Alþýðublaðið - 18.04.1967, Side 11
Jðfntefli Breiððbliks
og Akurnesinga 2:2
KNATTSPYRNUMÓT sumarsins
hófust í gær, með leik Breiða-
ibliks og Akurnesinga í Litlu bik-
arkeppninni, er fram fór í Kópa-
vogi. Leika átti einnig I Keflavík,
en þeim leik var frestað þar til í
gærkvöldi.
Heldur leiðinlegt veður og
slæmur völlur settu svip sinn á
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, IR
leikinn í Kópavogi, svo lítt er
hægt að geta sér til um getu lið-
anna eða einstakra leikmanna. Þó
er ljóst, að Skagamenn verða að
taka á sínum stóra, þegar að á-
tökunum í I. deild kemur.
Breiðablik tók forystuna fljót-
lega í leiknum, enda léku þeir
undan vindinum, með góðu marki
neðst í markhornið. Þannig var
staðan í hálfleik. Matthías jafnar
fyrir Akranes um miðjan síðari
bálfleik og skömmu síðar nær
Breiðablik forystunni, eftir mis-
tök hjá vöm Akurnesinga.
Þegar mínúta er til leiksloka
dæmir Einar Hjartarson víta-
spyrnu á Kópavog og Guðjón skor
ar úr henni.
Leiknum lauk þannig með jafn-
tefli og má segja, að eftir atvik-
um hafi það verið sanngjörn úr-
slit, þó Skagamenu liafi verið betri
aðilinn.
Næstu leikir í Litlu bikarkeppn
inni fara fram á sumardaginn
fyrsta og leika Hafnfirðingar og
Akurnesingar í Hafnarfirði og
Kefivíkingar og Breiðablik í Kefla
vík. Báðir leikirnir hefjast kl. 14.
LOKASTAÐAN:
Haukar—Ármann 34:17
^ Fram—FH 15:15.
Fram 10 7 1 2 223:152 15
FH 10 7 1 2 223:163 15
Ilaukar 10 6 0 4 217:201 12
Valur 10 5 0 5 199:189 10
Víkingur 10 4 0 6 174:195 8
Ármann 10 0 0 10 152:288 0
Skotar sigruðu Englendinga í
knattspyrnu á Wembley með 3:2.
Engiendingar höfðu sigrað Skoía
í 20. skipti í röð fyrir þennan
ieik og úrslitin komu svo sannar
Iega á óvart. Sigur Skoptlands
var samt í alla staði verðskuld*
aður.
Frá leik Breiðabliks og IA á sunnudag.
SUNDMÖT KR FER FRAM í
SUNDHÖLLINNIIKVÖLD
HIÐ ÁRLEGA sundmót KR verð-
ur haldið í Sundhöll Reykjavík-
ur í kvöld kl. 20.30. Keppendur
verða frá 8 félögum og íþrótta-
samböndum, fjórum Reykjavíkur
og fjórum utan af landi. Fjöldi
keppenda er um 120 og eru þá
meðtaldir þátttakendur í undan-
rlásum, sem fram fóru í gær-
kvöldi. Keppt vérður í 10 sund-
greinum og má búast. við mjög
spennandi keppni í mörgum
þeirra.
í 100 m bringusundi karla verð-
ur eflaust um æsispennandi
keppni að ræða, en í því sundi
keppa rneðal annars þeir Guð-
mundur Gíslason, Leikir Jóns-
son og Fylkir Ágústsson um Sindra
bikarinn , núverandi handhafi
hans er Gestur Jónsson SH.
í 100 m skriðsundi er keppt um
Flugfreyjubikarinn og mun Hrafn
hildur Kristjánsdóttir, Á, að öll-
um líkindum veita nöfnu sinni
Guðmundsdóttur ÍR, afar hressi-
lega keppni. Handhafi Flugfreyju
bikarsins er nú Hrafnhildur Guð-
mundslóttir.
Afreksbikar SSÍ verður vejttur
að venju, þeim keppanda, sem
bezta afrekið vinnur á mótinu,
samkvæmt núgildandi stigatöflu.
Til gamans verður efnt til
tveggja boðsunda og munu áhorf-
endur eflaust hafa gaman af.
Mótið hefst eins og áður er sagt
í kvöld kl. 20.30 og væntir Sund-
deild KR þess að unnendur sund-
íþróttarinnar fjölmenni í höllina
í kvöld.
VALUR ÍSLANDSMEISTARI
IHANDBOLTA KVENNA
VALUR og FH léku til úrslita í
I. deild kvenna á sunnudag. Leikn-
um lauk með yfirburðasigri Vals,
sem skoraði 12 mörk gegn 4. Eins
og mörkin gefa til kynna voru yf-
irburðir Vals ótvíræðir og stúlk-
ur Vals eru í algerum sérflokki.
KR féll niður í II. deild að þessu
sinni, en Breiðablik flyzt upp í I.
deild.
Þá léku Valur og Fram til úr-
slita í 2. flokki karla og leiknum
lauk með sigri Vals 8:7 eftir fram-
lengdan leik.
í öðrum flokki urðu úrslit þau,
að Fram sigraði í I. og 3. flokki
karla og KR í 2. flokki kvenna.
Áður hefur verið skýrt frá sigri
KR í 2. deild karla.
HAUKARSIGRUÐU
ÁRMANN 34:17
Haukar sigruðu Ármann í I.
deild karla á sunnudag með 34
mörkum gegn 17, en í hléi var
staðan 13:6. Haukar höfðu mikla
yfirburði.
Drengjahlaup
Armanns
Drengjahlaup Ármanns mun að
venju fara fram fyrsta sunnudag
í sumri og mun hlaupið fara frani
sunnudaginn 23. apríl. Keppt mun
í þriggja og fimm manna sveit-
um. Síðast er hlaupið var háð,~
unnu KR-drengirnir báða bikar-
ana til eignar. Að þessu sinni mua
keppt um nýja bikara sem þeir
hafa gefið Gunnar Eggertsson for-
maður Ármanns og Jens Guð-
björnsson fyrrverandi formaður
félagsins. Einnig munu þrír fyrstu
menn hljóta verðlaun svo sem
venja er. Þátttökutilkynningar
skulu berast til formanns frjáls-
I íþróttadeildar Ármanns, Jóhanr.9
Jóhannessonar, Blönduhlíð 12, S.
19171 fyrir föstudagskvöld 21. apr-
íl 1967. Öllum félögum innan ÍSÍ
er heimil þátttaka í hlaupinu.
Hlaupið hefst kl. 2 e.h. og rmm
hefjast og ljúka í Hljómskálagarð-
inum. Keppendur og starfsmenn
mæti kl. 1.15 á Melavellinum.
íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna 1967.
IsKÚLI JÓ
SON, Í.R.
r
(>SKULI er 18 ára
*' nemi, 186 cm á haeð. Hann
'lbyrjaði að æfa
hjá ÍR 1958 og varð brátt mjög
(' efnilegur Ieikmaður. Árið 1964
'jlék hann fyrst með
.tflokki ÍR sem miðherji og
('ur síðan tryggt sér þá stöðu
fí liðinu með ágætri frammi-
Jistöðu. Hann lék sinn
(ilandsleik gegn Dönum
< ] stuttu.
18. apríl 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ