Alþýðublaðið - 21.05.1967, Qupperneq 14
14
21. maí 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Listamannalaun
Frh. af. 7. síðu.
verulegt starfsfé, einungis nota-
leg uppbót á aðrar tekjur; starf-
styrkir, ef til kæmu, þyrftu að
nema til muna hærri uppliæðum.
Eðlilegast væri vitaskuld að að-
greina þetta tvennt' með öllu; nýtt
starfstyrkjakerfi, ef til þess væri
stofnað, kynni að reynast upphaf
þess.
En að vísu væri óþarfi að
stofna nýtt kerfi, nýja nefnd, nýja
útlilutun til að koma þessari hug-
mynd í kring; til þess dygði ein-
föld breyting á' núgildandi launa-
kerfi sem hér segir: í stað þess
að veita hæstu launaupphæð, t. d.
100 þúsund krónur, í heiðursskyni
skulu heiðurslaun hér eftir ein-
skorðuð við lægstu upphæðina, t'.
d. 30 þúsund krónur. Miðflokk-
inn skipa listamenn sem talið er
vert að viðurkenna, styðja og upp-
örva í starfi sfnu að staðaldri þótt
enn verðskuldi þeir ekki hinn
hæsta heiður. En hæstu uppliæð-
ina skyldu einungis hljóta ungir
listamenn, þeir sem á hverjum
tíma eru taldir álitlegastir, þess-
legir að geta með tíð og tíma skip-
að heiðursflokkinn.
Þessi tilhögun hefði þá kosti
með sér að beina fénu þangað sem
það kæmi maklegast niður: ungir
menn eru aö jafnaði í meiri fjár-
þröng en rosknir og reyndir menn,
sem vísast eiga einhverjar álnir
f.vrir; laun þessi yrðu launþegun-
um að því skapi meiri styrkur og
uppörvun til dáða. En bróðuhpart-
ur launanna í heild gæti eftir sem
áður farið til að styrkja þann
þorra listamanna sem dómnefnd
teidi hvorki verðskulda að sinni
sérstakan heiður né aulcalega upp-
örvun; þaðan mætti að vísu eng-
um manni hagga nema niður í heið
ursflokkinn. Þessi breyting hefði
sem sé einnig þann siðferðilega
tilgang að undirstrika opinberlega
að andleg verðmæti verði ekki
métin til fjár né viðurkenning af
opinberri háifu mæld krónutölu;
eftii sem áður væri hinn fámenni
heiðursflokkur kjörinn sér á parti
aí hinu háa Alþingi, hæstur að
virðingu og að því leyti eftir-
sóknarverðastur; en í launa-
hæsta flokknum væru einungis
menn sem vert þætti að styðja á-
leiðis í ’ina virðingameiri flokkana.
Til að koma á þessari fjárhags-
legu og siðferðilegu framför list-
launa þyrfti enga athugun, enga
nýja rannsókn né álitsgerð heldur
gaeti tilkomandi úthlutunarnefnd
og Alþingi tekið hana upp af
sjálfsdáðum. Nýja kerfið yrði að
vísu ekki fullkomið frekar en hið
fyrra, en það þyrfti heldur ekki
annars við en hið fyrra til að koma
að fullu gagni: meiri pen-
inga. — ó. J.
Ungt fólk
Frh. af 6. síðu.
Einar Bragi í Þjóðviljanum 22.
3.’58 :
„í svörtum kufli er býsna
sundurleit bók, en vekur miklar
vonir. Höfundurinn er skáldlega
vaxinn: á allríka náttúrugáfu, hef-
ur gott vald á máli, og það eru í
lionum umbrot sem spá góðu, þó
að þau komi sér kannski illa í
skólum sem hafa útþurrkun ein-
staklingseðlisins að æðsta marki.
Margur sem síðar reyndist lið-
tækur Ijóðamaður hafði ekki um
tvítugt komizt með tærnar þang-
að sem Þorsteinn hefur hælana.”
Og Þorsteinn Þorsteinsson seg-
ir í Tímariti Máls og menningar
um aðra Ijóðabók Þorsteins frá
Hamri:
„Tannfé lianda nýjum heimi
er meira en athyglisverð bók:
hún hefur að mínum dómi að
geyma kvæði sem telja verður
meðal þeirra allrabeztu sem ort
hafa verið á íslenzku á síðustu
árum.”
Dauðadæmd
Frh. úr opnu.
getur ekki einu sinni náð bílprófi,
þótt hún liafi farið í fjöldann all-
an af bíltímum.
Hún segist ekkert kunna og ekk
ert muna, og er ástæðulaust að
efast um sannleiksgildi þessa. Hún
les aldrei blöð, nennir því ekki,
því síður bækur.
Þessi unga, fallega stúlka seg-
ist vera lirædd. Hrædd við frægð-
ina, hrædd við að glata frægðinni.
Hrædd við ellina, hrædd við dauð
ann.
Hún segist Ihafa verið hamingju
samari, þegar hún leitaði um
London að næturstað undir ber-
um himni, en nú, þegar hún baðar
í milljónum og liggur á gulli, sem
hún veit, að einhvern tíma verður
frá henni tekið. Það er eins víst
eins og ellin kemur og dauðinn að
lokum, þótt hún sé hrædd.
AUGLÝSIÐ
í Alþýðublaðinu
VALVIÐUR SF. AUGLYSIR
Verzlunin er flutt. Höfum opnað í nýjum
húsakynnum að
Suðurlandsbraut 12.
Símanúmer breytist og verður 82218. Mikið
af nýjum vörum til innréttinga.
VALVIÐUR SF.
Suðurlandsbraut 12, — Sími 82218.
SkógræktarferB
til Noregs
Á vegum Skógræktarfélags íslands verður
efnt til skógræktarferðar til Noregs í sumair.
Farið verður með flugvél 7. ágúst og dvalíð í
Noregi við skógræktarstörf til 21. ágúst. Þátt-
tökugjald verður kr. 5.800.00 á mann.
Skógræktarfélag Reykj^ivíkur á kost á því
að senda 7 þátttakendur. Félagsmenn sem á-
huga hafa á þátttöku, sendi umsóknir til
Skógræktarfélags Reykjavíkur, Fossvogs-
bletti 1, fyrir 1. júní n.k.
Skógræktarfélag Reykjavíkur.
H0SNÆÐISMALAST0FNUN
ríkisins Mmmrn
í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 28. júll
1965, er hafin í Reykjavík bygging 312 íbúða í fjölbýlis-
húsum í Breiðholti. Gert er ráð fyrir að íbúðir þessar verði
afhentar fullbúnar á tímabilinu 15. desember 1967 til 15.
júli 1968. Ennfremur verða byggð 23 einbýlishús (innflutt
timburhús) sem gert er ráð fyrir að verði til afhendingar
í desember-mánuði og janúar-mánuði 1968.
Samkvæmt 15. gr. reglugerðar sem Félagsmálaráðuneytið
hefur hinn 28. apríl 1967 sett um ofangreindar íbúðabygg
ingar skulu þær 260 íbúðir, sem Húsnæðismálastofnun rík-
isins ráðstafar, seldar láglaunafólki sem er í verkalýðs-
félögunum í Reykjavík auk 23 einbýlishúsa. Ennfremur
er heimilt að gefa kvæntum iðnncmum kost á íbúum þess
um.
Þeir sem telja sig eiga rétt til kaupa á íbúðum þcim, sem
að framan greinir, geta sótt umsóknareyðublöð í skrif-
stofu Húsnæðismálastofnunar ríkisins, Laugaveg 77, ásamt
teikningu og lýsingu á íbúðunum, upplýsingum um sölu-
og grciðsluskilmála. Verða gögn þessi til afhcndingar eftir
þriðjudaginn 23. n.k.
Umsóknir skulu berast Húsnæðismálastofnun rikisins eigi
síðar en fyrir kl. 17.00 hinn 15. júní n.k.
Reykjavík, 20. maí 1967.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RlKISINS
LAUGAVEGI77, SÍMI22453