Alþýðublaðið - 26.05.1967, Page 1

Alþýðublaðið - 26.05.1967, Page 1
Föstudagur 26. maí 1967 - 48. árg. 123. tbl. - VERÐ 7 KR, Verkfall á kðupskipum Á miðnætti í nótt kom til verkfalls yfirmanna á kaup- skipaflotanum. Nær verkfall- ið til stýrimanna, vélstjóra og loftskeytamanna á öllum skip- nm hins íslenzka kaupskipa- flota. í fyrrakvöld var boðað til sáttafundar með Torfa Hjart- arsyni, sáttasemjlara ríkisins, en sá fundur bar engan árang- ur. Aftur var boðað til sátta- fundar með deiluaðilum í gær dag og hófst hann klukkan 17. Hófst verkfallið á mið- nætti í nótt eins og ákveðið hafði verið, kæmu deiluaðilar sér ekki saman fyrir þann tíma. Nokkur kaupskip voru stödd í Reykjavíkurhöfn í nótt, þegar verkfallið skall á. líá' þar nefna Yatnajökul, Goðafoss og Detti Framhald á 15. síðu á landamærun í Gaza, segja Egypt Egyptar tilkynntu í dag, að ísraelskur varðflokkur hefði reynt að fara yfir landamærin á Gazasvæðinu í nótt, en verið hrakinn á flótta. Talsmaður egypzka hersins sagði, að Egyptar hlytu að líta á þetta sem árásaraðgerð, en í Tel Aviv var fréttin borin til baka og sagt, að enginn fótur væri fyrir henni. Skömmu eftir að Egyptar skýrðu frá þessu atviki, fór U Thant, framkvæmdastjóri SÞ, frá Kairó áleiðis til New York að loknum tveggja daga viðræðum sínum við Nasser forseta og aðra egypzka leiðtoga. Hann kom við í Róm á leiðinni og ræddi þar við Fanfani utanríkisráðherra, sem sagði að viðræðunum loknum, að hann væri hvorki bjartsýnn né JOKLAR SELDIR IIL N-KÚREU Síðastliðinn miðvikudag birti Þjóðviljinn æsifregn undir stórri fyrirsögn um að nú ætti að selja tvö af skipum Jökla hf. til Suð- ur-Kóreu. Átti blaðið varla orð til að lýsa hneykslan sinni á því, að ef til vill ætti annaðhvort þess- ara skipa eftir að bera nafn Syng man Rhee, og fylgdu bollalegging ar í svipuðum dúr. í fréttatilkynningu sem blaðinu barst frá Jöklum hf. í gær segir að vegna f járhagserfiðleika við rekstur hafi félagið neyðzt til að selja tvö skip til Norður-Kóreu. Kaupandi þar er Korea Equip- ment Import Corporation og verða skipin afhent í Póllandi í næsta mánuði. Að líkindum hvín öðruvísi í tálknum ÞjóðViUans eftir þessar upplýsingar, þegar kemur í ljós, að það eru hvítþvegnir Norður- kóreanar, sem kaupa skipin en ekki Bandaríkjaleppar í Suður- Kóreu, eins og blaðið komst að orði. Stendur nú líklega ekki á því að ritstjórar Þjóðviljans leggi blessun sína yfir söluna, þegar í Ijós er komið, að það eru skoðana bræður þeirra sem kaupa. I fréttatilkynningu Jökla hf. segir m.a. á þessa Ieið: Ástæðan til sölu skipanna er fjárhagserfiðleikar við rekstur þeirra. Eins og kunnugt er tók Eimskipafélag íslands hf. að sér flutninga á frystum fiski fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna frá 1. apríl 1965. Þá voru eigi lengur verkefni fyrir skipin hér og hafa þau því síðan verið í flutningum erlendis. íslenzkum aðilum var gefinn Framhald á 14. síðu. svartsýnn með tilliti til ástands ins. Sérfróðir menn í Kairó segja, að U Thant hafi ekki tekizt að fá Nasser forseta til að fallast á tillögur er hann kunni að hafa borið fram um friðsamlega lausn deilunnar. í Tel Aviv ræddu stjórnmálaforingjar og herforingj ar ástandið á fundum í dag, og forseti landsins, Zalman Shazar, ákvað að hætta við heimsókn sína til Kanada, fresta fyrirhug- aðri heimsókn sinni til íslands og halda heimleiðis. □ Satímis létu flaggskip 6. bandaríska flotans, „Littlg Rock“, og sex önnur bandarísk herskip úr höfn í Gaeta og Napoli á í- talíu. Sagt var, að skipin hefðu haldið á æfingar einhvers staðar á Miðjarðarhafi. í 6. flotanum eru 50 herskip, 25.000 menn og 200 flugvélar. og er „Little Rock“ búið eldflaugum. í Kairó er sagt, að fjölskyldur banda- MEIRA UM ÍSRAELS- DEILUNA.. Á BLS. 3 rískra diplómata verði fluttar til Aþenu einhvern næstu daga. □ Stríðsástand í ísrael. í ísrael ríkir hernaðarástand, en lífið' gengur sinn vana gang, þótt umferð sé minni á vegum en venjulega og skrifstofur séu lokaðar. Á götunum stöðvar fólk kunningja sína og spyr hvðrt að styrjöld muni brjótast út. En enginn getur ifevarað. Af opinberi| hálfu er sagt, að afstaða ísraelStjórnar til lokun ar Akabaflóa sé óbrej’tt. Landif muni verja hagsmuni sína á fló- Framhald á 14. síðu. ÁVARP TIL STUÐNINGSMANNA A-LISTANS Á rúmlega 50 ára starfsferli hefur Alþýðuflokkuriim ávallt átt í fjárhagserfiðleikum vegna nauðsynlegrar starfs- semi sinnar. — Flokkurinn hefur stuðzt við fylgi fólks, sem lítið hefur verið aflögufært um fjármuni. — Þetta hefur þó bjargazt með almennri þátttöku stuðningsmanna hans þótt hver hafi þar ekki látið stóra skammta. Nauðsynlegur kosningaundirbúningur hefur á síðari ára- tugum vaxið mjög og krafizt síaukins fjármagns. — Það er á þessu undirbúningsstarfi, sem úrslit kosninganna geta oltið. Þetta gera fjársterkari flokkarnir sér ljóst og spara þess vegna í engu allan tilkostnað. Þessum þætti kosningabar- áttunnar verður ekki mætt á annan veg, en með almennri fjársöfnun. Alþýðuflokkurinn fer þess vegna enn einu sinni bcnarveg til allra stuðningsmanna sinna og velunnara og biður þá, hvern eftir sinni getu. að láta af hendi fé í kosningasjóð flokksins. Fyrir hönd fjáröflunarnefndar munu eftirtaldir aðilar veita fé móttöku: Emelía Samúelsdóttir, sími 13889, og ðL.rifstofa Alþýðuflokksins í Reykjavík, símar 15020 — 13374, Fjáröflunarnefnd Alþýðuflokksins í Reykjavík: Emelía Samúelsdóttir Gylfi Þ. Gíslason. Eggert G. Þorsteinsson. RfKISSTJÓRN fSLANDS HAR ATBURÐINA I GRIKKLAND I sambandi við umræður, sem fram fóru í Evrópuráðinu í Strass- bourg nú í vikunni viðvíkjandi at- burðum þeim, sem nýlega hafa átt sér stað . Grikklandi, þar sem lög- legri lýðræðisstjórn hefur veriö vikið frá með valdi og mannrét-t indi borgaranna takmörkuð, gaf fastafulltrúi Islands hjá Evrópu- ráðinu svofellda yfrlýsingu af liálfu ríkisstjórnar íslands. „íslenzka ríkisstjórnin harmar mjög, að þessir atburðir hafa gerzt, sérstaklega vegna þess, að Grikkland hefir verið skoðað sem vagga lýðræðis, þar sem lýðræðis legir stjórnarhættir hafa verið í heiðri hafðir. Einnig vegna þess, verið á milli landa okkar. og að að náin og góð tengsl hafa jafnan íslendingar virða og meta grísku þjóðina. Islenzka ríkisstjórnin lætur i ljósi þá ósk og von, að lýðræðis- legir stjórnarhættir verði aftur upp teknir hið fýrsta í Grikk- landi, og mannréttindaskrá Evr- ópuráðsins, sem bæði löndin eru aðilar að ásamt öðrum meðlim- um Evrópuráðsins, verði haldin í heiðri.“ (Frá utanríkisráðuneytinu).

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.