Alþýðublaðið - 01.06.1967, Side 2
«rtt!mmitniiitmmt:i7miiHiiirmmtiiiimtiimiiiiiiiimiiifiiitiiitiiiiiiiiiMiimniimniiimiiiiitniiiiiniiiiiiiiiiiiitmiiiiiiimiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiii iiimimmmmmimmiuimmmiiiimiiiiittiiiiiiiiitiiiiiiiitiiitiiiiitiiiiiiiiiiiiiiii
imiiiimmmiiMiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiMt
iiiiiimiiiiiiiimiiiimiiimmmiii
mmimmmmm
Fréttir
í stuttu
mali
New York 31. 5. (NTB-Reuter)
Bandaríkin lögðu í dag' fram
formlega ályktunartiliögu þess
efnis að Öryggisráðið beitti sér
fyrir því, að allir aðilar að
deilunni í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs, tækju á-
skorun U. Thants, en hann
hvetur þessa aðila til þess að
forðast allar aðgerðir, sem geti
aukið spennuna.
Þessi tillaga Bandaríkja-
manna kom á óvænt eftir mikl
ar viðræður við sendinefndir
annarra ríkja í dag.
Tillagan er í þrem liðum.
Þar er m. a. hvatt til þess, að
Öryggisráðið leggist á eitt með
þeim alþjóðlegu öflum, sem
reyna að draga úr spennunni
í löndunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs og sem leita að frið
samlegri og isanngjarnri lausn
— eins og segir í tillögunni.
Moskva 31. 5. (NTB-Reuter)
Sovétstjórnin ihefur tilkynnt
frönsku stjórninni, að stríð-
ið í Víetnam geri það að verk-
um, að erfitt sé að koma á
fjögurra ríkja ráðstefnu um
löndin fyrir botni Miðjarðar-
immmmmii
hafs. Þetta er haft eftir opin- 1
berum aðilum í Moskvu í dag. \
í gær sögðu opinberar heimild É
ir í París, að Sovétstjórnin |
(hefði opinberlega hafnað til- |
lögu de Gaulles þess efnis, að I
iBandaríkin, Stóra-Bretland, =
Frakkland og Sovétríkin ættu \
að koma saman og ræða deilu I
Araba og ísrael. É
Að því er opinberar heimild- \
ir í Moskvu segja, á Sovét- É
stjórnin að ihafa sagt í svari =
sínu, að slík ráðstefna mundi É
ekki vera að skapi Araba og É
bezt væri að bíða átekta og sjá É
hver árangur yrði af umræð- É
um Öryggisráðsins um málið. =
Sovétstjórnin lagði ennfrem É
ur á það áherzlu, að það væri i
erfitt að halda slíka fjórvelda- É
ráðstefnu á sama tíma og i
Bandaríkjamenn væru í árás- É
arstríði í Víet-Nam og ennfrem É
ur var bent lá, að Sovétríkin i
hefðu alltaf verið mótfallin því, |
að stórveldin ættu að láta til i
■sín taka í íþessari deilu Araba É
og ísraelsmanna. i
Tel-Aviv 31. 5. (NTB-Reuter) í
Talið er, að breytingar verði i
gerðar á ísraelsku stjórninni á =
þann hátt, að Moshe Dayan, =
fyrrum landbúnaöarráðh. og \
forseti heráðsins, verði útnefnd i
ur varnarmálaráðherra. Dayan i
leiddi ísraelsmenn í herferð- É
inni gegn Egyptum á Sínaíeyði i
mörkinni árið 1956. Dayan er |
52 ára og- tilheyrir hinum fá- i
menna flokki Davíðs Ben Gur- É
ion, fyrverandi forsætisráðh. |
Mjög er lagt að ísraelsku |
stjórninni heima fyrir að grípa |
til vopna gegn Egyptum. |
lllllllllllllllII11111111111111111111111111111111111111II11111111111111111?!
V y
.
Við opnun sýningarinnar „Homo Legans“. Frá vi ístri: Þýzki ambassadorinn á íslandi, Hennig Thom
sen, Kurt Zier skólastjóri og Gylfi Þ. Gíslason menn .amáiaráöherra.
Sýningin Homo Legens opnuð
í gær klukkan 17 opnaði mennta
málaráðherra Gylfi Þ. Gíslason
merka sýningu í Myndlistar- og
handíðaskóla íslnnds að Skipholti
1. Sýning þessi nefnist HOMO
LEGENS, eða á íslenzku Hinn
lesandi maður. Sýning þessi er
fengin að láni fyrir millgöngu
þýzka sendiráðsins hér á landi frá
Martin-Behaim félaginu í Darm-
stadt í Þýzkalandi.
Á sýningunni eru 110 myndir,
eftirprentanir eftir listaverkum
Ijósmyndir og teikningar, er lýsa
Aldarfjórðungur síðan fyrsta
skurðgrafan kom til íslands
25 ár eru liðin síðan fyrst var
grafið með skurðgröfu Vélasjóðs,
en það var í Garðaflóa við Akra-
nes.
Það var skurðgrafa af gerðinni
Príestman Cub með 8 íb" drag-
skóflu, sem þar hóf störf. Litlu
Norrænt
kennara-
námskeið
Dagana 24.-29. júlí í sumar
verður haldið í Þrándheimi nor-
rænt kennaranámskeið. Margir
Frh. á' 15. síðu.
síðar, eða 25. júní var hafin vinna
með annarri sams kónar gröfu í
Sta'ðarbyggðarmýrum í Eyjafirði.
Á þessum 25 árum hafa verið
grafnir rúmlega 15 millj. lengdar-
metrar af framfærsluskurðum,
sem eru um 62,5 millj. rúmmetra,
þar af 38 millj. m3 með gröfum
Vélasjóðs, eða 60%. Kostnaður
við gröftinn hefur alls orðið um
kr. 260 millj.
Undanfarin 4 ár hafa verið
gerðir 5800 km. af lokræsum með
Jokræsaplógum, sem finnski pró-
fessorinn Pentti Kaitera fann upp
og seldi síðan Vélasjóði frum-
smíðina. Auk þess hefur Vélasjóð-
ur látið gera nokkrar tilraunir
með hreinsun upp úr gömlum
skurðum. Vélasjóður á nú 22 starf
hæfar skurðgröfur auk tveggja
lokræsaplóga. Hlutdeild Vélasjóðs
er þó minni í skurðgreftri en áð-
ur var; var aðeins 25% á sl. ári.
Vélasjóður hefur keypt ný tæki,
en líkur benda til, að ekki muni
nema 10—12 gröfur félagsins
verða starfandi í sumar.
Fyrsta skurðgrafa, sem starf-
rækt var hér á landi, var grafa
Skeiðárveitunnar, sem keypt' var
1919. Hún var 30 tonn á þyngd,
stóð á brú yfir skurðinum, sem
grafinn var, en brúarsporðarnir
hvíldu á' sporbrautum á bökkun-
um. 1926 var byrjað að grafa með
sænskri flotagröfu í Skagafirði
og 1942 kom svo fyrsta eiginlega
grafan. Sá Árni G. Eylands um
kaup á henni. Árið eftir voru
keyptar þrjár gröfur í viðbót og
sí'ðan fjölgaði þeim ár frá ári.
Fyrsti framkvæmdastjóri Véla-
sjóðs var Árni G. Eylands, en nú
verandi framkvæmdastjóri er
Haraldur Árnason.
á skemmtilegan hátt' sambúð
manns og bókar.
Gylfi Þ. Gíslason ræddi í opn-
unarræðu sinni um bækur fyrr og
nú, hlutverk þeirra í fortíð og
nútíð. Taldi hann hlutverk bókar-
innar ekki hafa minnka'ð með tíma
kvikmynda og sjónvarps. Bók er
ætíð vinur, sem ekki bregst.
Kurt Zier skólastjóri Myndlist-
ar- og handíðaskóla íslands hélt
og ræðu við opnun sýningarinnar.
Kvað hann sér það mikil ánægja,
að eiga þess kost að standa að sýn-
ingunni Homo legens á íslandi,
þar sem mikil bóka- og bókmennta
þjóð byggi.
Auk mynda eru á sýningunni
margar íslenzkar og þýzkar bæk-
ur. Getur þar að líta margvísleg;
ar bækur, sem oft eru æði ólíkar
að útliti. Homo legens sýningin
sýnir ekki aðeins, hve náinn vin-
ur bókin er öllum þeim, sem geta
| lesið, heldur einnig fjölbreyttni í
byggingu og útliti.
Homo legens sýningin er í alla
staði forvitnileg og mcrkileg. Hún
á tvímælalaust erindi til allra
þeirra, sem á annað borð dá bæk-
ur.
Sýningin verður opin að Skip-
holti 1 daglega frá' klukkan 3—10
síðdegis frá 1. júní til 10. júní.
París 31. 5. (NTB-Reuter)
Málarinn Pablo Picasso, sem er
meðlimur franska kommúnista-
flokksins, 'hefur ritað undir skjal,
þar sem segir, að varðveita verði
öryggi og sjálfstæði ísrael. Undir
þetta skjal rituðu margir franskir
mennta- og listamenn, þeirra á
meðal rit'höfundurinn Jean-Paul
Sartre. — Franski kommúnista-
flokkurinn hafði áður lýst yfir á-
kveðnum stuðningi við Araba.
AUGLÝSING UM STYRKI
Menntamálaráðuneytið hefur ný
lega auglýst styrki úr Menningar
sjóði Norðurlanda. Árið 1968 hef
ur sjóðurinn til ráðstöfunar fjár_
hæð sem svarar til 18,6 milljóna
íslenzkra króna. Sjóðnum er ætl-
að að styrkja norrænt menning'ar
samstarf á sviði vísinda, skóla-
mála, alþýðufræðslu. bókmennta,
myndlistar, tónlistar, leiklistar,
kvikmynda og annarra listgreina.
Meðal þess, sem til greina kem-
ur að sjóðurinn styrki má nefna:
1. norræn samstarfsverkefni, sem
stofnað er til í eitt skipti, svo
sem sýningar, útgáfu, ráðstefn
ur og námskeið.
2. samstarf, sem efnt er til í
reynsluskyni, enda sé þá
reynslutíminn ákveðinn af
stjórninni,
2 1. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3. samræma nefndarstörf,
4. upplýsingarstarfsemi varðandi
norræna menningu og menning
arsamvinnu.
Styrkir úr sjóðnum eru yfirleitt
ekki veittir til verkefna, er varða
færri en þrjár Norðurlandaþjóðir
sameiginlega.
Umsóknum um styrki til ein-
staklinga er yfirleitt ekki unnt
að sinna.
Þeir, sem sækja um styrki úr
sjóðnum til vísindalegra rann-
sókna. þurfa að hafa í huga, að
styrkir eru yfirleitt því aðeins
veittir til slíkra verkefna, að gert
sé ráð fyrir samstarfi vísinda-
manna frá Noi-ðurlöndum að lausn
þeirra.
Að jafnaði eru ekki veittir
styrkir úr sjóðnum til að halda
Framhald á 15. siBu.