Frið-
bjöm Bjarnason, f. 27.1.1940, versl-
unarmaður á Akranesi, kvæntur
Sigríði Beinteinsdóttur og eiga þau
tvö börn; Jón Tómas Bjamason, f.
7.6.1942, vélfræðingur í Reykjavík;
Kjartan Ó. Bjamason, f. 22.6.1943,
d. 14.1.1986, húsasmíðameistari, og
á hann þrjú böm; Ketill B. Bjama-
son, f. 20.4.1945, vélvirki á Akra-
nesi, kvæntur Helgu Gísladóttur og
eiga þau tvö börn; Kristinn Þ.
Bjarnason, f. 14.5.1949, sjómaður í
Stykkishólmi, og á hann þrjú börn;
Jónína E. Bjarnadóttir, f. 27.8.1951,
sálfræðingur í Svíþjóð, gift Ola Gu-
stafson.
Systkini Skúlínu: Stefán Frið-
björnsson, f. 12.7.1907, d. 25.5.1988,
verslunarstjóri og b. í Nesjum,
Sandgerði, var kvæntur Jónínu
Eggertsdóttur og era börn þeirra
þrjú; Friðbjörg Friðbjörnsdóttir, f.
26.1.1909, húsmóðir, gift Ragnari
Sigurðssyni og urðu böm þeirra
átta; Guðjón Friðbjörnsson, f. 28.11.
Skúlína Friðbjörnsdóttir.
1910, d. 3.5.1990, skipstjóri, kvæntur
Ingibjörgu Sigurðardóttur og eign-
uðust þau eitt barn; Skúli Frið-
björnsson, f. 29.11.1910, d. 8.5.1911.
Foreldrar Skúlínu voru Friðbjöm
Sigvaldason, f. 27.11.1872, d. 2.12.
1947, útvegsb. í Bakkabæ í Innri-
Akraneshreppi, og kona hans,
Kristjana M. Stefánsdóttir, f. 30.5.
1871, d. 12.7.1953, húsfreyja.
Guðmunda Regma Sigurðardottir
Guðmunda Regína Sigurðardóttir,
fyrrv. húsmóðir, dvalarheimilinu
Hlíf, Torfnesi, ísafirði, verður níræð
ámorgun.
Starfsferill
Guðmunda Regína fæddist á Látr-
um í Aðalvík og ólst þar upp í for-
eldrahúsum við öll almenn sveita-
störf. Eftir að hún gifti sig bjuggu
þau hjónin að Látrum á áranum
1930-38 en fluttust síðan í Fljótavík
þar sem þau bjuggu til 1945. Þá fóru
þau aftur að Látrum þar sem þau
bjuggu í eitt ár en fluttust þá í
Hnífsdal. Þar áttu þau heima til 1989
er þau fluttust á ísafjörð til Halldórs
sonar síns en þau hafa verið á Hlíf
frá 1990.
Auk heimilisstarfanna starfaði
Guðmunda Regína í Rækjustöðinni
íHnífsdalíáttaár.
Fjölskylda
Guðmunda giftist 1931 Geirmundi
Júliussyni, f. 4.3.1908, húsasmið.
hann er sonur Júlíusar Geirmunds-
sonar, útvegsh. á Atlastööum í
Fljótavík, og konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur húsfreyju.
Böm Guömundu Regínu og Geir-
mundar eru Halldór Geirmundsson,
f. 29.1.1930, kaupmaður í Hafnar-
firði, kvæntur Guðnýju Hermanns-
dóttur, húsmóður og ræstingakonu,
og eiga þau sex börn; Gunnar Geir-
mundsson, f. 15.4.1931, húsgagna-
smiður í Kópavogi, kvæntur Gunn-
hildi Magnúsdóttur, húsmóður og
starfsmanni við Hótel Sögu, og eiga
þau fimm böm; Geir S. Geirmunds-
son, f. 25.5.1932, sjómaður í Sand-
gerði, kvæntur Sigríði Sigfúsdóttur,
húsmóður og verkakonu, og eiga
þau fjögur börn; Helgi Geirmunds-
son, f. 17.11.1934, sjómaður á
ísafirði, kvæntur Emu Magnúsdótt-
ur húsmóður og eiga þau sex böm;
Ásthildur Geirmundsdóttir, f. 19.6.
1936, starfsstúlka við leikskóla, bú-
sett í Reykjavík, gift Kristófer Edil-
onssyni, verkstjóra hjá ÁTVR, og
eiga þau fjögur böm; Baldur Geir-
mundsson, f. 15.10.1938, tónlistar-
maður og skrifstofumaður á
ísafirði, kvæntur Karitas Pálsdóttur
skrifstofukonu og eiga þau fjögur
böm; Karl, f. 13.3.1939, forstööu-
maður Hlífar á ísafirði, kvæntur
Rannveigu Hjaltadóttur kennara og
eigaþauþrjúbörn.
Guðmunda Regína og Geirmund-
Guðmunda Regína Sigurðardóttir.
ur eiga því þrjátíu og þrjú bama-
böm en langömmubörn Guðmundu
era sextíu og eitt talsins.
Systur Guðmundu Regínu vora
Sigríður Sigurðardóttir, f. 1897, nú
látin, húsmóðir í Kópavogi. Margrét
Siguröardóttir, f. 1911, d. 1990, hús-
móðir í Bolungarvík.
Foreldrar Guðmundu Regínu
vora Sigurður Þorkelsson, f. 11.6.
1873, d. 25.2.1964, útvegsb. á Látram
í Aðalvík, og kona hans, Ólína Hall-
dóra Sigurðardóttir, f. 11.7.1876, d.
25.7.1959, húsfreyja.
Sex matarhöpfur
í mánuði að verðmæti
30 búsund hver.
63 27 00
Til hamingju með
afmælið 4. maí
80 ára
Sigurbjörg Jósíasdóttir,
Þórufelli 14, Reykjavik.
Stefania Kristinsdóttir,
Hrafnsstööum, Dalvík.
Gróa Frímannsdóttir,
Austurgötu 19, Hafnarfirði.
50ára
Anna Fanney Arnbjörnsdóttir,
Gufúnesvegi 1, Reykjavík.
Álfhildur Hjördis Jónsdóttir,
Suðurvör8, Grindavík.
Guðrún Sigurðardóttir,
Laufvangi 5, Hafnarfirði.
RoarKvam,
Fossbrekku, Svalbarösstrandar-
hreppi.
Oddur Pétursson,
Kambsvegi 17, Reykjavík.
70 ara
Daniel Helgason,
Gnoðarvogi 82, Reykjavík.
60 ára_______________
Helga Þóra Árnadóttir,
Hamrahlið 1, Grundarörði.
Arnbjörg Sveinsdóttir,
Klukkubergi31, Hafnarfirði.
Garðar H. Björgvinsson,
Lyngheiði 13, Hveragerði.
Haukur Bjarnason,
Kvistalandi 9, Reykjavík.
40ára
Sigurbjörg Einisdóttir,
Eskihlíö I2b, Reykjavík.
Rósa Sigríður Gunnarsdóttir,
Rauöalæk 45, Reykjavík.
Bjarney S. Gunnarsdóttir,
- Suöurvangil4,Hafnarfiröi.
Ólafur Jónsson,
Aðallandi 14, Reykjavík.
Gunnur Sigdís Gunnarsdóttir,
Hoö, Hraungerðishreppi.
Brynjólfur Sveinsson,
Böggvisbraut 17, Dalvík.
Norman Hanson Dennis,
Héöinsbraut 1, Húsavík.