Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1994, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994
9
Utiönd
Uppreisnkúr-
Tansu Ciller,
forsætisráö-
herra Tyrk-
lands.semhert
hefur baráttu
hersins gegn
kúrdískum
skæruliðum
útilokar ekki
að lög um bann viö notkun kúr-
dísku í skólum og sjónvarpi verði
milduð. Þetta kemur fram í þrem-
ur tyrkneskum dagblöðum sem
vitnuðu í ummæli forsætisráð-
herrans í móttöku hjá Menning-
armálastofnun Sameinuðu þjóð-
anna í París. Orð Cillers eru sögð
benda til að kúrdíska verði leyfð
í einkaskólum og einkasjón-
varpsstöðvum, Hun; lagði þó
áherslu á aö aðskiinaður kæmi
ekki til greina.
Yfxr 12 þúsund manns hafa fali-
ið undanfarin tíu ár í Tyrklandi
i baráttu Kúrdíska verkamanna-
flokksins fyrir aðskilnaði.
Þúsundára
mannsSeifar
f undnar í Svíþjcð
Mannsleifar sem fundust í
mosa á akri í Marbáck nálægt
Ulricehamn í Svíþjóð eru taldar
vera minnst þúsund ára gamlar.
Ekki er að sjá nein merki um að
maöurinn haíi skaddast í stríði
og höfuðkúpan er heil. Maðurinn
■ var í sitjandi steUingu meö höfuð-
ið á milli fótanna.
Áður hafa fundist mjög gamlar
likamsleifar í Svíþjóð, af manni
frá 14. öld og stúlku sem var uppi
um 3000 f.Kr.
Hertaraðgerðir
gegnræningjum
víkingagrafa
Alþjóðleg glæpagengi leita nú
meö málmleitartækjum að gull-
mynt og silfurgripum i víkinga-
gi-öfum á sænsku eyjunni Got-
landi í Eystrasalti. Áöur fyrr var
þaö oftast vegna sagnffæðiáhuga
sem menn létu giæipar sópa í vík-
ingagröfum en frá því á síðasta
áratug hefur það verið gróðasjón-
armið sem ráðið hefur rikjum.
Yilrvöld hafa nú brugðist við
þessu með því að koma fyrir við-
vörunarbúnaði i gröfunum sem
sendir skj ótt boö til lögreglunnar.
Á Gotlandi eru skráðar 135 þús-
und fornminjar og eyjan þvi
spennandi fyrir ræningjá. Þeir
hafa einnig gert sig heimakomna
á eyjunni Óland og á Stokkhólms-
svæðinu.
Þeir sem beita málmleitartækj-
um við rán af þessu tagi geta átt
von á allt aö fjögurra ára fangelsi.
Með nýja viðvörunarbúnaðin-
um vonast lögreglan til að geta
staðið þjófa að verki.
Beatrixreynirað
rjúfastjórnar-
kreppu
Beatrix Hol-
landsdrottnmg
ákvað í gær að
fela Wim Kok,
lciðtoga Verka
mannatlokks-
ins og fyrrum
fjárinálaráð-
herra, stjóm-
armyndun.
Fékk Kok tvær vikur til starfans.
Ákvörðun drottningar kom bæði
stjórnmálamönnum og íjölmiðl-
um á óvart og voru viðbrögð
þeirra síðamefhdu misjöfh. Þeir
sem brugðust neikvætt við töldu
að Kok yrði varla hlutlaus. Kosið
var 3. maí síðastliöinn í Holiandi,
Reuter, TT
Þjóðverjar og Kínverjar efndu til mótmæla við Brandenborgarhliðið í Berlín i gær í tilefni heimsóknar Li Pengs,
forsætisráðherra Kína. Báru þeir borða með áletruninni þar sem Li var kallaður slátrarinn frá Torgi hins himn-
eska friöar. Borgarstjórinn i Berlín hugðist taka á móti Li við hliðið en Li lét ekki sjá sig. Hann hætti einnig skyndi-
lega við heimsókn til Weimar vegna mótmælenda sem gagnrýndu mannréttindabrot í Kína. Simamynd Reuter
Bamsránið 1 Nottingham, Englandi:
Barnsræningi segir að
stolnu barni heilsist vel
Fyrrum lögreglumaðurinn John
Stalker greindi lögreglunni frá því í
gær að maður sem kallaði sig „Gary“
hefði hringt í sig og sagt að hann
hefði barnið, sem rænt var af fæðing-
ardeild í Nottingham á Englandi fyr-
ir sex dögum, í sinni umsjá. „Gary“
tilkynnti að barnið væri öruggt og
liði vel og væri í umsjón konu sinnar.
Stalker greindi í viðtali á BBC frá
því að „Gary“ hljómaði sennilega og
traustvekjandi í símann og virtist
vita um hvað hann væri að tala. Lög-
reglan er ekki viss um hvort um-
ræddur „Gary“ er ekta en ef svo er
biður hún hann að hafa samband við
lögregluyfirvöld sem fyrst.
Barninu var rænt aðeins fjögurra
klukkustunda gömlu frá fæðingar-
heimilinu af konu sem klædd var í
búning hjúkrunarkonu. Lögreglan
birti í gær lýsingu og myndir af kon-
unni sem myndbandstæki á fæðing-
ardeildinni höfðu náð af henni.
Móðirin, Caren Humphries, með nýfætt barn sitt örfáum klukkustundum
áður en því var rænt. Simamynd Reuter
Fordæmirmorð
ásjómönnum
Silvio Ber-
lusconi, for-
sæösráðherra
Ítalíu, for-
dæmdi i gær
morð alsírskra
skæruliða á sjö
ítölskum sjó-
mönnum. Sjó-
menmrmr
voru skornir á háls þar sem þeir
lágu í fastasvefni um borð í skipi
sínu í Alsir. Frönsk yfirvöld, sem
lýst hafa yfir áhyggum sínum
vegna aðgerða heittrúaðra músl-
íma, vilja að hið óstöðuga ástand
í AÍsír verði rætt á fundi sjö
helstu iðnríkja heims sem fram
fer í Napólí um helgina.
Langtílauna-
jafnrétti
Konur i fullu starfl þéna að
meðaltali einungis þrjá fjórðu af
launum karla. Ef hlutaviuna er
tekin með í dæmið eykst munur-
inn samkvæmt nýrri skýrslu Al-
þýöusambandsins i Svíþjóð. Með-
alárslaun samskra kvenna í fullri
vinnu eru um það bii 1,8 milljón-
ir en karla 2,3 milijónir. Árin 1991
og 1992 minnkaöi munuriim á
launum kvenna og karla en nú
hefur hann aukist á ný.
Mikiu fleiri konur en karla eru
í hlutavinnu. 52 prósent kvenna
innan Alþýðusambandsins eru í
hiutastörfum en aðeins 9 prósent
karla.
Nöfnvændis-
kvennaogvið-
skiptavinabirt
Borgaryíirvöjd í einum vinsæl-
asta strandbæ itaiiu, Rimini, von-
ast til að geta hrakið vændiskon-
ur og viðskiptavini þeirra af
strætum borgarinnar meö því að
birta nöfn þeirra í dagblööum.
Vændiskonm' frá Austur-Evrópu
hafa streymt til borgarinnar og
er vændi komið úr böndunum,
aö mati yfirvaida. Nafnbirtingin
var sarnþykkt á fundi bæjar-
stjómar og lögregluyfirvalda í
byrjun vikunnar.
Fannsteftirll
ár og 3 þúsund
kílómefra
Litlum bát, sem hvarf á haf út
í óveðri við suðausturhorn Ástr-
alíu fyrir ellefu árum, skolaði á
land við suðvesturhorniö fyrir
nokkram dögum. Hafði báturinn,
sem er úr treijagleri og 2,4 metr-
ar, þá farið um 3 þúsund kíló-
metra leiö. Eigandinn, sem býr í
Melbourne og missti bátinn í
sumarfríi, vill ekki fá fleyið aftur
þar sem konan hans hatar það.
Rabinefinsum
haustkosningar
Yitzhak Rab-
in, forsætisráð-
herra ísraels,
kvaðst í gær
vantrúaöur á
aö Palestinu-
monn gætu
haldiðkosning-
ar á herteknu
svæðunum í október eins og
Frelsissamtök Palestínu, PLO,
stefna að. Rabin benti á að það
hefði tekið sex til sjö mánuði að
komast að samkomulagi um
Gazasvæðið og Jeríkó. Rabin
kvaðst þeirrar skoðunar aö
samningaviðraeöurnar um Júdeu
og Samaríu á Vesturbakkanum
yrðu erfiðari. Viðræðurnar heíj-
ast í Kaíró á mánudaginn.
Reuter, TT
Stríðiðí Jemen:
Aden faln f hlut
Norður-Jemen
Síðasta vígi uppreisnarhers Suð-
ur-Jemena, hafnarborgin Aden, féll
í hlut stjórnarhersins í gær og for-
seti landsins, Ali Abdullah Saleh
lýsti því yfir að stríðinu væri þar
með lokið.
Fulltrúar uppreisnarhersins halda
því þó fram að þeir hafi enn nokkra
hluta landsins á valdi sínu, héruðin
Hadramawt og Shabwa. Þeir sögðu
jafnframt að þeir hefðu gefið barátt-
una um hafnarborgina Aden upp á
bátinn til að hlífa mannvirkjum. Þeir
væru þó fjarri því að gefast upp og
myndu áfram berjast fyrir sjálfstæði
suðurhluta landsins.
Yfirlýsingar stríðandi afla stangast
á því stjórnarherinn segist hafa alla
hluta landsins á valdi sínu. Saleh
lýsti því yfir í ávarpi til þjóðarinnar
að nú væri þjóðinni mikilvægara en
nokkru sinni að sýna umburðarlyndi
og að standa sameinuð að lausnum
á vanda landsins.
Þegar stjórnarherinn náði Aden á
sitt vald, þusti stór hluti íbúa borgar-
innar (hálf milljón) út á stræti henn-
ar og fagnaði hermönnum stjómar-
sinna, eins og fólk sem frelsað er úr
ánauð frekar en fólk sem beitt er
hervaldi. Mikill vatnsskortur hefur
hrjáð borgarbúa í Aden, ekkert raf-
magn né símasamband hefur verið
þar lengi en borgarbúar fengu loks
aðgang að vatni í gær, sem herinn
dreifði.
Stjórnvöld í norðurhluta landsins
aðhyllast strangtrúaða múslímska
trúarstefnu, en uppreisnaryfirvöld
hafa haldið fram mildari áhrifum
trúarinnar á Islam. Jemen var sam-
einað fyrir fjórum árum með gagn-
kvæmum samningum. Suður-Jem-
enar efndu til stríðsins vegna þess
að þeir töldu Norður-Jemena ekki
standa við samkomulag um dreif-
ingu valds í landinu. Herstyrkur
stríðandi afla var alla tíð ójafn, her
norðanmanna hafði fimmfaldan
styrk á við her uppreisnarmanna.