Alþýðublaðið - 23.05.1967, Qupperneq 2
KOSNINGASKRIFSTOFUR
EEYKJAVÍK:
SuSurlandsbraut 12, opið daglega kl. 5-10, sunnudaga kl. 2-0.
SÍMAR; 81220 — 81222 — 81223 — t 81224 — 81228 —
81230 — 81283.
Hverfisgötu 4 opið daglega kji. 10-10, sunnudaga kl. 2-6.
SÍMAR: 11260 — 10671.
Upplýsingar um kjörskrá og aðstoð vegna utankjörfundarat-
kvæðagreiðslu er veitt á skrifstofunni að Hverfisgötu 4.
REYKJANESKJÖRDÆMI:
Alþýðuhúsinu, Strandgötu 32, Hafnarfirði, opið daglega kl.
14-22. SÍMI; 50499.
Auðbrekku 50, Kópavogi. opið daglega kl. 16-19. SÍMI: 42419.
Smaraflöt 9, Garðahreppi, opið eftir kl. 7 síðdegis. SÍMAR:
42556 og 42557.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI:
Félagsheimilinu Röst, Akranesi, opið kl. 13-19 og 20-23.
SÍMI: 1710.
NORÐURLAND VESTRA;
Borgarkaffi, Siglufirði. SÍMI: 71402.
Knarrarstíg 1, Sauðárkróki. SÍMI: 61.
NOIUOURLAND EYSTRA:
Strandgata 9, Akureyri, opið kl. 9-19 og 20-22. SÍMI: 21322.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI:
Nesgata 3, Neskaupstað, opið daglega kl. 16-19. SÍMI: 274.
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI:
Heimagata 4, Vestmannaeyjum, opið daglega kl. 17-19.
SÍMI: 1060.
Austurvegi (gömlu símstöðinni), Selfossi. Opið daglega kl. 17-
22. SÍMI 1630.
Hafnargötu 79, Keflavík. SÍMI: 1212.
Kosningaskrifstofurnar veita upplýsingar nm kjörskrá og að
stoða við utankjörfundarkosningu. — Alþýðuflokksfólk er
favatt til að hafa samband við skrifstofurnar og gefa allar
þær upplýsingar, sem að gagni mega verða.
Hjartaverndarfél-
ögin nú orðin 22.
Rvík, S.TÓ.
UmferOarslys varS á laugar-
dagskvöldið á móts viS hús nr.
78 á Laugavegi.
Þar óku fólksbifreið og stræt-
isvagn samhliða á hægri akrein
og var fólksbíllinn á undan.
Skyndilega sveigði fólksbíllinn tll
hægri og hægði um leið á ferð-
inni. Skipti þá engum togum, að
strætisvagninn lenti aftan á hon-
um og varð það harður árekstur.
Við áreksturinn valt fólksbíllinn
á hliðina og skemmdist talsvert.
í fólksbílnum slösuðust tvær
stúlkur og varð að flytja þær á
slysavarðstofuna. Einnig voru
tveir karlmenn í bílnum, en þeir
sluppu ómeiddir.
Þessa mynd tók Bjamleifur, er
verið var að ná stúlkunum út úr
bílnum.
Hjartavernd, landssamtök hjarta-
og æðavemdarfélaga á íslandi,
hélt aðalfund sinn laugardagim,n
29. apríl sl. í Bláasal Hótel Sögu.
Fundinn sóttu fulltrúar hinna
ýmsu svæðafélaga, sem nú eru 22
að t'ölu. Formaður samtakanna,
prófessor Sigurður Samúelsson,
setti fundinn og bauð fundarmenn
velkomna. í upphafi máls síns
minntist prófessor Sigurður
tveggja látinna forvígismanna
Hjartavemdar, þeirra Eggerts
heitins Kristjánssonar, stórkaup-
manns, sem var einn af hvata-
mönnum að stofnun samtakanna
og átti sæti í stjóm og fram-
kvæmdastjóm samtakanna frá
stofnun þeirra til dauðadags og
Helga heitins Þorsteinssonar,
framkvæmdastjóra, sem var einn
af stofnendum samtalcanna og
átti sæti í fjáröflunarnefnd sam-
takanna. Fundarmenn risu úr
sætum, til að votta hinum látnu
brautryðjendum virðingu sína.
Fundarstjóri var kosinn Páll
Sigurðsson, tryggingayfirlæknir
og fundarritari Helgi Þorláksson,
skólastjóri. Próf. Sigurður Sam-
úelsson, formaður samtakanna,
flutti skýrslu framkvæmdastjórn-
arinnar. Eins og áður hefur verið
igetið um í fréttum, keyptu sam-
tökin, snemma á árinu 1965, tvær
hæðir í há'hýsinu Lágmúla 9,
Reykjavík, undir rannsóknarstöð
samtakanna. í skýrslu sinni gat
próf. Sigurður þess, að mikið starf
hjá framkvæmdastjórninni hefði
farið í byggingamálin, hins vegar
væri húsnæði það, sem Hjarta-
vernd keypti að Lágmúla 9, nú
að mestu búið og innréttingumi
lokið.
Að stöðinni hafa nú verið háðn-
ir læknarnir Ólafur Ólafsson og
Nikulás Sigfússon, sem báðir hafa
dvalið erlendis og kynnt sér sér-
staklega í Svíþjóð og víðar hlið-
stæðar rannsóknir og Hjartavemd
hyggst framkvæma. Þá hefir Elín
borg Ingólfsdóttir, hjúkrunarkona
verið ráðin að stöðinni, en Elín-
borg hefur dvalist í Svíþjóð og
kynnt sér þar og unnið við 'hlið-
stæðar rannsóknir.
Samtökin hafa gefið út fræðslu
ritið Hjartavemd, en alls hafa
komið út af því 6. tölublöð, þat
af 3 á árinu 1966.
Framhald á 14. síðu.
Starf forstjóra
Norræna hússins
Stjórn Norræna hússins hefir
ákveðið að auglýsa laust til um-
sóknar starf forstjóra stofnunar-
innar, og er starfið auglýst á öll
um Norðurlöndum. Starf for-
stjórans er ákveðið í samþykkt-
um fyrir stofnunina. Er það fólg
BILVELTA
Rvík, — SJÓ.
Um helgina gerðigt það, að
vöruflutningabíll valt í Kömbum.
Var bíllinn staddur neðarlega.
er þetta gerðist. Missti ökumaður
allt í einu vald á bifreiðinni,
sem fór eina veltu og kom nið-
ur á hliðina. Ökumaðntrinn rif-
beinsbrotnaði og hlaut nokkrar
skrámur. Farþegi, sem var í bíln
um slapp hins vegar mjög veL
BUhúsið lagðist næstum saman
viX vplfnna
ið í að veita forstöðu þeirri starf
semi, sem fram fer í stofnuninni,
en henni er ætlað að stuðla að
norrænum menningarmálum svo
og að stuðla að aukinni þekk-
ingu og áhuga manna á hinum
Norðurlöndunum á islenzkrl
menningu. Umsækjandi skal hafa
lokið liáskólaprófi og hafa gott
vald á einu norrænu tungumáli
og a. m. k. nokkra þekkingu á ís-
lenzkri tungu. Starfið verður veitf
frá 1. janúar 1968 til fjögurra
ára og er hægt að endurráða for-
stjórann eftir lok þess tíma
Árslaun eru 322.000,oo ísl. kr.
og nýtur forstjóri leigulausrar í-
búðar í Norræna húsinu eftir
að hún er tilbúin. Umsóknir um
starfið ber að senda til háskóla-
rektors Ármanns Snævars fyrir
15. júlí n.k.
3 23. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ