Alþýðublaðið - 09.05.1967, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 09.05.1967, Qupperneq 10
Nýliðarnir í 7. deild, Fram sigruðu íslandsmeistara Vals Lið Fram vakti tölverða athygli fyrir léttan og skemmtilegan leik FYRSTI knattspyrnuleikur sum arsins í Reykjavíkurmótinu, sem hefjast skyldi 20. apríl sl. átti sér fyrst stað á sunnudagskvöld- ið var. Ástæðan fyrir drætti þess- um, voru veður válynd, sem gerðu aðstöðu alla hina erfiðustu og völlinn þannig, að út á hann var vart komið, nema að vaða aur- inn í mjóalegg. En slíkt er ekki einsdæmi, með völlinn um þetta leyti árs, og því mjög undir hæl- inn lagt, að „setja leiki á“ svo snemma. Hins vegar sýndi það sig, að það var ekki vonum fyrr en á sunnudaginn sl. að völlurinn væri kominn í nokkurn veginn viðun- andi keppnisástand, og má þó segja að vart leyfði þar af. En þrátt fyrir þessa augljósu staðreynd voru þeir til meðal „sér fræðilegra skibenta" um1' knatt- spyrnumálefni, sem létu sig ekki muna um, á ritvellinum að vaða tímanlegan elg órökstuddra dóma upp í klof, kalla slíkt tímabæra gagnrýni og bera Knattspyrnuráð Reykjavíkur hinum þyngstu sök- um, að það sæti yfir hlut knatt- spyrnuíþróttarinnar og drægi vilj- andi á langinn að láta mótið hefjast, o. s. frv. En nóg hér um að sinni. Snúum okkur heldur að hinum fyrsta leik vorsins sem var á milli Fram og Vals. Leikur inn var hinn fjörugasti, oft vel leikinn á báða bóga. Fyrri hálf leiknum lauk með jafntefli 1;1. Valsmenn skoruðu fyrst, er um 9 mínútur voru af leik. Sótt var hratt fram miðjuna. Ingvar sendi i laglega til Reynis, sem kominn var inná, og skaut þegar og skor aði fram hjá úthlaupandi mark- ; verði. Er 5 mín. voru eftir af jhálfleiknum jafnaði v.innh. Fram, jHelgi Hilmarsson, eftir snöggt 'upphlaup. Var skot Helga ágætt og erfitt að verjast iþví. í þessum hálfleik voru Valsmenn yfirleitt sóknharðari og léku jafnbetur, þó ekki tækist þeim að skora fleiri mörk, sem giltu. í síðari hálfleiknum hertu Fram arar sig að mun, sóttu fast á og gerðu hverja hríðina af annarri, að Valsvörninni, sem varðist þó yfirleitt vel með Þorstein’ Frið- þjófsson, sem bezta mann. Á 15 mín. munaði mjóu að Fram skor- ari, er snöggu og föstu skoti var beint að marki Vals og Gunn- laugur Hjálmarsson markvörður fékk ekki haldið boltanum, missti hann frá sér og miðframherji Fram náði að skjóta, en yfir. Hins vegar kom sigurmark Fram stuttu síðar. Það var Einar Árnason h.úth., sem skoraði, eftir snögga skiptingu, milli hans og Hreins miðherja, sem átti góða sendingu uppað markinu en Einar afgreiddi bolt ann viðstöðulaust í netið. Þannig lauk þessum fyrsta vor- leik knattspyrnunnar að þessu sinni, með sigri hins unga Fram liðs, þar sem meðalaldur mun vera um tvítugt. Meðal þeirra sem athygli vöktu í Framliðinu, voru báðir útherjarnir, þeir Elm ar og Einar og Helgi Hilmarsson v. innherji svo og Sigurður Frið- riksson miðframvörður. Ekki lék það heldur á tveim tungum hvoru megin liðs, meira var þolið er fram í sótti, því það var undirstaðan að sigri Fram. Það hefur um of einkennt ísl. knattspymulið, bæði Valsliðið og fleiri, að þau virðast gleyma því að kappleikur er tveir hálf- leikir og til þess að standa sig þarf að miðla þoli til beggja. Það er næstum aumkunarvert að sjá knattspymumenn í kappleik, rétt geta drattast áfram dauðupp gefna síðari 45 mínúturnar, og geta ekki framkvæmt skammlaust einföldustu atriði íþróttarinnar vegna aflleysis, en láta gjarnan í þess stað koma fruntalegar að- gerðir gagnvart mótherja, sem eru hvað ljósust dæmi minnimátt arkenndar. Knattspyrnan er erf- ið íþrótt, sem krefst réttar síns, eigi að framkvæma hana að rétt um lögum. Getan og þolið hverju sinni er þar um ólýgnust. Dómari var Magnús Pétursson og dæmdi rétt vel. EB. Frá leik Fram og Vals. Akranes sigraði Kefla- vík með yfirburðum 4:0 10 9- maí 1967 Frá leik Fram og Vals. - ALÞÝÐUBLAÐIÐ JAFNTEFLI BREIÐABLIKS OG HAFNFIRÐINGA 4:4 Tveir leikir fóru fram í Litlu bikarkeppninni á sunnudag Akur nesingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Keflvíkinga á heimavelli þeirra síðarnefndu með 4 mörkum gegn engu. Þá gerðu Breiðabliks menn og Hafnfirðingar jafntefii á Hafnarfjarðarvelli, 4 mörk gegn 4. Aðeins einum leik er ólokið í keppninni milli Hafnfirðinga og Akurnesinga. hann fer fram á ann an í hvítasunnu, Sigri Akurnesing ar verða þeir og Keflvíkingar að leika aukaleik um sigurinn. ★ AKRANES — KEFLAVÍK 4:0 Yfirburðwsigur Akurn)efei'ng|á kom mjög á óvart, en að nokkrum mínútum liðnum höl'ðu Akurnes ingar skorað tvívegfs, Guðjón Guðmundsson gerði bæði mörkin upp úr aukaspyrnu rétt utan við vitateig. í búðum tilfellum varð misskilningur milli Kjartans mark varðar og Keflavíkurvarnarinnar, Guðjón komst á milli og skallaði í netið. Þannig lauk fyrri hálfleik 2:0 fyrir Akranes. Keflavík sótti mun meira, en vörn Skagamanna var þétt fyrir með Einar Guðleifs son sem bezta mann og tókst að halda markinu hreinu. í síðari hálfleik bættu Akurnes ingar tveim mörkum við, Rúnar og Matthías skoruðu, en vörn Kefl víkinga var illa staðsett. Þessi sigur Akurnesinga var nokkuð mikill miðað við tækifæri, en ekki var vafi á því, að þeir voru sterkari aðilinn í leiknum með Björn Lárusson, Guðjón Guð- mundsson og Einar í markinu sem ;KR vann Þrótt 3:1 KR-ingar sigruðu Þrótt með 3 mörkum gegn 1 í öðrum leik Reykjavíkurmótsins, sem fram fór á melavellinum í gærkvöldi. í hálfleik skoraði KR eitt mark en. Þrótti tókst ekki að skora. í síðari hálfleik skoruðu KR-ingar tvívegis, en Þróttur einu sinni. Nánar á morgun. beztru menn. Keflvíkingar áttu frekar síæman dag. ★ BREIÐABLIK — HAFNAR- FJÖRÐUR 4:4 Breiðablik virðist ganga illa gegn Hafnfirðingum, þeir hafa sigrað Keflvíkinga og gert tvíveg is jafntefli við Akurnesinga, en aðeins hlotið eitt stig í tveim'leikj um við Hafnfirðinga. Leikurinn á sunnudag milli Breiað bliks og Hafnfii'ðinga var hinn fjörugasti og lauk með jafntefli, sem teija verður réttlát úrslit. Fyrsta mark leiksins gerði Guð mundur Þórðarson fyrir Breiða blik, en Viðar Símonarson jafnaði úr vítaspyrnu. Guðmundur færði Breiðabliki aftur forystu, en fyrir hlé tókst Hafnfirðingum að skora tvívegis, þannig að staðan í hléi var 3:2 fyrir Hafnarfjörð. Þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn af síðari hálfleik bættu Hafnfirðingar fjórða markinu við og allt útlit var fyrir sigur þeirra. En á síðustu mínútum tókst Breiða bliksmönnum að jafna. Jón Ingi Ragnarsson gerði bæði mörkin. f ★ STAÐAN í KEPPNINNI. Keflavík 6 4 0 2 8:6 8 Akranes 5 2 2 1 11:7 6 Breiðablik 6 1 3 211:13 5 Hafnaríjörður 5 113 11:15 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.