Alþýðublaðið - 03.05.1967, Blaðsíða 2
Fjölmenni við,
er Brandur kom
Rvík — KB.
Mikið fjölmenni var saman-
komið við Reykjavikurhöfn á
laugardagskvöldið, þegar varð-
skipið Óðinn kom þangað með
togarann Brand frá Grimsby,
sem hafði strokið nóttina áð-
ur. Fréttamenn blaða, útvarps
og sjónvarps voru þar fjöl-
mennir, en megin þorri við-
staddrra voru þó forvitnir á-
horfendur, sem komu til að
sjá þetta ævintýraskip og
stjórnanda þess, Bernard New-
ton.
Stundarfjórðungi eftir ,kl. 9
komu skipin inn um hafnar-
minnið, togarinn nokkuð á
undan varðskipinu. Togarinn
hélt rakleitt að togarabryggj-
unni Faxagarði og lagðist þar
utan á ísborgina, en Óðinn
lagðist í varðskipalagið við
Ingólfsgarð. Fréttamenn voru
staddir á báðum bryggjunum
og fóru þeir um borð í skipin.
Á Ingólfsgarði beið lögreglu-
bíll og nokkur sveit' lögreglu-
manna, fulltrúar frá brezka
sendiráðinu og umboðsmaður
brezkra togara hér við land,
ennfremur Benedikt Blöndal,
verjandi skipstjórans á togar-
anum, en hann hafði verið
fluttur yfir í varðskipið, er
togarinn var tekinn um hádeg-
isbilið. Reyndu fréttamenn að
ná tali af Newton skipstjóra,
en fengu lítil tækifæri til þess,
áður en Bjarki Elíasson yfir-
lögregluþjónn gekk til hans og
lýsti hann handtekinn. Virtist
það ekki koma skipstjóranum
á óvart' og gekk hann með lög-
reglumönnum mótþróalaust að
lögreglubílnum, sem flutti
hann upp í hegningarhús.
í togaranum voriTauk áhafn
arinnar, sem aðallega virtist
samanstanda af unglingum,
þrír varðskipsmenn og lög-
regluþjónarnir tveir, Þorkell
Pálsson, og Hilmar Þorbjörnss.
sem numdir voru á brott með
skipinu. Þeir neituðu að ræða
við fréttamenn fyrr en þeir
hefðu gefið yfirboðurum sín-
um skýrslu um málið, en síð-
ar um kvöldið sögðu þeir frá
Frh 11. síðu.
Lögregluþjónarnir í brú togarans við komuna ti. iieykjavíkur.
Newton skipstjóri kominn upp í lögregiubílinn.
VAR SKIPSHÖFNINNI
MÚTAÐ MEÐ ÁFEN'117
Rvík, SJÓ.
Rannsókn í máli Newtons
skipstjórans á togaranum
Brandi, hélt áfram í gærdag.
Yfirheyrslur stóðu yfir frá kl.
13 og fram til kl. 17. Voru
lögregluþjónarnir báðir leiddir
fyrir réttinn ásamt hluta af
áhöfn togarans og skipstjóra
og stýrimanni á Óðni. Var
framburður vitnanna mjög á
svipaða lund.
Þorkell Pálsson, annar lög-
regluþjónanna er voru á vakt
í skipinu umrædda nótt skýrði
svo frá fyrir réttinum í gær,
þeir hefðu verið læstir inni
í klefa skipstjórans. Tók hann
eft'ir því, að togvinda var far-
in í gang og skipið að halda
úr höfn. Hefði Hilmar þá brot-
ið upp hurðina að klefanum. í
brúnni hittu þeir fyrir skip-
stjórann ásamt nokkrum skip-
verjum. Höfðu ljósin í brúnni
verið slökkt. Þorkéll gekk að
skipstjóra og spurði hverju
þetta sætti, en hann bar það
fyrir sig, að eldur væri í lest-
um skipsins. Kváðust lögreglu
þjónarnir hafa bent honum á,
Fjölmenni var samankomið til að sjá Brand sigla inn höfnina.
að öruggara væri að leita til
slökkviliðsins í Reykjavík, en
skipstjóri vékst undan því og
kvaðst ætla að fara út fyrir
Engey til að varna herskipun-
um allri hættu, en þau voru
þá á ytri höfninni. Þorkell
bað skipstjórann að snúa aftur,
en hann sinnti því ekki og sló
Þorkell þá vélsímann á stopp
og kom þá svar frá vélarrúmi
skipsins, en skipstjóri aftur-
kallaði það og skipaði fulla
ferð áfram. Einnig kvaðst Þor-
kell hafa reynt að ná til skips,
er statt var út frá Engey, en
skipverjar komu í veg fyrir
það með hrópum og köllum.
Að sögn Þorkels, átti skip-
stjóri að hafa sagt, að hann
vildi fremur láta skjóta niður
skipið en taka það, og enn-
fremur, að skipstjóri hefði lof-
að áhöfninni aukaskammt af
rommi, ef hún aðstoðaði sig
við flóttann. Þá sagði hann,
að talstöð hefði verið tekin úr
sambandi og lokað fyrir út-
varp.
Eftir yfirheyrsluna kvaðst
Þorkell vilja leggja fram bóta-
kröfu vegna áverka, er hann
hafði hlotið.
Þá kom Hilmar Þorbjörns-
son, lögregluþjónn, fyrri rétt-
inn og var framburður hans
að öllu leyti sami og Þorkels.
Þórarinn Björnsson, skipherra
á Óðni, sagði réttinum, að eina
stöðvunarmerkið, sem þeir
hefðu gefið togaranum væri
stöðvunarmerki K með flaggi.
Einnig viðurkenndi hann, að
tekið hefði verið ofan af fall-
byssu varðskipsins, en hún
hefði ekki verið notuð.
Jón Wium, 2. stýrimaður á
Óðni, fór um borð í .togarann
ásamt tveim öðrum og sagðist
hann hafa verið vopnaður
Framhald á 13. síðu.
2 3. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ