Alþýðublaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 3
 Madame Rosta, jorstöðukona sýningardeildarinnar og Madame Sugar, aðstoðarstúlka hennar. Vðrusýningunni lýkur á sunnudag Rúmlega 20 þúsund manns hafa nú komið á vörusýningu A-Evrópu landanna fimm í Laugardalshöll- inni, en sýningunni lýkur n. k. sunnudag. Blaðamönnum var í gær tooðið að skoða ungversku sýningardeild ina og hitta frú Rosta, sem veitir sýningardeildinni forstöðu. Frú Rosta sagði, að hún væri mjög ánægð með sýninguna, sem er fyrsta vörusýning Ungverja á ís- landi og hefðu mörg fyrirtæki gert sölusamninga við Ungverj- ana. Mesta athygli lá sýningunni 'hefði vakið ungverska vefnaðar- varan, viðleguútbúnaður, álbúsá- höld og veiðibyssur. Hún sagðist einnig vonast til þess, að fleiri ungverskar vörusýningar fylgdu í kjölfar þessarar hér á landi, en Ungverjar nafa árlega vörusýning ar víðs vegar um heim. Ungverska Framhald á 14. síðu. Gamlar stríðs- hetjur í'stjérn Tel Aviv 1. €. CNTB-Reuter) Flokksráð í flokki Levi Eskols, forsætisráðherra ísraels, sendi í dag út yfirlýsingu þess efnis, að flokkurinn mælti eindregið með því, að Moslie Dayan yrði útnefnd ur varnarmálaráðherra. Dayan Ieiddi ísraeismenn í bardaganum við Egypta árið 1956, þégrar ísra- elsmenn báru sigur úr býtum. Dayan tilheyrir hinum fámenna flokki Davids Ben Gurions, fyrr- verandi forsætisráðherra. — Það er talið trúlegt, að aðrir þekktir byltingarforingjar verði falaðir til að taka virkan þátt í endur- skipulaigðri stjórn. Áreiðanlegar heimildir herma, að opinber yfir- lýsing um þetta muni verða birt -innan tíðar, þegar Eskol, forsætis ráð'herra, hefur lokið viðræðum sínum við stjórnmálaleiðtoga. Þær breytingar, sem gerðar verða, miða trúlega í iþá átt, að fleiri hernaðarsérfræðingar komist í stjórnaraðstöðu, en stjórn Eskols ihefur fengið miklar ákúrur heima fyrir fyrir að auðsýna Egyptum linkind. Talið er, að Eskoi muni* útnefna Allon, fyrrum hersihöfð* ingja, sem varaforsætisráðherra, sem 'beri sérstaka ábyrgð á á- kveðnum málum. Allon er þekkt stríðshetja frtá Palestínustríðinu. Þyrlum flogið yfir höfiÖ París 1. 6. (NTB-Reuter) Tvær amerískar þyrlur lentu í dag á Bourget-flugvelli við París eftir velheppnaða fcrð yfir At- lantsliaf án millilendinga. Þetta er í fyrsta sinn, sem slík ferð er farin á þyrlum, án þess að nokk- urs staðar væri lent á leiðinni. SANDGERÐI AlþýSuflokksfélag SandgerSis heldur almennan félagsfund laugar- daginn 3. júní kl. 4 síðdegis í Félagsheimilinu. Jón Ármann Héðinsson viðskiptafræðingur og Kari Steinar Guðna son kennari flytja ávarp. Síðan verða frjálsar umræður og kaffiveitingar. STJÓRHIN. A-listinn heldur almennan kjósendafund í Félagsheimili Kópavogs, veitinga sal, sunnudaginn 4. júní kl. 4 síðdegis. Ræður flytja 5 efstu menn á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. Að loknum ræðum frummælenda verða frjálsar umræður. Jón H. Guðmundsson skólastjóri verður fundarstjóri á fundinum. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Emil Jónsson. Ragnar Guðleifsson. Stefán Júlíusson. Karl Steinar Guðnason. Jón Árm. Héðinsson. Jón H. Guðmundsson. 2. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.