Alþýðublaðið - 21.05.1967, Page 8
8
21. maí 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÁR EFTIR ÁR dreymdi hann um
aS fá aö leika ástarhlutverk. Og
þegar draumurinn rættist loksins,
var það ekki minni stjarna en sjálf
Sophia Loren sem hann fékk að
elska í myndinni Happily Ever
After þar sem hann leikur róman-
tískan prins og hún betlarastúlku
sem endar í hásætinu við íhlið
hans. En jafnvel þetta nægir hon-
um ekki. Nú á hann sér annan
draum — að fá að leika hlutverk
í venjulegum jakkafötum með hvít
an flibba um hálsinn!
Omar Sharif er einn af eftirsótt
ustu leikurum heimsins í dag.
Hann hlaut Oscar-verðlaunin fyr-
ir leik sinn í Lawrence of Arabia
sem mótieikari Peter’s O’Too'le, og
hann var úinefndur sem einn af
beztu leikurum ársins. fyrir Dokt-
or Zhivago, þó að Oscarinn hlotn-
aðist öðrum í það skiptið. Og nú
er hann svo umsetinn af áköfum
kvikmyndaframleiðendum að
hann fær ekki stundlegan frið.
Hann er fús til að leika suðræna
elskhuga og ekki-elskíhuga af öllu
tagi, en hann neitar afdráttarlaust
að leika fleiri eyðimerkurhöfð-
ingja í bili.
Omar er þrjátíu og fimm ára
gamall, egypzkur- að þjóðerni,
glæsilegur maður með mikla per-
sónutöfra, talar reiprennandi fjög-
ur tungumál og hefur langa
reynslu að baki sem leikari, fyrst
á sviði í Kairó, þar sem hann lék í
frönskum nútímaleikritum, og síð-
an í tuttugu og fimm egypzkum
kvikmyndum þar sem hann varð
fljótlega eins konar Rock Hudson
Egyptalands. Svo kom Lawrence
of Arabia, og nú stendur Omar á
hátindi velgengninnar.
Frægðin hefur líka 'haft sín nei-
kvæðu áhrif. Hjónabandið er bú-
ið að vera, hann er kominn með
magasár, taugarnar eru í rúst, og
hann reykir tvo pakka af sígarett-
um á dag, þó að læknarnir banni
honum algjörlega að snerta á
slíku. ,,Ég er búinn að missa alla
mína öryggiskennd“, segir hann
sjálfur. „Aldrei verið eins tauga-
spenntur á ævi minni. En óg er af-
skaplega ánægður, þegar ég 'hef
tíma til að hugsa um það.“
Hann fæddist í Kairó, og hið
rétta nafn hans er Michel Chal-
houb. Flann gekk í enskan skóla,
talaði frönsku heima hjá sér og
varð að æfa sig duglega til að tala
ekki arabískuna með erlendum
hreim þegar hann byrjaði að leika
í egypzkum kvikmyndum. Þótt svo
virtist í Lawrence of Arabia sem
hann hefði ekki gert annað um
ævina en þeysa á úlföldum fram
og aftur um sandana, var það að-
eins 'góður leikur — áður en hann
tók að sér það hlutverk hafði 'hann
aldrei stigið á bak úlfalda og
meira að segja aldrei komið út í
eyðimörkina.
Faðir hans var timburkaupmað-
ur og vildi láta soninn taka við af
sér. Omar var verzlunarstjóri í
þrjú ár og seldi allt með tapi; og
á endanum varð honum að ósk
sinni þegar faðir hans rak hann
úr vinnunni. Þá byrjaði hann að
leika á sviði og fékk góða þjálfun
í frönskum leikritum. Bráðlega
bauðst honum hlutverk í egypzkri
kvikmynd á móti Faten Hamama
sem þá var helzta stjarna Egypta-
lands. Þau giftu sig árið 1955 og
eignuðust son sem lék smáhlut-
ir Tarek og er núna tíu ára gam-
all og gengur í skóla í Sviss.
' ,,Ég vildi, að Tarek yrði leik-
ari,“ segir Omar. ,,Hann segist
ætla að verða flugmaður eða skip-
stjóri. En ef hann yrði leikari
gæti ég hjálpað 'honum svo mikið,
gefið honum góð ráð og átt margt
sameiginlegt með honum — þetta
er ákaflega eigingjörn ósk, ég veit
það vel, en svona eru feður . . .
pabbi vildi alls ekki, að ég yrði
leikari. Kannski endar Tarek sem
timburkaupmaður!“
Þau búa ekki lengur saman, Fa-
ten og hann, en hafa 'ákveðið að
hirða ekki um lögskilnað fyrr en
annað hvort þeirra vill gifta sig
aftur. Það er enginn vandi fyrir
Múhameðstrúarmenn að fá skilnað
að lögum, svo að þetta er ekkert
airiði.
;,Jú, auðvitað langar mig til að
gifta mig aftur.“, játar Omar hrein
skiln-islega. ,,En ég hef hvorki haft
tíma né tækifæri til þess síðustu
árin —'ég hef ekki einu sinni feng
ið sumarfrí síðan 1961. Lífið hef-
ur verið tóm vinna og ferðalög;
ég hef ekki getað kynnzt neinni
konu vel. En ég veit líka, að það
þýðir ekki að leita sér að konu til
að elska — hún verður bara að
birtast þegar hinn rétti tími er
kominn. Ég bíð átekta og læt ör-
lögin ráða.“
Hann sást oft í fylgd með Bett-
inu síðastliðið ár, hinni frægu,
frönsku fyrirsætu og vinkonu Ali
Khan. En það var ekkert alvarlegt;
þau fóru saman á veðreiðar öðru
hverju og urðu góðir kunningjar.
Bettina hafði elcki farið á veðreið-
ar síðan Ali Khan dó, en hún hafði
vit á hestum og hjálpaði Omari að
velja úrvalshesta til kaups. Hann
á fjóra, og þeir hafa staðið sig
prýðilega til þessa. Litir hans eru
bleikt og svart. „Uppáhaldslitirnir
mínir. Bleikt er kvenlegt, séart er
karlmannlegt. Ég er hrifinn af kon
um sem fer vel bleikt. Og svart er
minn litur — ég var svartklæddur
í Lawrence of Arabia og vil 'helzt
alltaf vera það síðan. Ég er ógur-
lega hjátrúarfullur og trúi á svart
og bleikt sem gæfuliti."
Enda þótt Omar hefði leikið
fjöldamörg elskhugahlutverk í
egypzkum- myndum fékk hann eng
in rómantísk hlutverk þegar Siann
byrjaði í vestrænum myndum. í
Lawrence of Arabia hafði hann
ekki annað on úlfaldann sinn til
að hugga sig við, í Fall Róma-
veldis var hann að vísu kvæntur
Sofiu Loren, en hún var bara ekk-
ert ástfangin af eiginmanni sínum,
í Behoid a Pale Horse lék hann
kaþólskan prest, í The Night of
the Generals léku bæði hann og
Peter O’Toole nazistaforingja,
og þar vatr engin ást í spilinu. Það
lagaðist með Doktor Zhivago þeg-
ar hann fékk Geraldine Chaplin
og Julie Christie sem mótstjörn-
ur, og loks fékk hann raunveru-
legt ástarhlutverk á móti Sofiu
Loren í Happily Ever After. Og
nú streynaa tilboðin inn. Honum
hefur verið boðið aðalhlutverk í
öllum helztu kvikmyndum sem á
að framleiða £ ár, meðal annars
Wuthering- Heights sem Laurence
Olivier lék snilldarlega í á sínum
tíma. Omar var fljótur að neita
því tilboöi; hann kærði sig ekki
um samanburð við Olivier. Aftur á
móti hefur hann ákafa löngun til
að leika a.m.k. einu sinni í venju-
legum nútímaklæðnaði.
,,Það bezta sem Zhivago gerði
fyrir mig„“ segir hann, ,,var að
sýna mig sem Evrópumann án
nokkurrar falskrar rómantíkur.“
En Omar er kænn. Hann gerir
sér mætavel ljóst, að aðdráttar-
afl hans er meðal annars í því
fólgið, að hann er ekki Evrópu-
maður.
„Það er framandlegi blærinn,
sem þykir töfrandi," viðurkennir
hann brosandi. ,,Ég er spennandi,
ólíkur öðrum, einstæður . . . þang
að til næsti Ali, Ahmed eða Mu-
stafa kemur fram á sjónarsviðið
Egypzka leikarann OMAR SHARIF dreymir um
hlutverk í venjulegum nútímaklæðnaði