Alþýðublaðið - 01.05.1967, Side 10
1. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Mjólkurfræðingafélag íslands
óskar ölium launþegum
til hamingju með 1. maí.
Mál og menning
flytur íslenzkum verkalýð
hamingjuóskir
í tilefni dagsins.
GLEÐILEGA H ÁT I Ð I'
Trésmiðafélag
Reykjavíkur
hvetur meðlimi sína til að
taka þátt í hátíðahöldum
dagsins, kröfugöngunni
og útifundinum.
STJÓRNIN.
Komarovs
Sendum félagsmönnum
og launþegum um
land allt árnaðaróskir
í tilefni 1. maí
Félag bifvélavirkja
Framhald af 8. síðu.
stóð enn draumurinn um að halda
áfram náminu. Ég sótti um upp-
töku, tók inntökupróf og stóðst
það. Og þá byrjaði námið fyrir
alvöru.
Það var næstum af tilviljun að
ég hitti Valja, sem átti að verða
konan mín. En eftir að við hitt-
um hvort annað í fyrsta skipti
urðum við óaðskiljanleg, og brátt
kom að því, að við giftum okkur.
1951 fæddist sonur okkar, Jev-
genij — hann er nú næstum orð-
inn fullvaxta. 1958 fæddist svo
dóttir okkar, Irina, og hún dafn-
ar einnig vel og er nú byrjuð í
skóla . . . en hvað tíminn líður
fljótt.
Við skulum ekki gleyma því,
að konan mín hafði einnig sitt
n'ám að sækja og er nú bókavörð-
ur.
Hvað sjálfum mér viðvíkur var
það stöðugt ósk mín á meðan ég
var í verkfræðiháskólanum að fá
leyfi til að fljúga. Námið gekk vel
og ég þurfti ekki að óttast að ég
drægist aftur úr, jafnvel þó ég
gerði hlé á námi mínu meðan ég
var að læra að fljúga. 1959, þegar
ég var í þann mund að ljúka við
háskólann, kallaði kennarinn mig
fyrir sig oig sagði:
— Þér eigið ennþá þá ósk heit-
asta að fljúga. Það er möguleiki
að þér getið fengið atvinnu á sér-
stöku landssvæði, jafnvel þó að
það sé ekki leyfilegt undir venju-
legum kringumstæðum. Takið
þessa adressu og þar getið þér
fengið svör við öllu.
Á þennan hátt var ég valinn í
hóp geimfara. Þegar ég fann hið
umtalað heimilisfang, tók á móti
mér liðsforingi, ungur maður með
elskulegt bros, meðalhár og þétt-
vaxinp. Með honum var höfuðs-
maður. Höfuðsmaðurinn útskýrði
fyrir mér margt, sem að gagni
mætti koma og það kom sér vel, að
hann vissi deiii á öllu. Við kynnt-
um okkur. Liðsforinginn hét Jurij
Gagarin og höfuðsmaðurinn hét
Pavel Popovitsj.
12. október 1964 var geimskipið
Voskhod senf upp með kraftmik-
illi eldflaug. Um borð .í geim-
skipinu voru vísindamaðurinn
Konstantin Feoktistov og læknir-
inn Boris Jegorov, en stjórn geim-
farsins var falin mér í hendur.
Voskhod fór 16 hringi umhverfis
jörðu og lenti,13. október eftir vel
heppnaða geimför.
Voskhod var á vissan hátt öðru-
vísi en sputnikarnir, sem geim-
farafélagar okkar höfðu farið í áð-
ur. Við vorum fyrstir til að ferð-
ast í geimfari, án þess að nota
geimbúninga. í Voskhod voru vara
bremsur til öryggis við lending-
una. í fyrsta skipti um borð í
geimskipi á ferð, tóku læknir og
vísindamaður saman þátt í stjörnu
athugunum.
Áhöfnin framfylgdi því sem átti
að gera út í yztu æsar og Vosk-
hod framkvæmdi hina fyrstu
mjúku lendingu. Ferðin var sama
sem engin á igeimfarinu um leið
og það var að lenda.
Ég hef hug á að fara í aðra
geimferð, ef markmiðið er að not-
færa sér himingeiminn til gagns
fyrir mannkynið.
A.S.B.
félag afgreiöslustúlkna í
brauð- og mjólkurbúðum
sendir félagskonum
árnaðaróskir í tilefni
1. maí.
Bifreiðastjórafélagið FRAMI
sendir meðlimum sínum
og öllu vinnandi fólki
beztu árnaðaróskir í tilefni
1. maí.
Járnsmiðir
Fjölmennum í kröfugöngu
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
og á útifundinn.
GLEÐILEGAHATÍÐ!
Félag
járniðnaðarmanna
Málarafélag Reykjavíkur
sendir félagsmnnum sínum
og öllum launþegum
beztu árnaðaróskir í tilefni
1. maí.