Alþýðublaðið - 03.05.1967, Page 15
Kastljós
Frh. úr opnu.
lýðsfélaga „sjálfsögð mannrétt-
indi.”
Áhrifa harðari stefnu gætir nú
einnig í trúmálum. Lagafrum-
varpið um trúfrelsi, sem er mik-
il framför og páfinn hefur lagt
blessun sína yfir, svo og róm-
versk-kaþólskir biskupar á Spáni,
miðar að því að gera starfsemi
sértrúarflokka löglega. í síðasta
mánuði beittu afturhaldsmenn í
stjórninni áhrifum sínum til
þess að lögin yrðu ekki samþykkt
fyrr en gerðar hefðu verið á
þeim vissar breytingar, sem
gera það að verkum að hið nýja
trúfrelsi verður mjög takmark-
að.
Hvað býr á bak við kúvending-
inguna á stefnu Francostjórnar-
innar? Bersýnilega viðurkenn-
ing á því, að einræðisstjórn getur
ekki slakað á klónni nema að
vissu marki, ef hún á að komast
hjá því að hrökklast frá völdum.
Þessu marki kann að hafa
verið náð á Spáni — og vera
má að þegar hafi verið farið yf-
ir það.
Ræða Jóns
Frh. af. 7. Síðu.
bolfiskverkunarstöðvar. Frysti-
liúsin éru 91 á landinu nú. Ég
hika ekki við að fullyrða að þau
er 20 of mörg í það minnsta.
Það þarf engan að undra þótt
fiskverð til sjómanna sé lágt á
íslandi í dag, þegar hráefnið er
látið greiða afborganir fyrningu
vexti og annan fastakostnað af
miklu fleiri fiskverkunarstöðvum
en þurfa, til þess að verka þann
fisk sem sjómenn okkar færa að
landi, eins og sést bezt á því,
að meir en helmingur af þeim
frystihúsum, sem til eru, hafa
ekki náð á sl. árum 10% nýtingu
rniðað við afkastagetu og ekkert
húsanna komist yfir 25% nýt
ingu, þrátt fyrir metafla síðast
liðin ár.
Sem dæmi upp á það að um
or mikla yfirbyggingu sé að ræða
í þessu efrii, má tilfæra það sem
sagt er um Hafnarfjörð og senni
lega satt að þar séu fleiri fisk-
verkunarhÚ3 en fiskiskip.
Um líka yfirbyggingu er að
ræða í fleiri greinum.
1. maí sl. minntist ég nokkuð
á verzlunina. Kaupmannasamtök
in kvarta mikið undan verðlags
ákvæðum og verðlagseftirliti og
telja sig sennilega hólpin og al
sæl ef hvorutveggja yrði afnum-
íð. ■ • '
Ég get fullvissað kaupmanna
samtökin um iþað, að þeirra
vandi væri ekki leystur þótt orð
ið yrði við óskum þeirra í þessu
efni. Það sem aðallega er að,
er það, að verzlanir í Reykjavík
eru líklega um helmingi of marg
ar enda vinnuaflsaukning í þeirri
starfsgrein orðið meiri hin síð
ari ár en í nokkurri starfsgrein
annarri.
í verzluninni er um alltof
mikla yfirbyggingu að ræða, á
sama hátt og í fiskverkuninni.
Ef verzíanir væru mun færri
en þær eT'u, fengi hver verzlun
'meiri viðskipti og bá um leið
hagnað og gæti það verkað til
vöruvcrðslækkunar og þá orðið
til betri nýtingar launanna fyrir
verkafólkið, og mundi sannarlega
ekki af veita og þá sérstaklega
ef atvinna minnkaði, sem hætta
er á að verði.
Frelsi er gott og frelsið þrá
um við til orða og athafna, en
of mikið frelsi getur leitt til ó-
farnaðar og falls. Það eru til
lög nauðsynleg lög, um bygging
ar skipa. Þess verður mjög að
gæta, að yfirbygging skips sé
ekki ávallt verið gætt, sem skyldi.
illa farið og eru þess sorgleg
dæmi, að réttrar hleðslu hefir
ekki ávallt verið gætt, sem skyldi
Sama gildir um þjóðarskútuna.
Þar má ekki vera um ofmikla
yfirbyggingu að ræða. Vegna
metafla undanfarinna ára og stöð
ugt hækkandi verðlags á aðal
útflutningsvörum okkar, hefir
þetta getajð gengið, en nú þeg
ar syrtir í álinn, um verð á af
urðum og afli kannski minnkandi
getur illa farið ef ekki er að gáð
í tíma.
Á þessum málum verða verka
lýðssamtökin að hafa góða gát.
Ef illa fer bitnar það fyrst og
fremst á verkafólkinu og þeim
er úr minnstu hafa að spila.
f dag gerum við kröfur um
aukið atvinnuöryggi, um hækk-
un launa og þá sérstaklega fyrir
sjómenn og aðrar þær stéttir
sem ekki fengu launahækkun á
sl. ári. Við krefjumst þess, að
verð á lífsnauðsynjum verði
lækkað að mun og skattar felld
ir niður af nauðþurftartekjum.
Samtök okkar skulum við efla
sem mest, og vinna áfram að auk
inni einingu innan verkalýðs
hreyfingarinnar. Nú eru kosning
ar framundan en um úrslit þar,
vil ég engu spá, en væntanlegri
ríkisstjórn, hver sem hún verð
ur, vil ég segja: að það verð
ur ekki stjórnað í andstöðu við
sameinuð verkalýðssamtök lands
ins.
Ég óska ykkur öllum gleðilegr
ar hátíðar og verkalýðssamtökun
um og þjóðinni í heild árna ég
velferðar í nútíð og framtíð.
Frímerki
Frh. úr opnu.
og þar á að venja þau á hrein-
Iæti og sparsemi, unz þau geta
sjálf séð sér farborða.”
k
Jón Þorkelsson rektor vann
alla ævi að aukinni menntun á
íslandi. Honum mun hafa verið
ljóst, að byrja þurfti á hinu unga
íslandi, börnunum. Með dánar-
gjöf sinni vildi hann leggja sitt
lóð á þá metaskál. Myndin á frí-
merkinu er af minnismerki, sem
Ríkharður Jónsson gerði, og reist
var fyrir nokkrum árum í Njarð-
T rúlof ynarhringar
Sendum gegn póstkröfu.
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastrætl 12.
SMURSTÖBIN
Sætúni 4 — Sírai 16-2-27
BHlinn er smnrður fljðít «g VW»
®ajm» alla? íctmaair a? smuroHtf
vík.
ALMENNUR
les
FUNDUR í IÐNÓ
FIMMTUDAGSMORGUN KL. 11 F.H.
Samband ungra jafnaðarmanna gengst fyrir almennum mótmælafundi
vegna valdaráns og einræðishersins í Grikklandi.
Framsögumenn:
Sig. A. Magnússon, rithöfundur.
Kristján Bersi Ólafsson, blaðam.
Fundarstjóri: Sigurður Guðmundsson, form. S.U.J.
Fundarritari: Hólmfríður Gunnarsdóttir, kennari.
Stjórn Sambands ungra jafnaðarmanna.
Sigurður A. Magnusson
Kristján Bersi Olafsson
Sigurður Guðmundsson
3. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |,5
l