Alþýðublaðið - 03.05.1967, Síða 8
Bobby Eliot, trommuleikari Hol-
lies, hefur ekki komið fram í
sviðsljósið í alllangan tíma vegna
veikinda.
Hermits og WHO í reisu
Það er eins og Cliff Richard
trúi ekki sínum eigin augum.
Kannski er hann að skoða
vinsældalistann í Bretlandi.
Sandie Shaw sió út
Sinatra feðginin
EF VIÐ lítum á vinsældalist-
ann í Bretlandi um þessar mund-
ir sjáum við, að vinkona okkar,
hún Sandie Shaw, heíur hrakið
Nancy og Frank Sinatra úr efsta
sætinu og skartar þar nú einvöld
með „Puppet on a streng.” Það
er orðið all langt síöan hún hef-
ur náð efsta sætinu og er því þessi
sigur fyrir hana enn sætari. Sin-
atra feðginin verða að láta sér
nægja annað sætið eftir að hafa
setið í því efsta í tvær vikur, en
hins vegar eru þau enn nr. 1 á i
Framhald á 13. síðu. |
ÞAÐ hefur staðið til um all
langt skeið, að þeir félagar Dave
Dee, Dozy, Beaky, Mick and Tich
kæmu liingað til hljómleika-
halds. Enn sem komið er, hefur
ekkert orðið úr þessu. Hvort að
þeir hafi fengið snert af þeirri
„pest”, sem herjaði skyndilega á
Kinks,' er þeim stóð til boða að
halda hér hljómleika, liggur ekki
ljóst fyrir.
Um þessar mundir eru þeir fé-
lagar í hnattferð ásamt Hollies
og er ekki fjarri því að álíta, að
e.t.v. komi þeir við á eldfjalla-
landinu til að seðja hina inn-
fæddu tilbiðjendur og líta á
kölskapottinn (Surt).
Trommuleikari Hollies, Bobby
Eliot, hefur legið sjúkur um tíma
og er liann því ekki með í þess-
ari ferð.
Dave Dee & Co. munu ekki
væntanlegir heim fyrr en í maí-
lok. Um ferðina sagði hann m. a.
áður en liann lagði af stað:
Þetta verður stórkostlegt, —
Ilingað til liöfum við lálið lokkur
nægja að ferðast um Bretland, en
nú fáum við tækifæri til að kynn-
ast aðdáendum okkar í Evrópu og
víðar. Við lékum inn' á tvær 2ja
laga hljómplötur nú fyrir skömmu
og verður önnur þeirra gefin út á
meðan við erum í þessari ferð,
en hin strax og við komum heim.
Hollies dvöldust líka við plötu-
upptöku, áður en lagt var af stað.
AS öllum líkindum verður titil-
lagið á þeirri plötu „Step right
in.”
Dave Dee til
íslands?
Nei, þetta er ekki atriði úr hinni væntanlegu kvikmynd um Her-
mar^Hermit’s. Engu að síður er það hann, sem liggur þarna ósjálf-
bjarga eftir að íslenzkir aðdáendur höfðu „stolið” honum af
sviðinu í Austurbæjarbíó.
HERMAN HERMIT’S og Who
fara í níu mánaða reisu um þvcr
og endilöng Bandaríkin í júlí
næstk.
„Happy Jack” flutt af Who er
einmitt um þessar mundir að
fikra sig upp vinsældalistann í
USA, en nýjasta platan þeirra
ber yfirskriftina „Pictures of
Lily.”
í maí mun verða farið að
vinna við kvikmynd um Herman
Hermit’s og félaga, en hún á að
bera sama nafn og eitt vinsæl-
asta lag þeirra fyrr og síðar, Mrs.
Framhald á 13. síðu.
Quick á íslenzka
hljómpiötu
í MARZ kom brezk hljómsveit
fram á hljómleikum í Austur-
bæjarbíó. Þetta voru Quick. Þeir
gei’ðu geysilukku og unga fólkið
komst í sína alkunnu „konsert--
stemningu,” en henni fylgir all
mikill bægslagangur. Undir lokin
þótti bíóstjóranum þetta ganga of
langt, er ungmennin gerðu harð-
skeyttar tilraunir til að komast
upp á sviðiö og varð kynnirinn
að hóta því að taka rafmagnið af
og vitnaði til Swinging Blue Je-
ans hljómleikanna, til sönnunar
því, að þetta hefði verið gert áð-
ur. En til þess kom þó ekki.
Það liefur komið til tals að
gefa út hljómplötu með Quick
fvrir íslenzkan markað og er U. F.
útgáfan framkvæmdaaðilinn, en
Jón Lýðsson, forsvarsmaður henn-
ar, stóð f.vrir hingað komu Quick.
Þá hefur þessi sama útgáfa á-
kveðið að gefa út plötu með LÖG-
UM frá Vestmannaeyjum.
KASTLJÓS
FRANCO HERÐII
FYRIR fimm árum tók Fran-
co, einræðisherra á Spáni, upp
breytta stefnu, sem smátt og
smátt átti að fæi’a ástandið í
landinu í frjálsara horf. Nýir,
framfarasinnaðir menn voru'
teknir í stjórnina, losað var um
tökin og Spánn virtist stefna í
átt til aukins lýðræðis og
frelsis.
Nú er þetta breytt. Tilraunir
Francos til að koma á fi’jáls-
lyndara stjórnarfari hafa farið
út um þúfur. Hert hefur verið
á tökunum á nýjan leik, fram-
fai-asinnarnir í stjórninni hafa
orðið að víkja og öfgafullir
hægrisinnar ráða nú mestu um
stjóx-n landsins.
Afturhaldssinnar á Spáni hafa
haft miklar áhyggjur af þróun
mála á undanförnum árum. —
Þjóðin hefur verið að reyna að
brjótast undan fargi kúgunar og
áþjáliar. Stúdentar hafa haft
sig mikið í frammi, efnt' til mót-
mælaaðgerða og staðið fyrir ó-
eirðum. Mikil ólga hefur ríkt
meðal verkamanna.
Nú eru afturhaldssinnar aft-
ur traustir í sessi og þeir reyna
að stöðva þróun, sem þeir ótt-
ast að endað geti með ósköpum.
★ ÞJÓÐARATKVÆÐI.
Hin auknu áhrif íhaldsmanna
komu fyrst í ljós í desember í
fyrra, þegar þeir féllust á þjóð-
aratkvæðagreiðslu þá, sem hald-
in var um hina nýju stjórnar-
skrá Francos. Gert' hafði verið
ráð fyrir, að 70% kjósenda
mundu greiða atkvæði, eða mun
færri en í síðustu þjóðaratkvæða
greiðslu fyrir 19 árum, en þá var
kosningahluttakan 88.8%.
Framfarasinnar töldu, að
minni kosningaþátttaka mundi
sannfæra útlendinga um, að lýð-
ræðislegri aðferðir en áður
hefðu þekkzt hefðu verið tekn-
ar upp á Spáni. En afturhalds-
sinnar litu öðru vísi á málið. —
Þeir töldu, að ef kosningaþátt-
takan yrði innan við 88.8% og
færi’i gi’eiddu atkvæði með
stjórnarskránni en þau 92.2%,
sem það gerðu 1947, mundi það
bera vott um minnkandi vin-
sældir Francos.
„Hörðu” öflin í stjórninni
gerðu því allt sem í þeirra valdi
stóð til að gei’a þjóðai’atkvæða-
greiðsluna að sigri fyrir Fran-
co, og árangurinn varð sá, að
kosningaþátttakan varð 88.8%
og 95.9% greiddu atkvæði með
hinni nýju stjói’nai'skrá. Niður-
staðan varð því mjög svipuð og
1947.
★ AUKIÐ EINRÆÐI.
Stjórnin hefur aftur hert tök
in á eftirtöldum sviðum:
* Prentfrelsislögunum frá í
fyrra, sem kváðu á um að rit-
skoðun yrði afnumin og leyfðu
aukið skoðanaírelsi, hefur
verið breytt, og blaðamenn,
sem brjóta lögin, eru dæmdir
þungri refsingu. Blaðamenn
eiga nú það á hættu að vera
dæmdir í allt að sex ára fang-
elsi, ef þeir birta fréttir, sem
yfirvöldin geta kallað „rang-
ar” eða „hættulegar.”
* IJegningarlögunum hefur einn-
ig nýlega verið breytt, — og
þeir, sem gagnrýna stjórnai’-
farið og sýna þar með „stofn-
unum eða mönnum lítilsvirð-
ingu”, hljóta eirinig þunga
dóma.
í: Iláskólastúdentar, sem sýna
ríkislögreglunni, Politica Ar-
mada, mótþróa, vei’ða fram-
* vegis leiddir fyrir hei-rétt. í
hverjum einasta háskóla Spán
ar hafa stúdentar þrjózkast
gegn stjórninni og stofnað
frjáls félög. Nú er fyrirsjáan-
legt, að afskipti lögreglunnar
af málefnum þeii-ra munu auk-
ast.
■ FRÍMERKI
HINN 3. maí 1959 komu út
2 frímerki til minningar um
það, að þann dag voru 200 ár lið-
in frá andláti Jóns Þorkelssonar,
fyrrverandi Skálholtsrektors.
Myndin á merkjunum sýnir Jón
sitja á tali við tvö börn, en að
ofan er nafn lians ásamt ártöl-
unum 1759—1959. — Verðgildin
voru 2 kr. grænl og 3 kr. brún-
íjólublátt. Upplag þessara
mei-kja er hálf milljón af lægra
verðgildinu, en 400 þús. af því
hæi’ra. Tökkunin er 13V2 —14.
Jón Þorkelsson, fyrrum rekt-
or í Skálholti, var hinn mesti
var samstarfsmaður Harboes
biskups á íslandi árin 1741 —
1745. Þeir félagar, Jón og Har-
boe ferðuðust víða um landið
þessi fjögur ár og kynntu sér
ástandið í menningarmálum
presta og almennings. Yfirleitt
fengu prestar heldur lélega eink-
unn hjá þeim og reyndist sitt
að hverjum, þótt nokkrir fengju
hrós. Drykkjuskapur, vankunn-
átta og slæleg barnafræðsla voi’u
hlutir, sem víða böguðu prest-
ana, einnig var fátæktin mikil
hjá þeim mörgum, svo sem sjá
má af því, að sumir þeirra höfðu
3 3. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ