Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1994, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1994, Page 26
42 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994 Fólk í fréttum Geir Sveinsson Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska handknattleikslandsliðsins, varð Evrópumeistari um síðustu helgi þegar félag hans, Alzira frá Spáni, sigraði í EHF-keppninni en með lið- inu leikur einnig annar íslenskur landsliðsmaður, Júlíus Jónasson. Starfsferill Geir er fæddur 27.1.1964 í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófi frá MH og hefur lokið eins árs námi í sagnfræði við HÍ. Geir var sölumaður við heild- verslunina Ó.H. Jónsson í Reykja- vík 1985-86 og hefur starfaði við verslun föður síns, Skósöluna, Laugavegi 1, með hléum. Geir hóf ungur að æfa knatt- spymu og handknattleik hjá Val og keppti 1 öllum aldursflokkum í þess- um greinum. Hann spilaði fyrst með meistaraílpkki Vals í handknattleik 1980, varð íslandsmeistari með Val 1988 og 89 og bikarmeistari 1988. Þá lék hann með spænsku liðunum Granollers og Avidesa 1989-92 og varð spænskur bikarmeistari 1992. Geir lék aftur með Val veturinn 1992-93 og varð íslands-, bikar- og deildarmeistari. Geir hefur leikið 262 landsleiki og skorað 345 mörk. Hann hefur leikið með bæði Evrópu- og heimsliði. Fjölskylda Geir kvæntist 5.6.1993 Guðrúnu Helgu Amarsdóttur, f. 15.7.1964, flugfreyju. Foreldrar hennar: Arnar Jónsson leikari og Þórhildur Þor- leifsdóttir leikstjóri. Sonur Geirs og Guðrúnar Helgu: Amar Sveinn Geirsson, f. 30.8.1991. Bróðir Geirs: Sveinn Sveinsson, f. 16.3.1968, húsamálari og nemi í sjúkraþjálfun, kvæntur Ingigerði Guðmundsdóttur, starfsmanni við Lánastofnun sparisjóðanna, þau eiga einn son. Hálfsystkini Geirs, samfeðra: Björn Ingi, f. 26.11.1951, jarðskjálftaverkfræðingur, kvænt- ur Katrínu Gísladóttur. Þau eiga fimm böm og Bjöm á son frá fyrra hjónabandi; Margrét Jóna, f. 12.10. 1953, húsmóðir í Kaliforníu, gift Jóni Þór Sveinbjömssyni útvarpsvirkja, þau eiga einn son, Margrét Jóna á eina dóttur frá fyrri sambúð. Foreldrar Geirs: Sveinn Bjöms- son, f. 10.10.1928, d. 16.9.1991, for- seti ÍSÍ og kaupmaður í Reykjavík, og seinni kona hans, Ragnheiður Guðrún Thorsteinsson, f. 24.1.1932, verslunarmaður. Ætt Sveinn var bróðir Guðmundar Inga, aðstoðarpóst- og símamála- stjóra. Sveinn var sonur Björns kaupmanns Jónssonar, skipasmiðs í Réykjavík, Bjömssonar, b. á Yxna- læk, bróður Valgerðar, ömmu Garð- ars Gíslasonar, kaupmanns í Hafn- arfirði, föður Guðmundar, fyrrv. alþingismanns, en bróðir Garðars var Valur leikari, faðir Vals banka- stjóra. Björn var sonur Þorbjöms, b. á Yxnalæk, Jónssonar, silfur- smiðs á Bíldsfelli, Sigurðssonar. Móðir Björns var Katrín, systir Odds, langafa Steindórs bílakóngs, afa Geirs Haarde þingflokksfor- manns. Móðir Sveins var Ingibjörg, systir Jóns, afa Sigríðar Dúnu Krist- mundsdóttur mannfræðings. Bróðir Ingibjargar var Hallgrímur, faðir Sveins, skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri. Ingibjörg var dóttir Sveins, kennara í Klungurbrekku og á Hálsi í Grundarfirði, Sveins- sonar og Guðnýjar, systur Kristj- áns, föður Eggerts stórkaupmanns. Ragnheiður Guðrún er dóttir Geirs Thorsteinsson, útgerðar- manns í Reykjavík, sonar Th. Thor- steinsson, kaupmanns í Reykjavík, bróður Davíðs Sch. Th., afa Davíðs Sch. Th. forstjóra. Hálfbróðir Th. Thorsteinsson var Pétur J. Thor- steinsson á BOdudal, faðir Muggs og afi Péturs Thorsteinsson sendi- herra. Móöir Geirs var Kristjana Geirsdóttir „gamla“ Zoéga, útgerð- Geir Sveinsson. armanns í Reykjavík, bróður Tóm- asar, langafa Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra. Móðir Ragnheiðar var Sigríður Hafstein, systir Ástríöar, ömmu Önnu K. Jónsdóttur borgarfulltrúa og Jóns Gunnars Hannessonar læknis. Bróðir Sigríðar er Sigurður Hafstein, faðir Hannesar Hafstein sendiherra. Sigriður er dóttir Hann- esar Hafstein, skálds og ráðherra, sonar Péturs Havstein amtmanns og Kristjönu Gunnarsdóttur, systur Tryggva bankastjóra. Móðir Krist- jönu var Jóhanna Briem, systir Eg- gerts Briem sýslumanns, langafa Gunnars Thoroddsen forsætisráð- herra. Afmæli Skúlína Friðbjömsdóttir Skúlína Friðbjömsdóttir þúsmóðir, Ásvallagötu 21, Reykjavik, er áttræð ídag. Starfsferill Skúlína fæddist að Bakkabæ í Innri-Akraneshreppi og ólst þar upp í foreldrahúsum til sextán ára ald- urs. Þá flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún var í vist hjá Þórarni Guðmundssyni konsertmeistara jafnframt því sem hún starfaði á saumastofu Guðsteins við Lauga- veginn. Skúlína kynntist eiginmanni sín- um 1934 en þau bjuggu fyrst á Rán- argötunni í Reykjavík til 1939 er þau fluttu til Akraness þar sem maður hennar stundaði sjómennsku. Þau keyptu síðan jörðina Hömluholt í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu og byggðu þar upp meðalstórt bú jafn- framt því sem maður hennar stund- aði sjómennsku á togurum frá Reykjavík á vetrum á meðan Skúl- ína sá um búreksturinn. Þau bmgðu síðan búi 1958 og fluttu til Akraness þar sem maður hennar stundaði sjó- mennsku en hún vann í fiskvinnslu hjá H.B. og Co ásamt heimilisstörf- unum. Skúlína missti mann sinn 1966 en ári síðar flutti hún á Ásvallagötuna í Reykjavík þar sem hún býr enn. Skúlína missti heilsu 1992 og dvelur nú á öldrunardeild Landakotsspít- ala. Fjölskylda Skúlína giftist 7.6.1939 Bjarna Ein- arssyni, f. 1.11.1913, d. 1966, sjó- manni. Hann var sonur Einars Bjarnasonar, útvegsb. á Skjaldvar- arfossi á Barðaströnd, og Sigríðar Gestsdóttur húsfreyju. Börn Skúlínu og Bjarna em Hrefna Bjamadóttir, f. 13.9.1936, verkakona í Reykjavík; Einar Bjarnason, f. 16.7.1938, vélstjóri í Stykkishólmi, kvæntur Báru Jóns- dóttur og eiga þau fimm böm; Frið- bjöm Bjarnason, f. 27.1.1940, versl- unarmaður á Akranesi, kvæntur Sigríði Beinteinsdóttur og eiga þau tvö börn; Jón Tómas Bjamason, f. 7.6.1942, vélfræðingur í Reykjavík; Kjartan Ó. Bjamason, f. 22.6.1943, d. 14.1.1986, húsasmíðameistari, og á hann þrjú böm; Ketill B. Bjama- son, f. 20.4.1945, vélvirki á Akra- nesi, kvæntur Helgu Gísladóttur og eiga þau tvö börn; Kristinn Þ. Bjarnason, f. 14.5.1949, sjómaður í Stykkishólmi, og á hann þrjú börn; Jónína E. Bjarnadóttir, f. 27.8.1951, sálfræðingur í Svíþjóð, gift Ola Gu- stafson. Systkini Skúlínu: Stefán Frið- björnsson, f. 12.7.1907, d. 25.5.1988, verslunarstjóri og b. í Nesjum, Sandgerði, var kvæntur Jónínu Eggertsdóttur og era börn þeirra þrjú; Friðbjörg Friðbjörnsdóttir, f. 26.1.1909, húsmóðir, gift Ragnari Sigurðssyni og urðu böm þeirra átta; Guðjón Friðbjörnsson, f. 28.11. Skúlína Friðbjörnsdóttir. 1910, d. 3.5.1990, skipstjóri, kvæntur Ingibjörgu Sigurðardóttur og eign- uðust þau eitt barn; Skúli Frið- björnsson, f. 29.11.1910, d. 8.5.1911. Foreldrar Skúlínu voru Friðbjöm Sigvaldason, f. 27.11.1872, d. 2.12. 1947, útvegsb. í Bakkabæ í Innri- Akraneshreppi, og kona hans, Kristjana M. Stefánsdóttir, f. 30.5. 1871, d. 12.7.1953, húsfreyja. Guðmunda Regma Sigurðardottir Guðmunda Regína Sigurðardóttir, fyrrv. húsmóðir, dvalarheimilinu Hlíf, Torfnesi, ísafirði, verður níræð ámorgun. Starfsferill Guðmunda Regína fæddist á Látr- um í Aðalvík og ólst þar upp í for- eldrahúsum við öll almenn sveita- störf. Eftir að hún gifti sig bjuggu þau hjónin að Látrum á áranum 1930-38 en fluttust síðan í Fljótavík þar sem þau bjuggu til 1945. Þá fóru þau aftur að Látrum þar sem þau bjuggu í eitt ár en fluttust þá í Hnífsdal. Þar áttu þau heima til 1989 er þau fluttust á ísafjörð til Halldórs sonar síns en þau hafa verið á Hlíf frá 1990. Auk heimilisstarfanna starfaði Guðmunda Regína í Rækjustöðinni íHnífsdalíáttaár. Fjölskylda Guðmunda giftist 1931 Geirmundi Júliussyni, f. 4.3.1908, húsasmið. hann er sonur Júlíusar Geirmunds- sonar, útvegsh. á Atlastööum í Fljótavík, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju. Böm Guömundu Regínu og Geir- mundar eru Halldór Geirmundsson, f. 29.1.1930, kaupmaður í Hafnar- firði, kvæntur Guðnýju Hermanns- dóttur, húsmóður og ræstingakonu, og eiga þau sex börn; Gunnar Geir- mundsson, f. 15.4.1931, húsgagna- smiður í Kópavogi, kvæntur Gunn- hildi Magnúsdóttur, húsmóður og starfsmanni við Hótel Sögu, og eiga þau fimm böm; Geir S. Geirmunds- son, f. 25.5.1932, sjómaður í Sand- gerði, kvæntur Sigríði Sigfúsdóttur, húsmóður og verkakonu, og eiga þau fjögur börn; Helgi Geirmunds- son, f. 17.11.1934, sjómaður á ísafirði, kvæntur Emu Magnúsdótt- ur húsmóður og eiga þau sex böm; Ásthildur Geirmundsdóttir, f. 19.6. 1936, starfsstúlka við leikskóla, bú- sett í Reykjavík, gift Kristófer Edil- onssyni, verkstjóra hjá ÁTVR, og eiga þau fjögur böm; Baldur Geir- mundsson, f. 15.10.1938, tónlistar- maður og skrifstofumaður á ísafirði, kvæntur Karitas Pálsdóttur skrifstofukonu og eiga þau fjögur böm; Karl, f. 13.3.1939, forstööu- maður Hlífar á ísafirði, kvæntur Rannveigu Hjaltadóttur kennara og eigaþauþrjúbörn. Guðmunda Regína og Geirmund- Guðmunda Regína Sigurðardóttir. ur eiga því þrjátíu og þrjú bama- böm en langömmubörn Guðmundu era sextíu og eitt talsins. Systur Guðmundu Regínu vora Sigríður Sigurðardóttir, f. 1897, nú látin, húsmóðir í Kópavogi. Margrét Siguröardóttir, f. 1911, d. 1990, hús- móðir í Bolungarvík. Foreldrar Guðmundu Regínu vora Sigurður Þorkelsson, f. 11.6. 1873, d. 25.2.1964, útvegsb. á Látram í Aðalvík, og kona hans, Ólína Hall- dóra Sigurðardóttir, f. 11.7.1876, d. 25.7.1959, húsfreyja. Sex matarhöpfur í mánuði að verðmæti 30 búsund hver. 63 27 00 Til hamingju með afmælið 4. maí 80 ára Sigurbjörg Jósíasdóttir, Þórufelli 14, Reykjavik. Stefania Kristinsdóttir, Hrafnsstööum, Dalvík. Gróa Frímannsdóttir, Austurgötu 19, Hafnarfirði. 50ára Anna Fanney Arnbjörnsdóttir, Gufúnesvegi 1, Reykjavík. Álfhildur Hjördis Jónsdóttir, Suðurvör8, Grindavík. Guðrún Sigurðardóttir, Laufvangi 5, Hafnarfirði. RoarKvam, Fossbrekku, Svalbarösstrandar- hreppi. Oddur Pétursson, Kambsvegi 17, Reykjavík. 70 ara Daniel Helgason, Gnoðarvogi 82, Reykjavík. 60 ára_______________ Helga Þóra Árnadóttir, Hamrahlið 1, Grundarörði. Arnbjörg Sveinsdóttir, Klukkubergi31, Hafnarfirði. Garðar H. Björgvinsson, Lyngheiði 13, Hveragerði. Haukur Bjarnason, Kvistalandi 9, Reykjavík. 40ára Sigurbjörg Einisdóttir, Eskihlíö I2b, Reykjavík. Rósa Sigríður Gunnarsdóttir, Rauöalæk 45, Reykjavík. Bjarney S. Gunnarsdóttir, - Suöurvangil4,Hafnarfiröi. Ólafur Jónsson, Aðallandi 14, Reykjavík. Gunnur Sigdís Gunnarsdóttir, Hoö, Hraungerðishreppi. Brynjólfur Sveinsson, Böggvisbraut 17, Dalvík. Norman Hanson Dennis, Héöinsbraut 1, Húsavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.