Alþýðublaðið - 12.05.1967, Page 3
SÆBJÖRG
AFLAHÆST
ÍEYJUM
ÁFORMAÐI ÍTALÍUFORSEíl
BYLTINGU SUMARIÐ 1964?
Reykvíkingar hafa undan-
farna daga notið góða veð-
ursins, enda satt að segja
tími til kominn að kuld-
unum linnti. Það var líka
eins og nýtt líf færöist í
borgina, þegar sumarveðrið
kom allt í einu. göturnar
fylltust af fólki og sumír
gengu jafnvel um léttklædd-
ir eins og þeir væru komn-
ir eitthvaö suður í lönd. Það
gera þessar stúlkur reyndar
ekki, en þær Iiafa sett upp
sólgleraugu, sem er líka
sumartákn, og í öllu falli
þótti okkur þetta svo mynd-
arlegar stúlkur að við gát-
um ekki stillt okkur um að
birta myndina, en hana tók
Bjarnleifur á göngu sinni
um bæinn í sólskininu í
fyrradag.
WASHINGTON, 11, maí (NTB-
Reuter).
Bandaríska orustuskipið „Walk
er“ lenti í árekstri við sovézkt or
ustuskip á JapanskaSó.,
ustuskip á Japanshafi í dag, ann
an daginn í röð. Sovétstjórninni
voru send harðörð mótmæli vegna
atburðarins.
Orustuskipin strukust saman á
mikilli ferð, engan sakaði og tjón
varð lítið.
Rússar og bandaríkjamenn liafa
oft að undanförnu sent hvor öðr-
um harðorð mótmæli vegna ögr-
andi framferðis skipa og flugvéla
á alþjóðlegum siglingaleiðum.
Róm 11. maí (NTB-Reuter)
Ritstjóri ítalska vikublaðsins „I
‘Espresso“, Scelfari, hefur sakað
Antonio Segni fyrrum forseta um
að hafa áformað byltingu ásamt
herforingjum 1964 og kveðst reiðu
búinn að leggja fram skjalfestar
sannanir fyrir staðhæfingum sín
um. Mál þetta er líklegt til að
valda miklum stjórnmáladeilum
á Ítalíu.
Blaðið segir, að Segni fv. for
seti hafi ráðgert byltinguna vegna
hinnar langvinnu stjórnarkreppu
sumarið 1964 og haft forseta her
ráðsins, de Lorenzo hershöfðingja
með í ráðum. Þeir hafi ætlað að
skipa hernum að leggja undir sig
skrifstofur stjórnmálaflokkanna og
handtaka leiðtoga þeirra. Síðan
hafi átt' að mynda stjórn aðals
manna og herforingja.
De Lorenzo var nýiega vikið úr
embætti og var brottvikning lians
talin standa í sambandi við mikl
ar deilur sem risið hafa vegna upp
Ijóstrana um að ítalska leyniþjón
ustan njósni um ítalska stjórnmála
menn og að upplýsingar úr spjald
skrám leyniþjónustunnar hafi sí-
azt út til dagblaðanna og annarra
aðila.
Akureyri, SJ.
Karlakórinn Geysir hélt sam-
söng á Akureyri síðastliðin mánu-
dags- og þriðjudagskvöld. Söng-
stjórar voru Jan Kisa og Árni
In'gimundarson, undirleikarar
voru frú Þórunn Ingimundardótt-
ir og Árni Ingimundarson. Á söng
skránni voru 15 íslenzk og erlend
lög. Einsöngvarar á samsöngnum
voru Sigurður Svanbergsson, Jó-
hann Konráðsson, Aðalsteinn
Jónsson, Freyr Ófeigsson og Lár
us Haraldsson.
Akureyringar fjölmenntu á sam
sönginn og var listamönnunum á-
kaflega vel tokið.
Englandsbanki
innkallar seðla
Englandsbanki tilkynnir, að 5
punda seðlar útgefnir á árunum
1957—1963 verði innkallaðir 26.
júní 1967. Seðlarnir eru með and-
litsmynd af ,,Britanniu“ og eru
bláir að lit. Innköllun þessi á
ekki við seðla, sem gefnir hafa
verið út eftir 1963 og bera mynd
af Elísabetu II., Englandsdrottn-
ingu.
Seðlarnir verða í gildi til og
með 26. júní n.k. og er mönnum
bent á að skipta þeim innan þess
tíma. Eftir ofangreindan dag verða
seðlarnir ekki gjaldgengir, en
hægt verður að fá þeim skipt á
aðalskrifstofu Englandsbanka.
Frá Seðlabankanum.
Bæði forseti og forsætisráðherra
Italíu neituðu því, að upplýsingar
,,I‘Espresso“ væru sannar fyrst
þegar þær birtust í blaðinu, en
ritstjórinn staðhæfði á móti að
þær væru réttar.
Rvík SJÓ.
Hinar árlegu kappreiðar hesta-
mannafélagsins Fáks verða haldn-
at á Skeiðvellinum á annan dag
hvítasunnu og hefst kl. 2.
Keppt verður í skeiði, fola-
hlaupi 250 m., 350 m. og 800 m.
stökki. Auk þess verður góðhesta-
keppni. Sú breyting hefur orðið
á frá því í fyrra, að nú er keppt
í 350 m. hlaupi í stað 300 m.
Vm, ES.
Nú er komið að vetrarvertíðar-
lokum í Vestmannaeyjum. Flestir
bátar eru hættir róðrum. Tíð hef-
ur verið afar slæm í allan vetur
í Vestmanneyjum, en segja má,
að flestum bátum hafi gengið all-
sæmilega miðað við hina erfiðu
tíð. Aflahæsti bátur vetrarvertíð-
aiinnar í Vestmannaeyjum er Sæ-
björg, VE. Skipstjóri á Sæbjörg-
inni er Hilmar Rósmundsson og
mun vera aflakóngur í Vestmanna
eyjum á þessari vetrarvertíð. Ver
tíðarafli Sæbjargar VE er orðinn
965 tonn. Aflahæsti bátur á vetr-
arvertíðinni í Vestmannaey.jum í
fyrra var með 725 tonna afla.
Nokkra síðustu daga liefur ver-
ið gott veður í Vestmannaeyjum
og fékk Sæbjörgin 16 tonn á línu
í gær en 17 tonn í fyrradag. Marg
ir bátar hafa fengið sæmilegan
afla í nót síðustu daga, en flest-
ir þeirra eru nú hættir veiðum.
Fleira aðkomufólk hefur
verið í Vestmannaeyjum í vetur,
en oft áður. Flestir eru nú farnir.
Þeir bátar, sem nú eru á veið-
um eru á trolli og línu. Þó vertíð
sé nú lokið í Eyjum er nóg
atvinna.
áður. Fleiri hestar taka þátt í þess
um kappreiðum en í fyrra eða
46 í hlaupum og 12 í góðhesta-
keppni. Meðal landsþekktra afreks
hesta, sem taka þátt í kappreiðun-
um má nefna Hroll Sigurðar Ól-
afssonar, sem keppir í skeíði, og
hlaupagammana Ölvald) eign Sig-
urðar Tómassonar, er sigraði í 300
m. á landsmótinu á Hólum og Þyt
Framhald á bl. 14.
Skemmtifundur
KVENFÉLAG ALÞýÐUFLOKKSINS í Hafnarfirði heldur
skcmmtifund í Alþýðuhúsinu næstkomandi þriðjudagskvöld,
16. maí, kl. 8,30 síðdegis.
SKEMMTIATRIÐI:
1. Ávarp: Jón Ármann Héðinsson, viðskiptafræð-
ingur.
2. Upplestur; Frú Hulda Runólfsdóttir, leikkona.
3. Söngur: Guðmundur Guðjónsson, óperusöngvari.
4. Leikþáttur: Róbert og Rúrik.
5. Ávarp: Stefán Júlíusson, rithöfundur.
Kaffidrykkja. — Allt Alþýðuflokksiölk velkomið meðan
húsrúm leyfir.
SKEMMTINEFNDIN.
Kosni ngaskrifstofa Al þýðuflokksins
Utankjörfundakosning
i
KOSNINGASKRIFSTOFA ALÞYÐUFLOKKSINS er að Hverf
isgötu 4. Símar 11260 — 10671.
Stuðningsfólk Alþýðuflokksins er beðið að liafa sam-
band við skrifstofuna, og gefa henni upplýsingar um það
fólk sem verður fjarverandi á kjördegi.
Kappreiðar Fáks
um hvítasunnuna
12. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3