Alþýðublaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 8
8
1. maí 1967
ALÞÝ8UBLAÐI0
Sendum öllu vinnandi
fólki til sjávar og sveita
beztu árnaöaróskir
í tilefni dagsins.
Kaupfélag Hafnfirðinga
F'iytjum félagsmönnum okkar
og öllum launþegum
beztu árnaðaróskir í tilefni
1. maí.
Sveinafélag húsgagnasmiöa
SÆNSK - ÍSLENZKA FRYSTIHÚSIÐ
sendir starfsfólki sínu
og öllu verkafólki
árnaðaróskir í tilefni
1. maí.
Sveinafélag húsgag nabólstrara
hvetur alla félagsmenn sína
til almennrar þátttöku
í hátíðahöldunum 1. maí.
GLEÐILEGAHATÍÐ!
Komarovs
Frh. af 4. síðu.
vakt á húsþökunum. Flugvélarn-
ar gerðu hverja árásina á fætur
annarri. Við vorum ekki lengi að
finna út, hvernig átti að gera í-
kveikjusprengjur óskaðlegar. Við
hentum kannski hinum litlu,
lúmsku hlutum niður á götuna,
þar sem hinir eldri kæfðu þá með
sandi eða vatni.
Við vorum aldir upp á þeim
tíma, er ihvern einasta dreng
dreymdi um að verða herflug-
maður. Og einn góðan veðurdag
gekk sá orðrómur um meðal
drengjanna í borginni, að einka-
skóli fyrir herflugmenn tæki nem
endur.
Ég hafði ekki enn tekið loka-
prófið í sjöunda bekk, en samt
sem áður ákvað ég að reyna við
inntökuprófið. Ég hafði góðar
einkunnir í öllum fögum og um
leið og ég hafði tekið lokaprófið
í skólanum og verið undir læknis-
hendi, var ég skrifaður inn í flug-
skólann.
Rétt eftir að ég byrjaði í skól-
anum var ég fluttur til Síberíu.
Veran í flugskólanum var ekki
eingöngu bundin við menntun. Oft
var unnið við skógræktaitstöitf.
Við hjuggum brenni til skólans og
hjálpuðum einnig til við að út-
vega bænum eldsneyti.
Við komum aftur til skólans og
settumst í níunda bekk í byrjun
ársins 1944, og okkar fyrsta verk
var að endurbæta skólann; rýma
til, gera hreint og mála veggi og
skólaborð.
Hernaðarástand ríkti enn í
Moskvu. Næturvaktirnar héldu á-
fram. En flugvélarnar flugu ekki
lengur yfir borginni. Herinn okk-
ar brauzt áfram til vesturs og
vann hvern sigurinn á fætur öðr-
um.
Nú nálgaðist lokaprófið í einka-
skólanum o^g við biðum spenntir:
Kæmist maður á flugnámskeiðið?
Við vissum hve ströng nefndin
var í því að velja flugmenn. Fram-
tíð mín var ráðin, ég var útnefnd-
ur lærður flugmaður og eftir nám-
ið í verkfræðiháskólanum var ég
orðinn reynsluflugmaður. Ég var
samt viss um, að ég mundi ekki
komast í stríðið gegn Þjóðverj-
um, því sigurinn var í nánd.
Enginn Sovétborgari af minni
kynslóð og þeirri eldri mun nokk-
urn tíma gleyma 9. maí 1945.
Hver einasti Moskvuborgari, sem
mátt hafði til var þá úti á götu.
Það árið lauk ég við einkaskól-
ann. Nú gat ég farið að fljúga í
fyrsta skipti. Ég minnist kennara
míns, Feorgij Molodtsov, með mik
illi virðingu, en hann gerði mig
að reglulegum flugmanni.
Um svipað leyti og ég lauk við
skólann, dó mamma. Það var þung
sorg bæði fyrir pabba ög mig.
Mamma hafði verið einkar alúð-
leg í uppvexti mínum. Hún hafði
stutt mig mikið í þeim draumi að
gerast flugmaður, þegar það leit
sem vonlausast út, og nú 'átti hún
ekki að fá að lifa þann dag, er sá
draumur rættist.
Við skiptumst á um að halda
Við vorum reyndar fleiri, sem
lukum prófi við flugskólann sam-
tímis og tókum þegar til starfa.
Við héldum .áfram við flugnámið
Framhald á 10. síðu.
Sjómannafélag
HafnatfjarBar
IVIætiÖ öll á útifuredinum
GLEÐILEGAHÁTÍÐ!
Sendum öllum
launþegum
beztu árnaðaróskir
í tilefni af 1. maí.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
ísbjörninn h.f'
sendir starfsfólki sínu, svo og öllu
verkafólki til lands og sjávar
hjartanlegar hamingjuóskir
á hátíðisdaginn
. mai.
ísbjorninn h.f’