Alþýðublaðið - 23.05.1967, Blaðsíða 7
t51§ íd Ss! Æb Slíí
Útgefandi: Sam-
band ungra Jafnað-
armanna
Unnar Stefánsson, viffskipta-
fræðingur, slcipar efsta sæti á lista
Alþýðuflokksins í Suðurlandskjör-
dæmi.
Unnar er fæddur 20. apríl 1934
á Neskaupstað og- er af vestfirzku
og sunnlenzku bergi brotinn. Á
öðru ári fluttist hann með foreldr-
um sínum til Hveragerðis og ólst
Þar upp. Unnar lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum að Laugar-
vatni 1954 og var í hópi fyrstu
stúdenta er þaðan útskrifuðust.
Prófi frá viðskiptadeild' Háskóla
íslands lauk hann í janúar 1959.
Unnar hefur síSan .starfað hjá
Sambandi íslenzkra sveitarfélaga.
Unnar tók snemma þátt í störf-
um viðvíkjandi félags- og stjórn-
málum. Unnar var blaðamaður hjá
Alþýðublaðinu jafnhliða námi í
háskóla og þingfréttaritari um
hríff.
Ariff 1959, þá nýkominn úr námi
var Unnar Stefánsson í framboði
til Alþingiskosninga í Árnessýslu
af hálfu Alþýffuflokksins. Fylgi
þaff, er Unnar hlaut viff þær kosn-
ingar vakti athygli og þótti hinn
ungi frambjóffandi Alþýffuflokks-
ins hafa staffiff sig hiff bezta þrátt
fyrri þá staffreynd aff Alþýffu-
flokkurinn hefffi ekki boffiff fram
í Amessýlu f kosningunum næstu
á undan og flokkurinn ætti þá viff
ýmsa erfiffleika aff etja.
Haustið 1959 var Unnar Stef-
ánsson valinn í efsta sæti á fram-
boðslista Alþýffuflokksins í Suff-
urlandskjördæmi, og tókst Unnari
aff auka fylgi Alþýðuflokksins til
muna frá því sem samanlagt fylgi
fiokksins hafði verið í einmenn-
ingskjördæmum á Suffurlandi áff-
ur.
Unnar tók sæti á Alþingi sem 1.
varamaffur Alþýffufiokksins áriff
eftir, þá affeins 25 ára gamall. Var
hann þá þriffji yngsti maffur, er
sæti hafffi átt á Alþingi.
Á undanförnum árum hefur Unn
ar átt setu á Alþingi nokkrum
sinnum sem varaþingmaffur og vak
iff þar máls á mörgum merkum
málum og látið mjög aff sér kveöa.
Viff síffustu alþingiskosningar skip
affi Uimar efsta sæti á lista Alþýffu
flokksins í Suðurlandskjördæmi.
Fylgi Alþýðuflokksins viff þær
kosningar jókst um nær 10% á
Suðurlandi.
Þegar ritnefnd Æskulýðssíðunn-
ar kom að máli við Unnar
Stefánsson nú fyrir skömmu og
bað hann að svara nokkrum spurn
ingum varðandi þau mál helzt, er
hann hefur barizt fyrir, tók hann
því vel að vanda.
Spumingunni um það, hvert
hann teldi merkasta umbótamálið,
sem hann hefði borið upp á Al-
þirJgi, svaraði Unnar á þessa leið:
Eftirlit með samtökum
fyrirtækja:
Ef taka skal það mál, er varðar
þjóðarheildina og ég hefi mest
beitt mér fyrir, þá er ekki að efa,
að tilölgur mínar um eftirlit með
samtökum fyrirtækja, bera hæst.
Það er raunar langt síðan ég fór
að hugleiða nauðsyn þess, aff hið
opinbera kæmi á einhverju eftir-
liti, er varnaði því, að fyrirtæki
mynduðu með sér samtök, svokall-
aða hringa, til þess að halda uppi
verði á einstökum vörutegundum
og þjónustu. Til gamans má geta
þess, að einmitt þetta efni valdi
ég til meðferðar í prófritgerð
minni úr viðskiptadeild háskólans.
Eftirlit af hálfu hins opinbera
með samtökum fyrirtækja er eðli-
legt og sjálfsagt hagsmunamál alls
almenninigs. Þetta eftirlit þykir
sjálfsagt í nágrannalöndum okkar
og jafnvel í Bandaríkjunum, landi
auðhringanna. Hefur þess konar
eftirlit lengi verði framkvæmt og
þykir reynast vel. Ég er sannfærð-
ur um að eftirlit þetta eigi fullan
rétt á sér á íslandi og sé ekki hægt
að una við það, að ríkisvaldið og
Alþingi taki þessi mál ekki til með
ferðar til endanlegrar úrlausnar.
Unnar Stefánsson.
Eitt fyrsta verk mitt á Alþingi
sem varamaður var að bera fram
tillögu í þessu efni. Sú tillaga náði
eiígi fram að ganga á því þingi, en
síðar flutti ég ásamt öllum þing-
mönnum Alþýðuflokksins tillögu
til þingsályktunar, þar sem Al-
þingi skorar á ríkisstjómina að
beita sér fyrir setningu löggjafar
um eftirlit með samtökum fyrir-
tækja. Sú tillaga var samþykkt á
Alþingi 1964.
Nýverið hefur svo viðskiptamála
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, til-
kynnt, að ríkisstjórnin hafi ákveð-
ið að beita sér fyrir löggjöf um
þessi mál og verði skipuð nefnd,
er hafi það með höndum að undir-
búa setningu slikrar löggjafar.
Þessari yfirlýsingu viðskipta-
málaráðherra ber að falgna og ég
vona að viðunandi lausn fáist á
máli þessu, sem ég tel mjög mik-
ið hagsmunamál almennings, jafn
vel meira hagsmunamál en fólk
almennt gerir sér grein fyrir. Eft-
irlit með samtökum fyrirtækja er
að mínu áliti alger forsenda þess,
að hægt sé að koma á fót heil-
brigðri samkeppni um eðlilegt
vöruverð til hagsbóta fyrir allan
almenning.
Varðandi sérhagsmunamál mins
kjördæmis vildi ég rétt drepa á
þessi atriði, er ég hefi reynt að
beita mér fyrir.
Öflug héraffsstjórn:
Eitt það málefni, sem verið hef-
ur mér hulgstætt, er efling héraðs-
stjóma og sameining sveitarfélaga.
Tillögu um þetta efni flutti ég á
Alþingi á sínum tima. Þessi tiUaga
náffi því miður ekki samþykki þá,
en varð til þess að vekja umræður
á opinberum vettvangi um þetta
efni. Tillagan bar þó þann árang-
ur, að skömmu síðar skipaði fé-
lagsmálaráðherra nefnd til þess aff
athuga, hvort unnt væri og hvern-
ig framkvæma ætti sameiningu
sveitarfélaga og héraðsstjórna.
Mér var faliff að sitja í þessari
nefnd af hálfu Alþýðuflokksins oig)
var kjörinn ritari hennar. Ég tel
það ótvírætt vera eitt liöfuðverk-
efni dreifbýlisins að mynda öfl-
ugar félagsheildir til sóknar og
varnar varðandi liagsmunamól sín.
i
Landshlutaáætlanir:
Af öðrum hagsmunamálum mínsi
kjördæmis, sem ég hef reynt aff
beita mér fyrir, má nefna, að ég
flutti tillögu á Alþingi þéss efnis
að gert yrffi heildarskipulag fyrir
Suðurlandsundirlendi ásamt franr
kvæmdaáætlun. Þetta er í fyrsta
skipti, mér vitandi, sem sett er
fram hugmyndin um byggðaáætl-
anir hér á landi. Þessari hugmynd
hefur þegar verið hrundið i fram-
kvæmd með samningu svokallaðr-
ar Vestfjarðaáætlunar og undir-
búningi framkvæmdaáætlunar fyr-
ir Norðurland vestanvert. Ég tel
engan vafa leika á því, að þessar
landshlutaáætlanir eru einhver
mikilvægasti ávinningurinn, sem
leitt hefur af þátttöku Alþýðu-
flokksins í ríkisstjóm.
Ég hef reynt eftir föngum aff
kynna mér gerð landshlutaáætlana
erlendis, svo sem í Noregi, og hcf
sótt ráðstefnu og námskeið í Þýzka
landi, þar sem fjallað var um gerff
Frh. á bls. 15.
UNGIR MENN Á A- LISTA
Æskan og landið vill kynna fyrir lesendum sínum eitthvað
af þvi unga fólki sem skipar framboðslista Alþýðuflokks-
ins við komandi Alþingiskosningar.
Þetta unga fólk er úr hópi þeirra mörgu ungu kjósenda,
er styðja vilja Alþýðuflokkinn og efla áhrif hans á með-
ferð þjóðmálá. Undanfarin ár hafa félög og starfshópar
ungs fólks í Alþýðuflokknum eflzt mjög og ungt fólk hefur
haft sívaxandi áhrif á stefnumál og baráttumál Alþýðuflokks
ins. Unga fólkið hefur tekið mjög virkan þátt í flokksstarf-
inu og er þess skemmst að minnast frá síðustu bæjarstjórnar-
kosningum, þegar kosningayinna á kjördegi og öll undirbún-
ingsvinna fyrir kosningarnar var unnin að miklum hluta af
ungu, dugmiklu fólki.
Úrslit bæjarstjórnarkosninganna um land allt og öflugt
og þróttmikið starf unga fólksins í þágu Alþýðuflokksins á
þeim vettvangi sýndu glöggt, að stefna og störf Alþýðuflokks
ins eiga mikinn hljómgrunn meðal ungs fólks.
Þessu trausti ungu kynslóðarinnar hefur Alþýðuflokkurinn
ekki brugðizt. Alþýðuflokkurinn hefur barizt fyrir lækkun kosn
ingaaldurs, auknum opinberum lánum til húsbyggjenda, ný-
skipan menntamála, stórauknum lánum til námsfólks. stuðn-
ingi hins opinbera við íþróttastarfsemi og önnur félagsmál
ungu kynslóðarinnar ásamt fjölmörgum umbótamálum, er
varða sérstaklega hag unga fólksins.
IIIIIIIIIIMtMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIlMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIII
Samband ungra jafnaðarmaiina hefur vakið miklar umræð-
ur um áhugamál ungs fólks í nútíma þjóðfélagi og fengið til
liðs við sig ýmsa unga vinstrimenn og áhugamenn um fé-
lagsmál til að ræða sérstaklega þessi hagsmunamál ungu
kynslóðarinnar. Árangur þeirra umræðna er viðamikil
stefnuskrá, sem vprið hefur í rúmt eitt og háft ár í undir-
búningi. Gætir þar margra merkra nýmæla og er óhætt að
fullyrða, að það verk, sem hér er að unnið og langt er á
veg komið, verður eitt merkásta framlag jafnaðarmanna til
baráttunnar fyrir bættum hag og aukinni velsæld alls al-
mennings á íslandi.
Ungir jafnaðarmenn hafa jafnframt látið mikið að sér
kveða í félags- og framfaramálum utan stjórnmálasamtaka
sinna og unnið þar mikið og gott starf, bæði á opinberum
vettvangi og innan sinna byggðarlaga. Hluti þessa unga
fólks á nú sæti á framboðslistum Alþýðuflokksins um land
allt.
Þetta unga fólk, bæði karlar og konur, eru glæsilegir full-
trúar þeirrar þróttmiklu æsku, er kosið hefur sér það hlut-
skipti að berjast til sigurs fyrir áhugamálum sínum undir
merki Alþýðuflokksins. í komandi Alþingiskosningum mun
hópur ungra, framfarasinnaðra kjósenda því stuðla að efl-
ingu Alþýðuflokksins — KJÓSA ÁBYRGÐ OG ÁRANGUR,
— KJÓSA A-LISTANN.
IIIUIIMIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIHIIIIIIIIIIIMIIIIIIII»MIIIIIIIIIIIIHMIIIIIIIMmilllMI»m*l*iMMIII»IUMIIlMIIU»»llim»IIMII»Mlllft
23. maí 1967 - AtÞÝÐUBLAÐIÐ J
^MIIIllllllllllllllttlIlllllllllltllltllltlllllllltlllllllllllllllllllÍllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllltlllttlIlltllllllllllllllllllltllllllllltlllllllllllllt