Alþýðublaðið - 23.05.1967, Side 14
Leikjanámskeið
Frh. af 11. sí0u.
Gamli golfvöllur.
Leiksvæðið við Hofabæ.
Þriðjudag ,fimmtudaga og laug-
ardaga, kl. 9.30-11.30 og 2-4.
Innritun fer fram á kennslu-
Stöðunum um leið og námskeiðin
hefjast á hverjum stað.
Námskeiðsgjald kr. 25.00 greið-
ist við innritun.
Knattspr.mót
Frh. af 11. síðu.
5. FLOKKUR:
Hafnarfjörður: Haukar — Stjarn-
an 4—0.
Keflavík: UMFK - Grótta 2—0.
Kópavogur: Breiðablik — FH
1—2.
KFK sat yfir í 1. umferð.
4. FLOKKUR:
Hafnarfjörður: FH — Breiðablik
1-1.
Iveflavík: KFK - Haukar 1—2.
Kópavogur: Grótta — UMFK
5-2.
Stjarnan sat yfir í 1. umferð.
3. FLOKKUR:
Hafnarfjörður: Haukar — UMFK
0-2.
Keflavík: KFK — Breiðablik
1—2.
Kópavogur: Stjarnan — FH 0 — 1.
í þriðja flokki er stigakeppni
og hafa UMFK, FH og Breiðablik
2 stig, en KFK, Stjarnan og Hauk-
ar ekkert.
Fjölsóttur fundur
Framhald af 1. síðu.
Reykjavík (Eggert G. Þorsteins-
son var á fundi á Sauðárkróki).
Ræðumenn lögðu á það áherzlu,
að enda þótt Alþýðuflokkurinn
stæði nú málefnalega vel mættu
flokksmenn ekki vera of bjart-
sýnir um góð úrslit kosninganna.
Góður árangur næðist því aðeins
að vel væri unnið. Var gerður
góður rómur að máli ræðumanna.
— Að ræðum þeirra loknum voru
fram. bornar fyrirspurninr. —.
Að lokum mælti Björgvin Guð-
mundsson, formaður Alþýðuflokks
féí. nokkur lokaorð. — Var fund-
urinn í alla staði mjög vel heppn-
aður.
Eldsvoði
Frh. af 1. síðu.
kynni einnig að læsa sig í skála
sem Málningarverksmiðjan Harpa
hefur með að gera, en í honum
var mikið af eldfimu efni, en skáli
þessi er ekki nema í um meters
fjarlægð frá brö'ggunum. Slökkvi-
liðinu tókst þó að verja hann eld
inum með því að breiða segl á
milli, sem síðan var dælt á.
Um eldsupptökin er það að
segja, að þrír menn voru að
vinna um morguninn í ryðvarnar
verkstæðinu. Þarná var arinn,
sem var notaður til að brenna ým-
iss konar drasli, en á gólfinu var
hrúga af olíurökum tvisti. Hefur
neisti að líkindum hrokkið í
þessa lirúgu. Var eldur laus á
svipstundu og fengu mennirnir
ekki við neitt ráðið.
UMFÍ.
Vrh. 11. síðu.
UÍA UMSS UMSK
HSÞ HSH UMFK
UMSE UMSB HSK
Knattspyrna
1. riðill 2. riðill 3. riðill
UÍA USAH UMSB
HSÞ USVH UMSK
UMSE HSS UMFK
UMSS HSH HSK
Undankeppnin fer fram í sumar
í handknattleik og knattspyrnu á
tímabilinu 1. júní —1. september,
en í körfuknattleik eftir áramót !á
tímabilinu 1. janúar—1. marz. Fyr
irkomulag undankeppninnar verð
ur þannig að öll liðin í hverjum
riðli leika saman. Tvö stig verða
gefin fyrir unninn leik en eitt fyr-
ir jafntefli. Verði tvö eða fleiri lið
jöfn, gildir markahlutfall, en
aukaleikur, ef markahlutfall er
einnig jafnt. Allir leikir eiga að
fara fram samkvæmt leikreglum
ÍSÍ. Sérstakir leikstjórar verða
ráðnir til að stjórna hópíþróttun-
um til leiksloka. Verða nöfn þeirra
birt innan tíðar. Framkvæmd und-
ankeppninnar er í höndum við-
komandi héraðssambanda. Ber
þeim að tilkynna leikstj. hvar og
hvenær einstakir leikir fari fram
og senda þeim skýrslu að hverj-
um leik loknum undirritaða af
dómara. Dregið verður um hvaða
lið leika saman í undanúrslitum.
Eiga þeir leikir að fara fram
strax og undankeppni er lokið.
Þau lið, sem þá sigra, keppa til
úrslita á landsmótinu.
Hjartavernd
Frh. af 2. síðu.
Á sl. vetri samþykkti stjórn sam-
takanna að stofna utanfararsjóð
Hjartaverndar, og er sjóðnum ætl
að það hlutverk að styrkja hjarta
í sjúklinga, er þurfa að fara utan
til hjartaaðgerða. Við stofnun
sjóðsins lagði Hjartavernd sjóðn-
um til kr. 1 milljón.
Af framtíðarverkefnum sagði
próf. Sigurður, að næst væru kaup
á bifreið og tækjum til rannsókna
í dreifibýlinu og stofnun endur-
hæfingarstöðvar með sérhæfðu
hjúkrunarliði.
Á fundinum var samþykkt
skipulagsskrá fyrir utanfararsjóð
inn og eftirtaldar konur kosnar í
stjóm hans.
Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri
Ólöf Möller, frú,
Kristjana Helgadóttir, læknir,
Sigurborg Oddsdóttir, frú,
Guðríður Elíasdóttir, frú,
Ingibjörg Ólafsdóttir, hjúkrunar-
kona.
Rósa Jensdóttir, frú.
Á fundinum ræddu læknamir,
Davíð Davíðsson, prófessor, Sig-
urður Samúelsson, prófessor, Ás-
mundur Brekkan, yfirlækni’r og
Nikulás Sigfússoif læknir, um
hjartaverndarmál og svöruðu
spumingum.
Að fundi loknum var farið að
Lágmúla 9, og rannsóknarstöð
samtakanna skoðuð.
í stjóm samtakanna eru nú:
Prófessor Sigurður Samúelsson,
formaður,
Benedikt Gröndal, alþingismaður,
Eðvarð Sigurðsson, alþingismað-
ur,
Sigurður Bjarnason, alþingismað-
ur,
Þórarinn Þórarinsson, alþingis-
maður,
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
Sigurliði Kristjánsson, kaupmað-
ur,
Pétur Benediktsson, bankastjóri,
Sigurtryggur Klemenzsson, banka
stjóri,
Óskar Jónsson, forstjóri, Hafnar-
firði,
Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri
Davið Davíðsson, prófessor,
Ólafur Sigurðsson, yfirlæknir,
Akureyri,
Páll Gíslason, yfirlæknir, Akra-
nesi,
Snorri P. Snorraáon, læknir.
U. Thant
Frh. af 3. síðu.
Góðar heimildir í New York
herma, að U Thant muni reyna að
fá Egypta til að fallast á áfram-
haldandi dvöl friðargæzluliðs SÞ
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Fleiri menn úr egypzka vara-
hernum voru kvaddir til herþjón
ustu í dag. Ferðamönnum hefur
verið bannað að fara til Súez-
skurðar og Port Said. Fjögur til
fimm herfylki munu nú vera á
skurðsvæðinu, að sögn sérfræð-
inga. Margir ungir menn virðast
fagna því að vera kvaddir í her-
inn. Dæmigerð eru ummæli ungs
verzlunarmanns: Ég var orðinn
þreyttur á að bíða og vita ekki
Grein Gylfa
Frh. af 5. síðu.
veittur stuðningur. Þá hefur verið sett sér-
stök löögjöf um stuðning við leiklistarstarf-
semi áhugamanna. Árið áður en þau lög voru
sett, nam styrkur ríkisins til leikfélaga
800,000 kr., cn í fyrra nam hann 1,5 millj.
íslenzkri Sinfóníuhljómsveit hafði verið
komið á fót árið 1951, en hún barðist mjög í
bökkum. Lá við bvað eftir annað, að leggja
yrði starfsemi hennar niður. Árið 1961 var
gerður samningur miíli menntamálaráðuneyt
isins, Ríkisútvarpsins. Reykjavíkurborgar og
Þjóðleikhússins um rekstur sinfóníuhljóm-
14 23. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
sveitarinnar, og hefur hún síðan starfað með
reglulegum hætti og verið undirstaða fjöl-
breytts hljómleikalífs í höfuðstaðnum, trygg-
ing fyrir flutningi lifandi hljómsveitartónlist-
ar í Ríkisútvarpinu, og verður það eflaust
einnig í sjónvarpinu, auk þess sem hún hefur
verið undirstaða óperu- og óperettuflutnings
í Þjóðleikhúsinu. Rekstur sinfóníuhljómsveitar
er dýrt fyrirtæki, en þó held ég, að enginn
vilji í alvöru missa hana, eftir að henni hef-
ur vcrið komið á fót. Merkur þáttur í starf-
semi sinfóníuhljómsveitarinnar eru skólatón-
leikar hennar. Væri raunar æskilegt að koma
þeirri starfsemi í enn fastara horf en nú á
sér stað.
hvað mundi gerast. Ef við verð-
um að berjast, því fyrr því betra.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að egypzk herskip haldi áfram að
sigla um Súezskurð í átt til
Rauðahafs. Flotadeildir á Rauða-
hafi geta sett hafnabann á ís-
raelska hafnarbæinn Eilath.
Ahmed Shukairy, leiðtogi
Frelsishers Palestínu tilkynnti í
dag að aðalstöðvar hersins yrðu
fluttar frá Kairó til Gaza. Góð-
ar heimildir í Bagdad herma, að
Sýrlendingar muni sennilega leyfa
ísraelskum hersveitum að taka
sér stöðu á landamærum Sýrlands
og ísraels, við lilið sýrlenzkra her
manna.
t Washington er sagt, að Banda
ríkjastjórn hafi beðið sovétstjórn
ina um að beita áhrifum sínuua
til að koma í veg fyrír styrjöld
fyrir Miðjarðarhafsbotni. Tyrkir
ogl Persar hafa einnig verið beðn-
ir um að beita áhrifum slnum og
samband er haft við Breta og
Jafnaðarmenn
í Grikklandi
AÞENU. 22. maí (NTB-Reuter) —
Fjögurra manna nefnd frá Al-
þjóðasambandi jafnaðarmanna
kom í dag til Aþenu til að berj-
ast fyrir því að pólitískir fangar
í Grikklandi verði látnir lausir.
Formaður nefndarinnar er Bruno
Pittermann, fv. varakanzlari Aust
urríkis.
Nefndarmenn sögðu við kom-
una til Aþenu að þeir væru þang-
an komnir til að láta í ljós sam-
stöðu Alþjó'ðasambands jafnaðar-
manna með grísku þjóðinni og
heimsækja fangabúðir í Grikk-
landi. En talið er ósennilegt að
nefndarmenn fái að heimsækja
stærstu fangabúðirnar, sem eru á
eynni Jaros. Þar hafa um 5.000
pólitískir fangar verið hafðir í
haldi siðan herinn tók völdin 21.
apríl.
T rúlof unarhringar
Sendum gegn póstkröfu.
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Bursfafell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3.
Siml 3 88 40.
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
Alfjýðublaðsins